Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1600
1600
1600

Í Hvítá hjá Skálholti skrímsli sást

Hljóðbrot0:00

Lag Á kaupmanninn, rétt við búðarborðið

ÍÍ Hvítá hjá Skálholti skrímsli sástskjótast á yfirborðið.Vill Lagarfljótsormur í slagtog slást?Sleip gætu saman orðið.

Glúmur Gylfason · 1600

Heimildir og samhengi

Annálsbrot Skálholtsbiskups, Gísla Oddssonar, V, bls. 493:
,,Í sama mánuði (des.) sást hinn geysistóri ormur í Lagarfljóti og stóðu þrjár kryppur hans upp úr vatninu. Einnig líkt skrímsli á ferjustaðnum yfir Hvítá hjá Skálholti".

Annálar geta orms í Lagarfljóti 1344, 1600, 1607, 1618, 1669, 1749, 1750 og margoft síðan, einkum á haustin eftir lauffall í skóginum mikla.
Einnig nefnir Fitjaannáll II, 94 skötuskrýmsli í Leginum.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Að skrímsli hafist við í Hvítá hjá Iðu staðfestir heimamaður, Bjarni Harðarson, nú rithöfundur á Selfossi, svo sem lesa má í bók hans, ,,Í skugga Drottins", útg. 2017.
Í Árnesingi, Sögufélags Árnesinga, riti II
árið 1992 hefur Bjarni þetta að segja um kynjaveru í Hvítá við Laugarás á bls. 172: ,,Ólafur Einarsson sagði mér af skötu sem synti upp á móti straumi ...var það eitt sinn er Helgastaðabóndi ferjaði hann yfir ána snemma vors að þeir sáu kvikindi þetta. Ólafur bað ferjumann að nema staðar sem hann og gerir og gæta þeir að skepnunni, sem leit út til að sjá sem marglit skata sem syndir upp á rönd, á móti straumi. Jakaruðningur var í ánni. Kom nú í ljós að skatan var skítugur jaki sem vegna óhreinindanna var þyngri öðru megin og reis þess vegna upp á rönd. Vegna lögunnar sinnar og þess hvernig jakinn sneri náði straumurinn litlu taki á honum og hann bar því mun hægar niður ána en aðra jaka og sýndist þess vegna fara á móti straumi".
Hvítá hefur þrisvar þorrið á hraunbotni við Hestfjall, 1594, 1702 og 1943, sjá þar, og kenndu sumir þorstlátu skrímsli.

Um skrímsli í Skorradalsvatni ritrar Kristleifur Þorsteinsson, Úr byggðum Borgarfjarðar I, bls. 48: ,,Heyrði ég Elínu í Hvammi lýsa ormi sem lægi í Skorradalsvatni, og hún sagðist sjá við og við í vatninu og svo glöggt, að um missýningu gæti ekki verið að ræða. Ormur þessi dró sig í hnipur annað veifið og skaut þá upp kryppum sem urðu stundum þrjár og hver þeirra jafnhá hæstu bæjarburstum. Ormur þessi lengdist ár frá ári og myndi að lokum ná eftir endilöngu Skorradalsvatni".

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1600

  • 16. öld - yfirlit A
  • Skriða á heiði Rafns er rann
  • Með bjórglas einn við bar ég sit
← 1600Skriða á heiði Rafns er rann1600 →Með bjórglas einn við bar ég sit