Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1874
1874
1874

Við hungur, vosbúð og veðrafár

Hljóðbrot0:00

Lag Heimsins þegar hjaðnar rós - Bj.Þ. 914

VVið hungur, vosbúð og veðrafárí vistarbandiþraukað höfum þúsund árí þessu landi.

Stjórnarskrárinnar fagnar frelsifólkið um svo munarsem lengi bar á hálsi helsihúsagatilskipunar.

Glúmur Gylfason · 1874

Heimildir og samhengi

Þúsund ár talin frá landnámi Ingólfs Arnarsonar.
Hátíðahöld víða um land af því tilefni og var sú stærsta:
Þjóðhátíð á Þingvöllum. Konungur sótti Ísland þá heim í fyrsta skipti.

FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

Vistarbandið lagði íslenska löggafarþingið að mestu af tuttugu árum síðar, 1894, en til voru þeir sem sýttu bæði það og húsagatilskipunina (frá 1746) enda hjú misjöfn.

Kristján IX. afhenti Íslendingum ekki nýja stjórnarskrá á Þingvöllum 2. ágúst. Hún var þá orðin hálfs árs gömul og vel geymd í Statsarkivet í Kh.. Með henni lauk konungseinveldi sem staðið hafði frá 1662, en lokið hafði í Danmörk 5. júní 1849. Stjórnarskráin var í flestu samhljóða stöðulögunum sem kölluðu á mótmæli 1871 til 1873.
Þá færðist og fjárveitingavaldið nú til alþingis svo sem því hafði staðið til boða í áratug.
Sjá 1896,
en þar er þessi saga stjórnarskrárinnar sögð ítarlegar þar sem fjallað er um Grím Thomsen.

Frá því að Danir fengu stjórnarskrá, 1849, höfðu þeir samið og sent hingað tilskipanir og/eða frumvörp sem kváðu á um aukin réttindi borgaranna, t.d. í verslunar- hjúskapar- og erfðamálum. Hér hafði verið rökrætt innan og utan þings um í hvaða mæli skyldi innleiða borgaraleg réttindi og sýndist sitt hverjum. En með stjórnarskránni 1874 tóku Danir af skarið og tróðu upp á okkur trúfrelsi, atvinnufrelsi, funda- og félagafrelsi sem og fjárveitingarvaldi auk prentfrelsis og frjálsrar verslunar, sem staðfest voru 1855.
Tilvísun: Ingi Sigurðsson, Erlendir straumar og íslensk viðhorf, bls. 80, 88, 91,
og á bls, 105: ,,...í samanburði við ýmis önnur lönd hamlaði það nokkuð útbreiðslu hugmynda um ákveðin borgaraleg réttindi, að öfluga miðstétt skorti".

Kristleifur Þorsteinsson, Úr byggðum Borgarfjarðar, hermir að bændur hefðu komið lausríðandi til Þingvalla um hásláttinn, en þó var að auki haldinn þjóðhátíðardagur í sveitum vegna stjórnarskrárinnar.
Enn fremur á bls. 188: ,,...nú hófust nýir tímar ...umbótahugur bænda og vinnukapp færðist í aukana og fékk nýtt líf".

Á hátíðinni í Reykjavík í Dómkirkjunni 2. ágúst 1874 var í fyrsta sinn fluttur Lofsöngur Matthíasar Jochumssonar, Ó, Guð vors lands, undir lagi Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, sem síðan hefur verið þjóðsöngur Íslendinga.
Það má hafi verið blandaður kór undir stjórn Olufu Finsen (sjá 1865) sem söng enda er vitað að hún stjórnaði sama söng við útför Jóns Sigurðssonar og Ingbjargar Einarsdóttur 4. maí 1880.
Olufa kom til Íslands 1865 sem stiftamtsmannsfrú og byrjaði fljótt að æfa blandaðan kór, sem var nýnæmi hér á landi.
Nemandi hennar var Jónas Helgason, sá sem varð dómorganisti 1877 að Pétri Guðjónssyni látnum, og bendir til þess að Olufa hafi stjórnað blönduðum kór í kirkjunni 1874.

Endurminningar Jóns frá Hlíðarenda, bls. 21: ,,2. ágúst komu út sálmar sem syngjast skyldu í öllum kirkjum. Við Bjarni sál. Pálsson frá Götu (1887) og ýmsir fleiri vorum boðnir heim í ,,Húsið" á Eyrarbakka til G. Thorgrímsen sunnudaginn næsta fyrir þjóðhátíðina, til að læra þessi lög, Vor dætur Thorgrímsens, þær Sylvía og Ásta, búnar að læra söng og hljóðfærarslátt hja Láru Guðjohnsen. Þeim gekk vel aðkenna okkur lögin og söng ég þau í Stokkseyrarkirkju með öðrum, þar á meðal Thorgrímsensdætrum."

Í framhaldi segir Jón frá því að næsta sunnudag, að aflokinni messu á Stokkseyri, hafi G. Thorgrímsen sagt viðstöddum frá för sinni til konungsfylgdarinnar á hátíðina á Þingvöllum fyrri sunnudag. Það kvöld, segist Jón hafa lært þjóðsönginn, ,,Ó, Guð vors lands", í Húsinu. Systurnar sungu, en húsmóðirin sat hjá og grét af hrifningu".

Sjá þó1918 - hvað leikið var 1. desember það ár.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)

Tilv. Saga Íslands X, 206; Ritsafn Eyjólfs Guðmundssonar bls. 213.

Einar Olgeirsson í tímaritinu Réttur 1926 á bls. 10:
,,Íslendingar hafa litla ástæðu til að vera stoltir af því að hafa í þúsund ár setið á sömu þúfunum, lagt varla nokkurn vegarspotta, höggvið og brennt niður skógana, byggt sömu hrörlegu moldarkofana, stundað sama búskapinn á sama hátt með sama andlega viðbitið allar þessar aldir, eigi eftir 1000 ár ekki eina einustu stílfagra kirkju, ekkert málverk, enga höggmynd, engin verkleg afreks- eða listaverk".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Þá segir Einar að áhersla á að varðveita íslenska menningu frá erlendum áhrifum sé hættuleg, - án þeirra muni hún veslast upp og deyja. Útlend áhrif séu vatnsstraumur sem frjóvgar snauða jörð vora. Ei skuli láta þjóðlegan arf heltaka sig heldur skapa sjáfstæð stórvirki.
Þetta ritar Einar Olgeirsson réttum tíu árum áður en Dimitrij Shostakovich er í fyrra skiptið birt ákæra fyrir að semja tónlist sem ekki fellur félaga Stalín í gerð og leiðir hugann að því sem haft er eftir Jóni Óskari, rithöfundi, við 1923 hér á síðunni um framkvæmd kommúnismans.

Um skrif Einars í Rétti fjallar Ragnheiður Kristjánsdóttir í Nýtt fólk á bls. 199 - 208.

Tíu árum síðar kvað við allt annan tón. Að fengnum fyrirmælum frá Stalín sem gefin voru 1934/1935, sneru Einar og kommúnistar við blaðinu. Í stað róttækrar alþjóðahyggju og meðfylgjandi ,,ættjarðarleysis" (sbr. HKL í Heimsljósi) komu þeir hinum flokkunum gersamlega á óvart með róttækri þjóðernisstefnu, stoltir af ,,feðrunum frægu í sælunnar reit" og unnu þrjú þingsæti í kosningum 1936, - sjá 1934, 1937 og 1938.

Myndir

Einnig frá árinu 1874

  • Í honum sá átti veð
  • Bregðast synir bænda vonum
  • Sjónum virtust seglin fögur
  • Gleymd þá voru gömlu lögin
← 1873Vistlausir á vergangi1874 →Í honum sá átti veð