Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1661
1661
1661

Margt talað er í Tungunum

Hljóðbrot0:00

Lag Við erum tvær úr Tungunum

MMargt talað er í Tungunumum tignar hefðarfrúrmeð áhyggjur af ungunumog ekki svæfu dúrer bera fór á bungunum- bráður Daði og klúr -og litla lofgjörð sungu' h'onumer lét sig Ragnheiður úr. .

En þó að auminginn frá Einarsnesiekki standi á löppunumog engan pistil yfir lesiÓlafsvallaköppunumvoru þeir til saka sóttirog sálar búið tjónen töf varð á að Torfadóttirtaumi kæmi á Jón.

Glúmur Gylfason · 1661

Heimildir og samhengi

Í Skálholti urðu tvær náskyldar Ragnheiðar óléttar fyrr en gott þótti. Ragnheiður Brynjófsdóttir biskups og Margrétar Halldórsdóttur lögmanns varð þunguð 1661 af völdum sr. Daða Halldórssonar, en ~1670: Ragnheiður, dóttir þeirra Torfa Jónssonar, prófasts í Gaulverjabæ, og Sigríðar Halldórsdóttur, systur fyrrnefndrar Margrétar, af völdum Jóns skólasveins, Sigurðssonar lögmanns Jónssonar í Einarsnesi. Sjá nánar 1670.

Ragnheiðarnar voru því systradætur en feður þeirra að 1. og 2.
Jón, faðir séra Torfa, var hálfbróðir Brynjólfs biskups Sveinssonar. Ragnheiðarnafnið því sótt til sömu Ragnheiðarinnar Pálsdóttur, Staðarhóls-Páls.

Sagnabrot Helga í Hólum, Sunnlenska bókaútgáfan, 2009, fjalla um mál Ragnheiðar Torfadóttur, bls. 91.
Úrdráttur: Ragnheiður varð til þrætu þeim Lofti dómkirkjupresti Jósepssyni og Jóni Sigurðssyni. Flog nokkur og andvökur komu þá að Jóni. Hugðu menn þegar væri af galdri og eignuðu Lofti og Skafta bróður hans, sem var skólasveinn á staðnum. Höfðu þeir hótað Jóni nokkuð svo og sagði Jón að prestur hefði fengið sér stafi nokkra. Loftur var settur frá embætti og varð að fara frá Skálholti svo og bróðir hans, Skafti. Þeir bræður voru synir séra Jóseps Loftssonar á Ólafsvöllum, er var tveggja manna maki, sem vaðið hafði Hvítá hjá Þengilseyri, fulla af íshroða, og hakað sig áfram með járnstaf. Lengi þótti ,,kunnátta” og kraftar fylgja ætt bræðranna. Um son Skafta, Þorleif, sjá 1735og enn fremur 1827, Kambránsmenn.

Ólánið elti Loft allt til elli, en prestaskortur eftir bóluna 1707 varð til þess að hann fékk sitt fyrra embætti aftur síðustu starfsárin. Kynni Jóns og Ragnheiðar báru forboðinn ávöxt og tók Brynjólfur biskup ekki í mál að þau fengju að giftast og máttu bíða þar til hann féll frá 1675.
Tilvísanir: Árb. Espólíns, Annálar 1400-1800, Ísl. æviskrár.

Í Manni og konu lætur Jón Thoroddsen Hallvarð Hallsson fá Agli meðhjálparasyni, Gríms, galdrastaf sem færi honum ástir Sigrúnar í Hlíð komist hann undir iljar hennar. Sjá 1877.

Páll E.ggert Ólason: Saga Íslendinga V, 370: ,,...hjá byskupi var Daði fram á vor 1661, veitti jafnvel tilsögn dóttur byskups. Þó hafði hann... um 1660-1 orðið sekur um barneignarbrot. ...En þá bar það við 15. febr. 1662, að hann eignaðist aftur barn í lausaleik með Ragnheiði, dóttur Brynjólfs byskups".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1661

  • Ragnheiður því ráði tók
← 1661Ragnheiður því ráði tók1662 →Brottrekstri Torfa Bjálki rifti