Götuljós við Bakarabrú.
Lag Kálfar tveir í kúamynd
Götuljós við Bakarabrú.Baðar ekki Dóri.Í Vík til læknis læra núað lengur þjóðin tóri.
Um úthaga bændur nautum neitaþar narti helst ei kusaþví bændasonum sauðir breytaí séra og fisicusa.
Heimildir og samhengi
Mbl. 5. apr. 2005: ,,Fyrstu götuljósin í Reykjavík, sjö olíuluktarker, voru sett upp 1876. Fyrsta útiljósker og brenndi steinolíu, var sett upp við brú yfir Lækinn hjá Bakarabrekku, núverandi Bankastræti - ávallt var slökkt á miðnætti”.
Gísli Jónsson, Frá foreldrum mínum, bls. 135: ,,Oft sló í brýnu á þessum árum (um og eftir aldamót 1900) milli drengja úr Vestur- og Austurbæ. ...Aðalvopnin voru oftast þönglar, sem nóg var af í fjörunni. Var jafnan barist um yfirráð yfir brúnni, sem lá yfir Lækinn, og sá talinn sigurvegari, sem hafði hana á valdi sínu, er orustu lauk."
Hér sést brúin: Myndmidbaerinn.is (opnast í nýjum flipa)
Meyvant á Eiði, bls. 53: „Á kvöldin og nóttunni var borgin næsta draugaleg, illa lýst, enda voru þá aðeins komnir lágir ljósastaurar með olíutýrum. Það var sérstakur starfi að kveikja og slökkva á ljóskerunum. Höfðu þeir stiga með sér, karlarnir, og kveiktu með eldspýtu á týrunni.".
1857 komu olíuljósker í götulýsingu í Kaupmannahöfn í stað lýsis áður.
Sauðfjárkláðinn (1856, 1858) vakti harðar deilur um hvort skera skyldi eða lækna með baði. Halldór Kr. Friðriksson (1819-1902), yfirkennari, gaf út blaðið Hirði til stuðnings lækningaaðferðinni við kláðann 1860. M.a. vegna andvaraleysis gaus kláði upp öðru hvoru eftir að Jón Sigurðsson og danskir dýralæknar börðust við hann 1859-60. En 1876, neitaði Halldór að baða og átti 2ja ára glímu við sérstakan kláðalögreglustjóra, Jón ,,ritara” (1841-1883) Jónsson, Johnsens (1847) Jónssonar umboðsmanns, Ármóti í Flóa (sjá 1842). Jón ritari háði þá við Halldór fyrstu kosningabaráttu á Íslandi - og felldi hann úr bæjarstjórn. 1878, með stuðningi tómthúsmanna,
Halldór er persóna í bók Jules Verne frá 1864: Leyndardómar Snæfellsjökuls. Hjá honum gistir söguhetjan þýska, Lidenbrock, og útvegar Halldór honum staðkunnugan fylgdarmann, Hans.
Kristleifur Þorsteinsson segir í Úr byggðum Borgarfjarðar II, 86, að fyrir að vilja lækna kláðann (um 1859), en ekki skera, hafi flestir snúið til Halldórs megnu hatri: ,,Fögnuðu menn hverri skammarvísu sem um hann var kveðin og lærði þær fjöldi manna, jafnvel þeir sem unnu ekki öðrum ljóðum".
Í Ævidögum, bls 86, segir Jón H. Þorbergsson að það hafi verið Coopers-baðlyfin sem Hallgrímur bróðir hans innleiddi, sem best hafi reynst þegar kláðanum var loks útrýmt og þar er hann að fjalla um árið 1909.
Læknaskóli stofnaður í Rvk. Fékk hann 1884 inni í nýju Sjúkrahúsi, Þingholtsstræti 25, og síðan í alþingishúsinu 1911 við stofnun Háskólans. Luku 64 námi í skólanum. Sést í Sögu Reykjavíkur, Bærinn vaknar I, bls. 210, og II, bls. 23, að alþingi hafði um 10 ár komið sér hjá að styrkja sjúkrahúsrekstur. Einkaaðilar, oftast erlendir, gáfu og/eða ráku allar sjúkrastofnanir til 1884 og sumar lengur.
Annað íslenska söguþingið, bls.224: ,,1876 samþykkti alþingi lög um læknaskipan, stofnun læknaskóla í Reykjavík, um yfirsetukonur og sóttvarnir. ... Fyrsti spítali sem ríkið reisti var Kleppsspítali 1907. Berklahæli voru reist og rekin af samtökum almennings ... það var ekki fyrr en 1930 sem Landspitalinn tók til starfa".
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Aðrar heimildir og tilvitnanir: Indriði Einarsson: Séð og lifað, bls. 199;
Gömul kynni, útg. 1946, bls. 196; Páll Eggert Ólason: Íslenskar æviskrár.
Sauðasalan byrjaði í smáu 1871, tók að heppnast 1876 og var selt gegn staðgreiðslu í gulli.
Þegar nýlendu- og iðnbyltingargróði Breta barst þannig til Íslands riðlaðist gróin stéttaskipting (1862) er útigangssauðir gerðu bændasyni að háskólamönnum.
Kaupfélag Þingeyinga, 1882, og síðar önnur, önnuðust söluna og fengu mun hærra verð en kaupmenn sem seldu kjötið saltað í Danmörk.
Húnvetnsku heiðarnar voru grasgefnar og þar voru fæddir og uppaldir Guðmundarnir, læknar sem luku prófum frá Kaupmannahafnarháskóla, t.d. Guðmundur Björnsson (1864-1937) landlæknir - landfisicus.
HeimildAlþingi (opnast í nýjum flipa)
Guðmundur Magnússon (1863-1924) frá Holti í Ásum, Hún., landlæknir (landfisicus).
Vefuratom.hunabyggd.is (opnast í nýjum flipa)
Guðmundur Hannesson (1866-1946) frá Guðlaugsstöðum, læknaprófessor og rektor HÍ.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)