Skriða á heiði Rafns er rann
Lag Fór ég loks að finna kóng - Bj.Þ. 836
Skriða á heiði Rafns er rannvarð Ragnheiður Pálsdóttir ekkjaen Sveinn í Holti við það vannað varð ei köld hans rekkja
Heimildir og samhengi
Gengu í hjónaband Ragnheiður Pálsdóttir og séra Sveinn Símonarson, Holti, Önundarfirði.
Séra Sveinn hafði misst fyrri konu sína, Þórunni Björnsdóttur 1595 eða fyrr, sbr. Gils Guðmundsson, sem ritar um Svein í ,,Frá ystu nesjum" I, 121. Björn, fyrri tengdafaðir sr. Sveins, var sonur hstj. Hannesar Eggertssonar á Núpi í Dýrafirði.
Fyrri maður Ragnheiðar, sm. Gissur Þorláksson á Núpi í Dýrafirði, fórst í snjóflóði á Rafnseyrarheiði 1597.
Faðir Gissurar var Þorlákur sm. Núpi Einarssonar b. Hrauni í Landbroti. Einar var sonur Sigvalda langalífs Gunnarssonar og Þuríðar Einarsdóttur hstj. Þorleifssonar, Skarði, bróður Björns bónda, hstj. sem enskir drápu á Rifi 1467. Sigvaldi var um 2,30 m. á hæð . (Jóhann Pétursson, Svarfdælingur, var 2,42 m.). Sjá 1569, 1652.
Móðir Gissurar var Guðrún Hannesdóttir hstj. Núpi, Eggertssonar riddara í Víkinni austur í Noregi.
Frá fyrra hjónabandi Ragnheiðar Pálsdóttur, þ.e., með Gissuri Þorlákssyni, eru ættir. Jón, sm. Núpi, sonur þeirra, var faðir Torfa prests í Gaulverjabæ, sem varð einkaerfingi hálfbróður síns, Brynjólfs Sveinssonar, Skálholtsbiskups.
Dóttir Torfa, Ragnheiður, kemur við sögu1661 og 1670.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Vefurvegagerdin.is (opnast í nýjum flipa)
Snjóflóð:MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)