Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1734
1734
1734

Rektor Skálholtsskóla kærir

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í draumahöll

RRektor Skálholtsskóla kærirog skeytir ei orð- um sporið:,,ölmusupiltar ei ferðafærirföggur geti ei boriðhinir fleiri' og feita bitafá og rífra skoriðen ná ei á sér haldið hitahoraðir um vorið".

Í Skálholtspiltum þá gólu garnirei gat Jón Þorkelsson setið hjáþær álitlegustu væru varnirað vitja kóngs og í borðið slá.

Glúmur Gylfason · 1734

Heimildir og samhengi

Torfi Hjaltalín Stefánsson í Sögu Biskupsstólanna, 616: ,,...í bréfi til kennslumálanefndarinnar dönsku 1734 er til lýsing eftir Jón skólameistara (Thorchilius) á ástandi skólamála í Skálholti á árunum 1729-1733. Meðal annars slæmum viðurgerningi ölmusupilta í skólanum. Þeir fái það lítið að borða að undir vor séu þeir vart ferðafærir. Aðrir piltar hefðu það skárra, en þó nyti enginn þeirra hita í híbýlum sínum". Sjá til samanburðar úttekt L. Gottrup á skólanum í tíð Jóns biskups Vídalín, sem (þess vegna?) snerist gegn utanför hans á konungsfund 1701.

Trúarbyltingin gegn kaþólsku um miðja 16. öld var róttækari á meginlandi evrópu, t.d. hvað varðar dýrlingadýrkun og (messu)siði. Og nú, 200 árum síðar, hafði orðið önnur trúarbylting þar, píetisminn, heittrúarstefna sem lagði áherslu á miskunnsemi við bágstadda og hreinlífi, en bannaði glaum og glys. Stefnan spratt upp af hörmungum 30ára stríðsins í þýsku ríkjunum 1618-1648. (Sjá 1736).
Rektor Jón Thorchilius, sem lengi var við framhaldsnám í þýska hluta Danaveldis, gerðist sannur heittrúarmaður og tók þátt í með Harboe að banna messur á virkum dögum og dýrlinga sem Landsnefndin fyrri síðari fyrirskipað (1770). Aðrir íslenskir pietistar voru fáir, en þekktastir sr. Þorsteinn Pétursson á Staðarbakka (1757) og Jón ,,lærði" Jónsson í Grundarþingum (1822).

Páll Eggert Ólason, Saga Íslendinga V, 248: ,,Það má þykja vafasamt að hræring sú sem barst hingað með Harboe á 18. öld hafi nokkurn tíma að ráði fest rætur með Íslendingum eða rofið að nokkru stefnu rétttrúnaðarins".
Ekki var blek Páls Eggerts þornað þegar heittrúarhreyfingar bárust hingað, t.d. frá Ameríku, sem andsvar við nýguðfræðinni. (1742).

Myndir

Einnig frá árinu 1734

  • Prestar mátu prófast slys
  • Sýslumanna krenkjast kjör
  • Góu- hefur þrællinn þótt
← 1734Sýslumanna krenkjast kjör1734 →Góu- hefur þrællinn þótt