Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1734
1734
1734

Sýslumanna krenkjast kjör

Hljóðbrot0:00

Lag Hani, krummi, hundur, svín

SSýslumanna krenkjast kjör- kætist flokkur bófa -áður höfðu handtök snörog hengdu alla þjófa.

Glúmur Gylfason · 1734

Heimildir og samhengi

Refsiréttur Norskulaga innleiddur á Íslandi með konunglegri tilskipun, Alþingisbók bls. 143. Norskulög lina ákvæði Jónsbókar um hengingar þjófa.
Samkvæmt þeim skyldi hegna þjófum með þrælkunarvinnu og hegningarhúsvist, en slíkt kom ekki hér fyrr en 1771.

Skv. Haustskipum Björns Th. Björnssonar, þráuðust sýslumenn lengi við og héldu áfram að hengja þjófa við þriðja afbrot.
Var svo tilskipunin ítrekuð 1745 án þess að hrifi.
T.d. lét sm. Þorsteinn Magnússon (1738), skv. sagnaþáttum séra Sigurjóns Guðjónssonar frá Vatnsdal í Fljótshlíð, hengja tvo strokumenn að vestan, sem legið höfðu úti vetrarlangt í Þjófhelli undir Þríhyrningi. Annálum b59: er ekki saman um ártalið, en nefna 1743, 1744 og 1752.
Ítarleg lýsing á Þjófhelli og handtöku útileguþjófanna er í bók Ólafs Briem: ,,Útilegumenn og auðar tóftir, bls. 130".

Síðast hengdur þjófur 1758 sagði dr. Steinunn Kristjánsdóttir í fyrirlestri 9/2 2019, þ.e. 24 árum eftir kóngur skipaði 1734 að hætta að hengja þjófa.

Guðrún Ása Grímsdóttir í Íslenska söguþingið 1997, bls. 59: ,,Orðafar og rétthugsun íslensku lögbókarinnar (Jónsbókar frá 1281) þóttu orðin torskilin og fornleg á 17. öld. Af þessu skapaðist réttaóvissa hér á landi, menn vissu ekki hvaða nýskipanir kóngs giltu hér".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1734

  • Prestar mátu prófast slys
  • Rektor Skálholtsskóla kærir
  • Góu- hefur þrællinn þótt
← 1734Prestar mátu prófast slys1734 →Rektor Skálholtsskóla kærir