Á Miðdalsbúi í Mosfellssveit
Lag Augun mín og augun þín
Á Miðdalsbúi í Mosfellssveitmargt þarf fólk að talaum miltisbrand ei neitt bóndi veitbíður eftir RALA.
Heimildir og samhengi
Sigurður Sigurðarson dýralæknir, Bændablaðið, 24. árg., 14. tbl. 2018, bls. 43: ,,Miltisbrandurinn kom frá Afríku. Sýkingin barst til Íslands með innfluttum ósútuðum húðum um 1865, fyrst og fremst frá Afríku. Veikin kom fyrst upp í Miðdal í Mosfellssveit. Árið 1866 fórust á þeim bæ 20 stórgripir, 12 hross og 8 nautgripir og árið eftir 4 hross og 2 naut og auk þess 4 lömb og 2 hundar sem snuðruðu í hræjunum”.
Rannsóknarstofnun Landbúnaðarins notar skammstöfunina RALA.
Myndin er tekin 24. okt. 2018 í landi Ness á Seltjarnarnesi þegar Sigurður og Ólöf Erla Halldórsdóttir ráku niður síðasta staurinn í því verkefni að merkja allar þekktar miltisbrunagrafir á Íslandi.