Berorður er Borgfirðingur
Lag Lesa
Berorður er Borgfirðingurbak á Níels skrafar:,,Skáldi sagður sérvitringurþá sunginn var til grafar”.
Heimildir og samhengi
Níels skáldi Jónsson, f. 1792 á Flugumýri, varð úti í hríðarveðri 12. ágúst 1857. Hann var sérkennilegur í orði og æði og nefndi sig skáld(a), skáldi í nf..
Menn og minjar I, 31, Úr blöðum Jóns Borgfirðings: ,,Í sláttarlok dó Níels Jónsson skáldi. Sagt er að nóttina eftir að sóknarprestur hans, síra Benedikt í Fagranesi, hafði jarðað hann, þótti honum Níels koma til sín og vera styggur úr af því hve lítið hann hefði hrósað sér í líkræðunni, en prófastur kvaðst hafa sagt honum, að hann hefði gjört það að maklegleikum því hann hefði ævinlega verið sérvitringur. Hann kvaðst hafa spurt hann hvernig honum liði, en hann kvað sér liði ekki vel. Prestur þóttist spyrja hvar hann væri. Hinn kvaðst ekki segja honum það. Prestur spyr hve margir séu þar sem hann sé. Honum þótti Níels svara: Tvær manneskjur og væri það Baldvin Hinriksson* og kerlingin Þorbjörg keila. Eftir það vaknaði Prestur".
,,Baldvin járnsmiður Hinriksson þótti blendinn nokkuð ...Hann skar sig á háls á Þverá í Hallárdal á jóladag 1853".
Um Baldvin er þáttur eftir Magnús Björnsson á Syðra-Hóli í Mannaferðir og fornar slóðir, bls. 225.
Þorsteinn frá Hamri, Hallgrímur smali, bls. 36: ,,Níels skáldi fór sinna eigin ferða í holdinu og andanum. Sagður bæði sérlyndur og kaldlyndur, en af mörgum álitinn ,,djúpskyggn”. Snakillur þótti hann ef menn báru brigður á skoðanir hans. Sjálfur var hann ekki í vafa um tilveru hulinna vætta og í skrifum þeim sem eftir hann liggja ...getur hann ...dæma úr eigin lífi þeirri heimsmynd til sönnunar”.
Um Níles skáld ritar Gísli Konráðsson í Sögu Skagstrendinga og Skagamanna, bls. 116.
Grein um Níels skálda í Húnahorninu eftir Inga Heiðmar Jónsson:
Vefurhuni.is (opnast í nýjum flipa)
Mynd Sigurðar málara af Níelsi:
Vefursigurdurmalari.hi.is (opnast í nýjum flipa)