Jónsbókarlögin að jaðri' eru sorfin
Jónsbókarlögin að jaðri' eru sorfinjörðin þau geymir nú, grjótið og torfin.Lengur fást bændur við ljána og orfinen lögrétta' hin forna' er úr sögunni horfin.
Heimildir og samhengi
Tilskipun einvalds konungs 16. nóvember 1764 fellir úr gildi ákvæði Jónsbókar frá 1281 um Lögréttu.
Lögréttumönnum fækki úr 36 í 10 og séu ekki meðdómendur, en aðeins þingvottar, og enn var þeim fækkað í fjóra 1796.
Lögréttumenn voru valdir úr röðum ,,betri bænda".
Þetta átti langan aðdraganda:
Í kjölfar dómsmálaóaldarinnar sem fylgdi lögmönnunum Páli Vídalín og Oddi Sigurðssyni 1705 til 1727 knýr konungsvaldið á um breytingar á löggjöf og setur í erindisbréf amtmanna 1718, (Fuhrmann) og 1720, (Raben), að meðferð dómsmála fari eftir Norskulögum Kristjáns V. Ítrekað í bréfi til lm. Magnúsar Gíslasonar 1735 ,,og var þá bundinn endi á allan vafa" segir Björn Þórðarson á bls. 17 í Landsyfirrétturinn frá árinu 1947.
,,Alþingi var þá ekki lengur lögþing í skilningi Jónsbókar". (B.Þ.).
Þá var og mælt svo fyrir 1735, að ekki mætti fullnægja dauðadómum fyrr en staðfestir væru af Hæstarétti í Kaupmannahöfn, sem stofnaður var 1661 samtímis einveldi Friðriks III. Árið áður, 1734, hafði komið tilskipun um að hætt skyldi að hengja þjófa við 3ja brot.
Eftir stóðu á Þingvöllum dómstörf, þinglestur skjala og tilskipana konungs, kaupsamninga, afsalsbréfa og því um líkt og stóð svo til 1801þegar Alþingi var formlega lagt niður og stofnaður Landsyfirdómur, en 1797 fóru dómstörf síðast fram á Þingvöllum, sjá 1798..
Heimild m.a., dr. juris Björn Þórðarson, f.v. forsætisráðherra.