Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1764
1764
1764

Halldór Jakobs ennþá ær

Hljóðbrot0:00

Lag Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869

HHalldór Jakobs ennþá ærá h'onum spjótin standaýmsa bítur aðra slæryfirvaldið Stranda.

Glúmur Gylfason · 1764

Heimildir og samhengi

Sm. Halldóri Jakobssyni (1735-1810) Eiríkssonar útgerðarmanns á Búðum var vísað úr Kaupmannahafnarháskóla fyrir ofbeldi 1756.
Vikið frá Standasýslu tímabundið 1764 eftir áflog, barsmíðar, bit, skjalafals og gæsluleysi á Fjalla-Eyvindi sem slapp frá honum úr haldi þetta ár. Halldór fékk fékk sýsluna aftur 1765, en loks vikið endanlega 1788 fyrir óreglulega meðferð á skipsstrandi 1775. (1790).

Föður hans, Jakob Eiríkssyni, var vikið úr Skálholtsskóla fyrir ofbeldi skólaárið 1729/30.

Allur þessi ættleggur mikill að burðum, a.m.k. í 5 liði til Hákonar Jónssonar (Espólín) frá Eiríki Steindórssyni á Búðum, en Eiríkur var fenginn til þess að færa Odd Sigurðsson bandingja frá Rifi til Rauðamels1725, sjá þar.

Kona Halldórs var Þorbjörg Halldórsdóttir Bjarnadóttir, sm. og klausturhaldara á Þingeyrum Halldórssonar (sjá1737og víðar), en afi hennar var lm. Páll Vídalín.
Bróðir Halldórs var sm. Jón, faðir Jóns Espólín, en systir, Kristín, móðir Valgerðar Árnadóttur, konu sm. Gunnlaugs Briem á Grund. Sjá 1822 og 1872.
Briem
-genin vill séra Ágúst Sigurðsson helst rekja til Kristínar Ólafsdóttur (~1664-1733) prestsfrúar á Staðastað, tengdamóður Jakobs Eiríkssonar.
Um hana segir Páll Eggert Ólason í Íslenskum æviskrám III, 177: ,,...gáfukona mikil, skildi jafnvel og talaði latínu”.

XII. bindi Íslendingasagnaútgáfunnar, 1947 (Guðni Jónsson), bls.XIII, segir að Halldór Jakobsson sé almennt talinn höfundur Ármannssögu hinnar yngri.

Sjá og 1775, 1788. (Heimildir: Öldin átjánda, Jón J. Aðils: Oddur Sigurðsson; Ísl. æviskrár; Ágúst Sigurðsson: Forn frægðarsetur, Lögfræðingatal Agnars Kl. Jónssonar).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1764

  • Jónsbókarlögin að jaðri' eru sorfin
← 1763Finnast dæmi að frú með skeggi1764 →Jónsbókarlögin að jaðri' eru sorfin