Vísur eftir Glúm Gylfason um

Annálsverð tíðindi á árunum1540 til 1950

Ein eða fleiri annálsverð tíðindi hvers árs færð í rím, frá siðaskiptum þar til Ísland gekk í NATO — með heimildum, myndum og hljóðbrotum.

vísur
868
ár
412
aldir
5

Vísurnar

t.d.

17. öld · 169 vísur, í tímaröð
  1. 1601

    ,,Formyrkvan sólar á Magnúsarmessu /

    mestallan daginn stóð"
    svo óáran verður nú upp frá þessu
    iðrist ei gjörvöll þjóð.

    Fitjaannáll II, 91: ,,Skeði hræðileg formyrkvan á sólunni á Magnúsarmessu fyrir jól (13. desember), stóð yfir lengi dags eður mestallan daginn, svo sólin varð öll svört, sem boðaði eptirkomandi óáran (einokunarverslun /…

  2. 1601Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Þótti verst við Blefkens bók

    að blóð- ei sýndi þorsta
    samt öllum framar Ormur tók
    um ofbeldi og rosta.
    Er Krákur mátti um krákustíg
    komast leiðar sinnar
    Ormur hótar: ,,á þig míg,
    slæ augu út á kinnar”.

    Ýmsir græddu á að rita ferðabækur um Ísland þótt aldrei hefðu þangað komið. Þar voru Íslendingar sagðir ,,deilugjarnir, illviljaðir, hefnigjarnir, fláráðir, þrællyndir, óhófsamir, lostafullir, saurlífir, svikulir og…

    Hlusta
    Simeone og CR7 leika eftir séra OrmiSkansinn nýi á Heimaey+3
  3. 1602Lag: Dvel ég í draumahöll

    Kristjáni hinum fjórða falt

    flest er orðið núna
    kóngur lítur á Ísland allt
    sem aðalmjólkurkúna
    er nú boðin upp og seld
    útpæld kaupslagsmöndlun
    betur þoldum ís og eld
    en einokunarhöndlun.
    1 erindi til viðbótar

    Missa nú ríkir spón úr aski sínum - sjá 1604, Líftaug landsins bls. 214. Skotinn Adam Smith (1723-1790) ritaði ,,Auðlegð þjóðanna", útg. 1776 og boðaði frjálsa verslun. Áratug síðar var verslun Íslands gefin frjáls…

    Hlusta
    Kristján IV.Hamborg 1811Kort: Kaupmannahöfn á 17. öld+1Myndband
  4. 1602Lag: Augun mín og augun þín

    Snauðir máttu snúa frá

    er snapa vildu í kviðinn
    því boginn hrundi af Brúará:
    Er brytinn þar við riðinn?

    Úr Biskupasögum Jóns prófasts Halldórssonar (1665–1736) í Hítardal: ,,...1602, var af fátæku umferðar og uppflosnuðu fólki úr öllum áttum mikil aðsókn að Skálholtsstað. En bryti staðarins meinti henni mundi réna, ef sú…

    Hlusta
    Brúarfoss
  5. 1602Lag: Veröld fláa

    Höggva þennan Barna-Björn

    böðull illa í standi:
    fjórar konur, fjögur börn
    fjarri hjónabandi.
    1 erindi til viðbótar

    E.t.v. fyrst höggvinn karl skv. Stóradómi: SkarðsárannálI l, 187: ,,Tekinn af á alþingi Björn Þorleifsson fyrir kvennamál og annað svall, fékk góða iðran. Biskupinn, herra Oddur, áminnti hann sjálfur. Hann kvaddi menn…

    Hlusta
    Mastro Titta,  böðull Vaticansins frá 1796 í 68 ár
  6. 1603Lag: Það liggur svo makalaust ljómandi á mér - Stúd. 43

    ,,Hann Fúsi sem kallar sig lögmann” lést

    en langt er nú síðan að það hafði gerst
    sem Magnúsi þótti á þeim tíma verst
    og þess vegna vestur á firðina sest.
    Hæ, dúllía, dúllía .......
    1 erindi til viðbótar

    1603 deyr sm. Vigfús Þorsteinsson, Skútustöðum og Ási í Kelduhverfi, sonur Þorsteins í Reykjahlíð, Finnbogasonar Maríulausa Jónssonar Maríuskálds Pálssonar, d.~1470. Seinni kona Jóns Maríusskálds Pálssonar og langamma…

    Hlusta
    Námaskarð+3
  7. 1603Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Fátæklingur margur mát

    þá mændi út á fjörð
    því enginn fékk að eiga bát
    ef ekki fylgdi jörð.

    Þess skammt að bíða, sjá 1604, að lm. Þórður kvarti við kóng undan einokunarversluninni, en hefur ekki áhyggjur (sbr. vísuna) af eftirfarandi: Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, bls. 19: ,,Það sjónarmið, að…

    Hlusta
    Bátur í Skáleyjum
  8. 1604Lag: Hani, krummi / Austankaldinn

    Á Eyrum berja bændur á

    búðarlokuþjóni
    að svoddan Þórður sveigir skrá
    Svalbarðs- meður Jóni. .
    1 erindi til viðbótar

    Þórður lm. SA Guðmundsson (~1524-1608) 80 ára, mótmælir skriflega nýjum verslunarháttum Kristjáns IV., þ.e., einokunarversluninni frá 1602, og hefur sem oftar samráð við lm. NV, Jón Svalberðing Jónsson, sbr. 1606 og…

    Hlusta
    Kristján IV.Friðrik II.+1
  9. 1604Lag: Hani, krummi / Austankaldinn

    Mættur er Brokeyjarjarlinn, Jón,

    jeg trúi ensku tali
    fái hann komið á fálka sjón
    fær honum breytt í dali.
    1 erindi til viðbótar

    Ísl. æviskrár: ,,Jón Pétursson (~1584-1667 eða 1672) fór til Englands 1591 með enskum skipherra, vini föður síns, Péturs Péturssonar í Arnarfirði, og vandist sjóferðum og kaupskap. Kom aftur til landsins í…

    Hlusta
    RíkisdalirFálkiBrokey+1
  10. 1605Lag: Sá frjáls við lögmál

    Ofan á hönd Jóns hellan féll

    og hún varð ekki fögur
    en þrátt vér megum þessum skell
    þakka Biskupasögur.

    Séra Jón Egilsson (1548 - ~1636), Hrepphólum, hættir prestskap eftir þetta vegna slyss, er steinn sem hann ætlaði til bæjarhellu féll í far sitt aftur og urðu fingur vinstri handar prests á milli og liðu tvö dægur áður…

    Hlusta
    SkrifariJárnkallHrepphólakirkja
  11. 1606Lag: Eg eri Jólamaðurin - H.J. Höjgaard

    Núna getur Gutti rótt

    Guðs sig falið valdi
    því lögmanns Jóns var sálin sótt
    sofnaði burt í tjaldi.
    1 erindi til viðbótar

    Jón lm. NV Jónsson, f. 1536, vaknaði ekki aftur í tjaldi sínu á Bessastöðum morguninn eftir veislu hjá nýjum hm., Herluf Daa. Vel átti að hafa farið á með þeim og taldi Jón sig hafa í H. Daa fengið góðan liðsmann gegn…

    Hlusta
    Bessastaðir 1834Guðbrandur Þorláksson HólabiskupBiskup og riddari takast á
  12. 1607Lag: Eg eri Jólamaðurin - H.J. Höjgaard

    Að Orminum skyldi enginn dást

    - ógurlegri en hugðum -
    um Löginn svamla lengi sást
    liðast með þremur bugðum.

    Fitjaannáll II, 94: ,,Sást ormurinn í Lagarfljóti austur með þremur bugtum. Sagt er að þar séu einninn tvær aðrar ókindur, selur og skata". J. Espólín: ,,...orminn sáu svo gjörla í þrem bugtum að maður hefði mátt ganga…

    Hlusta
    Veggskreyting utan við FSU, SelfossiLögurinn
  13. 1607Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Endilangur laminn féll

    landsins stærsti skógur
    olli þessu' á svipstund svell
    og svæsinn bylur nógur
    ekki skorti eldivið
    - upp gekk rúm í hjöllum -
    brandar gætu bæst í lið
    báls á Möðruvöllum.

    Alþm. Einar Arnórsson birti eftirfarandi í blaðinu Suðurland 4. apríl 1914 og heimild hans eru jarðabókarhöfundarnir, Árni og Páll: ,,Veturinn 1607 féll stærsti skógur Íslands, Möðruvallaskógur, á einum degi. Bolirnir…

    Hlusta
    Nonnalundur á  Möðruvöllum +3
  14. 1608

    Á tvöföldu gengi talsvert græddist

    tekjur drýgðust ,,sýsla”
    Hákon dó en Fúsi fæddist
    föður sínum Gísla.

    Lögrétta ákveður e-k tvöfalda gengisskráningu landaura. Þ.e., gjöld til konungs, sem sýslumenn tóku við í ríkisdölum voru á fjórðungs hærra gengi en ef greitt var í fríðu og liðu sýslumenn því launverslun við erlendar…

    Hlusta
    Gísli Hákonarson, lm. BræðratunguBræðratunga
  15. 1608Lag: Sá frjáls við lögmál

    Eingetinn sonur í Sæmundarhlíð

    seint gekk við Þórdísi' að spjalla
    lítið samvinnu- þótti þýð
    þekkt hefði enga kalla.

    Þórdís Halldórsdóttir, til heimilis á Sólheimum í Sæmundarhlíð hjá systur sinni og mági, Tómasi Böðvarssyni, bændum þar, vissi engan föður að barni sínu, sem fæddist 1608. Sjá nánar 1612 og 1618. Tilvísanir og…

    Hlusta
    Sólheimar í Sæmundarhlíð, Skagafirði
  16. 1609Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Kóngur bannar að krenkja lík

    kveikja í þeim og brenna
    en drauga ásókn engu glík
    ergir leita kvenna.

    Kristján IV. sendir tilskipun sem bannar Íslendingum að grafa upp lík og brenna, ganga milli bols og höfuðs og færa til þjós, sem tíðkað var þegar sá látni hafði haft í heitingum að ganga aftur. Dæmi þess er fjallað um…

    Hlusta
    Úr Inferno, Divina Comedia eftir DanteKristján IV.+3
  17. 1610Lag: Á kaupmanninn, rétt við búðarborðið

    Austfirðingar ýmist geldir

    eða skortir kikkið
    þeim eru strákar að sunnan seldir
    á 60 álnir stykkið.

    Fitjaannáll II, 96: ,,Var margur drengur og stelpa á þessu ári, og nokkur fyrirfarandi sumur, flutt sunnan að og í Austfirði, af sýslumanni þar, vegna manndauða og fólksfækkunar. Drengirnir voru seldir fyrir 60 eður 80…

    Hlusta
    Austfirðir
  18. 1610Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Hægri skyldi af höndin fim

    með hinni Oddur snæði
    halda mætti leyndarlim
    ef léti eyru bæði.

    Eftir að Fitjaannáll II greinir á bls. 96 frá barnasölunni til Austfjarða 1610 kemur í beinu framhaldi eftirfarandi saga af séra Oddi Þorsteinssyni sem gerist um 1554, en dóminn kvað upp lm. Oddur Gottskálksson. Þar…

    Hlusta
    Óspakseyri 1987
  19. 1611Lag: Við stallinn Kristí

    Þess nú gerist brautin bein

    biskups- er telst af ættar grein
    en það er nú hinna þrautarmein
    að þekkja hann ei sem bæri
    ;.; ei ókeypis neinn Oddur tók í læri ;.;

    Einar Laxness, Íslands saga II, 124: ,,Á biskupsárum Odds Einarssonar í Skálholti, 1589-1630, skipaði hann helst í embætti menn sér náskylda eða tengda, án mikils lærdóms; nutu þá ýmsir ættingjar hans forgangs til náms…

    Hlusta
    Búnaðarbankinn
  20. 1611Lag: Augun mín og augun þín

    Vestan úr Gandvík verður sagt

    á vofum glöggt menn þreifi
    með höldum þar í hæstri akt
    haldinn Galdra-Leifi.

    Skarðsárannáll I, 199: ,,Apturganga þreifanleg á Vestfjörðum." Neðanmáls þar: ,,Það hefur verið hinn nafnkunni Snæfjalladraugur er Jón lærði og Galdra-Leifi fengust við". Sjá 1612. Ballarárannáll III, 191: ,,Gekk…

    Hlusta
    GaldrakarlDrangajökull+3
  21. 1612Lag: Í friði látinn hvíli hér - SB 275

    Þórdís að Vallalaugu ló

    af landi burtu Tómas fló.
    Kvæði Jóns lærða til dauða dró
    draug sem á Snæfjallaströndu bjó.

    Seyluþing að Vallalaugu í Skagafirði; Þórdís Halldórsdóttir, Sólheimum í Sæmundarhlíð, vissi engan föður að barni sínu, er fæddist 1608. Henni drekkt 1618. Tómas Böðvarsson b. Sólh., mágur Þórdísar og ætlaður faðir,…

    Hlusta
    DrangajökullSeyluhreppur - (Skagafjarðarveitur)
  22. 1613Lag: Nú er Gunna á nýju skónum

    Kóngurinn í snúning snar

    snjall í pólitík
    þegar eyri ekkjunnar
    ásælist í Vík.
    1 erindi til viðbótar

    Fyrir 60 hundraða jörðina Vík (Reykjavík) fékk Guðrún Magnúsdóttir f. 1540, ekkja sm. Narfa Ormssonar (~1540, d. eftir 1607, en fyrir 1613) af kóngi: Kiðafell í Kjós, Bakka á Kjalarnesi og Laugarvatn. Afsal útgefið…

    Hlusta
    Kristján IV.LaugarvatnReykjavík
  23. 1614Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Eftir honum margur man

    maðurinn í Eyjum
    gentel þótti ei Gentelman
    þá gekk í skrokk á peyjum.

    Enskur sjóræningi, John Gentelman og skipshöfn hans, hélt Heimaey í gíslingu 14 daga. Fitjaannáll II, 98: ,,Rán og skemmdir peninga í Vestmannaeyjum og svo víða kringum Ísland, af útlenskum reyfurum. Sá hét Jón…

    Hlusta
    HeimaeyFornleifaskráning fyrir VestmannaeyjarVestmannaeyjar
  24. 1615Lag: Dvel ég í draumalandi

    Hróður Íslands lægst þá laut

    lægra Hrunsins ránum
    þegar blessað barnið skaut
    Baskana á hnjánum.
    Annan höfðu syðra sið
    segir þulur fróði
    skipbrotsmanna lúið lið
    lögðu í sæng hjá fljóði.

    Ari Magnússon (1571-1652) sm. í Ögri fær Magnúsi, f. 1599, syni sínum byssu og lætur hann skjóta vopnlausa skipbrotsmenn frá Baskalandi. Samtals 31 drepinn með framhlaðningi. Unglingar alltaf fljótari að tileinka sér…

    Hlusta
    Ari Magnússon, Kristín Guðbrandsdóttir
  25. 1615Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Íslendingur upp í sig

    allra fyrstur tekur
    niður vör og nef í svig
    nikótínið lekur

    Lýður Björnsson, Frá samfélögum, 208: ,,Jón Ólafsson Indíafari sá tóbak fyrst notað á ensku skipi 1615 og lærði þá notkun þess". Jón gekk í danska sjóherinn, var fallbyssuskytta þar og komst með Dönum bæði til Indlands…

    Hlusta
    Enskt herskip
  26. 1616Lag: Sigga litla, systir mín

    Kolbeinsey bræðrum reyndist rík

    rita, tyrðill, súla.
    Að kóngur í fyrra keypti Vík
    kemur sér vel fyrir Skúla.

    Það tók - fyrst ríkisráðið og síðan Kristján IV. eftir að hann tók við völdum 1596 - 25 ár, 1590 til 1615, að tryggja sér eignarhald á 60 hundraða jörðinni Reykjavík (Vík). Um það er nánar fjallað hér við 1613. Þrír…

    Hlusta
    KolbeinseyHaftyrðillRita+9
  27. 1616Lag: Fljúga hvítu fiðrildin

    Þar af verður Þórunn rík

    þegar gengur bóla
    og enn skal sitja brúðarbrík
    því brátt mun haninn góla.

    Þórunn ríka Jónsdóttir varð einkaerfingi systra sinna tveggja sem dóu í bólunni 1616, en höfðu áður erft föður þeirra, sm. Jón á Galtalæk, Vigfússon, brennisteinsgreifa Þorsteinssonar í Ási Finnbogasonar lm. Maríulausa,…

    Hlusta
    BólusóttRíkidæmiHólmfríður Sigurðardóttir (og Þórunnar)+1
  28. 1616Lag: Dvel ég í draumahöll

    Jörð um sig og sólu snýst

    sagði Koperníkus
    ei þó talið alveg víst
    því engum pólitíkus
    á þá kennning ennþá líst
    og ekki heldur páfa
    því hnetti vorum hæfi síst
    um himingeiminn snáfa.

    Árið 1616, þegar til stóð að endurútgefa rit Kopernikusar frá 1543 um gang himintunglanna, ,,De revolutionibus", setti Kaþólska kirkjan það á bannlista þar til á yrðu gerðar ýmsar breytingar, m.a. þær, að jörðin væri…

    Hlusta
    Nicolaus Kopernikus (1473-1543)Kopernikus, minnismerki í Varsjá, höfundur Bertel ThorvaldsenSólkerfi jarðarbúa
  29. 1617Lag: Sigga litla, systir mín

    Hestfjall besti berjamór

    byrðar má þar taka
    er Þórunn ríka þaðan fór
    þá ei fann sinn maka.
    2 erindi til viðbótar

    Fitjaannáll II, 100: ,,Drukknun Sigurðar yngra Oddssonar biskups Einarssonar, í Hvítá hjá Oddgeirshólum, og hans manns, sem Bergur hét. Sigurður fannst með því móti, að á skipi var eptir leitað og hani með hafður.…

    Hlusta
    KrækiberjalyngHvítá séð frá Hestfjalli, Vörðufell í baksýn+3
  30. 1617Lag: Sigga litla, systir mín

    ,,Enginn skyldi signa sig”

    sagði Kristján fjórði
    fólkið við það fór á svig
    flest á meðan tórði.

    Kóngur sendir forordningu sem þó verður ekki lesin upp á þingi og fjallar um bann við hvítagaldri, þ.m.t. signingar – eftir hverri Jón lærði Guðmundsson engu að síður var dæmdur 1631, en hún mun hafa verið lesin á…

    Hlusta
    Kristján IV.Róða
  31. 1618Lag: Ætti eg hörpu

    Lögmaður Halldór, höldur mætur,

    herrum gifti sínar dætur
    Oddur slapp við allar bætur
    því Árni reið um daga' og nætur.
    2 erindi til viðbótar

    Umboðsdómurunum, J. Vind og Fr. Friis var falið dómsvald á Alþingi þetta sumar. (Þjóð)sagan segir að Oddur biskup Einarsson hafi beðið komu sonar síns, Árna, til þings, að hann bjargaði sér úr klóm ofsóknara sins,…

    Hlusta
    VopnafjörðurÖxarárfoss á Þingvöllum+3
  32. 1619Lag: Þrútið var loft og þungur sjór

    Í Brekkukoti baslaðist

    Björn á sömu ferð
    þar mammon aldrei æxlaðist
    alltaf sama verð.

    Í Íslandslýsingunni Qualiscunque descriptio Islandiae frá síðari hluta 16. aldar (sjá 1595) segir að e-k verðstöðvun hafi ríkt um aldir á Íslandi. Skipt á einum hlut fyrir annan án tillits til árferðis, uppskeru eða…

    Hlusta
    Svalbarðsætt Þorsteinn Ö. Stephensen í hlutverki Björns í Brekkukoti í sjónvarpsþáttum  1972.Ridddari
  33. 1619Lag: Ætti eg hörpu

    Fjáðir tíund frá sér vísa

    fátækum sinna beri þvísa.
    Kaupmenn etja kóng og fýsa
    að kynni á Íslandi nýja prísa.
    1 erindi til viðbótar

    Hér á og við meginmálið sem fylgir hinni vísunni 1619. Ekki sinnti lögrétta þá því boði konungs að jarðeigendur, en ekki leiguliðar, skyldu greiða jarðatíund. ,,Ástand Íslands um 1700", bls. 344:,,Árið 1619 kom út…

    Hlusta
    Magnus prúði, Ragnheiður Eggertsd. & börnAskur
  34. 1620Lag: Enginn þarf að óttast síður

    Skulu sýslumenn sverja eiða

    sínum kóngi trúnað greiða
    Guðbrands þóttu málin meiða
    má af hendi fúlgu reiða.

    Skv. Alþingisbók 1620, bls. 50 er með nýjum hirðstjóra, H. Rosenkrantz, gerð þriðja tilraun til að fá sýslumenn til að sverja kóngi hollustueið: ,,höfðu valdsmenn mælt því á móti" áður. En nú ,,söru velflestir…

    Hlusta
    Sver sýslumaður eið?Guðbrandur Þorláksson biskup
  35. 1621Lag: Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869

    Á Héraði austur um hjarn og snæ

    hópur bjarna gengur
    en öðrum vestra, Birni í Bæ
    borinn frækinn drengur. .
    1 erindi til viðbótar

    Annálar segja frá því að hvítabirnir gengju á land eystra og hópur þeirra á hjarni allt upp á Hérað áður en unnið varð á þeim. Hér þarf að skruna örlítið niður: https://feber.se/video/hund-som-leker-med-isbjorn/191818/…

    Hlusta
    Hlíðarendi um 1900Séra Páll Björnsson, SelárdalByggakur+3
  36. 1622Lag: Berhöfðaður burt ég fer - Bj.Þ. 619

    Á áramótum áður ról

    - einatt voru á reiki -
    nú átta dögum eftir jól
    að eigi framar skeiki.

    Kristján IV. kemur reglu á áramót á Íslandi. Þau voru áður á reiki. Gunnar Karlsson, Inngangur að miðöldum, 302: ,,Um ársupphaf var lengi mikill ruglingur í Evrópu á miðöldum. Sumir létu árið byrja 1. janúar, aðrir 1.…

    Hlusta
  37. 1622Lag: Eins í vöku og eins í blund - Bj.Þ. 829

    Magnús eftir Unu hljóp

    item niður slengdi
    hennar leyndarlim með sóp
    lengi nakinn flengdi.

    Alþingisbók 1622, bls. 80: ,,Dómur um mál Magnúsar Erlingssonar (hvern Una Þorkelsdóttir kærði). 1. Að Magnús hafi hlaupið eptir sér og hafi sér náð og niður slengt. ...Item að hann hafi tekið í sitt pils og stigið á…

    Hlusta
    Þrælahald í BNA 1845
  38. 1623Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Sigling utan fengu frítt

    og fjögur ár á Garði
    öl og brenni að yrði hlýtt
    - enginn sér þar barði -
    einn í sæng var enn eitt nýtt
    í undrun landinn starði
    ef bóka- gerðist brautin grýtt
    Bakkus fáa sparði.

    Kaupmannahafnarháskóli fékk Klaustur Heilags Anda tekið undir heimavist stúdenta, Regens, sem Íslendingar nefndu Garð. Sívaliturninn kom þó ekki fyrr en 1642/3 Í einokunarrétti kaupmanna fólst sú kvöð, að flyttu…

    Hlusta
    Garður+1
  39. 1624Lag: Eins í vöku og eins í blund - Bj.Þ. 829

    Hólakirkja frá oss fauk,

    flogin upp til skýja
    Halldóra staðinn hélt og lauk
    helgidóminum nýja.

    Hólakirkja hin forna fauk, byggð 1395, eftir að kirkjan frá um 1300 hafði fokið árið áður. Sú sem fauk 1624 var rúmir 700 fermetrar og kennd við Pétur Nikulásson, danskan Hólabiskup. Herra Guðbrandur biskup, f. 1541,…

    Hlusta
    Ari Magnússon, Kristín GuðbrandsdóttirHjaltadalurKlæðnaður heldrikonu á 17. öld
  40. 1625Lag: Eins í vöku og eins í blund - Bj.Þ. 829

    Tískunni fylgist Magnús með

    meinar því um að kenna
    að sál í eigi´h'inn vondi veð
    svo verði lifandi brenna.

    Fyrsta galdrabrenna, og var á Melaeyrum í Svarfaðardal. Sm. Magnús Björnsson (1621) dæmdi þá Jón Rögnvaldsson, f. ~1600, á bálið fyrir að vekja upp draug sem átti að hafa gert óskunda á Urðum þar í Svarfaðardal. (E.…

    Hlusta
    GaldrabrennaSvarfaðardalurAllgäu í Þýskalandi - nornalegt?+3