Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1857
1857
1857

Þjátíu ár mun veðrið vara

Hljóðbrot0:00

Lag Kross á negldur - SSB frá 1936 nr. 113

ÞÞjátíu ár mun veðrið varatil vesturheims því skarar faraog skilja allt sitt eftiren aðrir eta þang og þaraþreyja fram á góu og sparavið kjör sín una krepptir.

Glúmur Gylfason · 1857

Heimildir og samhengi

Harðindi byrja.
Við þetta ár er hér á síðunni getið stórhríðar í mars þegar 6 menn urðu úti á Mosfellsheiði sem og hríðarveðurs um miðjan ágúst þegar Níels skáldi varð úti.
1854 fluttu Vestmannaeyingar, mormónar, sem þar var illa vært (sjá 1851), til N-Ameríku, 1860 fóru 3 Íslendingar til Brasilíu og 4 árið 1863, en flóttinn til N-Ameríku byrjaði1870.
Um Brasilíufarana fjóra ritaði Þorsteinn Þ. Þorsteinsson 400 blaðsíðna bók, ,,Ævintýrið frá Íslandi til Brasilíu", útg. 1937.
Á óvart kemur þar, að í bréfi frá Brasilíufaranum Jónasi Hallgrímssyni - sem deili eru sögð á1863 - segi á bls. 178 ,,að hið ódýrasta hjá kaupmönnum og veitingamönnum sé eins dýrt og dýrara en það dýrasta heima - einkum í smærri bæjum og á hálendinu".
Bréf þetta ritar Jónas í Brasilíu 15. mars 1867 til Einars Ásmundssonar í Nesi og biður hann að senda afrit til Jakobs Hálfdánarsonar. Þremur árum síðar stofna Þingeyingar og Eyfirðingar Gránufjelagið og 1882 er fyrrnefndur Jakob í forystu þeirra sem stofna Kaupfélag Þingeyinga - hvort tveggja sprottið af óánægju með verslunarkjörin.

Oscar Clausen í kaflanum Hallæri og gjafakorn: ,,Það má svo heita, að Snæfellingar hafi barist við hallæri og skort í 30 ár eftir 1857 eða alla tíma fram um 1890 ....Veturinn 1872 -73 ...dóu 70 manns þrjá köldustu mánuði ársins".
Enn segir Oscar að þetta ár hafi Snæfellsnessýsla fengið 4000 rd. hallærislán til kornkaupa hjá stjórninni.
1867 - þegar leit út fyrir almenna hungursneyð á Suður- og Vesturlandi - var undir forystu Hans. A. Clausen, kaupmanns, efnt til samskota í Danmörk sem skiluðu 21.000 rd. til kaupa á 5 tonnum af brauði og 2.300 tunnum af korni, en talsvert af því gáfu bændur.
Þessari kornþörf olli fisk- og gæftaleysi sem m. a. stafaði af yfirgangssömum veiðum Frakka, sem bægðu Íslendingum frá bestu miðum þegar þau voru ekki undir ís, segir Oscar Clausen.
Sama korngjafasagan endurtók sig í lokahnykk harðindanna á 9. ártugnum, sjá 1881 og 1882.

Vefurbiblio.com (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1857

  • Við sauðfjárrækt blasir hinn versti vandi
  • Berorður er Borgfirðingur
  • Á Mosfellsheiði hríðin ær
  • Fæðist núna fleira' en deyr
← 1857Á Mosfellsheiði hríðin ær1857 →Fæðist núna fleira' en deyr