Fótajárn í fangavist
Lag Kálfar tveir í kúamynd
Fótajárn í fangavistfarið hár að gránaen Saura-Gísla söm er listsýnist lítið skána.
Bensa Sveins og Saura-Gíslasamviska laus við bletti(?)sjösinnum um þá samin skýrslasamtals í Hæstarétti.
Heimildir og samhengi
,,Gísli Jónsson (1820-1894) bóndi á Saurum varð landsþekktur fyrir barneignir og ,,hirðusemi", sem síðan leiddu til langvarandi málaferla. Gísli var og líklega eini Dalabóndinn sem þurfti danskt herlið til að handtaka". Það tókst loks 1866.
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)
,,Hrákalúkumál.”
,,Í réttunum var að þessu sinni staddur Guðmundur bóndi í Stangarholti, er var karlmenni mikið. Ægði honum svo hegðun Gísla að hann dró hann flatan í svaðinu í réttinni og batt hann á höndum og fótum og skellti honum upp á réttarvegginn.
Gerðu menn mikið gys að Gísla en hann fékk ekki varist með öðru en að reyna að hitta menn með hrákum sínum, því hann barðist um á hæl og hnakka og skyrpti á alla vegu.
Þegar réttinni var lokið var Gísli leystur og reið hann sneyptur heim að Saurum. Sýslumaður dæmdi Gísla til tíu vandarhögga hýðingar og skaut Gísli málinu til Landsyfirréttar.
Þar var hann sýknaður, því héraðsdómarinn hafði ekki vikið sæti samkvæmt kröfu Gísla, en þeir áttu þá í harðri deilu og málum út af meiðyrðum og illyrðum beggja.
Vefurnilli.blog.is (opnast í nýjum flipa)
,,Gísli var lengst af bóndi á Saurum í Laxárdal, en einnig nokkur ár á Sauðafelli í Miðdölum. Kona hans var Kristín Jóhannesdóttir frá Saurum, auk þess sem barnsmæður hans voru nokkrar".
Vefurdalir.is (opnast í nýjum flipa)
,,Gísli er þekktastur fyrir fjölmörg málaferli með mismiklum flækjustigum. Sjaldnast gekk síðan greiðlega að ná honum til refsinga.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Gísli fluttist til Vesturheims 1876 og dó þar 12. desember 1894, 74 ára gamall".
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Árið 1937 kom út Saura-Gísla saga eftir Oscar Clausen. Samkvæmt henni fundust ekki 2 glæpir á sakskrá Gísla, nauðgun og manndráp.
Hurð skall þó nærri hælum þegar Gísli rotaði vinnumann sinn með járnflein sem hann sló tvívegis í höfuð hans þar sem hann lá sofandi í annarra húsum.
Kvenhylli hans var með þeim hætti að þrjár konur á Saurum náðu samkomulagi og skipulögðu hvenær hver þeirra sængaði með hetjunni. Þegar allar þessar þrjár eitt sinn fæddu barn á sama tíma þá sór hann fyrir tvö en gekkst við einu. Merkilegt þótti að á öllum búskaparárum Gísla skyldi henda að ein vinnukona hans yrði ekki barnshafand þar á bæ.
Amtmaður, Bergur Thorberg (1829-1886), Stykkishólmi, sendi sjóveg að næturlagi um Hvammsfjörð valinn flokk 9 manna, þ.á m. tvo vopnaða sjóliða af danska varðskipinu til að handtaka Gísla Jónsson (1820-1895), Saurum í Laxárdal, Dalasýslu, er lengi hafði komst hjá handtöku og naut þá stundum ráðkænsku kvenna sinna sem voru allt að þrjár samtímis, en hann margbrotlegur við lög og almenningsálit.
Guðmundur Daníelsson, Dómsdagur, bls. 199: ,,Ástir í meinum, blóðskömm og sifjaspell nutu alla tíð umburðarlyndis almennings, þjófurin uppskar fjandskap og lítilsvirðingu. Nema hann hæfist upp í að gerst útilegumaður og kæmist á handahlaupum upp á jökul undan þjónum réttvísinnar ...þá varð hann samstundis mikilmenni".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Frá Landsyfirdómi var áfrýjað alls 100 málum til Hæstaréttar frá 1801 til 1919, þ.e., minna en eitt mál á ári að meðaltali.
Þrisvar höfðu mál Benedikts Sveinssonar farið til Hæstaréttar, en fjórum sinnum náðu mál Saura-Gísla þangað (sjá 1866).
(Björn Þórðarsom, Landsyfirdómurinn 1801-1919, bls. 219).
Sjá 1874 um Landsyfirréttardómarann, alþingismanninn og sýslumanninn Benedikt Sveinsson.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)