Hjálpræðis- boðar herinn trú
Lag Dvel ég í draumahöll
Hjálpræðis- boðar herinn trúhlúir, seður, líknar.Skúla höldum heppinn nú,Hæstiréttur sýknar.Sankta Pétri' er Sölva' að barí sælu Himnaríkisitja' á vegg eg vildi þarog vera' í flugulíki.
Heimildir og samhengi
Hjálpræðisherinn byrjar starf á Íslandi.
,,Talsverð andúð var gegn Hjálpræðishernum" segir í Sögu Reykjavíkur, Bærinn vaknar, 159. Herkastalinn í Rvk. var risinn strax 1916.
Andúðinni á Hjálpræðishernum er lýst í Sölku Völku Halldórs Laxness, þar sem jafnt skríll sem prestur gera gys að boðun, starfi og samkomum Hersins og vitnað er í Upton Sinclair um það að hjálp við einstakling sé barnaleg viðkvæmni og hræsni - einnalíkast því að stökkva nokkrum vatnsdropum í Helvíti. (Bls. 341).
Sú stjórnmálahreyfing sem stofnuð var hér 1930 og HKL fylgdi að málum var sjálfskipaður fulltrúi þeirra sem minna máttu sín og átti því í vissri samkeppni við Hjálpræðisherinn þótt hann byði ekki fram í kosningum.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Hæstiréttur sýknar Skúla Thoroddsen af meintum embættisafglöpum í Skurðsmálum frá 1891.
Ákærandi Skúla, landshöfðingi, var ekki í náðinni hjá stjórninni, sjá 1897, og saksóknari þótti ekki sækja mál sitt fast. En alþingi samþykkti að rétta Skúla 5000 kr. sem miskabætur.
Landshöfðingi, Magnús Stephensen, reyndi að hindra að fjárlög fengju staðfestingu, en tókst ekki.
Hæst launaði embættismaður stjórnarráðsins 1904, Klemens Jónsson, hafði 6.000 kr. í árslaun.
+ Sölvi Helgason f. 1820, flakkari og/eða listamaður sem vissi sig vitran og engum líkari en Guði sjálfum enda sigldur (til fangavistar í Kaupmannahöfn).
Gullna-hliðsins að Himnaríki gætti Sankti-Pétur í leikriti Davíðs Stefánssonar um komu Jóns bónda og kerlingar hans þangað, en Davíð ritaði líka sögu um Sölva, sem bendir til þess að hann hefði ekki borið sig verr andspænis postulanum en kellingin og sál Jóns.
Í Tvennir tímar, bls. 92-96 skráir Elínborg Lárusdóttir lýsingu Hólmfríðar Hjaltson á Sölva, en hún var samtímis honum á heimaslóðum þeirra beggja.
Saga frá Skagfirðingum IV, 35: ,,Hafði hann nú sjálfur gjört sér passa undir nafni sýslumanns Valsöe hins danska í N-Múlasýslu. Stóð efst á bréfinu nafn Sölva og að hann væri gull- og silfursmiður og hárskerari er færi um land að skoða eldgjósandi fjöll, kletta og standberg, gjár og gljúfur, ár og fossa, vötn og skóga, heiðar og dali og hvað eina. Mælst var til að menn greiddu götu hans sem best og sagt óhætt mætti lána honum peninga, því goldnir skyldu þeir verða og taka mætti hann sér bólfestu hvar á landi sem hann helst vildi ...hafði hann náð eystra lakki frá bréfi, er stóð á innsigli sýslumanns í Múlaþingi og límt það sem kænlegast á vegabréf sitt ...Einninn sagði Sölvi að hann hefði með sundi bjargað 18 skipbrotsmönnum í senn úr sjó og hefðu margir þeirra verið að dauða komnir, en þó allir orðið við lífgaðir og hefði Danakonungur fyrir það afrek gefið sér gullmedalíu er vægi 24 lóð".
Lokaorð Sölva hefðu getað verið:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)