Vistlausir á vergangi
Lag Kvölda tekur, sest er sól
Vistlausir á vergangi,,Vestur” nema rásiHilmar lands- er höfðingiHalldóra fædd í Ási.
Lesið
Skutu inn í skrifstofunaskríllinn óður, galinn,ekki mátti miklu munaað maður félli í valinn.
Heimildir og samhengi
323 fóru vestur um haf þetta 3ja ár vesturfara. Áður farnir 40; Á skrá sem Júníus H. Kristinsson sagnfræðingur hefur gefið út, og á að telja alla vesturfara á tímabilinu 1870-1914, eru 14.268 menn.
,,Skoðanaágreiningur milli stétta og landshluta birtist í því að Reykjavíkurblöðin, sem menntamenn stýrðu, voru full gagnrýni gagnvart vesturferðunum þegar í upphafi, á meðan Norðanfari, blað Björns Jónssonar frá Grenjaðarstað (bróðir Guðnýjar, 1836) útg. á Akureyri, birti frásagnir af vesturfaraundirbúningum og bréf að vestan".
Úlfar Bragason: Frelsi, menning, framför, bls. 67.
Sami, Úlfar Bragason, gaf 2017 út bréf Þingeyingsins Jóns Halldórssonar. Þar segist hann á bls. 179 í bréfi skrifuðu 1874 til Benedikts Jónssonar ,,varla fá fullkomna löngun til að fara heim aftur því að hann minnist margs ófrelsinsins og óréttarins, getur hann sérstaklega um stöðu vinnufólks og fátækrastjórnunina. Telur hann að varla séu bestu menn á Íslandi fullsjáandi þegar þeir biðji um þjóðfrelsi frá Dönum, en skrifi síðan ranglát vinnuhjúalög".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Jarðskjálftar, eldgos og skortur voru ekki ein um að hrekja Íslendinga til Ameríku, það gerðu líka draugar, sem ekki aðeins riðu húsum og hræddu fólk í dimmum göngum torfbæja heldur drápu fé og stórgripi, sjá t.d. Þistlar, útg. 2010, bls. 32.
Á bls. 114 í ævisögu Helgu Sörensdóttur eftir Jón Sigurðsson, Ystafelli, er fjallað um myndugleika foreldra á síðustu tugum 19. aldar:
,,Vald foreldra yfir uppkomnum og fullveðja börnum sínum var þá sökum aldarandans miklu sterkara en nú er ...margur bóndinn réð vesturför (Ameríku) án þess að ráðgast við uppkomin börn ...foreldrar vildu þá ráða giftingu barna sinna. ...Sumt ...gerði upprreisn, flúði til Ameríku og giftist þar. Hins voru líka dæmi að ungir menn færu vestur einir sér af því að stúlkurnar þeirra væru af þeim teknar og öðrum gefnar".
Hér um segir í ,,Ævintýrinu frá Íslandi til Brasilíu", bls. 277, að í Kanada hafi oft borið við að ,,argaþras, flokksrígur og heiptarhugur eldra fólksins hefði bægt yngri kynslóðinni frá kynningu, trúlofun og tengdum".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Þetta er stefið í bókum Jóns Thoroddsen, ,,Piltur og stúlka" og ,,Maður og kona" enda honum málið skylt eftir því sem Friðrik Eggerz ritar í ,,Úr fylgsnum fyrri aldar", en hann segist hafa neitað tveimur nafngreindum mönnum um dóttur sína og var Jón Thoroddsen annar. Í kjölfarið átti stúlkan við mikil geðræn vandamál að etja segir Friðrik.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Jakob Hálfdanarson, Sjálfsævisaga, 40: ,,...33 íslenskar sálir fluttu sumarið 1873 til Brasilíu og settust þar að á hálendinu umhverfis Curityba. ...lifðu við þægilegar kringumstæður, en ekki ríkidæmi".
Áður, 1860, fóru 3 Íslendingar til Brasilíu og 4 árið 1863, sjá þar.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Hilmar Finsen stam. (1824-1886) varð landshöfðingi með stöðulögunum 1871 en tók við starfinu 1. apríl 1873 ,,við miklar æsingar og nokkrar óspektir í Reykjavík, kveðjur og niðurhróp letruð á svartan fána sem dreginn var upp á fánastöng Hilmars Finsen og tveimur byssukúlum skotið inn um skrifstofuglugga á húsi Pjeturs biskups", - svo ritar Þorvaldur Thoroddsen í Ævis. dr. Pjeturs biskups, bls. 153.
Áttræður, 1969, skrifar Bjarni Bjarnason á Laugarvatni í Suðra l, bls. 49: ,,Hilmar Finsen var af góðu íslensku bergi brotinn, en móðir hans var dönsk".
Íslenska bergið mun vara beinn karlleggur um Reykholts-
prófastaætt (1569) allt til Sigvalda Gunnarssonar ~2,30m kirkjusmiðs í Vatnsfirði 1452 og konu hans, Þuríðar Einarsdóttur Þorleifssonar og Vatnsfjarðar-Kristínar (d.1468) Björnsdóttur Jórsalafara (d.1415) sonar Grundar-Helgu.
,,En móðir Hilmars var dönsk".
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Sjá um Jón Ólafsson: 1870, 1871, 1873.
Landshöfðingi var fulltrúi Íslandsráðherra sem sat í Kh. Rót uppistandsins voru stöðulögin, sem afnámu einveldi konungs og Gísli Jónsson efar að þeir sem hæst létu hafi nokkru sinni lesið, sjá 1871.
Olufa, kona Hilmars, byrjaði þegar eftir komu þeirra til Íslands, 1865, að æfa blandaðan kór, þann fyrsta hér, og söng kórinn við útför Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar Einarsdóttur í Dómkirkjunni 1880.
Vefurglatkistan.com (opnast í nýjum flipa)
Fædd að Ási í Vatnsdal, Halldóra Bjarnadóttir, kennaramenntuð í Noregi, fékk ekki fastráðningu við Barnaskóla Reykjavíkur, kenndi þá í Noregi til 1908, þá skólastjóri á Akureyri til 1918, bæjarfulltrúi þar 1921, og forstöðumaður Lystigarðsins, kennari við Kennaraskólann 1922, stofnaði tóvinnuskólann á Svalbarði Ef. 1946 og ritstýrði ársriti Samb. norðl. kvenna, Hlín, í 50 ár.
Halldóra Bjarnadóttir varð 108 ára, d. 1981.
Heimildir: Vefur Kvennasögusafns Íslands;
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson, Halldóra Bjarnadóttir, ævisaga, Setberg 1960.