Oddfellowar ei fyr'ir gýg
Lag Kálfar tveir í kúamynd
Oddfellowar ei fyr'ir gýgunnu sigur frækinn.Baula kýr við Barónsstígbarnaskóli við Lækinn.
Heimildir og samhengi
E. Ehlers, læknir, kynnti sér heilbrigðisástand á Íslandi og birti niðurstöður m.a. með litmyndum, þeim fyrstu á Íslandi, af holdsveikum, og þótti það vega að virðingu þjóðarinnar (1876, 1905, 1924). En danskir Oddfellowar söfnuðu fé og gáfu 60 rúma holdsveikraspítala sem byggður var í Laugarnesi, læknir Sæmundur Bjarnhéðinsson, bróðir Bríetar (1875, 1887).
AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa) :
,,Í Laugarnesi var starfræktur holdsveikraspítali á árunum
1898-1943Wikipedia (opnast í nýjum flipa). Spítalinn var þá stærsta hús sem hafði verið reist á Íslandi og hann er stærsta timburhús sem verið hefur hér á landi. Hann kostaði 220.000,oo danskar krónur, skv. þáverandi gengi. Karlmaður fékk þá 25 aura á tímann við uppskipunarvinnu segir Þórarinn Olgeirsson, Sókn á sæ og storð, bls. 38.
Holdsveikraspítalinn var gerður fyrir 60 sjúkrarúm, en talið er að um aldamótin 1900Wikipedia (opnast í nýjum flipa) hafi um 237 verið holdsveikir á Íslandi. Þegar holdsveikum fækkaði var hluti byggingarinnar tekinn til annarra nota.
Spítalabyggingin brann til grunna 7. apríl 1943Wikipedia (opnast í nýjum flipa). Hernámsliðið hafði þá yfirtekið spítalann. Þeir fáu holdsveikisjúklingar sem enn voru á landinu höfðu nokkru áður verið fluttir á KópavogshæliWikipedia (opnast í nýjum flipa)”. Fyrir tryggingaféð var reist Fávitahælið í Kópavogi.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Lúkas segir í 17. kafla, 11. versi frá 10 holdsveikum mönnum sem Jesús læknaði. Einn þakkaði fyri. Þökkuðum við fyrir spítalann sem sem okkur var gefinn og útrýmdi sjúkdómnum?
Langafi þess sem hér rirtar lést þar 1901. Þakkar þó fyrir hér með í orði þótt seint sé.
Þremur árum síðar gáfu kaþólskar nunnur annað viðlíka stórt sjúkrahús, Landakotsspítala, og ráku hann sjálfar í sjálfboðavinnu þótt væru lærðir hjúkrunarfræðingar.
Stefán Einarsson: Skáldaþing, bls. 295: ,,...þegar það kom til orða að byggja holdsveikum mönnum spítala á Íslandi, þá brá Jón (Sveinsson, Nonni) við og leitaði fjárframlaga hjá efnuðum mönnum víða um lönd. ...Söfnuðust inn um 30.000 frankar, en af því að það fé var ekki nægt, varð að fresta framkvæmdum. ...en fjársöfnun Jóns rann þá í sjóð þann er síðar var varið til Landakotsspítalans".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Sama ár, 1901, byrja Frakkar að reisa hér spítala og urðu fjórir.
Á eftirfarandi slóð er grein um holdsveikraspítalann sem birtist í Morgunblaðinu 27. apríl 1969. M.a. segir yfirhjúkrunarkona frá:
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Árið 1872 gaf Friðrik Gudmann, danskur kaupmaður, Akureyrarbæ hús sitt þar og innréttaði sem spítala
Það dróst til 1930 að Íslenska ríkið reisti fullkomið sjúkrahús í Reykjavík, Landsspítalann við Hringbraut. Að vísu var Farsóttarhúsið að Þingholtsstræti 25 sjúkraskýli og læknaskóli frá 1884 til 1910.
Sjúkrahúsið á Ísafirði kom 1925.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Alþingi reisti hús yfir sig 1881 sem kostaði þriðjung fjárlaganna.
Boilleau, franskur baron, reisir 50 kúa fjós við Barónsstíg, nú verslun.
Guðjón Friðriksson, Einar Benediktsson, I, 244: ,,Baróninn fær reglulegar peningasendingar ... það er arður af fasteignum og hlutabréfum, og fær þá hugmynd að reisa fyrirmyndarfjós í Reykjavík. Ætlunin er að heyja á Hvítárvöllum og flytja heyið á milli með gufubát”.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Barnaskóli reis við Tjörnina og flutti þangað úr steinhúsinu á horni Pósthússtrætis og Hafnarstrætis, sem varð pósthús og síðar lögreglustöð, byggt 1883.
Frá 1863 til 1907 réðu foreldrar hvort börn þeirra (10 ára) sæktu skóla og greiddu enda fyrir. Árið 1870 var það fimmta hvert barn. Kngl. tilskipun um að börnum skuli kennt að skrifa og reiknina var gefin út 1880.
Um (ó)hreinlæti og illdeilur í skólanum:
sjá, Saga Reykjavíkur, Sbr. Bærinn vaknar frá bls. 385MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Aðrar heimildir: Guðmundur G. Hagalín: Í fararbroddi, ævisaga, Haraldar Böðvarssonar, bls. 159;
Gunnar Karlsson: Saga Íslands X, 182.
Um Boilleau barón: Harpa minninganna, ævisaga Árna Thorsteinssonar tónskálds, bls. 261-2.