,,Húsið" á Eyrarbakka byggt
Lag Kálfar tveir í kúamynd
H,,úsið" á Eyrarbakka byggten brann í Aðalstrætihvergi á þeirri tíð var tryggttjón sitt hver einn bæti.
Heimildir og samhengi
Kaupmenn á Ísafirði og Eyrarbakka þjófstarta með því að byggja sér íbúðarhús og versla árlangt. Að tilhlutan ,,bestu manna Íslendinga" var það bannað með lögum til 1787, sbr. Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, bls. 40.
Lögrétta hafði bannað vetursetu útlendinga og margítrekað vistarskyldu búlausra hjá bændum, t.d. 1404 og 1590, en stjórnin sjálf braut þetta bann 1776-7, sjá þar.
Tilvísun: Jón Pálsson, Austantórur II, 74; (1755, 1950).
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Annálar III, 555 (við ár 1764): ,,Annan föstudag í einmánuði (27. mars) brunnu upp til kaldra kola öll fabrikuhúsin í Reykjavík syðra, þau voru 3. Þar brunnu inni allir vefstaðir og verkfæri, sem því erfiði þénaði, öll þessa árs vinna og öll óunnin ull, mestallir fjármunir fabriksfólksins. Fólkið var að tölu yfir 60. ...Fólkið var sett niður á bæi".
Í safnriti Gils Guðmundssonar, Gestur 2, bls. 100 er endursögð frásögn af brunanum, sem Steingrímur, síðar biskup, Jónsson skráði eftir Ámunda Jónssyni smiði, en hann vaknaði með dularfullum hætti, að því er hann taldi, varð þá eldsins var og vakti verkafólkið í tæka tíð sem skipti tugum í því húsi og bjargaðist það allt.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Ekki hafði þessi frétt borist til Kaupmannahafnar þegar Almenna verslunarfélagið yfirtók Innréttingarnar 1765. Hlutafé mátti því auka um 100 rd. á hvern hlut og mun Skúli, e.t.v. einn 23ja Íslendinga,hafa gert það, en hlutafé í Innréttingunum var gert að hlutafé í Almenna verslunarfélaginu gegn mótmælum íslenskra hluthafa og höfðaði Skúli mál sem hann tapaði fyrst, en fékk þó endurgreiddan hlut sinn 1778.
Dr. Hrefna Róbertsdóttir, þjóðskjalavörður, hefur rannsakað ítarlega flest eða allt sem við kemur Innréttingunum og birt í bókinni ,,Landsins forbetran - Innréttingarnar og verkþekking í ullarvefsmiðjum átjándu aldar", sem út kom árið 2001. Sést þar ýmislegt í öðru ljósi en áður.
1686 er Loyds tryggingafélagið stofnað í London, en tryggði þá einungis skip. Með Járnsíðu, 1273, féll Grágás úr gildi, en skv. henni var hreppsbændum skylt að hjálpa til við að byggja upp ef brunnu stofa, eldhús og búr ,,það er konur hafa matreiðu í”. (Tekið úr ritgerð Jóns Viðars Sigurðssonar bls. 243 í Heimtur, Mál og menning 2009).
Í Eimreiðinni 1895 vitnar Valtýr Guðmundsson sömuleiðis í Grágás og segir að tryggingin hafi þá auk húsa einnig náð til nautpenings. Hálft tjón bar tjónþoli sjálfur, en hreppsbúar bættu afganginn, þó ekki oftar en þrisvar og hver eigi meira en einn hundraðasta hluta af eign sinni. Þá segir Valtýr 1895 að Reykjavíkurbær hafi á undanförnum árum barist á Alþingi með hnúum og hnefum á móti lagafrumvarpi um skyldutryggingu húseigna og kennir sjálfræðisanda og skorti á félagslyndi.
Brunatjón í sveitum bættu nágrannar oftar en ekki með samskotum.
Þilskipaeigendur á Vestfjörðum (Ísafirði) stofnuðu til trygginga 1853 og 1859, sjá Lúðvík Kristjánsson, Vestlendingar III, 236.
Brunabótafélag Íslands var stofnað 1916.
Einar Arnórsson, á bls. 30 í Íslenskar úrvalsgreinar II: ,,Sveinn (Björnsson forseti Ísl.) var fyrsti forstjóri Brunabótafélags Íslands. Til þess tíma hafði vátryggingarstarfsemi ekki verið rekin hér á landi að kalla nema vátrygging fiskiskipa. Með stofnun Brunabótafélagsins var komið á skyldutrygginu húsa í kaupstöðum og kauptúnum, og munu menn hafa tekið þeirri nýbreytni nokkuð misjafnt. Vátryggingafélög erlend, aðallega eða eingöngu dönsk, sem hér höfðu tryggt, snerust ekki vel við og neituðu endurtryggingu. Tókst Sveini að fá norskt félag, Store Brand, til þess að endurtryggja fyrir Brunabótafélagið".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Verslunarhúsin standa enn á Ísafirði og sjást í byrjun þessarar kvikmyndar:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Vefurfi-fi.facebook.com (opnast í nýjum flipa)