Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1872
1872
1872

Valgerður Árnadóttir dó

Hljóðbrot0:00

Lag Kvölda tekur, sest er sól

VValgerður Árnadóttir dódrengur góður, svarkur þóaf Briemum gerðist frúin frjófæddist vestra, Grund á bjó.

Ekki kom það upp úr þur(r)uerfið sporin þung og mörgþví 19 mátti börn og burubera í heiminn Ingibjörg.

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Glúmur Gylfason · 1872

Heimildir og samhengi

Klemenz Jónsson: Grund, bls. 206, endursagt:
Kona Gunnlaugs Briem var Valgerður Árnadóttir, fædd 1778 á Breiðabólstað á Skógaströnd, dóttir séra Árna Sigurðssonar, síðar prófasts í Holti undir Eyjafjöllum og Kristínar Jakobsdóttur sterka, Eiríkssonar sterka á Búðum. Hún var systur- og fósturdóttir Jóns sýslumanns Jakobssonar á Espihóli, og þaðan giptist hún Gunnlaugi 21. júní 1800. ... Frá þeim hjónum er í karllegg komin Briemsætt, einkum þeim Ólafi timburmeistara á Grund og Eggert sýslumanni, sem kvæntur var Ingibjörgu Eiríksdóttur og eignuðust þau 19 börn, sjá nánar hér:
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Dóttir þeirra Valgerðar og Gunnlaugs, Jóhanna Kristjana, var móðir Tryggva bankastjóra Gunnarssonar og Kristjönu móður Hannesar Hafstein.
Tryggvi, tók (gerði) myndina af ömmu sinni.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Við 1822 er sagt frá tildrögum þess að sýslumannsfrúin, Valgerður, tók sér í hálfa öld sæti á krókbekk í Grundarkirkju.
Kristleifur Þorsteinsson: Úr Byggðum Borgarfjarðar I, bls. 324: ,,Í krókbekkjum, fremst (yst) í kirkju átti fólk það að sitja, sem að dómi prestsins átti enga verðleika skilið".

Móðuramma Valgerðar, Guðrún á Búðum, var dóttir mdm. Kristínar Ólafsdóttur, (~1664-1733) á Staðastað, og þangað vill séra Ágúst Sigurðsson rekja Briemgenin. Um Kristínu segir Páll Eggert Ólason í Íslenskum æviskrám III, 177: ,,...gáfukona mikil, skildi jafnvel og talaði latínu”.
Bræður Valgerðar Árnadóttur voru sr. Jakob í Gaulverjabæ og prófessor Páll, rektor í Danmörk, höfundur grísk/danskrar og latnesk/danskrar orðabókar; Gísli Magnússon frá Þorlákshöfn, Lærðaskólakennari, var systursonur Valgerðar.
Frá móðurafanum sterka, fyrrnefndum Jakobi á Búðum, gæti hún, eins og móðurbræður hennar (Halldór) hafa erft það skap sem þurfti til að storka sóknarprestinum, Jóni lærða, í hálfa öld frá 1822, Sjá: 1756, 1764, 1775, 1788.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1872

  • Vistarskyldu frá nú flýjum
  • Bóndanum, Helga í Birtingaholti,
  • Læknir veit - þótt lífi hraki -
← 1872Vistarskyldu frá nú flýjum1872 →Bóndanum, Helga í Birtingaholti,