Vísur eftir Glúm Gylfason um

Annálsverð tíðindi á árunum1540 til 1950

Ein eða fleiri annálsverð tíðindi hvers árs færð í rím, frá siðaskiptum þar til Ísland gekk í NATO — með heimildum, myndum og hljóðbrotum.

vísur
868
ár
412
aldir
5

Vísurnar

t.d.

19. öld · 237 vísur, í tímaröð
  1. 1801Lag: Jólasveinar 1 og 8

    Fyrir Alþing Yfirréttur

    þar Ísleifur, Gröndal og Magnús kljást
    Hólaskóli síðast settur
    við sálmabók margur illa brást.
    2 erindi til viðbótar

    Á einu og sama árinu lagði Magnús Stephensen (1762-1833) þrenninguna að velli í stafrófsröð: Alþingi, Djöfulinn og Hólaskóla. Heimildarmenn: Bjarni Thorarensen, dómari og skáld og Jón Þorláksson, prestur og þjóðskáld.…

    Hlusta
    Hólar í HjaltadalLeirgerður, Sálmabók 1801Leirárgarðar+6
  2. 1802Lag: Varnæs' Sølvbryllupssang:

    Norðanlands er stríð og streita

    stjórnarinnar kassi þurr
    Hólavinir hár sitt reyta
    Henderson og Arnljótur
    Magnús virti ei metnað Hóla
    menntun nyrðra lítið rædd
    ekki skeytti um þann skóla,
    ,,upplýsingin, holdi klædd”.

    Torfi K. Stefánsson Hjaltalín - í Sögu Biskupsstólanna, 668 og í Eldi á Möðruvöllum, 153 - segir, að í lýsingu Hendersons á heimsókn hans til Hóla 1814 sé sú heiftarlega gagnrýni á Magnús Stephensen, að á Hólum hafi…

    Hlusta
    Hólar í HjatadalMagnú Stephensen dómstjóriSteingrímur Jónsson biskup: "Guð annist Ísland"!+1
  3. 1802Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Djöfull Steinku dáraði

    dugði til þess Bjarni
    þó að illa áraði
    að hún varð með barni.

    Á Sjöundá á Rauðasandi, næst við Skor, bjuggu í tvíbýli Bjarni Bjarnason (1761- 4/10 1805) og Steinunn Sveinsdóttir (1767-1805) sem myrtu maka sína, Guðrúnu Egilsdóttur og Jón Þorgrímsson. Á Jóni vann Bjarni við Skor og…

    Hlusta
    SkorarvitiSkor fjærst, 7undá, Melanes næstMúrinn við Arnarhól+3
  4. 1802Lag: Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830

    Bringukolls fann klerkur þjóf

    kauða ná- sér tengdan
    ekki lengi götur gróf
    í gálga batt og hengdi' h'ann.

    Íslendingabók um Árna Rafnsson, f. 1783: ,,Stal bringukolli og séra Jón í Glæsibæ hengdi hann”. Gísli Konráðsson, Bólu-Hjálmars saga II: ,,Árni umrenningur var Rafnsson, bróðurson Helgu, konu sjera Jóns…

    Hlusta
    Hjallur+1
  5. 1803Lag: Þrútið var loft og þungur sjór

    Á mölinni eiga margir bágt

    og mæðan orðin slík
    að ,,Seltjarnarnesið, lítið og lágt”,
    sig lögum úr segir frá Vík.

    Reykjavík varð sérstakt lögsagnarumdæmi, bæjarfógeti skipaður Rasmus Fridensberg. Vík hafði aðeins verið kvosin sem kóngur fékk Innréttingum Skúla Magnússonar til umráða 1752, en nú var þeim lokað, og seldar veturinn…

    Hlusta
    Grótta á SeltjarnarnesiAusturmark Seltjarnarness Seltjarnarnes+3
  6. 1803Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Þá Snorri bjóst af stað frá Stað

    stefndi að Húsafelli
    þar niður drísildjöfla kvað
    uns dó í hárri elli.

    Snorri Björnsson, prestur, f. 3. okt. 1710 Höfn undir Hafnarfjalli, d. Húsfelli 15. júllí 1803. Prestur þar frá 1757, en áður á Stað í Aðalvík frá 1741. Borgfirðingar trúðu að hann hefði á Hornströndum aflað sér…

    Hlusta
    Kvíahellan, 186 kg. aflraunasteinn SnorraBók Þórunnar Valdimarsdóttur um Snorra á HúsafelliHúsafellskirkja+2
  7. 1803

    Í nýársmessu nýtt bar til

    nær oss gafst að heyra
    - þótt Magnús vildi meira -
    fíólína fagurt spil
    fangaði vort eyra.

    Sr. Pétur Guðmundsson, Annáll 19. aldar l, 60: ,,1. janúar gjörði Markús Magnússon, stiptprófastur í Görðum, messugjörðina þar hátíðlegri en venjulega með samspili þriggja fíólína og telur Magnús Stephensen ... þennan…

  8. 1803

    Engu trúði Óli á Grím

    ólman glæpamanninn
    gabb og lygar, galdrarím
    grátt lék stiptamtmanninn.

    Sr. Pétur Guðmundsson, Annáll 19. aldar, l, bls. 63: ,,Grímur Ólafsson, prests að Kvíabekk, Jónssonar ... hafði verið í skóla að Hólum og ætlaði þá tvisvar eða þrisvar sinnum að kveikja í skólahúsinu. Síðan fýsti hann…

  9. 1804Lag: Seht, die gute Zeit ist nahe - EGB 18

    Úr lifenda tölu var Lúðvíki svipt

    sem lysti að Ólafur fyki
    ,,var þá sem steini af Stephensen lyft”
    stefnunni trúði að yrði nú rift
    en stjórnin þó hélt sínu striki.

    Skúli Magnússon og Jón Eiríksson voru menn sem tókst að gegna hæstu embættum ríkisins með sóma. Hundrað árum síðar kom svo Hannes Hafstein, ráðherra Íslands, og tókst m.a. að berja í gegn síma. Í kjölfar harðinda 18.…

    Hlusta
    Ludvig HarboeJón Eiríksso konferenzráð, faðir Ludvigs E.
  10. 1805Lag: Sá frjáls við lögmál

    Rektorinn utan hélt um haf

    hressti sig oft og mikið
    en hlýtur nú - og héðan af -
    að halda sig við (S)strikið

    Enginn skóli í Skálholti eftir jarðskjálftana 1784, en skólinn fluttur til Reykjavíkur 1786 og síðar nefndur Reykjavíkurskóli hinn fyrri. Hann stóð á mótum núverandi Kirkjugarðsstíg og Suðurgötu, gegnt…

    Hlusta
    Helligåndskirken við Strikið, Kh.Bessasstaðir, kirkja og skóliHólavallaskóli
  11. 1805Lag: Enginn þarf að óttast síður

    Allt varð betra á Bessastöðum

    Björn og Scheving lofi hlöðum
    þarf ei fletta þar um blöðum
    að þar var haldið vel á spöðum.

    Reykjavíkurskólinn ,,fyrri”, frá 1786, sjá þar, stóð á mótum núverandi Kirkjugarðsstíg og Suðurgötu, gegnt Hólavallakirkjugarði. Húsið þótti illa byggt, hélt hvorki vatni né vindum og kennslan sama marki brennd.…

    Hlusta
    Steingrímur Jónsson, rektor, síðar biskupBessastaðaskóli og kirkja 1834+3
  12. 1805Lag: Se den lille kattekilling

    I Gufudal spögelset gik amok

    da giftemålet fik knæk
    pigen var dansk med stövler og stok /
    og student Vigfús blev væk.

    Danskur draugur! Ísl. æviskrár: Vigfús stúdent Erlendsson, varð úti á Gufudalshálsi 28.11. 1805, sonur sr. E. Hannessonar í Gufudal og f.k. hans, Hólmfríðar Runólfsdóttur, prests Setbergi, Runólfssonar. Í ,,Þar minnast…

    Hlusta
    GufudalurGöngustafur - stok+2
  13. 1806Lag: Sá frjáls við lögmál

    Stjórnin er brá á Blöndals hátt

    og bú skyldi eiga hirði
    úrættis lét þá Ólafur fátt
    ef það var nokkurs virði.

    1787, í kjölfar harðinda 18. aldar ákvað stjórnin að selja konungs- og kirkjujarðir með góðum kjörum sem urðu enn betri vegna óðaverðbólgu á árum Napóleonsstyrjaldanna. 1797 var leiguliðum veittur forkaupsréttur að…

    Hlusta
    ÚthlíðarkirkjaMerki Búnaðarbankans gamla: "Sáðmaður fór út að sá"+3
  14. 1806Lag: Dvel ég í Draumahöll

    Ógift móðir 8 barna

    auk eins í hjónabandi
    lík- á börum liggur þarna
    líkaminn, en andi
    einhvers staðar yfir sveif
    ofar heimsins grandi
    en framhjáhald að hemja bleif
    hreppstjóranna vandi.

    Lést Arndís Jónsdóttir (~1745-1806), ,,Barna-Arndís” frá Gamla-Hrauni milli Eyrarbakka og Stokkseyrar. Eignaðist ung vinnukona í Meðallandi 3 börn með giftum mönnum þar og dæmd af sýslumanni til að drekkjast, en dómnum…

    Hlusta
    Hreppstjóri í Vogum, Árni Kl. Hallgrímsson. Mynd viðkemur ekki þessu efni.Bærinn að Gamla-Hrauni+3
  15. 1807Lag: Vorið góða, grænt og hlýtt

    Við Öxnadal Guð eigi spar

    ógnarstuði var í
    opnaði sín augu þar
    Íslands Stradivari.

    Afburðamönnum oft líkt við ítalska fiðlusmiðinn Antonio Stradivari (1644-1737), á latínu Stradivarius. Hljóðfæri Stradivari þykja bera af, en nafn hans þýðir einmitt: ,,allt öðruvísi", og á vel við þá Jónas báða.…

    Hlusta
    Hraundrangur í ÖxnadalA. StradivariJónas / Öxnadalur / Hraundrangur
  16. 1807Lag: Vertu, góði Guð, hjá mér – SB 553

    Fyrir Ísland útlit dökkt

    af enskum drekum hafið krökkt
    Höfn þeir skjóta' á, skipum sökkt
    að Skerið sökkvi stendur glöggt.

    Jón Hjaltason: Saga Akureyrar I, 61: ,,Danir vildu ekki blanda sér í vopnaviðskipti stórþjóðanna (Frakka / Englendinga). ...sögðu nei (við að afhenda flota sinn Bretum). 30.000 enskir hermenn gerðu árás á Kh. og…

    Hlusta
    Skotárás enskra á Kaupmannahöfn 1807Ensk kúla í vegg á Strikinu
  17. 1808Lag: Sá frjáls við lögmál

    Að lánist fara við lög á svig

    og landsins stoðir bresti
    trúum að endurtaki sig
    á tvö hundruð ára fresti.
    1 erindi til viðbótar

    Í skugga Jörundar hundadagakonungs (1809) stendur að ósekju Gilpin, kapteinn á ensku herskipi sem tók land í Hafnarfirði 23. júlí, og sem með tilstyrk 24 manna áhafnar stríðsskips, ss Salomine, hafði mótspyrnulaust á…

    Hlusta
     Bjarni kaup- og útgerðarmaður SívertsenÆseif+4
  18. 1809Lag: Dvel ég í draumahöll

    Í Flatey Schevings framabraut

    en forgefins Jörgens amt
    lítillar kóngsins náðar naut
    nógu varð ríkur samt
    en arrestdelar dugðu skammt
    dró af Jörgen óðum
    sjálfum gerðist tugthús tamt
    á Tasmaníuslóðum.

    Jörgen Jörgensen (1780-1841), Jörundur hundadagakonungur, dubbaði 6 Íslendinga til lífvarða í einkennisklæðum. Af tilefni valdatöku Friðriks VI. höfðu flestir fangar verið náðaðir 9. júní. Þegar Jörundur kom, 25/6,…

    Hlusta
    Jörgen JörgensenFlatey á BreiðafirðiFlatey á Breiðafirði+3
  19. 1809Lag: Þrútið var loft og þungur sjór

    Beittu álfar brögðum þar

    bóndi þoldi skell
    hreppstjórasonur heillaður var
    hvarf inn í Spákonufell.

    Gísli Konráðsson, Saga Skagstrendinga og Skagamanna, Ísafoldarprentsmiðja 1941, bls. 76: „Davíð Guðmundsson bjó á Spákonufelli eftir föður sinn og átti Katrínu Einarsdóttur, Finnssonar frá Ey. Voru þeirra synir Einar,…

    Hlusta
    Frank Webster, watercolor on paper  12 x 16 in  $2,200Spákonufell
  20. 1810Lag: Vatnsdælingastemma

    Eiríkur fékk ekki brauð

    einhver réð hann klaga
    klerkinn sem að kaffi bauð
    kóngi hundadaga.

    Kapellán til Mælifells, sr. Eiríkur Bjarnason (1766-1843) á Hafgrímsstöðum, hafði veitt J. Jörgensen nýnæmið kaffi og fékk þá loforð hans fyrir kallinu þegar í stað og án þess að bíða andláts sr. Bjarna Jónssonar…

    Hlusta
    Mælifell í Skagafirði um 1900Jörgen JörgensenDjúpidalur,  Skagafirði+3
  21. 1810Lag: Tíu litlir negrastrákar

    Vandlega Auðunar viðir tegldir

    verðugir biskupsstólum
    500 vetra voru seldir
    verði jöfnu Hólum.

    Páll Hjálmarsson (1752-1830) síðasti rektor Hólaskóla, systursonur Bjarna Pálssonar landlæknis og Gísli fyrrum heyrari þar Jónsson, biskups Teitssonar, keyptu Hóla og rifu 500 ára gamla (1318) Auðunarstofu og seldu…

    Hlusta
    Auðunarstofa hin nýja, Hólum
  22. 1811Lag: Sá frjáls við lögmál

    17. júní sæng á lá

    - Sigurður bjó í haginn -
    léttari gerðist Þórdís þá
    á þjóðhátíðardaginn

    * Jón Sigurðsson 17. júní á Hrafnseyri, d. 1879. Foreldrar sr. Sigurður Jónsson (1777-1855) prestur þar og Þórdís Jónsdóttir (1772-1862). (Sjá 1851, 1853, 1865, 1879). Guðjón Friðriksson, Vestanglæður, bls. 89:…

    Hlusta
    HrafnseyriJón Sigurðsson forseti á seðliJón Sigurðsson, forseti
  23. 1812Lag: Sá frjáls við lögmál fæddur er

    Ólafi sýndu sóma og art

    þá sunginn var til leiðis
    medalíuna klufu í kvart
    kaleikinn sömuleiðis.

    + fv. stam. Ólafur Stefánsson *1731. Fjögur barna lifðu föður sinn. Þótti lítið til þess koma er engum var boðið eins og þá var venja og fylgdu honum því aðeins nákomnir. Ólafi höfðu hlotnast heiðursgjafir, m.a. stór…

    Hlusta
    dansk medaljeGullbikarViðey, búst. stiptamtmanns
  24. 1812Lag: Ríður fríður riddarinn - Bj.Þ. 900

    Að böðli fundu þeygi þjón

    því varð úr að láta Jón,
    Stafns- frá hóli, hýða Jón
    hann svo aftur flengja Jón.

    Saga frá Skagfirðingum II, 166, úrdráttur: Jón Skúlason og Jón Tómasson voru báðir bændur á Stafnshóli. Þeir lentu í hests- og sauðaþjófnaðarmáli. Í Yfirrétti dæmdist þeim báðum að erfiða ævilangt í Kaupmannahafnar…

    Hlusta
    Hýðing með hrísvendi
  25. 1812Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Napoleons biti-ban

    Bonapartes: vetur.
    Um hans herja feigðarflan
    forleik samdi Pétur.
    Einn af sex komst enn til Franz
    örkumla og snauður
    annar fangi andskotans
    afgangurinn dauður.

    Herför Napoleons inn í Rússland árið 1812. Andskotar Frakka voru því Rússar. 600 þúsund hermenn Napoleons lögðu af stað í herförina. 400 þúsund hermenn féllu. 100 þúsund teknir til fanga. 100 þúsund komust til baka til…

  26. 1813Lag: Eins í vöku og eins í blund - Bj.Þ. 829

    Fórst nú enn á Skeiði skip

    við skammarræður Drafnar
    upp- þó reyndust gjarnan grip
    grönnum Þorlákshafnar.

    Saga Eyrarbakka eftir Vigfús Guðmundsson, bls, 474: Eyrarbakkaskip, sem siglt hafði þangað síðan 1795, strandaði 30. maí á (Þorláks-) Hafnarskeiði vestan Ölfusáróss. Skipverjum bjargað og góss og skip selt á 9.300 rd.…

    Hlusta
    Eyrarbakki(Þorláks)HafnarskeiðUppboð á Eyrarbakka+1
  27. 1813Lag: Sá frjáls við lögmál

    Frúin hans Gísla, hún Guðrún, veik

    fyr'ir greifum og höfðingjakyni
    átti svo konan við Castenskjold leik
    en kaupmaður gekkst við syni.

    Johan Carl Thuerecht von Castenschiold, var stiftamtmaður á Íslandi 1813-1819. Sjá 1814. Íslenskar æviskrár um Gísla Símonarson *~1774 í Málmey, kaupm. í Vestmannaeyjum, Reykjavík og Skagaströnd: ,,...kona: Guðrún…

    Hlusta
    Drosche - drossíaMálmeyStam. Castenskjold
  28. 1813Lag: Rósin 2

    Járn og öxi á nú spara

    í öðru lífi refsi Guð
    gapastokkur, stegla og snara
    standa að mestu ónotuð.
    1 erindi til viðbótar

    https://www.youtube.com/watch?v=ZUBc-IsEOzI https://www.youtube.com/watch?v=cPEVH8cJOrc Kóngur, Friðrik VI., sagði enskum stríð á hendur eftir árás þeirra á Kh. 1807. Danmörk varð gjaldþrota 1813. (Sjá 1808). Enskir…

  29. 1813

    Castenskjold meina því trauðla tengist

    þótt takmarkalaust hér hór viðgengist
    sem enginn lengur fyrir flengist
    og friðill þar fyr'ir aldrei hengist.

    Séra Pétur Guðmundsson, Annáll 19. aldar, bls. 224: ,,Bjarni ... hafði getið mörg börn í hórdómi og mörg í frillulífi og varð eigi afstýrt enda gerðist það torvelt því trautt vildu margir gjalda hórdómssektir síðan af…

  30. 1814Lag: Rósin

    Bjuggu undir einu þaki

    Árni og Rask með Bjarna Thór
    dómstjóranum tæpt að taki
    tveimur höndum í þann kór.
    3 erindi til viðbótar

    Johan Carl Thuerecht von Castenschiold, var stiftamtmaður á Íslandi 1813-1819 Castenskjold var tekinn fram yfir Magnús Stephensen í embætti stiftamtmanns 1813 og urðu litlir vinir eftir það. Niðurstaða vísunnar er…

    Hlusta
    Austurstræti 22+10
  31. 1815Lag: Seht, die gute Zeit ist nahe - EGB 18

    Útsendur hingað engill var

    oss er skylt að muna
    Henderson ei á hana spar
    er kölluðu' í græsku gárungar
    Grútarbiblíuna. .

    ,,Engill sendur frá himni”, orð Jónasar Gíslasonar vígslubiskups, um Skotann Ebenezer Henderson, er ferðaðist um Ísland 1814-1815 fyrir Breska og erlenda biblíufélagið með um 10.500 Nýja testamenti og Biblíur og seldi…

    Hlusta
    Ebenezer HendersonHendersonsbiblía
  32. 1816Lag: Seht, die gute Zeit ist nahe - EGB 18

    Glöggt var eyra gestsins þá

    glapti landann vaninn
    *,,þú komst þegar Fróni reið allra mest á”
    **,,;/; eini góði Daninn ;/;”

    Christian Rasmus Rask (1787-1832), málfræðingur, hafði ferðast um landið frá 1813 til 1815. Honum blöskraði ástand íslenskrar tungu, vakti Íslendinga til meðvitundar um gildi hennar og gekkst fyrir að stofnað var í…

    Hlusta
    Christian R. Rask, málfræðingurÞorsteinn ErlingssonSkírnir 1827
  33. 1817Lag: Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869

    Bakkus einatt alls til vís

    ekki bregður vana
    á Svínavatni um veikan ís
    verður presti að bana.
    1 erindi til viðbótar

    Rósberg G. Snædal, Hrakfallabálkur bls. 104: 4. febr. ,,Séra Jón Jónsson prestur á Auðkúlu drukknaði af hesti niður um ís á Svínavatni undan ósum Svínadalsár. ...var nokkuð kenndur orðinn er hann ...týndist í blindvök…

    Hlusta
    Auðkúlukirkja við SvínavatnSvínavatn, Húnavatnssýslu+2
  34. 1818Lag: Pétur þar sat í sal

    Að Frón stefni fram á við

    ei fyrir synjandi
    setur á Sjáland mið
    Símon á Dynjandi.

    Símon Sigurðsson frá bænum Dynjandi, Arnarfirði (1788-1859) ,,er fyrsti Íslendingur sem vitað er til að stýrt hafi skipi milli landa á síðari öldum”. Tilvitnun í bréf dagsett í Kh. 1. okt. 1818. Fjórir synir hans…

    Hlusta
    Dynjandi í ArnarfirðiDynjandi í Arnarfirði
  35. 1818Lag: Veröld fláa - Stúd. 87

    Bækur gaf til bókasafns

    bryddaði upp á nýju
    því maklegt er að minnast Rafns
    meður þeli hlýju.

    Jónas Ragnarsson, Dagar Íslands, 28. ágúst: ,,Landsbókasafn Íslands er talið stofnað þennan dag. Það hét upphaflega Stipts bókasafn... Jón Árnason (1819-1888) var fyrsti bókavörðurinn. Safnið var fyrst á lofti…

    Hlusta
    C. C. Rafn frumkvöðull að stofnun LandsbókasafnsinsLanndsbókasafnið fv.Þjóðarbókhlaðan+1
  36. 1819Lag: Leslie Sarony - Rhymes (1932)

    Um Jón gekk jafnan rykt

    að jómfrúm yki þykkt
    á Bæsá bjó
    á Bæsá dó
    á Bæsá orkti dikt.

    + séra Jón þjóðskáld Þorláksson (f. 1744), sem þýddi m.a. Paradísarmissi enska skáldsins Johns Milton (1608-1674). Jón orti afburða vel, var fyrstur nefndur þjóðskáld, en nú er þó aðeins einn sálmur eftir hann í…

    Hlusta
    Kirkjan að Ytri-BægisáLeirgerður Hraundrangur blasir við frá Bægisá séð+3
  37. 1820Lag: Kindur jarma í kofunum - Bj.Þ. 618

    Illum tungum tamt ei varð

    tugthús nefna konungsgarð
    breytti því hvorki né bætti úr skák
    að beislaði Magnús sinn ljóðafák.

    Við skipan Moltkes í embætti stiptamtmanns 1819 var typtunarhúsið, núverandi stjórnarráðshús, rækilega tekið í gegn, en illa gekk að festa nýtt nafn á það, enda téður fákur Magnúsar Stephensen aldrei talinn kostagripur.…

    Hlusta
    Eftirmynd af málverki Moltkes af Kóngsgarði.PegasusMagnús Stephensen
  38. 1821Lag: Dvel ég í draumahöll

    Kjærnested nyrðra kennir sund

    kann á því tökin þýð
    hefur og líka lagt á stund
    lækningar, rennismíð.
    Eyfirðingum brá í brún
    þar bændur tóku að frétta
    á Skipalóni tækist tún
    með tólum jafna´og slétta.

    Jón Kjærnested (1798-1836) frá Skriðu í Hörgárdal var fyrir verðleika föður síns, Þorláks Hallgrímssonar (1754-1846), frumkvöðuls í (trjá)ræktun, boðið til jarðræktarnáms í Danmörk og kynnti sér og lærði, auk þess sem…

    Hlusta
    Plægt Trén við SkriðuÞorsteinn Daníelsson, b.m.m., Skipalóni+6Myndband
  39. 1821Lag: Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

    Kristrún Þorsteins, Þingeyingur,

    þar til hagyrðingur
    hafði að auki fima fingur
    firna- smiður slyngur.

    Fárra hagorðra kvenna getið í fornum fræðum, hvað þá að kona sé sögð: ,,ágætur smiður og vel hagorð", en það gera útgefendur Sögu frá Skagfirðingum II í athugasemdum bls. 156. Kristrún Þorsteinsdóttir (1751-1821), ekkja…

    Hlusta
    Kristnes
  40. 1821

    Skipbrotsmenn á Skaga hlutu

    í skemmu hafast við
    uns sveitungar þar saman skutu
    silfri og veittu lið.

    Gísli Konráðsson, Saga Skagstrendinga og Skagamanna, bls. 88: „Nú var mjög kalt vor 1821 og hafísar miklir. Það var á langafrjádag að hvalfangarar (frá Glückstad) náðu landi á Þingskála á Skaga, er brotið höfðu skip…