Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1760
1760
1760

Aldrei kunni Inga á nál

Hljóðbrot0:00

Lag Ó, fögur er vor fósturjörð

AAldrei kunni Inga á nálsvo ekki fær hún pokakemur hans í staðinn stálog strákar yfir moka.Á liðinni öld gat leitt til bálsað letra hjá sér rúniren nú skal konur höggva á hálshörpokarnir búnir.

Glúmur Gylfason · 1760

Heimildir og samhengi

Farið í fyrsta skipti eftir þeirri fororðningu kóngs, að dauðadæmdum konum skyldi veitt sú linun á refsingu, að yrðu hálshöggnar, en ekki drekkt.
Vorið 1760 var hálshöggvin Ingibjörg Sölvadóttir í Eyjafjarðarsýslu fyrir dulsmál, en Ingibjörg Jónsdóttir í Skagafjarðarsýslu 1792.

Vísað er til Guðrúnar Valdadóttur 1754hér að framan, sem saumaði pokann sjálf sem henni var stungið í til drekkingar.

Heimildir og tilvísanir:
Einar Guðmundsson: Þjóðsögur og hættir. Útg. Leiftur, 1932-1947
Inga Huld Hákonardóttir: ,,Fjarri hlýju hjónasængur” bls. 214.

Sjá: Már Jónsson: Blóðskömm á Íslandi, bls. 216-221.

Myndir

Einnig frá árinu 1760

  • Biskup vegur, mælir, metur:
  • Kóngur hefur oss lærðan léð
← 1760Biskup vegur, mælir, metur:1760 →Kóngur hefur oss lærðan léð