Vísur eftir Glúm Gylfason um

Annálsverð tíðindi á árunum1540 til 1950

Ein eða fleiri annálsverð tíðindi hvers árs færð í rím, frá siðaskiptum þar til Ísland gekk í NATO — með heimildum, myndum og hljóðbrotum.

vísur
868
ár
412
aldir
5

Vísurnar

t.d.

20. öld · 153 vísur, í tímaröð
  1. 1901Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Mörgu gátu komið í kring

    kaupmenn Seyðisfjarðar
    þótt Hermann, meintu' h'ann Hollending,
    á hausinn setti Garðar.
    Bjarki og Austri, blöðin slyng,
    brugðu á deilur harðar.
    Múla sendu þeir á þing
    en Þorstein til Arnarfjarðar.

    ,,Hvalveiðar Norðmanna munu hafa haft meiri áhrif í íslenskum atvinnumálum en oft hefur verið látið í veðri vaka og heimildir eru fyrir því að í upphafi vélbátaútgerðar á Austfjörðum leituðu útvegsmenn gjarnan til…

    Hlusta
    Jón frá Múla t.h. og Hannes Hafstein við þingsetninguÞorsteinn Erlingsson, ritstjóriSeyðisfjörður um 1900+3
  2. 1901Lag: Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830

    Saknar ei kerta sjónin bág

    sést út í horn og kanta
    olíu ljósalampana á
    lætur ei Dómkirkjan vanta.

    Olíulampar koma í Dómkirkjuna í stað kerta áður. Heimild: Þórir Stephensen: Dómkirkjan I, Rvk. 1996, bls. 203, 211. Sbr. og dæmisöguna um meyjarnar 10 í Matt. 25: 1-13.…

    Hlusta
    Dómkirkjan, Rvk.Olíulampi
  3. 1901

    Austfirðingum opnast heimur

    upp á gátt
    Seyðfirðingar tungum tveimur
    tala dátt.

    Árið 1902 er Þorsteinn Erlingsson orðinn ritstjóri Eimreiðarinnar, tímarits Valtýs Guðmundssonar. Þá ritar hann þar eftirfarandi um Seyðisfjörð, en þar var hann ritstjóri Bjarka áður: ,,Hér heyra menn margfalt meira til…

  4. 1902

    Kaupmenn úti öll með spjót

    aflsmuni og kynngi
    er Hallgrímur Kristins kom á fót
    KEA í Vöðlaþingi.
    1 erindi til viðbótar

    Stofnfundur forvera Kaupfélags Eyfirðinga, KEA, var haldinn á Grund 19. júní. 1886. Nefndist Pöntunarfélag fyrsta hálfa árið. Á aðalfundi 1902, þegar Kaupfélagið ,,var að grotna niður" skv. Páli H. Jónssyni, bls. 80 í…

  5. 1902Lag: Austankaldinn á oss blés

    Í byrjun vestra fum og fát

    en fóru síðan að með gát
    án þess róðrum yrði á lát
    árar lögðu þar í bát.
    1 erindi til viðbótar

    Fyrsti vélbáturinn - sjá þó 1917; 2. nóvember kom frá Danmörk 2ja hestafla vél og sett í sexæring sem Árni Gíslason (1868-1952) formaður, þá búsettur á Ísafirði, átti með Sophusi J. Nielsen verslunarstjóra og gerður út…

    Hlusta
    ÍsafjörðurÓsvör, BolungarvíkÓshólaviti, Bolungarvík í baksýn+3
  6. 1902Lag: Enginn kemur, enginn sést - Bj.Þ. 830

    Á Möðruvöllum varmi ei þverr

    vafurloginn funar
    fyrir endann samt ei sér
    sex nú taldir brunar.

    Stærstu brunar á Möðruvöllum í Hörgárdal: 1316 eða 1317, er drukknir munkar brenndu ofan af sér klaustrið, sem stofnað var 1296. 1712, brann staðurinn, en ekki kirkjan. 1826, brann amtmannssetrið. 1865 brann kirkjan, og…

    Hlusta
    Bók Torfa K. Stefánssonar HjaltalínMöðruvellir - málverk Ásgríms Jónssonar
  7. 1902

    Halldór Laxness léði svar

    lengi réð ei híma
    Karlamagnús meinti var
    mögur Fjósaríma.

    Halldór Laxness, rithöfundur, fæddist þetta ár, hann lést 1998. Iðnari maður vandfundinn jafnt við eigin ritun og lestur erlendra höfunda sem og innlendra frá hverri tíð og tíma. Gat því ávallt svarað bæði inn- og útúr…

  8. 1903Lag: Hver veit, hve nærri' er ævi endi

    Drukknaði Ólafur Davíðsson fróði.

    Um Dómkirkjuorganista skipt.
    Síðast kosið í heyrenda hljóði
    þá Hannesi til valda lyft.
    Hafsins silfur og hingað óð
    en hertur þorskur féll úr móð.
    3 erindi til viðbótar

    + Ólafur f. 1862, náttúrufræðingur Davíðsson, prests Hofi, Hörgárdal, Guðmundssonar hrstj. Vindhæli, og k.h. Sigríðar (1839-1920) dóttur Ólafs Briem (1808-1859) trésm. Grund, sonar Valgerðar (1822). ÓD gaf út…

    Hlusta
    Ólafur Davíðsson náttúrufræðingurHannes Hafstein ráðherraSkjaldarmerki Íslands 1593-1903+9
  9. 1903

    Jafnkosta var Jónas við

    járningar og söng
    aflinn sem og orgelið
    undirleik og töng.
    1 erindi til viðbótar

    Af starfi dómorganista lét 1903 Jónas Helgason (1839-1903), sem sem var 2. í röð dómorganista og tók við af Pétri Guðjónssyni (sjá 1840) sem lést 1877. Jónas Helgason hafði verið ,,reglumaður og samvikusamur með…

  10. 1904Lag: Vertu hjá mér, Dísa

    Hannes kann að yrkja,

    andann gáfur styrkja /
    elskar storminn,
    leysir hvern pólitískan hnút. /
    Í Hafnarfirði Lækinn
    til ljósa tókst að virkja /
    og leggur þar upp afla sinn
    botnvörpungurinn Coot.

    Íslenskur Íslandsráðherra búsettur á Íslandi, Hannes Hafstein (1861-1922). Þegar Íslendingur varð ráðherra Íslandsmála varð fjandinn fyrir alvöru laus á alþingi. Guðmundur Hálfdánarson, bls. 39 í Íslensk Þjóðfélagsþróun…

    Hlusta
    Reykdalsvirkjun, HafnarfirðiCoot+4
  11. 1904

    Vinstriflokkur hjó á hnút

    Hannes stjórna kunni.
    Nær fyrst koma Norðmenn út
    norsku Biblíunni.

    Frá og með Valtýskunni, 1897, hafði Alþingi farið fram á að Íslendingur gegndi embætti Íslandsráðgjafa og sætti sig við að byggi í Danmörk. Þegar ,,systemskiftet", þ.e., þingræði, varð í Danmörk 1901 með ríkisstjórn…

  12. 1904

    Siglufjarðar sköpum skjótt

    skipti að norskir kunnu.
    Síldin varð að silfri fljótt
    söltuð oní tunnu.

    Björn Dúason telur á bls. 83 í Síldarævintýrinu á Siglufirði, útg. 1988, að Norðmenn hafi byrjað hringnótaveiðar 26. júí 1904 (í stað rekneta) og þar með hafi síldarævintýrið byrjað fyrir alvöru, þ.,e., ári eftir að…

  13. 1905Lag: Berhöfðaður burt ég fer - Bj.Þ. 619

    Bændur héldu á Hafsteins fund

    um hábjargræðistímann
    brýndu raust með hest og hund
    ;.; og hrópuðu niður símann ;.;

    1. ágúst: Símamótmælin. Hópreið 240 bænda af Suðurlandi og úr Borgarfirði til Reykjavíkur. Vilhjálmur Þ. Gíslason: Blöð og blaðamenn, 244: ,,...miklar æsingar, söngur, lúðraþytur, ræðuhöld og kröfugöngur og sumir…

    Hlusta
    Hannes HafsteinSéra Stefán StephensenBjörn Jónsson, ritstjóri, ráðherra+3
  14. 1905Lag: Komdu og skoðaðu í kistuna mína

    Þjóðhollum landsmönnum þótti það píning

    og þá væri komið meira en nóg
    ef Íslandi skyldi á skrælingjasýning
    skipað með svertingjum og eskimó.
    ,,Koloniudstilling?”, kolómögu'legt!
    konunglegri' erum vér allir af slekt
    þess konar framferði þolir ei rýning
    þvílíkan dónaskap aldregi þekkt.

    Árni Heimir Ingólfsson, Saga tónlistarinnar, 459: ,,Árið 1889 var í París efnt til ,,heimssýningar". ,,.Inngangshlið ...var gríðarmikill járnturn sem kenndur var við höfund sinn, Gustave Eiffel, en sýningin var…

    Hlusta
    Knud ZimsenFjallkonanEskimói, Knud Rasmussen landkönnuður+11Myndband
  15. 1905Lag: Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

    Orð um smjör- og ostadalla

    ollu reiðibáli
    bændum þótti heldur halla
    Halldór réttu máli.
    1 erindi til viðbótar

    Einar Laxness, Íslands saga II, bls. 86: ,,Þegar sauðasölu lauk, 1896, komust bændur í mikla erfiðleika með afurðir sínar; var nokkur bót á því ráðin með stofnun rjómabúa, sláturhúsa ... og vandaðri verkun saltkjöts…

    Hlusta
    Halldór Vilhjálmsson, skólastjóri á HvanneyriRjómabúið BaugsstöðumKongl. Landbúnaðarháskólinn á Friðriksbergi í Kaupmannahöfn+5
  16. 1906Lag: Kindur jarma í kofunum - Bj.Þ. 618

    Friðrik áttundi tróð á trón

    togari í smíðum heita skal Jón
    öndunum mistókst óperasjón
    Alliance, Dagsbrún og telefón.

    Kongen er död! (Chr. IX.) Leve kongen! (Fr.VIII.). https://www.youtube.com/watch?v=r8rb201KPIM Margir helstu menn þjóðarinnar spiritistar. Fremstir fóru ritstjórarnir Einar H. Kvaran (1859-1938) og Björn Jónsson…

    Hlusta
    Friðrik VIII.MiðilsfundurVerkamannfélagið Dagsbrún+4
  17. 1906Lag: Augun mín og augun þín

    7. apríl ei mun né má

    úr minni voru snarast
    frá höfuðstaðnum horfðu á
    heila skipshöfn farast.

    ,,Einn mesti óhamingjudagur sem yfir Ísland hefur komið” sagði séra Ólafur Ólafsson (1855-1937). Staddir milli Viðeyjar og lands röðuðu 20 skipverjar kútters Ingvars sér í reiða og á borðstokk. Mörg hundruð Reykvíkingar…

    Hlusta
    Viðey: Akkeri Ingvars, sem kafarar DiveExplorer sóttuKafarar DiveExplorer með akkeri IngvarsMinningarskjöldur um áhöfn Ingvars +1
  18. 1907Lag: Fljúga hvítu fiðrildin

    Bjóða má nú ekki í

    ómagana framar.
    Flest menn gera fjörunni í
    finnist ekki kamar.

    Ný lög taka gildi á sviði almannaheilla og skyldi hætt að bjóða upp hreppsómaga - eða öllu heldur bjóða niður. Ekki hafa þessi lög verið virt ef marka má frásögn í Nesfréttum 11. tbl. 2018, bls. 8: www.borgarblod.is um…

    Hlusta
    Maður í fjöru+4
  19. 1907Lag: Veik er mundin - Bj.Þ. 915

    Falskir miðlar féllu í trans

    fólkið kónginn sá
    Sigtún við Ölfusá.
    1 erindi til viðbótar

    Um falska miðla, sjá 1906 og Öldina okkar. Friðrik VIII. kom til Íslands ásamt 40 dönskum Þjóðþingsmönnum og riðu m.a. til uppsveita Árnessýslu eftir vegum sem gerðir höfðu verið vagnfærir, en kóngur lét sig þó ekki…

    Hlusta
    TryggvaskáliMiðilsfundurSláturfélag Suðurlands, Selfossi+6
  20. 1907Lag: Hvað boðar nýárs blessuð sól?

    Skal fræðsla metin góð og gild

    gagnlegt að nemi börnin klók:
    tíu ára öll skólaskyld
    að skrifi, reikni' og lesi' á bók.

    Fræðslulög um Kennaraskóla (frá 1908) og skólaskyldu barna 10 til 14 ára þar sem ríkissjóður greiði kennaralaun og sjái fyrir skólahúsnæði. Kennaraskólinn við Laufásveg reistur í beinu framhaldi og tekinn í notkun…

    Hlusta
    Kennaraskólinn 1908+1
  21. 1907

    Allir klerkar á opinber laun

    afnumin prestslömb og tollar
    þótt einhverjir hljóti af þeim raun
    eru samt breytingar hollar.

    ,,Breytingar urðu á kjörum presta 1907, er þeir voru settir á opinber laun, en hinar fornu greiðslur í afreiðslum og tollum af kirkjujörðum, ítökum og kúgildum smám saman afnumdar ... jöfnuðu muninn á hinum gamalgrónu…

  22. 1907

    Í Önundarfirði ein stóð höll

    er Ellefsen nú gefur
    þá hvölum er eytt um víðan völl
    þar vakir Hannes og sefur.

    Norski hvalveiðaforstjórinn Hans Ellefsen reisti í Önundarfirði hátimbruðu höllina sem nú stendur við Tjarnargötu í Reykjavík sem ráðherrabústaður síðan 1907. Þegar hvalirnir voru upp unrnir vestra færðu Norðmenn sig…

  23. 1907Lag: Veik er mundin - Bj.Þ. 915

    Falskir miðlar féllu í trans

    fólkið kónginn sá
    Sigtún við Ölfusá.
    1 erindi til viðbótar

    í Sögu Selfoss 1 á bls. 239 er ljósmynd Peters Elfeldt af Friðriki VIII ríðandi yfir Ölfusárbrú. Þar taka menn á móti kóngi lítt tilhafðir í klæðaburði með húfur á höfði og hendur í vösum. Þessi konungsmóttaka varð…

  24. 1908

    Við Fríkirkjuveg og Vonarstræti

    vegleg rísa hús
    Thoroddsen ef Thor þar mæti
    trauðla býður dús.

    1908, þegar mest gekk á í íslenskri pólitík, fyrr og síðar, flutti aðalpersónan, Skúli Thoroddsen (1859-1916) alþm. og ritstjóri Þjóðviljans gamla, fv. kaup- og sýslumaður á Ísafirði, með fjölskyldu sína og prentsmiðju…

  25. 1908Lag: Fer jeg nú að fara á kreik (sbr. Bj.Þ. 832)

    Erlendur í einni beit

    eins kann hita og steikja
    með gufuröri virkja veit
    varma Sturlureykja.

    Kristleifur Þorsteinsson, Úr byggðum Borgarfjarðar, II, 204: 1908 ,,steypir Erlendur (Gunnarsson, Sturlureykjum) yfir gjósandi suðuauga hversins og leggur frá því pípur heim í bæinn - eldheit gufan streymir um pípurnar.…

    Hlusta
    SturlureykirSnorri Sturluson: "Eigi skal höggva".Arnbjargarlækur 1923
  26. 1908Lag: Vertu hjá mér, Dísa

    Millilandanefndin sig mátti hvergi hræra

    milli Skúla og Hannesar framastreitan löng
    af ótíðindum Bjarni frá Vogi frétt kann færa:
    ,,Fána að húni upp skal draga á landsins hverri stöng".

    Uppkastið: https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1247554/ 14. maí náði millilandanefndin samkomulagi við Dani í Kh. um stöðu Íslands í ríkinu. Næsta dag tók stuðningsblað ráðherra, Þjóðólfur, eindregna andstöðu gegn…

    Hlusta
    Björn ritstjóri Jónsson við MiðbæjarskólannBjarni Jónsson frá VogiSkúli Thoroddsen alþm.+6
  27. 1908

    Kvenna enginn veit nú vamm

    vígar í pólitík
    kvennalisti lagður fram
    og lánast í Reykjavík.

    18 listar lagðir fram við bæjarstjórnarkosningar í Reykjavík. Flest atkvæði fékk listi Kvennaframboðsins 21,3% atkvæða og náðu allar fjórar konur listans kjöri.…

  28. 1909Lag: Rósin

    Margir lengi vildu' ei veita

    vatni úr Gvendarbrunnunum
    fyrr þeir skyldu hundar heita
    en hætta að ausa úr tunnunum.
    3 erindi til viðbótar

    Vatnsveita Reykjavíkur kom 1909. Guðmundur Björnsson (1864-1937), læknir, hefur verið kallaður faðir vatnsveitunnar í Reykjavík. Veitunni náði hann fram með útreikningum sem sönnuðu að margfalt dýrara væri að kosta…

    Hlusta
    Vatrnsberi á Bókhlöðustíg við ÍþökuGvendarbrunnar, Rvk.Guðmundur Björnsson, landlæknir
  29. 1909Lag: Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

    Fyrir kóngi Björn sig bukkar

    beygir djúpt og hneigir
    Lands- þá bankaráðið rukkar
    reigir sig og teygir.

    Ráðherraskipti 31/3: Blaðamenn biðu spenntir fyrsta fundar konungs og nýja forsætisráðherrans, Björns Jónssonar (1846 - 1912) sem í ræðu og riti hafði tjáð sig sem róttækur þjóðernissinni. Engin sáust þess nú merki –…

    Hlusta
    Rh. Björn Jónsson; bankastj. Tryggvi Gunnarsson
  30. 1910Lag: Ríður fríður riddarinn - Bj.Þ. 900

    Stúlka fékk nú stúdentsmennt.

    Stefni skips til Grimsby vent.
    Vífilsstaðir, Vísisprent
    vikum sjávar og álnum hent.
    1 erindi til viðbótar

    Annar íslenski kvenstúdentinn, Laufey (1890-1945) Valdimarsdóttir Ásmundssonar og Bríetar Bjarnhéðinsdóttur. Sjá Minningar úr Menntaskóla 1946, bls. 243. Mynd af Laufey, slóð:…

    Hlusta
    SjúkrastofaOddfellowbyggingin í Reykjavík+8
  31. 1910Lag: Einn var að smíða ausutetur

    Við erum, rétt eins og Evrópuálfan,

    öllu' okkar viti frá
    dómarinn ritaði' og dæmdi sig sjálfan
    fyr'ir dónaskap eftir á.

    Vilhjálmur Þ. Gíslason: Blöð og blaðamenn, bls. 244: ,,Ekki slotaði blaðadeilum eftir 1908 ...hófst málaferlaalda 1910 er Ísafold hóf 30 meiðyrðamál gegn Lögréttu og viðlíka mörg gegn Reykjavíkinni og Þjóðólfi og þessi…

    Hlusta
    Jón Ólafsson, alþm. og ritstjóri
  32. 1911Lag: Augun mín og augun þín

    Gefst að líta á Melum mark

    í möskvum trúi að syngi
    Birni annað búa spark
    bræður hans á þingi.

    Tekinn í notkun íþróttavöllur sunnan núverandi Hringbrautar, samsíða henni og nokkuð vestur fyrir blómaskálann á horni Birkimels. Melavöllurinn (mynd) tók við af þessum velli 1926 og sneri vestur / austur samsíða…

    Hlusta
    KR - Fram 1911Kristján Jónsson frá Gautlöndum, ráðherraMyndband
  33. 1911Lag: Veröld fláa sýnir sig - Bj.Þ. 874

    Seyðfirðingar vatni í vín

    vildu síður breyta
    þeim fannst önnur þörfin brýn
    það var rafmagnsveita.

    Í kosningum 1908 var samþykkt vínbann. Fær nú Seyðisfjörður fullkomna vatnsaflsvirkjun fyrstur kaupstaða. Um rafmagn í Hafnarfirði, sjá 1904. Í BNA fann Edison upp lágspenntan jafnstraum 1880 en Tesla /Westinghouse…

    Hlusta
    SeyðisfjörðurFossinn í SeyðisfjarðaráSeyðisfjörður
  34. 1912Lag: Fuglinn segir bí, bí, bí

    Milljónafélagið fyrirbí

    féllu víxlar Dana
    kapítalið komið í
    Kveldúlfstogarana.

    Thor Jensen lærði af reynslunni og varð ekki nema einu sinni gjaldþrota. Útgerðina P. J. Thorsteinsson & co., Milljónafélagið, stofnaði hann, danskir viðskiptafélagar og Pétur J. Thorsteinsson, oftast kenndur við…

    Hlusta
    Fiskþurrkun Alleance, Ánanaustum, Rvk.Saltfiskverkun Milj.fél., í ViðeyÞorbjörg Kristjánsdóttir og Thor Jensen+1
  35. 1912Lag: Veik er mundin - Bj.Þ. 915

    Bakkus mörgum gerir grikk

    greitt má bregða skikk
    annars gætum endað –
    hikk!
    eins og Titanic.

    Í samræmi við þjóðaratkvæðagreiðslu 1908 samþykkir þingið bjórbann, en innflutningsbann á vín, og sölubann frá 1/1 1915. Sjá 1915, 1922, 1935. Í safnritinu Gestur 3, 141, lýsir Felix Guðmundsson (1884-1950) 9 daga…

    Hlusta
    TitanicMyndband
  36. 1912Lag: Ó, fögur er vor fósturjörð

    Hannes aftur koma kann.

    Kætist ekki stútur
    er þingið syngur bjór í bann
    úr Bræðing verður Grútur.
    Einars Ben. var önnur sýn
    er ýmsum þótti' af bera:
    ,,Þjóð sem bannar brennivín
    búin er að vera”.

    Eftir þrjár vikur Kristjáns Jónssonar á Gautlöndum í embætti ráðherra kannaði Skúli Thoroddsen fylgi sitt með því að flytja vantrauststillögu á ráðherrann, en hún féll 12 - 13. Kristján baðst þó lausnar 23. júlí og…

    Hlusta
    Hannes Hafstein, ráðherraEinar Benediktsson
  37. 1913Lag: Ó Guð, þér hrós og heiður ber

    Við orgelið Sigfús Einars sest.

    Úr Öskjuhlíð flytja grjót með lest.
    Í Morgunblaði' ef blaðar, lest
    að bíllinn muni leysa' af hest.
    2 erindi til viðbótar

    Sigfús (1877-1939) Einarsson, borgara, Eyrarbakka, verður dómorganisti til dd. eftir Brynjólf Þorláksson (1867-1950). Brynjólfur tók 1903 við af Jónasi Helgasyni sem verið hafði 2. í röð dómorganista og tók við af Pétri…

    Hlusta
    MorgunblaðiðSigfús Einarsson, tónskáld, organistiDráttarvagn járnbrautar við hafnargerðina+6
  38. 1913

    Fyrstur kom og fyrstur hlaut

    sá fyrsta lagði grunninn
    heim til hans er bikuð braut
    og bílaöld upprunnin.

    Ingólfur Arnarson og Hallveig Fróðadóttir urðu árið 874 fyrstu húsráðendur í Reykjavík. Eftir fornleifauppgröft er hús þeirra sagt hafa staðið við syðri enda Aðalstrætis, en sú gata hafi líkega fyrst verið troðningur…

  39. 1914Lag: Í friði látinn hvíli hér - SB 275

    Norðurálfa í bál og brand

    á Belga réðist Þýskaland
    Búlgaría sinn beislar gand
    en Bandaríkin urðu grand.
    1 erindi til viðbótar

    Á bls. 88 í bók Gunnars Þórs Bjarnasonar um Norðurálfuófriðinn segir: ,,Þjóðernishyggja var hin dulda námskrá skólanna. Hermennirnir sem marseruðu glaðbeittir á vígvöllinn 1914 höfðu flestir farið í gegnum þessa kvörn.…

    Hlusta
    Александр Матвеевич Азанчеев Þýskir hermenn kveðja kátir í byrjun 1. heimsstríðsÚr skotgröf 1916+1
  40. 1914Lag: Í friði látinn hvíli hér - SB 275

    Waage synti úr Viðey í land

    viðræður Eggerz og kóngs í strand
    - ríkisráðsákvæðisuppistand -
    eins og þá skotinn var Ferdinand.

    (Tölurnar 1 til 4 í meginmálinu vísa til skýringa í lokin). Benedikt Waage svam úr Viðey að Völundarbryggju á 1 klst. og 56 mínútum. (Öldin okkar). Frans Ferdinand erkihertogi, ríkisarfi keisaradæmisins…

    Hlusta
    Benedikt WaageSigurður Eggez, ráðherra ÍslandsBenedikt Waage+6
  41. 1914Lag: Farðu að sofa fyrir mig - Bj.Þ. 831

    Kaffi, síróp, konfekt greitt

    kaupmennirnir panta
    enginn skildi í neinu neitt
    nammið mátti ei vanta.

    Gunnar Þór Bjarnason, Þegar siðmenningin fór fjandans til, 183: ,,Vegna þess hve litlar kornbirgðir voru til í landinu í ágúst um það leyti sem þýskar hersveitir réðust inn í Frakkland 1914, ákváðu stjórnvöld að leigja…

    Hlusta
    Nammibar 1914/1915Mesta lífsnauðsynin frá ~1770
  42. 1914

    Upplýstst hefur ekki neitt

    um eldsvoðann á Bakka
    ei fékk því Margrét Möller breytt
    margt þótt léti flakka.

    Guðmundur Daníelsson, Krappur dans - Jarðvistarsaga Jóa Vaff, bls. 178: ,,Frú Margrét Árnason ber það upp á þá tengdafeðga (Jóa Vaff og Ólaf Helgason, ts.) í bók sinni: ,,Auður og embættisvöld", 1917, að þeir hafi…

  43. 1915Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Fertugt kjósa fljóð nú kann

    fána prýða krossar
    Austurstræti að ösku brann
    eldur, reykur, blossar
    vín- og hvalaveiðibann
    Vélskóli og Fossar
    svo enginn segja um oss kann
    að vér séum tossar.

    Konur og hjú 40 ára og eldri fá kosningarétt og tóku – að vísu fáar - þátt í alþingiskosningum. https://www.visindavefur.is/svar.php?id=69149 https://www.youtube.com/watch?v=Uli6fL_4Lp4 Þetta sama ár fengu konur…

    Hlusta
    Íslenski fáninnBruninn mikli í Reykjavík+7
  44. 1915Lag: Rósin

    Heiðarlegir Húnvetningar

    hafa skömm á Flóanum
    er glæpsamlegir Gaulverjingar
    gæta' ei fengs, en sóa' h'onum
    rýja að skinni betri bændur
    Bakkus þá með ráðin fer
    maurapúki margur rændur
    Mammon fáum tryggur er.

    Árin 1910 til 1915 misstu margir efnamenn á Suðurlandi hús og heimili eftir að hafa skrifað nafn sitt á þeim ókennilegt pappírsblað - víxil / skuldabréf - sem gestkomandi (heldri)menn frá kirkjustaðnum Gaulverjabæ réttu…

    Hlusta
    Bók Jóns ÍvarssonarJón Magnússon, Björn Gíslason, Erasmus GíslasonGaulverjabær í Flóa+3
  45. 1916Lag: Einu sinni átti ég hest

    Í Hásetaverkfalli var ei kjurt

    og verst á Steinbryggjunni
    fátt um rifnar spjarir spurt
    né sprungna vör á munni.

    Undirmenn á botnvörpungum (togurum) stofnuðu Hásetafélag Reykjavíkur haustið 1915. Formaður Jón Bach háseti, en aðalritari Ólafur Friðriksson ritstjóri. Í nóvember 1915 setti félagið fram kröfu um að lifur yrði áfram…

    Hlusta
    SteinbryggjanSteinbryggjan og kolakraninnSteinbryggjan 2020
  46. 1916Lag: Komdu nú að kveðast á - Bj.Þ. 849

    Kúgildi falla kóngsins dauð

    krata út springur rósin
    Framsókn varla reiknast rauð
    ríki hennar fjósin.

    Í kosningum 21/10 koma með stjórnarskrárbreytingunni 1915 sex landskjörnir þingmenn í stað konungkjörinna, og var kosningaréttur og kjörgengi þar 10 árum hærri, þ.e., 35 ár en konur og vinnumenn 40 ár. Þeir…

    Hlusta
    Merki FramsóknarflokksinsKratarósinJónas Jónsson frá Hriflu
  47. 1916

    Í Íslandssögu áður stóð

    oss æðum rynni´ í kóngablóð
    öðrum fremri, gáfuð, góð
    Guðs útvalin þjóð.

    Kom út Íslandssaga Jónasar Jónssonar. Guðmundur Hálfdánarson í Heimtur 2009, bls. 155: ,,..þjóðernissinnuð viðhorf eins og boðuð voru í Íslandssögu Jónasar frá Hriflu hafi blásið Íslendingum kapp í kinn á mikilvægum…

    Hlusta
    Jónas Jónsson frá HrifluJónas Kristjánsson, SöguþjóðinMyndband
  48. 1916

    Jónas jók Jónasi frægð

    jafningja ætti sér fá
    en Odds mætti, lögmanns, í lægð
    liggja í gleymsku og dá.
    1 erindi til viðbótar

    Meistari Þórbergur hafði eftir séra Árna Þórarinssyni að Snæfellingar væru snillingar í að ljúga með þögninni. Um sr. Árna segir fv. sóknarbarn hans, séra Sigurður Pálsson 1961 við Guðmund Daníelsson, skáld í,,Þjóð í…

  49. 1916Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Fellsstrendinga fýsti sjá

    fleyin sigla um rastir
    sögðust vera settir hjá
    í sömu sporum fastir.
    Um skipin lengi staðið styrr
    - strönduðu og sukku -
    tíðum biluð, tóm og kyrr
    uns Tang loks gerði lukku.
    1 erindi til viðbótar

    Hér segir frá félagi um flóabátssiglingar um sunnanverðan Breiðafjörð, sem ,,enginn var í vafa um að mikill hagnaður myndi verða af" (Minningabók Magnúsar Friðrikssonar, Staðarfelli, bls. 178). Í janúar 1916 samdi…

    Hlusta
    Staðarfell Magnúsar Friðrikssonar um 1915Skarðsstöð +3
  50. 1916

    Hafði ei Dalaskáldið skjá

    skyggndist þó um víða
    þótt næmi oftar nei en já
    var natinn vísur smíða.

    Símon Dalaskáld Bjarnarson, (2. júlí 1844 – 9. mars 1916) https://www.wikiwand.com/is/articles/S%C3%ADmon_Dalask%C3%A1ld https://heimildin.is/grein/9798/landhreinsun-ef-simon-dalaskald-er-daudur/…

  51. 1917

    Íhald sér sig ekki úr færi

    að andæfa bákni SÍS
    sem í augum báðum bæri
    bjálka en ekki flís.

    Hallgrímur Kristinsson (1876-1923) ráðinn framkvæmdastjóri SÍS með aðsetur í Reykjavík. Tók þá Sigurður, bróðir Hallgríms, við stjórn KEA, sjá 1902. Tók SÍS þá að sér inn- og útflutning fyrir kaupfélögin. Í sömu svifum…

  52. 1917Lag: Afi minn fór á honum Rauð

    Verslun Guðlaugs lá nær lá

    - Laujabúð má þakka -
    heimsstríðinu fyrra frá
    fræg á Eyrarbakka.

    Guðlaugur Pálsson, *20.02. 1896, +16.12. 1993. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/118809/ : ,,Guðlaugur fluttur tveggja ára gamall til Eyrarbakka og ólst þar upp hjá ömmu sinni, Ingveldi Þorgilsdóttur, og föðursystur,…

    Hlusta
    Guðlaugur Pálsson, kaupm. EyrarbakkaEyrarbakki Laujabúð, Eyrarbakka
  53. 1917Lag: Nú látum oss líkamann grafa - SB 275

    Styrjöld og skömmtun skollin á

    skrúfast upp verð á kolum þá
    ráðherrastóla þurfum þrjá
    þar af einn skósmiður, VBK

    Heimsstyrjöldin fyrri byrjaði 1914, sjá þar. Hún einkenndist af kyrrstöðum skotgrafahernaði. https://www.youtube.com/watch?v=yak-yJFfTe8 Embætti landritara lagt niður, (lr. var Klemens Jónsson, er verður forstjóri í…

    Hlusta
    Björn Kristjánsson, rh. bankastj., tónlistarm., kaupm., skósmiðurSkósmiðurJón Magnússon, fyrsti forsætisráðherrann+4Myndband
  54. 1917Lag: Mér um hug og hjarta nú

    Þá Einar Ben. fær borguð út

    bréfin sín í Títan
    Bakkus rembi hnýtir hnút
    heilsan tekur svíkja' h'ann
    aftur verður ekki jöfn
    aldurs þyngdist byrði
    er hann sá að engin höfn
    yrði í Skerjafirði.

    Guðjón Friðriksson: Einar Benediktsson II, 417. Úr Endurminningum Valgerðar Zoëga: ,,Seint á stríðsárunum gengu hlutabréf Titans kaupum og sölum í Noregi ... seldi Einar þá af hlutabréfum sínum í félaginu fyrir nokkuð á…

    Hlusta
    HlutabréfamarkaðurUrriðafossvirkjun TitansEinar Benediktsson, skáld+2
  55. 1917Lag: Mér um hug og hjarta nú

    Enskir sendu ungan mann

    aleinan án vopna
    Kapall sagður kallast hann
    klókur munninn opna:
    ,,Vissulega kunna kol
    koma í þarfir brýnar
    þeirra án er víl og vol
    vitið kveðjur mínar”.
    1 erindi til viðbótar

    Úr bók Gunnars Þórs Bjarnasonar, Þegar siðmenningin fór fjandans til, bls. 270: ,,Ekstrabladet: Breskur ræðismaður er konungur, þjóðhöfðingi, einvaldur; hann ákveður hvað versla megi með og við hverja megi versla og við…

    Hlusta
    Kol
  56. 1917Lag: Sá frjáls við lögmál

    Þorlákur hafði viðskiptavit

    vinsæll millum Landa
    Ingibjörg færði flest í nyt
    og fluginu afkomanda.

    + Þorlákur Ó. Johnson f. 1838. ,,Duglegur og vinsæll” (Ísl. æviskrár) af fyrstu kynslóð íslenskra kaupmanna. Móðir hans, Sigríður Þorláksdóttir pr. Loftssonar, Móum á Kjalarnesi, átti að móður Sigríði þá Markúsdóttur,…

    Hlusta
    Esjuberg, Þingholtsstræti 29AÚr heimsborg í Grjótaþorp , ævisaga ÞÓJ
  57. 1918Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Ýtum þykir einu skeika

    ekki meta
    lúðraþeytarar þá er leika
    þjóðsöng Breta.

    Sjálfstæði Íslands var auglýst með því að ríkisfáni var dreginn að húni við stjórnarráðið kl. 11.45, að viðstöddum ræðismönum erlendra ríkja. Sigurður Eggerz, fjármálaráðherra, flutti ræðu, danskt herskip skaut 21…

    Hlusta
    Stjórnarráðið 1. des. 1918+1Myndband
  58. 1918Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Katla sinni köllun trú

    kastar af sér vatni
    nást mun lítil nyt úr kú
    nema tíðin batni.
    Þeim virtist líða vel í gær
    sem varð í dag að líki.
    Samið Einar Arnórs fær:
    Ísland sjálfstætt ríki.
    1 erindi til viðbótar

    Kötlugos og 1917-1918 var harðasti vetur 20. aldar. Kol höfðu þá hækkað margfalt í verði í ófriðnum, en 20 ár í að hitaveita kæmi í Rvk. Fyrir áramót fannfergi nyrðra en frosthörkur eftir hátíðar. Fraus þá firði svo…

    Hlusta
    Kötlugos 1918Spánska veikin1. desember 1918+7
  59. 1918Lag: Stína og brúðan, eftir Guðjón Bjarnason

    „Alþýðu pínir danskur djöfull"

    dag hvern fær oss rúið
    í spönsku veiki er gjörðist gjöfull
    gátum á hann snúið.

    Spánska veikin: Jón Birgir Pétursson, Meyvant á Eiði, bls. 34: „var ég nýlega farinn að vinna hjá DDPA ...Det Danske Petroliums Aktieselskab, ...síðar Olíufélagið hf. ...Íslendingar voru ekki lengi að smíða sína útgáfu…

    Hlusta
    Miðbæjarskólinn, Rvk.Gamla slökkvistöðin, Tjarnargötu, Rvk.
  60. 1918Lag: Veik er mundin, sr. Bjarni Þorsteinsson, Þjóðlög, 915

    Veitingaskáli, vegur, brú

    og verslun hjá
    svo Landsbankinn opnar útibú
    við Ölfusá.

    1891 kemur brú á Ölfusá þar sem nú er bærinn Selfoss. Greiðasala var í Tryggvaskála við syðri brúarsporðinn frá 1901. 1. janúar 1947 varð Selfoss sérstakt hreppsfélag. Nafnið dregið af bóndabýli vestan við núverandi…

    Hlusta
    Landsbankinn Selfossi 1919 til 1953. Austurvegur 21, Selfossi, Gamli Landsbankinn, Selfossi, mennirnir nafngreindir í textanum að ofan.Málverk: G. Gränz+4