Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1872
1872
1872Yfirlit 19. aldar

Bóndanum, Helga í Birtingaholti,

Hljóðbrot0:00

Lag Komdu og skoðaðu í kistuna mína

BBóndanum, Helga í Birtingaholti,var boðið í faktorsins Húsi' upp á svínThorgrímsen skenkti af tign meður stoltiteitinu stýrði er dreypti á vín.En búðar- hans lokurnar brennivínsstaupbáru á ,,diskinn" og hver og einn saup.Eftir þær veitingar skaup hraut af skoltiskirrtust ei óhikað gera' út um kaup.

(teitið dreypti)

Glúmur Gylfason · 1872

Heimildir og samhengi

Ágúst Helgason í Birtingaholti, Endurminningar, bls. 150:
,,Fyrstu ferð mína fór ég þangað (til Eyrarbakka) þegar ég var á 10. ári, 1872.
Kvöldið sem komið var til Eyrarbakka bauð verslunarstjórinn, Guðmundur Thorgrímsen, foreldrum mínum til kvöldverðar og fylgdist ég þangað með þeim. Thorgrímsen hafði allmikinn búrekstur, og þar með svínahjörð. Sá ég þar svín í fyrsta sinn. Ekki var mér síður minnisstætt, að þegar undir borð var sezt um kvöldið, var steikt svínakjöt á borðum. Var það auðvitað herramannsmatur, en ég varð alveg í vandræðum vegna þess, hvað mér bauð við að borða það.

Morguninn eftir komum við í verzunarbúðina. Þegar inn var komið var fyrst fyrir búðarborðið, ,,diskurinn", eins og það var nefnt. Var ,,diskurinn" þakinn smáglösum, brennivínsstaupum, en fyrir innan borðið stóð maður, sem ekki gerði annað en hella brennivíni í glösin handa þeim, sem fyrir utan borðið voru og óskuðu að fá í staupinu. Annar maður stóð við stóra brennivínsámu og mældi í ílát handa þeim sem fyrir innan borðið voru að verzla. Allir þeir sem lögðu inn ull og verzluðu, fengu á ferðapelann ókeypis, þriggja pela flösku hver maður, og lestamenn þeirra líka. Heldri bændur fengu portvínsflösku. (Ætluð frúnni heima?) Þetta var utan þeirra vínkaupa sem menn kunnu að vilja gera".

Sigurður Þorsteinsson, Endurminningar Jóns frá Hlíðarenda, bls. 22: ,,Um þessar mundir voru veizlurnar margar og allfjölmennar (á Eyrarbakka) jafnvel þótt fátækt fólk ætti í hlut, en flestar voru þær gerðar með góðfúslegri aðstoð Thorgrímsens, sem var frömuður alls fagnaðar og félagsskapar á Bakkanum á þeim tíma og lagði víst oft til frá sjálfum sér drjúgan styrk og lánað allan borðbúnað frá verzluninni, eins og með þurfti og margt fleira, fyrir enga borgun. Það mætti annars skrifa margt um þau hjón. ... Ekkert heimili hefi ég þekkt, er betri áhrif hefur haft á mig, en ,,Kaupmannshúsið". Þar var glaðværð og góðir siðir samfara guðsótta og góðum heilræðum".

Myndm2.mbl.is (opnast í nýjum flipa)

Búðarloka hefur verið skýrt svo, að verslunarþjónn (búðarloka) opnaði lúgu eða hlera á ,,diskinum" til þess að hleypa viðskiptamanni út eða inn fyrir búðarborðið.

Myndir

Einnig frá árinu 1872

  • Vistarskyldu frá nú flýjum
  • Valgerður Árnadóttir dó
  • Læknir veit - þótt lífi hraki -
← 1872Valgerður Árnadóttir dó1872 →Læknir veit - þótt lífi hraki -