Rýmkast vistarbandsins bann
Lag Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869
Rýmkast vistarbandsins bannbregst við margur glaðurþrítugur hver kallast kannkóngsins lausamaður.
Heimildir og samhengi
Einar Laxness: Íslands saga III, bls. 132: ,,Á alþingi 1893 náðist loks samkomulag um ný lög um lausamenn og húsmenn, staðfest af konungi 2. febrúar 1894".
Með þeim var húsbændum enn heimilt að beita vinnufólk líkamlegum refsingum og stóð svo til 1929.
Vistarbandið var rýmkað til mikilla muna: ,,Hverjum sem orðinn var 22 ára varð heimilt að kaupa leyfisbréf hjá lögreglustjóra gegn tiltölulega vægu gjaldi, en fólk 30 ára og eldra fékk leyfisbréf ókeypis" - kóngsins lausamaður.
Í bændasamfélaginu voru ,,efnalitlir þéttbýlisbúar taldir úrhrök, eins konar mein á samfélaginu" (Ragnheiður Kristjánsdóttir, Nýtt fólk, 328).
Á heybandsmyndinni munu vera bændahjón, en þegar hjúum fækkaði máttu bændur vinna fleiri störf en áður.
Þetta átti sinn þátt í hve illa gekk að safna lausnargjaldi fyrir Vestmannaeyinga eftir1627, en segja mátti að þeir væru ekki hluti af bændasamfélaginu líkt og þeir sem stálust til að setjast að í og við verbúðir ár um kring og voru lausamenn þannig á pari við útilegumenn hjá bændafólki.
Óvinsældir lausamennskunnar meðal bænda má marka af flökkusögunni um svar bóndasonar sem prestur spurði hver Júdas hefði verið. ,,Hann var lausamaður”.
Vistarbandið var afnumið 1893/1894 svo löglegt yrði að manna skútur og vegavinnuflokka. Jafnframt varð þá löglegt að vinna við hvalvinnslustöðvar Norðmanna, sem skilaði landinu járn- og blikksmiðum og vélstjórum.
HeimildForlagið (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Í Danmörk var vistarband, stavnsbåndet frá 1733, afnumið í skrefum 1788 til 1800, en 1783, hertu íslenskir á vistarskyldunni, sem verið hafði á vinnufólki frá tíma Grágásar, þ.e., fyrir 1271. Danir horfðust í augu við það sem þeir kalla smánarblett á fortíð sinni og reistu voldugt minnismerki um afnám hliðstæðu vistarbandsins á miðri Vesterbrogade 1797, sjá mynd og slóð:
Vefurdanmarkshistorien.dk (opnast í nýjum flipa)
Hvorki frelsi almúgans 1894 né fullveldi þjóðarinnar 1918 var neitt sérstaklega fagnað á Íslandi, en þegar alþingi hafði vegna ósamlyndis ekki getað myndað ríkisstjórn í tvö ár, en Ísland verið fullvalda ríki í aldarfjórðung, var efnt til þjóðernissinnaðra hátíðarhalda um allt land 17. júní 1944og kallaðar ,,frelsishátíðir" af því tilefni að eitt orð var fellt úr stjórnarskránni, kóngur, og forseti sett í staðinn. Gat þingið þó ekki náð samstöðu um forseta, en erlendur her sestur að í landinu.
Í Skagfirskum annál Kristmundar Bjarnasonar er mynd frá frelsishátíðarhöldum á Sauðárkróki og sýnir stóran borða með áletruninni FRELSISHÁTÍÐ. Þetta er hvorki frá árinu 1894 né 1918 heldur 17. júní 1944.
Í Sovét-Íslandi, bls. 74, setur Þór Whitehead fram kenningu um það hvers vegna fullveldið féll í skugga fyrir lýðveldisstofnuninni: ,,...hugmynd Einars Olgeirssonar að taka þjóðernisstefnuna ...í þjónustu sósíalismans. Ísland hefði ekki öðlast raunverulegt fullveldi 1918 heldur væri ánauðug nýlenda erlends auðvalds ...Því ætti Kommúnistaflokkurinn að taka forystu í nýrri sjálfstæðisbaráttu".
Enn 1964 er Ísland aftur nýlenda erlendra stóriðjuauðhringa þegar Sósíalistaflokkurinn berst gegn álverum.
Einar Olgeirsson skrifar þá greinar í Rétt undir fyrirsögninni: Landsprangarar og Ísland nýlenda á ný?