Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1874
1874
1874

Í honum sá átti veð

Hljóðbrot0:00

Lag Kálfar tveir í kúamynd

ÍÍ honum sá átti veðer engar þekkir skorðursvo ,,Benedikt tók Bakkus meðþá bú sitt flutti norður".

Bensa Sveins og Saura-Gíslasamviska laus við bletti(?)sjösinnum um þá samin skýrslasamtals í Hæstarétti.

Glúmur Gylfason · 1874

Heimildir og samhengi

Skv. Guðjóni Friðrikssyni, Einar Benediktsson I, 41 og Birni Þórðarsyni, Landsyfirdómurinn 1801-1919, bls. 164:

GF: 19. ág. 1870 er Benedikt Sveinsson, 44 ára gamall, sviptur landsdómaraembætti með konungsbréfi en fær 450 rd. eftirlaun, hafði haft 1.400 rd. Benedikt hafði óhlýðnast boði um að flytjast til Reykjavíkur, vanrækt embættisskyldur dómara með margs konar óreglu, óstundvísi og hirðuleysi.

BÞ: ,,Stóð allmikill gustur af öllum framkvæmdum hans og umsvifum (á Elliðavatni). Þoldi hann hvorki nágrönnum sínum né öðrum ...að þeir á neinn hátt stæði í vegi hans". Hann átti í mörgum málaferlum, þ. á m. við Thomsen kaupmann um laxveiði í Elliðaánum.
Að boði stjórnarinnar fékk Benedikt alvarlega áminningu frá stiptamtmanni 1870, sem hann virti að vettugi.

GF bls. 58: ,,Þegar Kristján IX. kom 1874 með stjórnarskrá*, sem Benedikt hafði beitt sér fyrir á þingi, að kóngur skyldi hafa sjálfdæmi um, þá var í konungsfylgdinni Íslandsráðherra, Chr. S. Klein, skólabróðir og persónulegur vinur háskóladúxins Benedikts, en líka persónulegur vinur Kristjáns IX.
2ur dögum áður en kóngur siglir af landi brott er gefið út bréf um að Benedikt verði sýslumaður Þingeyinga”.

Freigátan Jylland, sem enn siglir sem sýningar og skólaskip, flutti konung með fylgdarliði til Íslands:
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

Jón Þorkelsson, Forni, segir frá því í Merkir Íslendingar II, 140, hvernig Benedikt braut odd af oflæti sínu við konungskomuna 1874 og gekk á fund Magnúsar Stephensen, landshöfðingja, sem í fullkominni óþökk Benedikts hafði setst í Landsyfirréttinn þegar honum var vikið þaðan 1870. Bað nú Benedikt landshöfðingja fyrir tilstilli Oddgeirs Stephensen að útvega sér sýslumannsembætti Þingeyjarsýslu sem þá var laus. Vel má þetta ríma við frásögn Guðjóns, nefnilega, að ráðherra og kóngur hafi viljað að embættisveitingin færi þessa leiðina og með því viljað girða fyrir gagnrýni á hana.

Hafi þeir kóngur búist við að Benedikt léti sér nú segjast og Hæstiréttur þyrfti a.m.k. ekki lengur að fást við hans mál, þá varð reyndin önnur. Benedikt var annarrar náttúru en þeir Árni Magnússon og Páll Vídalín, sem létu gott heita eftir að þeim var þægt - sjá1703, 21. lína.

Sem þingmaður hóf Benedikt 1885 baráttu fyrir nýrri stjórnarskrá með það að markmiði að færa æðsta dómsvald inn í landið, þ.e., afsegja Hæstarétt í Kaupmannahöfn og fækka þar með dómstigum um eitt.
Frá Landsyfirdómi var áfrýjað alls 100 málum til Hæstaréttar frá 1801 til 1919, þ.e., minna en eitt mál á ári að meðaltali.
Þrisvar höfðu mál Benedikts farið til Hæstaréttar, en fjórum sinnum náðu mál Saura-Gísla þangað (sjá 1866).
(Björn Þórðarsom, Landsyfirdómurinn 1801-1919, bls. 219).
1886 sótti Benedikt svo aftur um laust dómaraembætti við Landsyfirréttinn, en hlaut ekki.

Guðjón Friðriksson ... bls. 60: ,,gamli Bakkus er einnig með í för (norður) og í fylgd hans getur Benedikt orðið býsna svakalegur”.
Einar, 10 ára, fylgdi föður sínum, en skilin voru þau hjónin, Katrín Einarsdóttir, stórbónda á Reynistað, sem hún fékk engan arf eftir enda hafði hann kostað nám Benedikts og fjárfestingar og hlýtt hans ráðum í fjármálum, sbr. m.a. bls. 43 í sögu Guðjóns.
Leiðir það hugann að landsmálastefnu Benedikts á þingi (sjá 1897), Blaðamannaávarpi Einars og fjármálaráðgjöf hans árið 1888.

Héðinshöfði við Skjálfanda, þar bjó Benedikt Sveinsson.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

*Kristján IX. kom ekki með neina stjórnarskrá, sjá. 1896.

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Vefurd113.web.wwi.dk (opnast í nýjum flipa)


Myndir

Einnig frá árinu 1874

  • Við hungur, vosbúð og veðrafár
  • Bregðast synir bænda vonum
  • Sjónum virtust seglin fögur
  • Gleymd þá voru gömlu lögin
← 1874Við hungur, vosbúð og veðrafár1874 →Bregðast synir bænda vonum