Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1866
1866
1866

Nú má bæði brosa og hlæja

Hljóðbrot0:00

Lag Tíu litlir negrastrákar

NNú má bæði brosa og hlæjabretta sig og fettaklípa stelpur æpa og æjaítem spyrja frétta.

Glúmur Gylfason · 1866

Heimildir og samhengi

Húsagatilskipunin frá 1746felld úr gildi með nýjum hjúalögum frá 1865 sem taka gildi 1866 og gilda til 1928/9. Þar hangir þó sumt eftir svo sem líkamlegar refsingar, sem húsbændum var enn heimilt að beit hjú sín. Sjá nánar við 1829.
Húsagatilskipunin bannaði m.a. að sýna af sér kæti. Þessu virðist landinn hafa hlýtt betur en öðrum kóngsins fororðningum, t.d. Grýlu-, jólasveina- og signingabanni Kristjáns IV. og hafa erlendir ferðamenn frá 19. öld og lengur haft orð á þungum andlitum Íslendinga.
Dæmi úr ævisögu Einars Benediktssonar II, 199-200, eftir Guðjón Friðriksson, haft eftir enskum rithöfundi, Stackpool árið 1912: ,,Kvenfólk hlær sjaldan og svarar manni sjaldan með brosi ... það liggur við að manni gremjist í svipinn þessi kuldi, einkum hjá búðarstúlkum. Einhverjar þungar og daprar hugsanir virðast hvíla yfir þessum konum”.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Sigurður Árnason, Með straumnum, bls. 13: ,,...gestur, er oft kom til okkar (að Vesturbotni í Patreksfirði), var nágranni frá næsta bæ, Björn Pétursson hreppstjóri frá Hlaðseyri. ...Á andliti hans var einkar fallegt fjörbros og líkamsburður teinréttur og frjálsmannlegur, sem var þá ekki áberandi í hvers manns fasi". Þetta gerist um 1880.

Morgunblaðið 14. 09. 2022: ,,Lög­regla var kölluð til í Skóla­vörðuholt laust fyr­ir klukk­an eitt í dag vegna til­kynn­ing­ar sem henni hafði borist um hlæj­andi mann í Skóla­vörðuholt­inu. Kvaðst til­kynn­andi hafa heyrt stans­laus­an hlát­ur all­an morg­un­inn. Heyrði lög­regla í mann­in­um og gat staðsett hvaðan hlát­uinn kom en ekk­ert gekk að ná til manns­ins er áfram hélt að hlæja, að því er seg­ir í dag­bók lög­reglu. Ekk­ert var aðhafst í mál­inu en lög­regla kveðst munu skoða það bet­ur til­kynni fleiri um sömu hátt­semi".

FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1866

  • Á Miðdalsbúi í Mosfellssveit
  • Fjallaskáldsins skrikul slóð
  • Fótajárn í fangavist
← 1866Á Miðdalsbúi í Mosfellssveit1866 →Fjallaskáldsins skrikul slóð