Læknir veit - þótt lífi hraki -

Læknir veit - þótt lífi hraki -lengi megi teygjahermt að Skúli hests á bakihelst þó vildi deyja.

Glúmur Gylfason · 1872

Heimildir og samhengi

Skúli Thorarensen (1805-1872) læknir, Móeiðarhvoli, yngsti sonur sm. Vigfúsar Þórarinssonar á Hlíðarenda og k.h., Steinunnar Bjarnadóttur landlæknis. Sjá 1760.

Finnur á Kjörseyri, Þjóðhættir, bls. 102: ,,Þá er frændi hans, séra Sigurður Thorarensen (1865) dó sitjandi í stól í stofu á Breiðabólstað, sagði Skúli: ,,Þetta er fagur dauðdagi, en þó vildi ég heldur deyja á hestbaki". En það fór öðruvísi en hann ætlaði, hann lá nærri tvö misseri áður en hann andaðist".

Þar segir einnig að Skúli læknir hafi borið höfuð og herðar yfir flesta samtíðarmenn sína, flest við hann höfðinglegt, annálaður fyrir hreysti og dugnað á ferðalögum sem hann hélt oft áfram þegar fylgdarmenn sneru frá í vötnum og stórviðrum, hrókur alls fagnaðar og söng manna best.
Miklar og fagrar söngraddir eru enn ættarfylgja.

Myndir