Bregðast synir bænda vonum
Lag Angri sáru yfir sæt - BjÞ 827
Bregðast synir bænda vonumsem bókin gerir aumaog nú vill Þóra kenna konumknipla, reikna, sauma.
Að kvennaskóla lítið liðlæra ei neitt sem gagn er aðekkert hirt um súr og sviðen saumað út og bróderað.
Kona skal þá byrði bera:bræðrum hlýða´ og þjónamjólka, strokka, skrúbba, skeraskammta, spinna, prjóna.
Meira úr piltum mátti gera- sú mannkyns hæst er króna -magistera og máske séraer messu syngja og tóna.
Heimildir og samhengi
Hannes Þorsteinsson (1860-1935), ritstjóri, segir föður sinn hafa lagst gegn skólagöngu hans, sem skyldi taka við búi og verða þeirra stoð í ellinni og segir í ævisögu sinni: ,,...ég var hið elsta barn hans...og líklegastur til að verða foreldrunum til styrktar sem vinnumaður ..kauplítið eða kauplaust... stundarhagsmunir foreldranna teknir fram yfir óskir og framtíð barnanna”.
Þessa viðhorfs guldu og aðrir skólar.
Tekur til starfa í Reykjavík Kvennaskóli Þóru (1823-1919) Melsteð Grímsdóttur amtmanns og k.h. Birgitte Cecilie, dönsk.
Eftir Þóru fylgdu kvennaskólar í Eyjafirði og Skagafirði 1877. Þá skóli Húnvetninga 1884, síðast á Blönduósi, og starfaði til 1978.
Húsmæðraskólinn Ósk var stofnaður árið 1912 á Ísafirði og starfræktur til 1990.
Elín Briem, Eiríksdóttir (1856-1937), var skólastjóri kvennaskóla í Skagafirði og á Ytri-Ey á Skagaströnd. Síðar stofnaði hún Hússtjórnarskóla
ReykjavíkurWikipedia (opnast í nýjum flipa).
AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)
Jafnvel harðar var barist á móti kvennaskólum en öðrum skólum. Þóttu ,,...kvennaskólarnir stofnaðir fyrst af dönskum áhrifum og nú reykvískum og sýnir áherslan á erlend tungumál og hannyrðir skilningsskort á þörfum sveitanna”.
Til þessa áróðurs er rakið hve illa gekk að afla rekstrarfjár enda tókust samskot best í Danmörk og nokkuð í Skotlandi eða 90% safnaðs fjár. Ekki þurfti þá framar vitnanna við hvar fiskur lægi undir steini, þegar stærsta framlagið, 1.500 kr. kom frá því danska Örum & Wulff sem barðist fyrir lífi sínu við þjóðlegu verslunarfyrirtækin, Gránu og KÞ.
Um fjársöfnun sem landshöfðingjafrú, Olufa Finsen, lét efna til í Danmörk er hér fjallað um 1865.
Guðrún P. Helgadóttir ritar um Þóru Melsteð í ,,Kvennaskólinn í Reykjavík 1874-1974", bls. 7.
Guðfræðingatal getur þess víða fram til níunda áratugar 19. aldar, að viðkomandi prestur hafi sem stúdent kennt SVEINUM á tilteknu prestssetri. Dæmi: sr. Benedikt Kristjánsson, Grenjaðarstað.
FréttFréttablaðið (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Þúsund ár frá landnámi Ingólfs og Hallveigar. Jónas spuði: Höfum við gengið til góðs götuna fra eftir veg.?
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Sjá t.d. 1880 - bændaskóla Torfa, 1892, Flensborg.
Ofanritað skýrir að með þrotlausu striti hafði þjóðinni tekist að lifa af landinu í þúsund ár með því að hver kynslóð hafði lært af annarri það sem til þurfti. Í vöku féll fólki ekki verk úr hendi og leti var dauðasynd. Viðbrigðin voru því mikil þegar ungt fólk lagði frá sér skóflu og sleif, tók upp bók og penna og lærði nýjungar.
Eldra viðhorfið kom þó síðar fram hjá kommúnistum, sjá hér 1923: ,,allir út að moka", og í nafninu ,,stjórn vinnandi stétta" 1934, og í menningarbyltingu Maós í Kína 1966 til 1976, sem sendi menntamenn út í sveit að vinna erfiðisvinnu.