Á Mosfellsheiði hríðin ær
Lesið:
Á Mosfellsheiði hríðin ærhanda sér ei skilkörlum frjósa fingur, tærfárviðris í byl.
Heimildir og samhengi
Þorsteinn frá Hamri: Ætternisstapi og 18 vermenn, bls. 54 - 62: ,,Mörgum er kunnur sá sviplegi atburður er varð á Mosfellsheiði 8. marz 1857, er 6 vermenn úr Laugardal og Biskupstungum kól þar til bana í ofsabyl, en 8 björguðust við illan leik að Gullbringum í Mosfellsdal, sumir skemmdir til örkumla ævilangt".
Tilvísanir: Öldin sem leið; Séra Magnús Helgason, Þjóðfræðasafnið Huld; Prentuð frásögn Guðmundar Pálssonar á Hjálmsstöðum, sem var með í förinni.
Í Þykkskinnu, Helga Hannessonar. sem Sunnlenska bókaútgáfan, Selfossi (Bjarni Harðarson), gaf út 2003, er á bls. 182 þáttur af Jónannesi Lund ankota (1801-1863), sem reisti nýbýlið Gullbringur þetta ár og varð gæfumaður þegar ,,hann varð að liði langhröktum skaðkölnum Árnesingum, sem lágu úti á Mosfellsheiði, í aftaka mannskaðabyl. Ólíklegt er að þeir allir er björguðust hefðu komist lifandi af heiðinni ef Bringur hefðu ekki verið í byggð. Nokkra menn, rammvillta og nálega örmagna, leitaði Jóhannes uppi og kom þeim heim til sín. Hann þótti þann dag vera gæfumaður, en ókunnnugt er um flest önnur happaspor hans".
Lokaorðin mega vísa til þess sem áður er sagt um Jóhannes Lund, þar sem hann er kallaður kvennamaður og beggja handa járn. Þrjú dæmi nefnd þar sem menn vildu ekki gefa honum dætur sínar enda girndarráð. Sr. Sigurður Sigurðsson í Guttormshaga: ,,Þótt ég ætti tuttugu dætur gæfi ég þér enga þeirra". Annar svaraði: ,,Gott er veðrið". Þá sem bjó með honum í Gullbringum hafði hann numið á brott.
,,Jóhannes eignaðist elsta barn sitt með ungri borgfirskri bóndadóttur tuttugu og þriggja ára gamall. Það var Eyjólfur skáld og bóndi í Hvammi í Hvítársíðu (1824-1911). Synir Eyjólfs voru vel gefnir menn".
Helgi kallar þá alla skáld nema þann ,,laglega hagorða" Jóhann (1862-1951), bónda og alþingismann í Sveinatungu.
Lesbók Morgunblaðsins 30 mars 1954 og Gestur 5, 114, höfundur Jón Guðmundsson (1883-1959), sem lengi rak Hótel Valhöll á Þingvöllum:
,,Í Hörgsholti var blindur maður, niðursetningur er Gísli hét. ... Hann kunni ósköpin öll, Passíusálmana alla utanbókar og söng þá oft. Við börnin þvoðum oft fætur hans, því að hann var með sár á þeim, sem ekki vildu gróa, gömul kalsár. Hann var einn af þeim sem lentu í mannskaðabylnum mikla á Mosfellsheiði. Þegar hann sagði frá þeim raunaatburði var hann vanur að segja frá því, að hann og einhverjir fleiri hefðu gist í Vatnskoti nóttina áður og þar hefðu föt þeirra verið þurrkuð og það hefði verið þeim til lífs. Hinir, sem gistu á Þingvöllum, fengu ekki föt sín þurrkuð.
Alltaf var lesinn húslestur heima og sungið. ... Hann þakkaði alltaf lesturinn með handabandi".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)