Vísur eftir Glúm Gylfason um

Annálsverð tíðindi á árunum1540 til 1950

Ein eða fleiri annálsverð tíðindi hvers árs færð í rím, frá siðaskiptum þar til Ísland gekk í NATO — með heimildum, myndum og hljóðbrotum.

vísur
868
ár
412
aldir
5

Vísurnar

t.d.

19. öld · 237 vísur, í tímaröð
  1. 1801Lag: Jólasveinar 1 og 8

    Fyrir Alþing Yfirréttur

    þar Ísleifur, Gröndal og Magnús kljást
    Hólaskóli síðast settur
    við sálmabók margur illa brást.
    2 erindi til viðbótar

    Á einu og sama árinu lagði Magnús Stephensen (1762-1833) þrenninguna að velli í stafrófsröð: Alþingi, Djöfulinn og Hólaskóla. Heimildarmenn: Bjarni Thorarensen, dómari og skáld og Jón Þorláksson, prestur og þjóðskáld.…

    Hlusta
    Hólar í HjaltadalLeirgerður, Sálmabók 1801Leirárgarðar+6
  2. 1802Lag: Varnæs' Sølvbryllupssang:

    Norðanlands er stríð og streita

    stjórnarinnar kassi þurr
    Hólavinir hár sitt reyta
    Henderson og Arnljótur
    Magnús virti ei metnað Hóla
    menntun nyrðra lítið rædd
    ekki skeytti um þann skóla,
    ,,upplýsingin, holdi klædd”.

    Torfi K. Stefánsson Hjaltalín - í Sögu Biskupsstólanna, 668 og í Eldi á Möðruvöllum, 153 - segir, að í lýsingu Hendersons á heimsókn hans til Hóla 1814 sé sú heiftarlega gagnrýni á Magnús Stephensen, að á Hólum hafi…

    Hlusta
    Hólar í HjatadalMagnú Stephensen dómstjóriSteingrímur Jónsson biskup: "Guð annist Ísland"!+1
  3. 1802Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Djöfull Steinku dáraði

    dugði til þess Bjarni
    þó að illa áraði
    að hún varð með barni.

    Á Sjöundá á Rauðasandi, næst við Skor, bjuggu í tvíbýli Bjarni Bjarnason (1761- 4/10 1805) og Steinunn Sveinsdóttir (1767-1805) sem myrtu maka sína, Guðrúnu Egilsdóttur og Jón Þorgrímsson. Á Jóni vann Bjarni við Skor og…

    Hlusta
    SkorarvitiSkor fjærst, 7undá, Melanes næstMúrinn við Arnarhól+3
  4. 1802Lag: Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830

    Bringukolls fann klerkur þjóf

    kauða ná- sér tengdan
    ekki lengi götur gróf
    í gálga batt og hengdi' h'ann.

    Íslendingabók um Árna Rafnsson, f. 1783: ,,Stal bringukolli og séra Jón í Glæsibæ hengdi hann”. Gísli Konráðsson, Bólu-Hjálmars saga II: ,,Árni umrenningur var Rafnsson, bróðurson Helgu, konu sjera Jóns…

    Hlusta
    Hjallur+1
  5. 1803Lag: Þrútið var loft og þungur sjór

    Á mölinni eiga margir bágt

    og mæðan orðin slík
    að ,,Seltjarnarnesið, lítið og lágt”,
    sig lögum úr segir frá Vík.

    Reykjavík varð sérstakt lögsagnarumdæmi, bæjarfógeti skipaður Rasmus Fridensberg. Vík hafði aðeins verið kvosin sem kóngur fékk Innréttingum Skúla Magnússonar til umráða 1752, en nú var þeim lokað, og seldar veturinn…

    Hlusta
    Grótta á SeltjarnarnesiAusturmark Seltjarnarness Seltjarnarnes+3
  6. 1803Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Þá Snorri bjóst af stað frá Stað

    stefndi að Húsafelli
    þar niður drísildjöfla kvað
    uns dó í hárri elli.

    Snorri Björnsson, prestur, f. 3. okt. 1710 Höfn undir Hafnarfjalli, d. Húsfelli 15. júllí 1803. Prestur þar frá 1757, en áður á Stað í Aðalvík frá 1741. Borgfirðingar trúðu að hann hefði á Hornströndum aflað sér…

    Hlusta
    Kvíahellan, 186 kg. aflraunasteinn SnorraBók Þórunnar Valdimarsdóttur um Snorra á HúsafelliHúsafellskirkja+2
  7. 1803

    Í nýársmessu nýtt bar til

    nær oss gafst að heyra
    - þótt Magnús vildi meira -
    fíólína fagurt spil
    fangaði vort eyra.

    Sr. Pétur Guðmundsson, Annáll 19. aldar l, 60: ,,1. janúar gjörði Markús Magnússon, stiptprófastur í Görðum, messugjörðina þar hátíðlegri en venjulega með samspili þriggja fíólína og telur Magnús Stephensen ... þennan…

  8. 1803

    Engu trúði Óli á Grím

    ólman glæpamanninn
    gabb og lygar, galdrarím
    grátt lék stiptamtmanninn.

    Sr. Pétur Guðmundsson, Annáll 19. aldar, l, bls. 63: ,,Grímur Ólafsson, prests að Kvíabekk, Jónssonar ... hafði verið í skóla að Hólum og ætlaði þá tvisvar eða þrisvar sinnum að kveikja í skólahúsinu. Síðan fýsti hann…

  9. 1804Lag: Seht, die gute Zeit ist nahe - EGB 18

    Úr lifenda tölu var Lúðvíki svipt

    sem lysti að Ólafur fyki
    ,,var þá sem steini af Stephensen lyft”
    stefnunni trúði að yrði nú rift
    en stjórnin þó hélt sínu striki.

    Skúli Magnússon og Jón Eiríksson voru menn sem tókst að gegna hæstu embættum ríkisins með sóma. Hundrað árum síðar kom svo Hannes Hafstein, ráðherra Íslands, og tókst m.a. að berja í gegn síma. Í kjölfar harðinda 18.…

    Hlusta
    Ludvig HarboeJón Eiríksso konferenzráð, faðir Ludvigs E.
  10. 1805Lag: Sá frjáls við lögmál

    Rektorinn utan hélt um haf

    hressti sig oft og mikið
    en hlýtur nú - og héðan af -
    að halda sig við (S)strikið

    Enginn skóli í Skálholti eftir jarðskjálftana 1784, en skólinn fluttur til Reykjavíkur 1786 og síðar nefndur Reykjavíkurskóli hinn fyrri. Hann stóð á mótum núverandi Kirkjugarðsstíg og Suðurgötu, gegnt…

    Hlusta
    Helligåndskirken við Strikið, Kh.Bessasstaðir, kirkja og skóliHólavallaskóli
  11. 1805Lag: Enginn þarf að óttast síður

    Allt varð betra á Bessastöðum

    Björn og Scheving lofi hlöðum
    þarf ei fletta þar um blöðum
    að þar var haldið vel á spöðum.

    Reykjavíkurskólinn ,,fyrri”, frá 1786, sjá þar, stóð á mótum núverandi Kirkjugarðsstíg og Suðurgötu, gegnt Hólavallakirkjugarði. Húsið þótti illa byggt, hélt hvorki vatni né vindum og kennslan sama marki brennd.…

    Hlusta
    Steingrímur Jónsson, rektor, síðar biskupBessastaðaskóli og kirkja 1834+3
  12. 1805Lag: Se den lille kattekilling

    I Gufudal spögelset gik amok

    da giftemålet fik knæk
    pigen var dansk med stövler og stok /
    og student Vigfús blev væk.

    Danskur draugur! Ísl. æviskrár: Vigfús stúdent Erlendsson, varð úti á Gufudalshálsi 28.11. 1805, sonur sr. E. Hannessonar í Gufudal og f.k. hans, Hólmfríðar Runólfsdóttur, prests Setbergi, Runólfssonar. Í ,,Þar minnast…

    Hlusta
    GufudalurGöngustafur - stok+2
  13. 1806Lag: Sá frjáls við lögmál

    Stjórnin er brá á Blöndals hátt

    og bú skyldi eiga hirði
    úrættis lét þá Ólafur fátt
    ef það var nokkurs virði.

    1787, í kjölfar harðinda 18. aldar ákvað stjórnin að selja konungs- og kirkjujarðir með góðum kjörum sem urðu enn betri vegna óðaverðbólgu á árum Napóleonsstyrjaldanna. 1797 var leiguliðum veittur forkaupsréttur að…

    Hlusta
    ÚthlíðarkirkjaMerki Búnaðarbankans gamla: "Sáðmaður fór út að sá"+3
  14. 1806Lag: Dvel ég í Draumahöll

    Ógift móðir 8 barna

    auk eins í hjónabandi
    lík- á börum liggur þarna
    líkaminn, en andi
    einhvers staðar yfir sveif
    ofar heimsins grandi
    en framhjáhald að hemja bleif
    hreppstjóranna vandi.

    Lést Arndís Jónsdóttir (~1745-1806), ,,Barna-Arndís” frá Gamla-Hrauni milli Eyrarbakka og Stokkseyrar. Eignaðist ung vinnukona í Meðallandi 3 börn með giftum mönnum þar og dæmd af sýslumanni til að drekkjast, en dómnum…

    Hlusta
    Hreppstjóri í Vogum, Árni Kl. Hallgrímsson. Mynd viðkemur ekki þessu efni.Bærinn að Gamla-Hrauni+3
  15. 1807Lag: Vorið góða, grænt og hlýtt

    Við Öxnadal Guð eigi spar

    ógnarstuði var í
    opnaði sín augu þar
    Íslands Stradivari.

    Afburðamönnum oft líkt við ítalska fiðlusmiðinn Antonio Stradivari (1644-1737), á latínu Stradivarius. Hljóðfæri Stradivari þykja bera af, en nafn hans þýðir einmitt: ,,allt öðruvísi", og á vel við þá Jónas báða.…

    Hlusta
    Hraundrangur í ÖxnadalA. StradivariJónas / Öxnadalur / Hraundrangur
  16. 1807Lag: Vertu, góði Guð, hjá mér – SB 553

    Fyrir Ísland útlit dökkt

    af enskum drekum hafið krökkt
    Höfn þeir skjóta' á, skipum sökkt
    að Skerið sökkvi stendur glöggt.

    Jón Hjaltason: Saga Akureyrar I, 61: ,,Danir vildu ekki blanda sér í vopnaviðskipti stórþjóðanna (Frakka / Englendinga). ...sögðu nei (við að afhenda flota sinn Bretum). 30.000 enskir hermenn gerðu árás á Kh. og…

    Hlusta
    Skotárás enskra á Kaupmannahöfn 1807Ensk kúla í vegg á Strikinu
  17. 1808Lag: Sá frjáls við lögmál

    Að lánist fara við lög á svig

    og landsins stoðir bresti
    trúum að endurtaki sig
    á tvö hundruð ára fresti.
    1 erindi til viðbótar

    Í skugga Jörundar hundadagakonungs (1809) stendur að ósekju Gilpin, kapteinn á ensku herskipi sem tók land í Hafnarfirði 23. júlí, og sem með tilstyrk 24 manna áhafnar stríðsskips, ss Salomine, hafði mótspyrnulaust á…

    Hlusta
     Bjarni kaup- og útgerðarmaður SívertsenÆseif+4
  18. 1809Lag: Dvel ég í draumahöll

    Í Flatey Schevings framabraut

    en forgefins Jörgens amt
    lítillar kóngsins náðar naut
    nógu varð ríkur samt
    en arrestdelar dugðu skammt
    dró af Jörgen óðum
    sjálfum gerðist tugthús tamt
    á Tasmaníuslóðum.

    Jörgen Jörgensen (1780-1841), Jörundur hundadagakonungur, dubbaði 6 Íslendinga til lífvarða í einkennisklæðum. Af tilefni valdatöku Friðriks VI. höfðu flestir fangar verið náðaðir 9. júní. Þegar Jörundur kom, 25/6,…

    Hlusta
    Jörgen JörgensenFlatey á BreiðafirðiFlatey á Breiðafirði+3
  19. 1809Lag: Þrútið var loft og þungur sjór

    Beittu álfar brögðum þar

    bóndi þoldi skell
    hreppstjórasonur heillaður var
    hvarf inn í Spákonufell.

    Gísli Konráðsson, Saga Skagstrendinga og Skagamanna, Ísafoldarprentsmiðja 1941, bls. 76: „Davíð Guðmundsson bjó á Spákonufelli eftir föður sinn og átti Katrínu Einarsdóttur, Finnssonar frá Ey. Voru þeirra synir Einar,…

    Hlusta
    Frank Webster, watercolor on paper  12 x 16 in  $2,200Spákonufell
  20. 1810Lag: Vatnsdælingastemma

    Eiríkur fékk ekki brauð

    einhver réð hann klaga
    klerkinn sem að kaffi bauð
    kóngi hundadaga.

    Kapellán til Mælifells, sr. Eiríkur Bjarnason (1766-1843) á Hafgrímsstöðum, hafði veitt J. Jörgensen nýnæmið kaffi og fékk þá loforð hans fyrir kallinu þegar í stað og án þess að bíða andláts sr. Bjarna Jónssonar…

    Hlusta
    Mælifell í Skagafirði um 1900Jörgen JörgensenDjúpidalur,  Skagafirði+3
  21. 1810Lag: Tíu litlir negrastrákar

    Vandlega Auðunar viðir tegldir

    verðugir biskupsstólum
    500 vetra voru seldir
    verði jöfnu Hólum.

    Páll Hjálmarsson (1752-1830) síðasti rektor Hólaskóla, systursonur Bjarna Pálssonar landlæknis og Gísli fyrrum heyrari þar Jónsson, biskups Teitssonar, keyptu Hóla og rifu 500 ára gamla (1318) Auðunarstofu og seldu…

    Hlusta
    Auðunarstofa hin nýja, Hólum
  22. 1811Lag: Sá frjáls við lögmál

    17. júní sæng á lá

    - Sigurður bjó í haginn -
    léttari gerðist Þórdís þá
    á þjóðhátíðardaginn

    * Jón Sigurðsson 17. júní á Hrafnseyri, d. 1879. Foreldrar sr. Sigurður Jónsson (1777-1855) prestur þar og Þórdís Jónsdóttir (1772-1862). (Sjá 1851, 1853, 1865, 1879). Guðjón Friðriksson, Vestanglæður, bls. 89:…

    Hlusta
    HrafnseyriJón Sigurðsson forseti á seðliJón Sigurðsson, forseti
  23. 1812Lag: Sá frjáls við lögmál fæddur er

    Ólafi sýndu sóma og art

    þá sunginn var til leiðis
    medalíuna klufu í kvart
    kaleikinn sömuleiðis.

    + fv. stam. Ólafur Stefánsson *1731. Fjögur barna lifðu föður sinn. Þótti lítið til þess koma er engum var boðið eins og þá var venja og fylgdu honum því aðeins nákomnir. Ólafi höfðu hlotnast heiðursgjafir, m.a. stór…

    Hlusta
    dansk medaljeGullbikarViðey, búst. stiptamtmanns
  24. 1812Lag: Ríður fríður riddarinn - Bj.Þ. 900

    Að böðli fundu þeygi þjón

    því varð úr að láta Jón,
    Stafns- frá hóli, hýða Jón
    hann svo aftur flengja Jón.

    Saga frá Skagfirðingum II, 166, úrdráttur: Jón Skúlason og Jón Tómasson voru báðir bændur á Stafnshóli. Þeir lentu í hests- og sauðaþjófnaðarmáli. Í Yfirrétti dæmdist þeim báðum að erfiða ævilangt í Kaupmannahafnar…

    Hlusta
    Hýðing með hrísvendi
  25. 1812Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Napoleons biti-ban

    Bonapartes: vetur.
    Um hans herja feigðarflan
    forleik samdi Pétur.
    Einn af sex komst enn til Franz
    örkumla og snauður
    annar fangi andskotans
    afgangurinn dauður.

    Herför Napoleons inn í Rússland árið 1812. Andskotar Frakka voru því Rússar. 600 þúsund hermenn Napoleons lögðu af stað í herförina. 400 þúsund hermenn féllu. 100 þúsund teknir til fanga. 100 þúsund komust til baka til…

  26. 1813Lag: Eins í vöku og eins í blund - Bj.Þ. 829

    Fórst nú enn á Skeiði skip

    við skammarræður Drafnar
    upp- þó reyndust gjarnan grip
    grönnum Þorlákshafnar.

    Saga Eyrarbakka eftir Vigfús Guðmundsson, bls, 474: Eyrarbakkaskip, sem siglt hafði þangað síðan 1795, strandaði 30. maí á (Þorláks-) Hafnarskeiði vestan Ölfusáróss. Skipverjum bjargað og góss og skip selt á 9.300 rd.…

    Hlusta
    Eyrarbakki(Þorláks)HafnarskeiðUppboð á Eyrarbakka+1
  27. 1813Lag: Sá frjáls við lögmál

    Frúin hans Gísla, hún Guðrún, veik

    fyr'ir greifum og höfðingjakyni
    átti svo konan við Castenskjold leik
    en kaupmaður gekkst við syni.

    Johan Carl Thuerecht von Castenschiold, var stiftamtmaður á Íslandi 1813-1819. Sjá 1814. Íslenskar æviskrár um Gísla Símonarson *~1774 í Málmey, kaupm. í Vestmannaeyjum, Reykjavík og Skagaströnd: ,,...kona: Guðrún…

    Hlusta
    Drosche - drossíaMálmeyStam. Castenskjold
  28. 1813Lag: Rósin 2

    Járn og öxi á nú spara

    í öðru lífi refsi Guð
    gapastokkur, stegla og snara
    standa að mestu ónotuð.
    1 erindi til viðbótar

    https://www.youtube.com/watch?v=ZUBc-IsEOzI https://www.youtube.com/watch?v=cPEVH8cJOrc Kóngur, Friðrik VI., sagði enskum stríð á hendur eftir árás þeirra á Kh. 1807. Danmörk varð gjaldþrota 1813. (Sjá 1808). Enskir…

  29. 1813

    Castenskjold meina því trauðla tengist

    þótt takmarkalaust hér hór viðgengist
    sem enginn lengur fyrir flengist
    og friðill þar fyr'ir aldrei hengist.

    Séra Pétur Guðmundsson, Annáll 19. aldar, bls. 224: ,,Bjarni ... hafði getið mörg börn í hórdómi og mörg í frillulífi og varð eigi afstýrt enda gerðist það torvelt því trautt vildu margir gjalda hórdómssektir síðan af…

  30. 1814Lag: Rósin

    Bjuggu undir einu þaki

    Árni og Rask með Bjarna Thór
    dómstjóranum tæpt að taki
    tveimur höndum í þann kór.
    3 erindi til viðbótar

    Johan Carl Thuerecht von Castenschiold, var stiftamtmaður á Íslandi 1813-1819 Castenskjold var tekinn fram yfir Magnús Stephensen í embætti stiftamtmanns 1813 og urðu litlir vinir eftir það. Niðurstaða vísunnar er…

    Hlusta
    Austurstræti 22+10
  31. 1815Lag: Seht, die gute Zeit ist nahe - EGB 18

    Útsendur hingað engill var

    oss er skylt að muna
    Henderson ei á hana spar
    er kölluðu' í græsku gárungar
    Grútarbiblíuna. .

    ,,Engill sendur frá himni”, orð Jónasar Gíslasonar vígslubiskups, um Skotann Ebenezer Henderson, er ferðaðist um Ísland 1814-1815 fyrir Breska og erlenda biblíufélagið með um 10.500 Nýja testamenti og Biblíur og seldi…

    Hlusta
    Ebenezer HendersonHendersonsbiblía
  32. 1816Lag: Seht, die gute Zeit ist nahe - EGB 18

    Glöggt var eyra gestsins þá

    glapti landann vaninn
    *,,þú komst þegar Fróni reið allra mest á”
    **,,;/; eini góði Daninn ;/;”

    Christian Rasmus Rask (1787-1832), málfræðingur, hafði ferðast um landið frá 1813 til 1815. Honum blöskraði ástand íslenskrar tungu, vakti Íslendinga til meðvitundar um gildi hennar og gekkst fyrir að stofnað var í…

    Hlusta
    Christian R. Rask, málfræðingurÞorsteinn ErlingssonSkírnir 1827
  33. 1817Lag: Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869

    Bakkus einatt alls til vís

    ekki bregður vana
    á Svínavatni um veikan ís
    verður presti að bana.
    1 erindi til viðbótar

    Rósberg G. Snædal, Hrakfallabálkur bls. 104: 4. febr. ,,Séra Jón Jónsson prestur á Auðkúlu drukknaði af hesti niður um ís á Svínavatni undan ósum Svínadalsár. ...var nokkuð kenndur orðinn er hann ...týndist í blindvök…

    Hlusta
    Auðkúlukirkja við SvínavatnSvínavatn, Húnavatnssýslu+2
  34. 1818Lag: Pétur þar sat í sal

    Að Frón stefni fram á við

    ei fyrir synjandi
    setur á Sjáland mið
    Símon á Dynjandi.

    Símon Sigurðsson frá bænum Dynjandi, Arnarfirði (1788-1859) ,,er fyrsti Íslendingur sem vitað er til að stýrt hafi skipi milli landa á síðari öldum”. Tilvitnun í bréf dagsett í Kh. 1. okt. 1818. Fjórir synir hans…

    Hlusta
    Dynjandi í ArnarfirðiDynjandi í Arnarfirði
  35. 1818Lag: Veröld fláa - Stúd. 87

    Bækur gaf til bókasafns

    bryddaði upp á nýju
    því maklegt er að minnast Rafns
    meður þeli hlýju.

    Jónas Ragnarsson, Dagar Íslands, 28. ágúst: ,,Landsbókasafn Íslands er talið stofnað þennan dag. Það hét upphaflega Stipts bókasafn... Jón Árnason (1819-1888) var fyrsti bókavörðurinn. Safnið var fyrst á lofti…

    Hlusta
    C. C. Rafn frumkvöðull að stofnun LandsbókasafnsinsLanndsbókasafnið fv.Þjóðarbókhlaðan+1
  36. 1819Lag: Leslie Sarony - Rhymes (1932)

    Um Jón gekk jafnan rykt

    að jómfrúm yki þykkt
    á Bæsá bjó
    á Bæsá dó
    á Bæsá orkti dikt.

    + séra Jón þjóðskáld Þorláksson (f. 1744), sem þýddi m.a. Paradísarmissi enska skáldsins Johns Milton (1608-1674). Jón orti afburða vel, var fyrstur nefndur þjóðskáld, en nú er þó aðeins einn sálmur eftir hann í…

    Hlusta
    Kirkjan að Ytri-BægisáLeirgerður Hraundrangur blasir við frá Bægisá séð+3
  37. 1820Lag: Kindur jarma í kofunum - Bj.Þ. 618

    Illum tungum tamt ei varð

    tugthús nefna konungsgarð
    breytti því hvorki né bætti úr skák
    að beislaði Magnús sinn ljóðafák.

    Við skipan Moltkes í embætti stiptamtmanns 1819 var typtunarhúsið, núverandi stjórnarráðshús, rækilega tekið í gegn, en illa gekk að festa nýtt nafn á það, enda téður fákur Magnúsar Stephensen aldrei talinn kostagripur.…

    Hlusta
    Eftirmynd af málverki Moltkes af Kóngsgarði.PegasusMagnús Stephensen
  38. 1821Lag: Dvel ég í draumahöll

    Kjærnested nyrðra kennir sund

    kann á því tökin þýð
    hefur og líka lagt á stund
    lækningar, rennismíð.
    Eyfirðingum brá í brún
    þar bændur tóku að frétta
    á Skipalóni tækist tún
    með tólum jafna´og slétta.

    Jón Kjærnested (1798-1836) frá Skriðu í Hörgárdal var fyrir verðleika föður síns, Þorláks Hallgrímssonar (1754-1846), frumkvöðuls í (trjá)ræktun, boðið til jarðræktarnáms í Danmörk og kynnti sér og lærði, auk þess sem…

    Hlusta
    Plægt Trén við SkriðuÞorsteinn Daníelsson, b.m.m., Skipalóni+6Myndband
  39. 1821Lag: Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

    Kristrún Þorsteins, Þingeyingur,

    þar til hagyrðingur
    hafði að auki fima fingur
    firna- smiður slyngur.

    Fárra hagorðra kvenna getið í fornum fræðum, hvað þá að kona sé sögð: ,,ágætur smiður og vel hagorð", en það gera útgefendur Sögu frá Skagfirðingum II í athugasemdum bls. 156. Kristrún Þorsteinsdóttir (1751-1821), ekkja…

    Hlusta
    Kristnes
  40. 1821

    Skipbrotsmenn á Skaga hlutu

    í skemmu hafast við
    uns sveitungar þar saman skutu
    silfri og veittu lið.

    Gísli Konráðsson, Saga Skagstrendinga og Skagamanna, bls. 88: „Nú var mjög kalt vor 1821 og hafísar miklir. Það var á langafrjádag að hvalfangarar (frá Glückstad) náðu landi á Þingskála á Skaga, er brotið höfðu skip…

  41. 1822Lag: Dvel ég í Draumahöll

    Áður húð- við stólpa strýkt

    þá stundu menn af sviða
    nú ei lengur segja slíkt
    samviskuna friða
    þeim er hefur hórdóm drýgt
    þá holdið tók að iða
    honum gerast málin mýkt
    ef maki biður griða,

    Saga frá Skagfirðingum II, 110: ,,Og voru enn mýkt svo hórdómsmál, að sá maður sekur skyldi bótalaus, er saklaus ektamaki bað fyrir". Framhjálhald refsilaust í Danmörk 1785, sjá þar.…

    Hlusta
    Tómur gapastokkurMyndband
  42. 1822Lag: Hver sem að reisir hæga byggð

    Fengið hafði sá vondi völd

    virtu og fáir trúna
    þjófa- hét hún þar þessi öld,
    í þeirri sýslu, Húna,
    siðferði hafði fundið brest
    við langa fingur loddi flest
    líkt því mun víðar núna.

    Björn Blöndal Auðunsson (1787-1846) fékk sýsluvöld í Húnavatnssýslu 1820 og tókst á við þá stigamennsku sem viðgengist hafði þar með afskiptalitlum sýslumanni, Jóni (~1747-1831) Jónssyni í Víðidalstungu og Reykjum í…

    Hlusta
    Þjófur staðinn að verki (úr italskri kvikmynd)+3
  43. 1822Lag: Enginn þarf að óttast síður

    Lærða-Jóni var lögmál óður

    Lútherstrúarmaður góður
    Helvíti um hafsjór fróður
    Himnaríki´í óx hans sjóður.
    2 erindi til viðbótar

    Sigríður (1790-1864), dóttir sr. Jóns lærða Jónssonar, (1759-1846), þá á Möðrufelli, Eyjafirði, eignaðist barn með vinnumanni föður síns. Prestur lét hana, síðasta ógiftra mæðra, standa opinbera aflausn sem varð ennþá…

    Hlusta
    Valgerður Árnadóttir BriemGrund í Eyjafirði+3
  44. 1823Lag: Allt fram streymir endalaust

    Dánumenn eru dánir tveir

    en dauður ei sá kvittur
    að öðrum þeirra - en ekki Geir
    aldur væri styttur.

    Vigfús (1787-1843) lögfræðingur, sonur am. Stefáns Þórarinssonar á Möðruvöllum starfaði í kanzellíinu frá 1811, en var leystur frá starfi vegna geðveiki og er kominn til Íslands 7. janúar þetta ár. ,,Er mjög tíðrætt um…

    Hlusta
    Am. Stefán ThorarensenGrindadrápAðalstræti 10+5
  45. 1823Lag: Eins í vöku og eins í blund - Bj.Þ. 829

    Þjóð að fjölgi þurfi tvo

    það ku vera sannað
    en fátæklingar skulu sko
    skemmta sér við annað.

    https://is.wikipedia.org/wiki/Hj%C3%B3naband: ,,Alþingissamþykkt frá árinu 1720 (sjá 1721) ákvað að aðeins „bjargálnamenn“ mætti vígja í hjónaband og var öreigum títt meinað að giftast. Ísland heyrði enn undir Danmörk á…

    Hlusta
    Mynd Nínu Sæmundsson, Móðurást
  46. 1823

    Kötlu enn í brók varð brátt

    búinn Öfjörð vandi
    sýslumanni fjörs varð fátt
    í flóði á Mýrdalssandi.

    Í Kötlugosi fórst sýslumaður, Þórarinn Öfjörð, f. 1793, við þriðja mann ásamt reiðhestum í vatnsflóði á Mýrdalssandi 14. sept. 1823. Þórarinn hét nafni móðurafa síns Jónssonar sm. á Grund í Eyjafirði og ólst m.a. upp…

  47. 1824Lag: Dvel ég í draumahöll

    Ei var hann við alþýðuskap

    enga forsjá þekkti
    heimilis- á haldi tap
    hústrú dönsk sem ekti
    hvorki fólk né fé var tamt
    að fjalla um svo rími
    notaríus og norðlenskt amt
    nægði ekki Grími.

    Eftir lát am. Stefáns Þórarinssonar, 1823, varð amtmaður nyrðra Grímur Jónsson (1785-1849). Mannleg samskipti og fjárgæsla þóttu ekki hans sterku hliðar. ,,Mikil skuldasöfnun gerði Grím örvinglaðan” (Eldur á Möðruv.…

    Hlusta
    Grímur Jónsson amtmaður NAMöðruvallakirkjaSkiælskör, Sjálandi
  48. 1825Lag: Ó, fögur er vor fósturjörð

    Úr heimi Bólstaðarhlíðar Björn

    bóndi og klerkur mætur
    átti samtals átta börn
    og allt voru það dætur
    við það urðu allvel sátt
    enda mjög að vonum
    því fleiri' hefur presta enginn átt
    enn að tengdasonum.

    + sr. Björn Jónsson í Bólstaðarhlíð, Hún., f. 1749. Með fyrri eiginkonu sinn, Ingibjörgu d. 1816 Ólafsdóttur á Frostastöðum Jónssonar átti hann 8 dætur, sem 7 urðu prestfrúr. Lofaður í Íslenskum æviskrám Páls Eggerts…

    Hlusta
    Bólstaðarhlíð
  49. 1825Lag: Leslie Sarony - Rhymes (1932)

    Er heyrðu í bitanum brest

    bæn sinni slógu á frest
    rúðunum stút-
    uðu og út
    ultu með biskupi' og prest.

    ,,Við messu í Dómkirkjunni á hvítasunnudag kvað við hár brestur í burðarbita þegar sr. Árni Helgason (1814) embættaði, en Steingrímur Jónsson (1769 - 1845) nývígður biskup var þar viðstaddur og kirkjan þéttsetin.…

    Hlusta
    Steingrímur Jónsson, biskupDómkirkjan um 1825Kór Dómkirkjunnar í Rvk.
  50. 1826Lag: Enginn grætur Íslending

    Raunalega Reppi gekk

    þá ritgerðina varði
    þar fyrir hinstu hvílu fékk
    í Hólavallagarði.

    Þorleifur Repp (1794-1857) var sonur Rósu Egilsdóttur pr. Útskálum, Eldjárnssonar og m.h., sr. Guðmundar Böðvarssonar, Kálfatjörn, Högnasonar ,,prestaföður” (sjá 1760). Sr. Þorvaldur sálmaskáld var því föðurbróðir…

    Hlusta
    KaupmannahafnarháskóliLegsteinn Repps í Hólavallagarði, Rvk.
  51. 1826Lag: Syngur lóa' í laufgum mó - Bj.Þ. 869

    Loksins fær af biskup brauð

    sá bein er hlaut að naga
    klerkur fyrr er kaffi bauð
    kóngi hundadaga.

    Steingrímur biskup Jónsson visiteraði Skagafjörð. Hitti hann þá að máli fv. kapellán til Mælifells, sr. Eirík Bjarnason (1766-1843), en bónda í Djúpadal síðan 1811. Tók biskup hann í sátt og fékk hann í kjölfarið…

    Hlusta
    Djúpidalur SkagafirðiStgaðarbakkakirkjaHafgrímsstaðir
  52. 1827Lag: Rís upp mín sál að nýju nú

    Karlarnir gerast Þuru þý

    þegar gefur að róa
    og hún á stóran þátt í því
    að Kambránsmenn eru komnir í
    kóngsins járn í Flóa.
    2 erindi til viðbótar

    Þuríður Einarsdóttir (1777-1863), byrjaði að róa 11 ára og var lengi formaður á áttæringi frá Stokkseyri og hafði sýslumannsleyfi til að ganga í buxum. Hún kallaði háseta sína ætið þannig til róðurs: ,,Skinnklæðum okkur…

    Hlusta
    +6
  53. 1828Lag: Hilf, Herr Jesu, lass gel - EGB 61

    Á hvalfjöru illa á sér sat h'ann

    af því Friðrik réð að hata' h'ann
    en skáldið, Rósa, mikils mat h'ann
    með h'enni börnin Ólafs gat h'ann.
    Undir stýri sat h'ann Satan
    þá Sigga' og þau Agnes drápu' h'ann,
    - Natan.
    4 erindi til viðbótar

    Natan Ketilsson f. 1792, myrtur aðfararnótt 14. mars 1828 á Illugasöðum á Vatnsnesi. Hann var heppinn (grasa)læknir og haldinn eiga peninga í fórum sínum. Þessa nótt gisti að Natans Fjárdráps-Pétur, sem var þar staddur…

    Hlusta
    Illugastaðir á VatnsnesiHvalreki á Skagaströnd 1918+2
  54. 1829

    Í Friðriksgáfu getur flutt

    Grímur - amtmann köllum
    einatt milli elda stutt
    er á Möðruvöllum.

    Einar Laxness, Íslands saga I, 153: ,,Friðriksgáfa, bústaður amtmanns á Möðruvöllum í Hörgárdal fullbyggður 1829 í tíð Gríms Jónssonar, amtmanns norð-vesturamts, og kom í stað gömlu amtmannsstofunnar sem brunnið hafði…

  55. 1829Lag: Maðurinn sem úti er - Bj.Þ. 855

    Húnvetningum hættast fer

    á heiðarleikans svelli
    síðast hýddur Sveinki er
    Sveinsson á Austurvelli.

    Árni Óla, Gamla Reykjavík, 294, úrdráttur: Sveinn Sveinsson, bróðir Bjarna á Strjúgsstöðum í Langadal, sem var ,,alræmdur og illa þokkaður" (sbr. 1832) - og tveir félagar hans - annar hafði dvalið 3 síðustu ár með…

    Hlusta
    Opinber auðmýking í gapastokkiAusturvöllur 1919Hýðing
  56. 1829

    Vestur á Hellnum var og einn

    til vandræða allan tímann
    við hann réði varla neinn
    víða um lönd barst glíman.

    Ásgrímur Vigfússon (1758-1829) oftast kenndur við Hellna, prestur þrívegis þar í Breiðavíkurþingum, þ.e., tvisvar settur frá. Ásgrímur var fæddur á Hellisvöllum 5. júlí árið 1758. „Foreldrar: Vigfús Helgason…

  57. 1830Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Natani var unnið á

    á Illugastöðum forðum
    þá Blöndal átti um sýslu að sjá
    sæmdur frakka og borðum:
    ,,Bændur! skuluð vera við
    að verri útreið forðum
    svo húnvetnskt þjófa- löglaust lið
    láti af ráni og morðum".

    Síðasta aftaka á Íslandi. Eftir að líflátsdómur hafði fallið á þremur dómstigum voru hálshöggvin við Þrístapa í Vatnsdalshólum, Friðrik Sigurðsson og Agnes Magnúsdóttir. Böðull: Guðmundur Ketilsson (1791-1859), bróðir…

    Hlusta
    Höggstokkur og öxin frá 1830Aftaka Vatnsdalshólar+4
  58. 1830Lag: Reið jeg Grána - sr.Bj.Þ. 892

    Lestrarkver sitt heldur handa

    heldri manna börnum Rask
    ein phónetíkur fræðablanda
    sem fæstir kunnu láta í ask.

    Fletti menn lestrarkverinu á eftirfarandi slóð geta þeir dæmt hver fyrir sig hvort væri enn í fullu gildi sem kennslubók í hljóðfræði á háskólastigi.…

    Hlusta
    Christian Rasmus Rask
  59. 1831Lag: Ökuljóð, rússneskt þjóðlag

    Þegar Fjallvegafélagar Bjarna

    fengu vörður upp hlaðið af grjót
    slysum óþarfa vildu með varna
    vega- þótti hin mesta af bót.
    1 erindi til viðbótar

    Þegar ábendingar Bjarna (1785-1841) Thorarensen um vegabætur hlutu ekki undirtektir kostaði hann þær 1820-1822 úr eigin vasa á Skúlaskeiði á Kaldadal – kennt við langafa og alnafna Skúla fógeta Magnússonar. (Sjá 1711).…

  60. 1831

    ,,Landið er fagurt og frítt

    og fannhvítir jöklanna tindar"
    en drekkt er ei hengt eða hýtt
    né hegna má nokkurrar syndar.

    Andstaða var á Íslandi við breyttar og vægari refsingar sem Bjarni Thorarensen kallaði ,,skálkamiskunn, trúarhálfvelgju og stjórnleysi 19. aldar” og fékk Níels skálda til að yrkja rímu þar um: ,,Urðarmýsnar í…

  61. 1832Lag: Rösklega hún gengið gat - Bj.Þ. 887

    Í Langadal brjóta lög af fíkn

    þar látlaust ys og þys var
    að Bjarni á Strjúgi sé nú sýkn
    segja látum oss þrisvar.
    1 erindi til viðbótar

    Húnvetnska glæpaöldin (~1820- ~1863) var hvað skæðust í Langadal. Flimtan kvað, að þar væru jarðir metnar eftir því hversu sauðaþjófnaði yrði við komið. Orðin: ,,þar látlaust ys og var” hefur Magnús Björnsson á…

    Hlusta
    Skuggalegur náungiLangidalur+4
  62. 1832Lag: Fljúga hvítu fiðrildin

    Gildan þegar sjóðinn sá

    Solveig giftist flóni
    á Hofsósi í lofti lá
    að lítið ynni Jóni.

    Saga frá Skagfirðingum III, 14, úrdráttur: Niels Havsteen, kaupmaður Hofsósi, bróðir am. Péturs, átti Ólöfu Bergmann. Sú eldaþerna var með þeim er Solveig hét Eiríksdóttir. Hún varð þunguð og var mælt að Ólöf hefði…

    Hlusta
    Hofsós
  63. 1832

    Að skáldjöfur Goethe sé genginn, les,

    nú gagnmerkur fölnaður logi
    þá Faustus og Me'fistoles
    fékk oss Bjarni frá Vogi.

    Johann Wolfgang von Goethe lést í Weimar 22 mars 1832, 82 ára gamall, f. 1749. Hann var þýskur rithöfundur, ljóð- og leikritaskáld og álitinn einn fremsti andans jöfur þeirra sem uppi hafa verið.. Enn gegna verk hans,…

  64. 1833Lag: Hvar mundi vera hjarta mitt

    Djöfullinn varla svipur hjá sjón

    í sálmum Magnúsar
    gagnrýni um þá orti Jón
    og Arnór veitti svar:
    ,,Nú Stephensen dauður varla vaknar
    á verri stað en þeir
    og eitt er víst að ekki saknar
    eldsins neitt sá er deyr".
    1 erindi til viðbótar

    + Magnús Stephensen (f. 1762), dómstjóri Landsyfirréttar, gaf út umdeilda Sálmabók 1801 og prentaði í Leirárgörðum. Norðlendingar ortu ófagurt um ,,Leirgerði”, t.d. séra Jón Þorláksson á Bæsá, sem svo var kölluð þá (sjá…

    Hlusta
    Magnúr Stephensen dómstjóriMagnús Stephensen, dómstjóri
  65. 1833Lag: Sigga litla systir mín

    Baldvin treysti bændur á

    að byggi upp landið ísa
    hjá borgarskríl við sundin sá
    síst nýtt alþing rísa.

    + Baldvin Einarsson (1801-1833) ættaður úr Fljótum, lfr. frá háskólanum Kh., upphafsmaður sjálfstæðishreyfingarinnar íslensku. Hann skrifaði og gaf út ársritið Ármann á Alþingi í samræðuformi árin 1829 til 1832. Að hans…

    Hlusta
    Baldvin Einarsson
  66. 1834Lag: Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

    Hjúum allur horfinn agi

    hér má enginn tyftast
    ýmist með börn í eftirdragi
    eða vilja giftast.

    Espólín verður á efstu árum tíðrætt um agaleysi hjúa. Dæmi: ,,Margt var þá ólag vinnuhjúa og kostavendni, drykkjuskapur og útreiðar; höfðu líka vinnumenn flestir mörg hross í eftirdragi og sumir börn, en varla nein…

    Hlusta
  67. 1834Lag: Veik er mundin – Bj.Þ. 915

    Daglangt í Wogum sá danski prins

    við dándimann, Jón, fékk rætt
    til þess hispurslauss heljarskinns
    heiðursmenn rekja ætt.

    Ólafur Ketilsson (1864-1947) hreppstjóri, Höfnum, segir - í Sunnlenskum sagnaþáttum Hildar, 1981, bls. 133, og hefur eftir föður sínum sem þá (1834) var 11 ára staddur hjá móðurafa sínum, Jóni sterka Daníelssyni…

    Hlusta
    Kristján VIIVogar á VatnsleysuströndVogar, Vatnsleysuströnd
  68. 1834Lag: Hvað boðar blessuð nýárssól

    Danaprins kemur, Dillon fer

    dóttur skilur hann eftir hér
    Bernhöft til Knudtsons með krydd og ger,
    kökur og Vínarbrauð við smér.
    1 erindi til viðbótar

    Ferðuðust hér: Sir A. Dillon (1812-1892), írsk-enskur aðalsmaður er eignaðist dóttur með matmóður sinni, Sigríði Ottesen (1800-1878), og reisti henni hús að Suðurgötu 2 - nú á Árbæjarsafni - en yfirvöld heimiluðu ekki…

    Hlusta
    Dillonshús, Suðurgata 2. t.h. fyrir miðjuFriðrik VII. Bakarí Bernhöfts neðst t.h.+7
  69. 1835Lag: Veröld fláa

    Í embættum hátt um Fjölni fátt

    fannst - og smátt - sem bændum
    skynjuðu brátt að gaman grátt
    gætu átt í vændum.

    Byrjar göngu sína ársritið Fjölnir og kom út níu sinnum til 1847. Fjölnismenn voru: Brynjólfur Pétursson (1810-1851), Jónas Hallgrímsson (1807-1845), Konráð Gíslason (1808-1891) og Tómas Sæmundsson 1807-1841).…

    Hlusta
    Stiftsprófastur Árni Helgason, biskup að nafnbótFjölnir, 1. árJónas Hallgrímsson+6
  70. 1836Lag: Rösklega hún gengið gat - Bj.Þ. 887

    Fjölnir veitti Sveini svar:

    ,,Svei þér vegna Guðnýjar”.
    Söknum Tímóteusar
    á tindi Heklu Páll Gaimard.

    Séra Sveinn Níelsson (1801-1881) orti í Sunnanpóstinum: ,,Fjölnir þessi finnst mér kafni / fátæklegur undir nafni / honum er bragur unglings á”. Fjölnlir er Óðinsheiti. Fjölni gaf þá í skyn að konan sem hann skildi…

    Hlusta
    Séra Sveinn NíelssonPaul Gaimard+4
  71. 1837Lag: Jeg má bera hallan haus - Bj.Þ. 847

    Harðar gerast glímurnar

    grátt er Breiðfjörð leikinn
    Jónas ræðst á rímurnar
    rakkar niður beykinn.

    Jónas Hallgrímsson (1807-1845) gagnrýndi rímnakveðskap í Fjölni og beindi spjótum sínum að fremsta þálifandi rímnaskáldinu, Sigurði Breiðfjörð Eiríkssyni (1798 – 1846), sem var beykir að iðn. Sigurður hafði látið hafa…

    Hlusta
    Jónas HallgrímssonSigurður BreiðfjörðStykkishólmur, Norska húsið, Árna Thorlacius
  72. 1838Lag: Kvæðalag, Ingi Heiðmar Jónsson kveður

    Svaramaðurinn sýndist þar

    sjálfboðinn, Bakkus, til veislunnar
    að vinirnir gerðu hans veigum skil
    víst ei þurfti brúðkaup til.

    Sigurður Breiðfjörð (1846) tók aldrei út tildæmda refsingu fyrir tvíkvæni, 2 x 27 vandarhögg. Hann hafði þegið hjónavígslu án lögskilnaðar við fyrri konu, sem hann hafði gifst þungaðri, að talið var af völdum Petreusar,…

    Hlusta
    Sigurður BreiðfjörðBeykir+3Myndband
  73. 1839Lag: Veik er mundin - Bj.Þ. 915

    Blessan hefur og bölvan þótt

    bandið vista:
    ,,Ei skal lengur en eina nótt
    að öðrum gista”.

    Skylduvistráðning hjá bónda var skipuð með lögréttusamþykkt 1404 eftir pláguna fyrri, þegar fólki fækkaði mjög og miðuðu við Maríumessu á vori, 3. maí. (Sjá 1700). Vistarskyldan síðan ítrekuð í Píningsdómi 1490. Í…

    Hlusta
    Gist á götunniMyndband
  74. 1839Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Skemma þau engan, skagfirsk gen,

    skylt er að muna' að í ár
    til vor kom frá Thorvaldsen
    torgætur skírnarsár.

    Settur upp í Dómkirkjunni í Reykjavík skírnarsár frá Albert Thorvaldsen (1770 -1844) sem hann gerði og gaf að tilhlutan Fjölnismanna. Albert fæddist, nam og dó í Kaupmannahöfn, en starfaði 40 ár í Róm. Móðir hans,…

    Hlusta
    Albert (Bertel) ThorvaldsenKomið til mín allir; Frúarkirkja, Kh.Skírnarsár Dómkirkjunnar í Rvk.+3
  75. 1839Lag: Se den lille kattekilling

    Öll nú gerist Íslands saga

    við Eyrarsund um hríð
    óskabörnin uppi daga
    á ølstue hjá Hviid.

    Sverrir Kristjánsson, Ritsafn I, 122: ,,...1829-1851. Þegar horft er um öxl til þessara ára, þá verður að játa, að saga landsins var farin úr landinu sjálfu. ...Saga landsins gerðist að mestu úti í Kaupmannahöfn, ekki…

    Hlusta
    Fjölnismenn: Tómas, Konráð, Brynjólfur, JónasBaldvin Einarssoncand theol Magnús Eiríksson frater+10
  76. 1840Lag: Bílavísur

    Ljúka allir lofsorði á Pétur

    laglegt þykir hversu sungið getur
    og svo hefur hann spilað vel í vetur
    að varla hefði páfinn gert það betur.
    1 erindi til viðbótar

    Pípuorgel kemur í Dómkirkjuna, kostaði 518 rd. (1846 seldu kaupmenn á Hofsósi 5 potta af brennivíni á 1 rd.). Eiríkur Eiríksson (1794-1859), hringjari og grafari, varð þá einnig orgeltroðari fyrir 6 rd. á ári. Fyrsti…

    Hlusta
    J.Wiberg 32: Heislan & Alm. kirkjubæn Messe-Melodier J. Wiberg 1832+4
  77. 1841Lag: Ó, hve dýrleg er að sjá

    Bjarni og Tómas gerast grannar

    gægst ei fáum um þann múr.
    Reyndust ei þær rúnir sannar
    sem rakti Finnur til Hilditannar
    allt var það í öðrum dúr
    undan jökli sorfið flúr.

    + Bjarni Thorarensen f. 1786, skáld og amtmaður NA; + sr. Tómas Sæmundsson f. 1807, Fjölnismaður (1835); Kristleifur Þorsteinsson segir í Byggðum Borgarfjarðar II, 323, að fullyrt sé að Tómas Sæmundsson (1807-1841) hafi…

    Hlusta
    Bjarni ThorarensenTómas SæmundssonFinnur Magnússon, leyndarskjalavörður+4
  78. 1842Lag: Dvel ég í draumahöll

    Felix um Þjórsá í frostinu óð

    frækinn á Nautavaði
    en Johnsen á Ármóti strauminn ei stóð
    stór þótti héraðs skaði
    e- kvað ei væri -drú þá dó
    dauðastund enginn kýs sér.
    Laugar- í dælum hans líkami' í ró
    liggur næst Bobby Fischer.

    Hannes Þorsteinsson (1860-1935), ritstjóri og ættfræðingur segir í sjálfsævisögu að bróðir föðurafa síns, Felix Ásbjarnarson (1801-1859), hafi 16 ára á gamlárskvöld í miklu frosti vaðið Þjórsá á Nautavaði og komið allur…

    Hlusta
    Nautavað á ÞjórsáRobert (Bobby) Fischer, Leipzig 1960Laugardælakirkja+6
  79. 1843Lag: Voða bágt á veslings Rútur/ Jólasv. 1 og 8

    Að Kolviðarhóli hús á grjóti

    Hellis- fyrir vestan skarð
    Danir telja til á móti
    Tívolí, nýjan skemmtigarð.

    Sæmundur Steindórsson (1782-1844), bóndi Auðsholti í Ölfusi, séra Páll Matthiesen (1811-1880) í Arnarbæli í sömu sveit, og mágur hans, Jón Jónsson (1789-1859), bóndi á Elliðavatni, gangast fyrir fjársöfnun til…

    Hlusta
    Tivoli, Kh.Sæluhúsið KolviðarhóliPóstar gistu á Kolviðarhóli
  80. 1843Lag: Fljúga hvítu fiðrildin

    Brókarlækjarbóndinn lá

    brókarlaus níu sinnum
    þó að væri það ei hjá
    þetta mörgum kvinnum.

    Saga frá Skagfirðingum IV, 35: ,,Oddur Grímsson (1787 - 1858) á Brókarlæk hýddur fyrir framhjátekt á ný, sem var hans níunda". Brókarlækur er annað (eldra?) nafn á Borgarlæk í Skefilsstaðarhreppi, norð-austanvert á…

    Hlusta
    1 & 9Ketubjörg í nágrenni Brókarlæks