Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1734
1734
1734

Góu- hefur þrællinn þótt

Hljóðbrot0:00

Lag Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

GGóu- hefur þrællinn þóttþungur í skauti verafáir gull í greip hans sóttgrand mátt þaðan bera.

Glúmur Gylfason · 1734

Heimildir og samhengi

Af fenginni reynslu af illviðrum með skiptöpum á góuþræl voru margir formenn hættir að róa á góuþræl. Tók þá þetta ár ekki betra við en svo að yfir reið Suðurlandsskjálfti, einn með þeim hörðustu.

Suðurlandsskjálftinn 1734 var jarðskjálftiWikipedia (opnast í nýjum flipa) sem reið yfir SuðurlandWikipedia (opnast í nýjum flipa) á góuþrælWikipedia (opnast í nýjum flipa), þann 21. marsWikipedia (opnast í nýjum flipa). Hrundu þá að mestu 30 bæir, en 60-70 löskuðust.
Jarðskjálfti þessi varð mestur í Flóa, Grímsnesi og ofarlega í Ölfusi, og hrundu kirkjur á þessum slóðum.
Sjö eða átta menn, gamalmenni og börn, urðu undir húsum og biðu bana.
Einnig varð margt nautgripa undir húsarústum, en matvæli og búshlutir fóru forgörðum. (1573, 1685).
(Annálar).

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)

Myndir og texti: Vefurwww2.hu-berlin.de (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1734

  • Prestar mátu prófast slys
  • Sýslumanna krenkjast kjör
  • Rektor Skálholtsskóla kærir
← 1734Rektor Skálholtsskóla kærir1735 →Siglfirðinga þjáði þröng,