Öskjugosið guma þvingar
Lag Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870
Öskjugosið guma þvingarog gamla vistarbandiðá annað þúsund Íslendingaryfirgefa landið.
Heimildir og samhengi
Öskugos hófst í Öskju 28. mars. 1875. Mökkurinn barst næsta dag yfir Austfirði og allt til Svíþjóðar á 38 klukkustundum. Á næstu misserum fluttust Austfirðingar í hrönnum til Ameríku enda var þykkt öskulag á túnum og högum.
Heimild: Jónas Ragnarsson, Dagar Íslands, bls. 60.
Jónas Ragnarsson, Dagar Íslands, 2. júlí 1876: ,,Skoska gufuskipið Verona lagði af stað frá Akureyri til Glasgow með 752 Norðlendinga sem voru að flytja til Nýja-Íslands. Mun það hafa verið fjölmennasta förin til Vesturheims. Tíu dögum síðar fóru 400 Austfirðingar með sama skipi frá Seyðisfirði. Lagst höfðu á eitt: Vistarbandið og Askja".
Fleira kann þó að hafa freistað fólks til vesturfarar. Þangað hröktust ekki aðeins heiðarbúarnir, nágrannar Bjarts í Sumarhúsum, en upp tók sig og Jónatan Pétursson, sá sem 1854 keypti á uppboði stórbýlið Eiðar og dró þá upp úr skjóðu sinni 2.000 spesíur (~4.000 rd.). Heimild: Þorkell Björnsson, Af Jökuldalsmönnum, bls. 29.