Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1872
1872
1872

Vistarskyldu frá nú flýjum

Hljóðbrot0:00

Lag 10 litlir negrastrákar

VVistarskyldu frá nú flýjumfækkar við það snauðumhreppsnefndir og harmoníumog hagstætt verð á sauðum.

Við Indíána þurfum ekki í slagauð vorn sauðkind geymirnýlendugróðinn glæðir haggullið hingað streymir

Glúmur Gylfason · 1872

Heimildir og samhengi

Sveitirnar megnuðu ekki lengur að framfleyta fjölgandi fólki.
Vegna andstöðu alþingis - vistarbandsins - óx þéttbýli lítið. Bændur máttu ekki sjá af vinnuafli úr sveitum enda vélar ekki komnar til sögu. Vesturfarir máttu því heita rökrétt viðbrögð búlausra enda kostuðu nýstofnaðar hreppsnefndir sveitlæga oft til þess að flytja af landi brott, sbr. upphaf vísu.
Fyrir bændur sem tóku þann kost af flytja vestur um haf var sauðasalan til Breta alger nauðsyn.

Tilskipun um sveitarstjórnarmál var gefin út 4. mai. Sýslu- og hreppsnefndir komu þar með í kjölfar Stöðulaganna (1871 ) sem afnámu konungseinveldi á Íslandi frá 1662. Stöðulögin voru óvinsæl (,,af þeim sem aldrei höfðu lesið þau", segir Gísli Jónsson - sjá 1871) og virtust margir heldur vilja gamla einveldið, en ekki aðeins þess vegna gekk treglega að fá karla til nefndarsetu heldur vantreystu þeir sér vegna menntunarskorts og lítillar skrifþjálfunar og máttu þá prestar oft taka þar sæti.
Sbr. m.a. Friðrik G. Olgeirsson, Langnesingasaga I, 248 og Pál Lýðssson í Árnesingi, riti IV, bls. 205 og 206.

Inn á þetta kemur Einar Ásmundsson 1975 í bréfi til Jakobs Hálfdánarsonar birt í bókinni ,,Ævintýrið frá Íslandi til Brasilíu", bls. 291: ,,Mín einlæg sannfæring er, að sveitarstjórnin yfir höfuð fari lakar fram en landsstjórnin eftir tiltölu. ...Mér sýnist sveitarstjónin nú ekki fara svo sem neinu betur síðan hún var gerð frjálsari á pappírnum, en meðan hún var sem einveldislegust. Þetta hlýtur að koma af því að fólkið veit ekki í raun og veru hvað frelsi er, getur ómögulega skilið það, og heldur, að ætlun minni, að það sé sama sem regluleysi eða óregla".

Að störf í hrepps- og sýslunefndum hafi getið af sér þann samstarfsvilja sem leiddi til samvinnufélaga áratug síðar, er skoðun Jóns Gíslasonar í ,,Úr farvegi aldanna I", bls. 163.

Til Melstaðar í Miðfirði var fyrst keypt harmoníum í kirkju.

Kristleifur Þorsteinsson, Úr byggðum Borgarfjarðar II, 373: ,,Síðustu áratugir 19. aldar urðu mesta breytingatímabilið ...í söng sem öðru. Þá leggjast niður með öllu Grallaralögin sem eldri tíðar menn unnu og kunnu. Unga fólkð æskir þá annars nýrra. ...Fólkið fór að verða feimnara þegar það sannfærðist um hvað lítið það kunni. Söngur í heimahúsum lagðist niður smátt og smátt. ...Allt studdi að því að nú fækkaði þeim mönnum sem þorðu að syngja í heyranda hljóði. Varð sú breyting á, að fleiri þögðu en áður”.

Á Melstað lék á fyrsta orgelharmoníið Friðrik Theódór (1853-1906) Ólafsson (1814-1876) prests á Melstað, Pálssonar en móðir Guðrún Ólafsdóttir dómsmálaritara í Viðey, Magnússonar dómsforseta Stephensen (1798, 1801, 1820, 1833), sem átt hafði pípuorgel.
Theódór var bókhaldari Clausensverslunar á Borðeyri frá 1881, síðar titlaður kaupmaður þar. Dóttursonur hans var Theódór J. Skúlason læknir, f. 1908.
Umsvif voru á Borðeyri og þangað reknir sauðir sem Coghill, umboðsmaður Slimons kaupmanns í Leith, greiddi með gulli.
Kennaratalið segir frá Sigurði Jónasi Magnússyni (1852-1939) forsöngvara (svo ) í Melstaðarkirkju frá um 1880 til 1888, sem kennt hafi orgelleik, en lært hann hjá Jónasi Helgasyni 1879 til 1880.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa) - Hilmar Örn Agnarsson leikur á harmonium.

Kirkjusöngur í Kálfholtskirkju 1909, skv Helga Hannessyni (1896-1989) í Sunnlenskar þjóðsögur og þættir III, bls. 154: ,,Söngflokkar við sveitakirkjur voru þá - held ég - varla komnir til sögu. En sumir bændur sungu oftast þegar þeir voru við messur og jarðarfarir. Þennan dag man ég þessa þrjá: Jón Runólfsson á Hárlaugsstöðum söng hárödd öllum hærra. ...Pabbi söng bassa. ...Þorsteinn litli í Moldartungu spilaði á orgelið - og kyrjaði millirödd fullum rómi".
Þríradda sálmasöngsbækur gaf Pétur Guðjónsson út 1861 og 1878, (sjá 1840 og 1854).

Sauðaflutningarnir fóru illa af stað 1866. Sorgarsögur af afdrifum sauðanna í hafi finnast í Skagfirskum annál Krismundar Bjarnasonar I, 84 og í Eldi á Möðruvöllum II, þegar gróðavonin olli ofásetningi í Þingeyjarsýslu.
En nú gekk betur og stóð sauðasalan með blóma til 1896 og skilaði 15% af útflutningstekjunum.

,,Á árunum 1851 til 1900 voru flutt úr landi liðlega 65 þúsund hross", segir Kristinn Hugason hér:
Vefurfeykir.is (opnast í nýjum flipa)

Við þennan hlut í nýlendu- og iðnbyltingargróða Breta komust bændasynir til háskólanáms og lærðu fleira en theologíu, gerðust t.d. læknar, og fé rann inn til Landsbankans, sem lánaði það út til kútterakaupa.
(Ofanritað styðst við Einar Laxness, Íslands saga III, 15).

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Því hefur verið haldið fram, að frá nýlendugróða, þ.m.t. þrælahald, sé komið fjármagnið sem stóð undir iðnbyltingunni í Englandi.
Iðnverkafólkið stundaði ekki sjálfsþurftabúskap og þurfti að kaupa mat sinn. Því voru sauðir fluttir lifandi frá Íslandi þangað til kælitækni kom til sögunnar 1896.
Hvenær þrælahald hafi verið á Íslandi skal ekkert fullyrt hér, en samkvæmt Vísindavefnum hefur það aldrei verið bannað.
AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)

Án þess að nefna Sturlunga eða Gissur Þorvaldsson er því á neðanskráðum vef lýst hvernig Englendigar náðu stjórn á Indlandi með nákvæmlega sömu aðferð og Hákon gamli Íslandi 5 öldum fyrr:

Vefurbritannica.com (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1872

  • Valgerður Árnadóttir dó
  • Bóndanum, Helga í Birtingaholti,
  • Læknir veit - þótt lífi hraki -
← 1871Nakin erum eins að sjá1872 →Valgerður Árnadóttir dó