Austfirðir í afneitun
Lag Kálfar tveir í kúamynd
Austfirðir í afneitunallt er þar í sómahafa ekki grænan grunum greddu og kynsjúkdóma.
Heimildir og samhengi
Ingunn Jónsdóttir (1855-1947) segist í Minningum, útg. 1937, hafa farið 1876 sem ráðskona að heiman frá Melum í Hrútafirði til bróður síns, séra Jóns að Bjarnarnesi. Hún var tvo mánuði á leiðinni. Fyrst í söðli til Reykjavíkur, þá með póstskipinu Díönu, þrímöstruðu seglskipi með hjálparvél, sem vegna veðurs sleppti Austfjörðum, en hélt til Færeyja. Þaðan komst hún ,,á puttanum" til Norðfjarðar.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Ingunn segir frá lækni á Eskifirði: ,,Á fyrstu árum sínum fyrir austan var Zeuthen eigi vel þokkaður - spillti það áliti hans að hann þóttist finna eitthvað af fólki í Fjörðunum sem hefði samræðissjúkdóma. Urðu þá Austfirðingar æfir mjög, þótti þetta setja svívirðingarblett á héraðið og ortu níð um lækninn - voru vandir að virðingu þjóðarinnar”.
Fritz Zeuthen (1837-1901) fjórðungslæknir Austfjarða 1868-1898.
Virðingu þjóðarinnar enn misboðið: 1898og 1905.
Aðrar heimildir: Indriði Einarsson: Séð og lifað, bls. 199; Gömul kynni, útg. 1946, bls. 196; Páll Eggert Ólason: Ísl. æviskrár.
1525 réði Ögmundur, síðasti kaþólski Skálholtsbiskupinn, þýskan bartskera, Lazarus Matthíasson, til þess að lækna 100 sárasóttarsjúklinga eftir sinni tilvísun. Fékk bartskerinn Skáney í Borgarfirði, 60 hundraða jörð, til ábúðar.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Þarna má geta sér þess til að prestum hafi við skriftir verið trúað fyrir því sem menn blygðuðust sín fyrir. (Annálar og Íslenskar æviskrár III, 394).
1923 til 1934 kostaði ríkisstjórnin húð- og kynsjúkdómalækni, Magga Júlíusson Magnús (1886-1941) til þess að veita ókeypis læknishjálp við kynsjúkdómum. (Íslenskar æviskrár V, 433).