Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1662
1662
1662

Brottrekstri Torfa Bjálki rifti

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í draumalndi

BBrottrekstri Torfa Bjálki riftibjó fyrir sig í haginnkauða vissi að kippa þyrftií Kópavog einn daginn.Bjálka reyndist bærilegurbrugðust ekki fundirhvergi sýndist Torfi tregurtil að skrifa undir.

Alþing á Þingvöllum, heilagt og hátt:hengingar, drekking, logisvo Alþingishátíð víst hefði eins mátthalda í Kópavogiþví þar gerðu Bjelke og Brynjólfur sáttsem bætti stjórnarhættien látið að því liggja fláttað lögmann Árna grætti.

Herluf Daa á bak og burtnú Bjelke hér með dátaen ekki hefði Árni þurfteinveldið að gráta.

Umbætur með einveldi:​

Hæstiréttur fyrir Herradag​

hreindýr og lagadeild ​

landsnefndir og læknir​

leiðbeinendur um landbúnað​

landfógeti, amtmenn - framkvæmdavald​

strandmælingar og steinhús​

Innréttingar og uppsátursvindur​

rannsóknarleiðangrar​

veðurathuganir og vefstólar ​

manntal og jarðabók.

Glúmur Gylfason · 1662

Heimildir og samhengi

Fyrir milligöngu sonar síns, Þormóðs, sagnaritara kóngs, fékk Torfi Erlendsson Árnessýslu sér veitta aftur 27. mars um hendur hm. Bjelke, þ.e., í tæka tíð svo skrifað gæti undir einveldisyfirlýsinguna í Kópavogi. Sjá forsögu Torfa í þessu sambandi við 1644 og 1660.
Til Kópavogs vildi kóngur, Friðrik II., flytja Alþingi1574, sjá þar.

Þriðja vísan skoðist í samhengi við1618, þar sem Árni Oddsson (biskups Einarssonar) er ofurhetja Fitjaannáls á kostnað hirðstjórans Herluf Daa, en 1662 grátandi fórnarlamb hirðstjórans Henrik Bjelke í sögubókum. Hvoru tveggja hafa sagnfróðir nú snúið á hvolf.

Einvaldsfyrirkomulagið reyndist betur en kjörveldi aðalsins. Stjórnkerfið varð skilvirkara og réttlátara þegar það loks komst í framkvæmd. Um það segir Þorbergur Hjalti Jónsson í Skógræktarritinu 2014:
,,Í sögunni hefur oft verið litið á það sem óhappaverk. Vandamál Íslendinga stöfuðu ekki af einveldinu heldur af verslunareinokuninni og innlendu kúgunarkerfi vistarbands og ótryggrar landleigu til eins árs í senn. Það er svo annað mál að einveldi var ekki nægt vald til að breyta skipan mála á Íslandi".

Sbr. Arnór Sigurjónsson í formála Vestfirðingasögu: ,,Þannig var víða á þessum öldum, að almenningur var nær því að vera búfé höfðingjanna en menn".

Í sögu Odds Sigurðssonar segir Jón Aðils að íslenskir embættismenn hafi ekki áttað sig á þeirri breytingu að rétt lög, efnisleg rök og sannanir skyldu nú gilda í stað geðþóttaákvarðana. Sbr. þegar Páll Vídalín bað am. Fuhrmann að reka lm. Odd Sigurðsson þegar í stað með sama hætti og Oddur hafði sett hann af 1713.
Í stað Herradags aðalsmanna, einusinni (til tvisvar) á ári, viku eftir hvítasunnu, Vefurdenstoredanske.lex.dk (opnast í nýjum flipa)
kom nú
Hæstiréttur fyrir Herradag,
hreindýr og lagadeild
Innréttingar, uppsátursvindur
landsnefndir og lestarkver
rannsóknarleiðangrar, ráðgjafarþing
strandmælingar og steinhús
veðurathuganir, vefstólar
Vísindafélag og rokkar.

og fleira sem seint hefði orðið ef mafíukerfi danska aðalsins hefði haft sömu völd og áður.
Grátur íslenskrar yfirstéttar - lm. Árna Oddssonar - sem líklega var hvergi nema í kennslubók, hefði verið sama eðlis og harmur danska aðalsins, sem missti völd til borgarastéttarinnar. (Sjá 1665).
Jafnvel Íslandssaga Jónasar, sem grætur völd aðalsins, hefur kaflaskil með feitu letri ,,II. Fjötrarnir rakna", þegar breytinganna verður loks vart hér eftir aldamótin 1700.

Bjelke var mútað svo að engu yrði breytt hér á landi á meðan hann lifði. Það urðu 20 ár og þá fyrst breyttist fyrirkomulag landsstjórnar hér, en lengur var við höfuðskepnur, eld, ís, afla- og gæftaleysi, kláðaveirur og umrfam allt, íslenska eiginhagsmunaseggi að kljást, sjá 1701 til 1727.

Hér fer á eftir lýsing Sverris Kristjánssonar á þeim íslensku valdsmönnum sem á fyrsta þriðjungi 18. aldar fengu framkvæmdavaldið í hendur:
Með vorskipum, bls. 39: ,,Á þessum árum 18. aldar gengur ekki á öðru en stefnum og gagnstefnum, dómum í héraði, í lögréttu, í yfirrétti og venjulega linnir ekki fyrr en hæstiréttur í Kaupmannahöfn kveður upp úrslitadóminn. Í Danmörku verða Íslendingar á þessum árum ekki frægir fyrir neitt nema málaferli sín og það svo mjög að mörgum háttsettum Dönum blöskrar þessi endalausu réttarhöld og málaflækjur. Gyldenlöve stiftamtmaður hafði miklar áhyggjur af málaþrasi Íslendinga og taldi jafnvel að eyðast mundi land og þegnar, ef svona héldi áfram. En lögkrókar og lagarefjar voru eins og sýklar í blóði íslenskra höfðingja og valdsmanna, og þeir héldu áfram að sigla Íslandshaf með málskjöl sín og misgilda sjóði ríkisdala til þess að ná rétti sínum á æðsta dómþingi í Kaupmannahöfn".

1618 sendi kóngur tvo rannsóknardómara til alþingis, Jörgen Vind og Friðrik Friis til þess að reyna að leysa flækjurnar, en hættu störfum þegar lm. Jón Sigurðsson, - sem þeir höfðu sett af - stóð þá að ólögum, sbr. Benedikt Gíslason frá Hofteigi, Fólk og saga, bls. 22.

Vilhjálmur Þ. Gíslason lýsir við 1910 svipuðu ástandi að fenginni heimastjórn.

Þorbergur Jónsson: ,,Ríkisráðsfræði (einveldisfyrirkomulag) hafnaði þrælkun alþýðunnar og var í hrópandi andstöðu við lénskerfið. Í því var alþýðan þrælkuð, nánast réttlaus, átthagabundin og haldið frá tækifærum til persónulegs þroska".
Þetta er í samræmi við formála Jóns Helgasonar að Öldinni sautjándu, er segir ,,að hvergi bólaði á þeim umbótahug sem einkenndi 18. öldina”.

Þetta jákvæða viðhorf til stjórnbreytingarinnar 1662 / 1688 kom fram á Hugvísindaþingi HÍ í Árnagarði 9. mars 2019.

Axel Kristinsson, Hnignun, hvaða hnignun? bls. 193: ,,Íslenskt samfélag einkenndist af miklu veldi höfðingja og verndarkerfi þeirra (mafía) ...Styrking ríkisvaldsins hefur líklega gegnt lykilhlutverki í nútímavæðingu landsins”. (1574).

Fyrir 1980 var önnur skoðun ríkjandi:
Páll Eggert Ólason, Saga Íslendinga,V, 155 (ritað fyrir 1942): ,,Var þetta (einveldið) að ýmsu leyti umbót í þessum löndum (Noregi og Danmörk) frá því sem verið hafði; allir urðu þar með jafnar settir. Hér á landi veik þessu við á allt annan veg. Stéttamun mátti hér nálega engan telja. Allt var ein stétt, bændur. ...Það var því öldungis þarflaust og algerlega til ills að reyna til þess að koma á einveldi hér á landi".
Á Söguþingi 1997 las Harald Gustafsson þessa ofanrituðu tilvitnun og sagði: ,,Markmið þessarar skilgreiningar Páls Eggerts er auðvitað að sýna fram á að Íslendingar hafa verið ein heild gagnvart Dönum, (Ráðstefnurit II, bls. 109). HG segir þar og að söguskoðun þjóðernisrómantíkurinnar sé fyrir löngu horfin úr íslenskri sagnfræði, en neðanmáls segir að utan fræðanna lifi þó þessi söguskoðun góðu lífi og vísað í Morgunblaðsgrein um Kalmarsambandið 600 ára frá 23. maí 1997, bls. 38,
A.m.k. eftir ~1980 kveður við nýjan tón hjá sagnfræðingum.

Fyrrnefnda skoðun Páls Eggerts Ólasonar: ,,stéttamun má nálega engan telja" skyldi skoða í ljósi þess sem segir á bls. 243 í ,,Ástand Íslands um 1700", um jarðir í einkaeign: ,,89% heimila áttu enga jarðeign ...Ríkasta 1% heimila átti átti 57% og ríkustu 10% áttu 99% jarðeigna" (í einkaeigu).

Ástand Íslands um 1700, bls. 242: ,,...hafði Ísland sérstöðu að því leyti að stétt stórjarðeigenda kom í stað aðals".
Fulltrúar þeirrar stéttar óttuðust um sinn hag í Kópavogi 1662 og mútuðu H. Bjælke svo engu yrði breytt um hans daga. Þeir sem rituðu Íslandssögu langt fram eftir 20. öld töluðu þeirra máli þegar fjölluðu um Kópavogsfundinn.
Þarna, og næstu 100 ár áttu 96% húsráðenda ekki með sig sjálfir, en voru leiguliðar, hjáleigubændur, þurrabúðarmenn eða húsmenn. (Ástand Íslands um 1700, bls. 119).

Ástand Íslands um 1700, bls. 284: ,,Valdakjarninn hafði eftir sem áður allsjálfstæða stöðu gagvart miðstjórnarvaldinu í Kaupmannahöfn og gat að miklu leyti mótað réttarframkvæmd og dómsvald eftir sínu höfði, stundum án vitundar og jafnvel í óþökk stjórnarinnar í Kaupmannahöfn."

Á þessu nýlega myndbandi kemur fyrri söguskoðunin fram (smella á):
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Sjá og1930

Guðmundur Hálfdánarson í Heimtur 2009, bls. 155: ,,...þjóðernissinnuð viðhorf eins og boðuð voru í Íslandssögu Jónasar frá Hriflu hafi blásið Íslendingum kapp í kinn á mikilvægum tímamótum í sögu landsins og hún hafi á þann hátt ýtt undir framtak þeirra og dug.
Á hinn bóginn hefur verið bent á, að löngu tímabært væri að endurmeta þessa söguskoðun”.

Í Íslandssögu Jónasar er börnum innrætt þjóðernistilfinning þegar sagan stendur með flekklausum forfeðrum þeirra, sem áttu í höggi við vonda útlendinga svo sem Dani og Tyrki, sbr. 1914. Þannig varð Íslandssagan við hæfi barna.

Helgi Þorláksson, Á sögustöðum, bls. 65: ,,Um 1970 var hljómgrunnur hérlendis fyrir að heyra hvernig Íslendingar hefðu kúgað Íslendinga".

,,Andstaðan (bisk. Brynjólfs og lm. Árna) hefur e.t.v. stafað af því að hér höfðu fáar ættir komist til auðs og valda í umróti siðaskiptanna, fengið klaustur, sýslur og jarðaumboð að launum fyrir fylgi sitt við konung. ...Íslensku embættismennirnir ...sáu um að vernda hagsmuni höfðingjastéttarinnar. Nú voru þeir hræddir um að breytingar væru í vændum". (Árni Daníel Júlíusson - Jón Ólafur Ísberg: ,,Aldir bændasamfélagsins", bls. 55").

Sigurður Líndal í Ráðstefnuriti ll, Íslenska söguþingsins 1997, bls. 343:
,,Með formlegum aðskilnaði dómsvalds og framkvæmdavalds 1. júlí 1992 má segja að einveldisskipan væri endanlega afnumin á Íslandi".

Flugelda fyrst getið á Íslandi þegar einveldinu var fagnað í Kópavogi með flugeldasýningu og fallbyssuskotum.
Næsta flugeldasýning á Þingvöllum 1874.

Myndir

← 1661Margt talað er í Tungunum1663 →Corfiz Ulfeldts í Kaupinhafn