Vísur eftir Glúm Gylfason um

Annálsverð tíðindi á árunum1540 til 1950

Ein eða fleiri annálsverð tíðindi hvers árs færð í rím, frá siðaskiptum þar til Ísland gekk í NATO — með heimildum, myndum og hljóðbrotum.

vísur
868
ár
412
aldir
5

Vísurnar

t.d.

18. öld · 211 vísur, í tímaröð
  1. 1701Lag: Snemma lóan litla í

    Útskipun er einkar fljót:

    utan siglt með torf og grjót
    tæpt að þjóðin tórði.
    Valdabarátta leið og ljót:
    sé Lárus með er Páll í mót
    kóngur er Friðrik fjórði.
    4 erindi til viðbótar

    Harald Gustafsson: Mellan kung och allmoge, Stockholm 1985, bls. 32; ,,Kring 1700 hotades hela det isländska samhället av ekonmisk kollaps". Um yfirstandandi hungursneyð, sjá 1700. Í þjóðernisrómantískri söguritun fyrri…

    Hlusta
    Friðrik IV.VíðidalstungaL. Gottrup og Katrín Pétursdóttir+6
  2. 1702Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Asklok fyrir himin höfðu

    höfðingjar þessa lands
    af þeim er Íslands sögu sögðu
    sæmdir heiðurskrans.
    1 erindi til viðbótar

    Axel Kristinsson, Hnignun, bls. 56: ,,Pólitískar einingar þurfa sínar goðsagnir”. Íslandssaga Jónasar Jónssonar 1916: ,,Snorri veginn fyrir að vilja vernda frelsi og sjálfstæði þjóðar sinnar". Tilvísun: Helgi…

    Hlusta
    Jónas Jónsson frá Hriflu kennslubókarhöfundurPróf. Árni Magnússon+1
  3. 1702Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Asklok fyrir himin höfðu

    höfðingjar þessa lands
    af þeim er Íslands sögu sögðu
    sæmdir heiðurskrans.
    3 erindi til viðbótar

    Jón Aðils, um aldarfarið á fyrsta fjórðungi 18. aldar. Ævisaga lm. Odds Sigurðssonar bls. 85-6: ,,...má svo að orði kveða að allt væri í uppnámi í landinu og hver höndin upp á móti annarri en slík tímabil eru einmitt…

    Hlusta
    Askinn smíðaði Ólafur Sigurjónsson, Sigga á Grund skar út
  4. 1702Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Án þess nokkur örmum lyfti

    við Árhraun Hvítá kyrr
    hún þar sínu rennsli rifti
    sem Rauðahafið fyrr.
    1 erindi til viðbótar

    Fitjaannáll: ,,...þornaði Hvítá hjá Árhrauni á Skeiðum nær í 2 daga hvað og skeði 1594.” Hestsannáll segir: ,,Hvítá tapaði renslu sinni" svo að ,,þur varð hjá Árhrauni 1702" 2. Mósebók 21-22: ,,Þá rétti Móse hönd sína…

    Hlusta
    Moses - RauðahafiðHvítá séð af Hestfjalli +1
  5. 1703

    Þórdís til Skálholts er flúin í felur

    fólkið í landinu hreppstjóri telur
    Prentsmiðju Brynjólfur biskupi selur
    úr bókunum Arnæus velur - og stelur.

    Þórdís Jónsdóttir (1704) flýr til systur sinnar, Sigríðar (d. 1730) biskupsfrúar undan eiginmanninum, jungkæra Magnúsi Sigurðssyni (1651-1707), Bræðratungu. Þær systur dætur Guðríðar Þórðardóttur (1645-1707) Jónssonar…

    Hlusta
    Prentsmiðja - Gutenberg 1447BræðratungaBækur
  6. 1704Lag: Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 868

    Magnús Skálholts- mæðir stól

    og mótmælir í ræðum
    að Arnæus og Íslandssól
    aðeins fletti skræðum.

    Fitjaannáll II, 354: ,,Á alþingi dæmdar stórar sektir á Magnús Sigurðsson í Bræðratungu (1702) fyrir óskikkanlegt hneykslunarbréf, sem hann hafði tilskrifað prófessor Árna Magnússyni”. Árni var þá staddur í Skálholti er…

    Hlusta
    Prófessor Árni MagnússonÍslandsklukkan kallar Sigríði yngri Jónsd. þessu nafniSkálhot+3
  7. 1704Lag: Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 868

    Mjög nú þótti merkilegt

    og margur þar um rengdur
    að engri á Þingi í ár var drekkt
    og enginn þjófur hengdur!

    Enginn hengdur á Þingvöllum, en skv. Hestsannál, II, bls. 555, var hengdur þjófur á Kjalarnesi og skv. Öldinni átjándu var Steinunni, konu Sæmundar Þórarinssonar, annars tveggja bænda frá Árbæ, drekkt í Kópavogslæk og…

    Hlusta
    Drekkingarhylur í Öxará, Þingvöllum+3
  8. 1705Lag: Sá frjáls við lögmál

    Páll Vídalín gerði við Sigurð sætt

    síðar þó meira vildi
    en sá sem hyggst deila við Einarsnesætt
    athuga gang sinn skyldi.

    Már Jónsson: Árni Magnússon – æfisaga: ,,Um sama leyti (1705) sömdu Páll og Sigurður Björnsson um það fyrir milligöngu Árna (Magnússonar) að Páll tæki við lögmannsembættinu en Sigurður héldi hálfum launum”. Þremur árum…

    Hlusta
    VíðidalstungaPróf. Árni MagnússonUlrik Christian Gyldenlöve, stam.+3
  9. 1706Lag: Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869

    Gríska, hebreska, útræði og

    eldur geðjast Páli
    - árar, djöflar, áratog -
    ,,Undir hamrastáli”.

    + séra Páll Björnsson í Selárdal f. 1621, var manna kunnugastur öllu því sem vísan greinir frá: fornmálafræðingur og ritaði bók á latínu um galdur, Character bestiæ - á íslensku: Kennimark kölska, útg. 1976 af Ísafold.…

    Hlusta
    Arnarfjörður, KetildalirSkútaSr. Páll Björnsson, skútusmiður Selárdal (1621-1706)
  10. 1707Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Nýtilegu' ei neinu hent

    neyðin til þess rekur
    ei var Gísla görmum brennt
    grafir kvenþjóð tekur.

    Desjamýrarannáll, V, 284: ,,Kom sú mikla plága á Ísland, sem kallast stórabóla ...Þessi sótt kom út á Eyrarbakka í fötum íslensks manns, Gísla Bjarnasonar frá Vetleifsholti. ...Tal manna er að fötin hafi verið í…

    Hlusta
    Stórabóla
  11. 1707Lag: Enginn lái öðrum frekt - Bj.Þ. 831

    Í sjötugt skipum fjórum fátt

    til fiskjar úr Bjarneyjum reru
    en fimmtíu eftir bólu brátt
    bátar ei aftur sneru.

    Lýður Björnsson: Frá samfélagsmyndun til sjálfstæðisbaráttu, bls. 127: ,,Gengu 66 skip til fiskjar úr Bjarneyjum á Breiðafirði fyrir bóluna, en aðeins 15 eftir að henni lauk". (Skv. Jarðabók Árna og Páls.).

  12. 1708Lag: J. McGranahan 1883, Sálmabók 529

    Enginn var edrú á Þingi

    Oddur og Beyer við skál
    slöguðu og hrötuðu í hringi
    og heldur var stirt um mál
    nokkuð í stúf þó að stingi
    styðja sig máttu við Pál
    þeim helvítis Húnvetningi
    gegn höfða vildu þeir mál.

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Háttvirt Alþingi Íslendinga: Jón Aðils, Saga Odds Sigurðssonar, bls. 16: ,,...þinghaldið fór að jafnaði meira og minna í handaskolum. Menn komu of seint…

    Hlusta
  13. 1708Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Fullmektugur orðinn er

    Oddur með Páli Beyer
    gerðir þeirra varla ver
    Vídalín né þegir.
    1 erindi til viðbótar

    Am. Chr. Möller fær leyfi stam. Gyldenlöve til að dveljast í Danmörk og setur stiftamtmaður Odd Sigurðsson umboðsmann sinn með konungsleyfi, en am. Möller fær fógeta, Paul Beyer, sitt umboð ,,og var þeirra uppgangur…

  14. 1709Lag: Enginn lái öðrum frekt - Bj.Þ. 831 (Augun mín)

    Á er skollið enn eitt stríð

    við erfðafjendur, Svía,
    Íslandsskip í erg og gríð
    ógnað, sökkt og flýja.

    ,,Norðurlandaófriðurinn mikli" stóð frá 1700 um yfirráð á Eystrasalti og vildu Danir endurheimta Skán. Börðust Svíar einir á móti Rússum, Pólverjum, og Prússum auk Dana og Saxa frá 1709. Svíar gáfust upp í árslok 1719…

    Hlusta
    Sænskur sigur við Narva áður en Danir blönduðust í stríðið
  15. 1709Lag: Sá frjáls við lögmál

    Veraldarhyggja og höfðingjasnið

    Hólabiskup markar
    en mölur eyðir, raki' og ryð,
    í Ritningunni snarkar.
    1 erindi til viðbótar

    Torfi K. Stefánsson Hjaltalín, Saga Biskupsstólanna, 617: ,,Biskup (frá 1697) Björn Þorleifsson, d. 1710, var höfðinglega sinnaður, hélt stórar veislur og hafði mikið sveinahald. Vísitasíuferðir Björns voru…

    Hlusta
    Hólar í Hjaltadal 1819
  16. 1709Lag: Kross á negldur meðal manna

    Dýrt varð Helgu Þórð að þekkja

    - þeirra ein og sama rekkja -
    gáðu lítt að gæta sín
    móðir varð en eigi ekkja
    ógiftri var skylt að drekkja
    en vænt að heita Vídalín.

    Íslenskar æviskrár V, 118, úrdráttur: Þórður Vídalín (Þorkelsson Arngrímssonar lærða) (~1661-1742). Rektor, læknir. Foreldrar: Síra Þorkell Arngrímsson í Görðum á Álptanesi og kona hans, Margrét Þorsteinsdóttir prests í…

    Hlusta
    Stafafell í Lóni austurDrekkingarhylur í Öxará á Þingvöllum
  17. 1710Lag: Herra Guð í himnaríki

    Holdsveiki Björn til bana dró

    biskupinn þótti ei laginn
    þá Passíusálma til prentunar bjó
    og prýða vildi braginn.

    Tilvísun í Torfa K. Stefánsson Hjaltalín: Saga Biskupsstólanna, bls. 633: Lést Hólabiskup Björn Þorleifsson (1692, 1709) er bar nafn móðurafa síns, Björns frá Saurbæ, Rs., Magnússonar prúða. Hann keypti prentsmiðjuna af…

    Hlusta
    Holdsveikur maðurHólar í HjaltadalPassíusálmar Hallgríms Péturssonar, útg. Smára Ólasonar+2
  18. 1711Lag: Blessuð sólin elskar allt

    Endar og byrjar Skúlaskeið

    Skúla ei mótbyr ægir
    Reykjavíkur varðar leið
    Völl og Akra plægir.

    * 12. desember sýslumaður, Innréttingaforstjóri og fógeti Skúli Magnússon; langafi hans í föðurætt og alnafni, Goðdalaprestur, dó daginn eftir. Íslendingabók kveður Skúla eldra hafa verið frægan ræðumann. Saga frá…

    Hlusta
    Skúli fógeti Magnússon
  19. 1712Lag: Jólasveinar 1 og 8

    ,,Til meins er öllum Oddur gerður

    óvinum jafnt vinum sín”
    ódæll var og er og verður
    yfir þingi og landi gín.
    1 erindi til viðbótar

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Í bréfi til Páls Vídalín í desember 1712 segir Jón biskup Vídalín m.a.: ,,öllum er hann (Oddur) til meins gerður, bæði vinum og óvinum”. Einnig að hann…

    Hlusta
    Ulrik Christian Gyldenlöve, stam.Jón VídalínÖxarárfoss
  20. 1712

    Til Hafnar Árni halda má

    handrita´og bókalaus
    Því kóngsins hirð vill heyra og sjá
    hvert sé allt hans maus.

    Auk stríðs Dana við Svía geisar taugaveiki í Kaupmannahöfn og fjárhagur ríkisins afleitur. Rifjast þá upp fyrir stjórnendum að í tíu ár hafi Árni Magnússon verið hátt launaður á Íslandi og finnst nóg komið og kalla hann…

  21. 1713Lag: Austankaldinn á oss blés - Stúd. 86

    Ólyginn hefur Oddi sagt

    og aftur hann fyrir danskinn lagt
    að Pál hafi lögrétta' í engri akt
    og ætli að krefjast hans ljúki makt.
    1 erindi til viðbótar

    Oddur skrifaði stam. Gyldenlöve 1712 og undirbjó náðarhöggið. Tilvitnun í J. Aðils: Oddur Sigurðsson, 70: ,,Ég (Oddur) hef nýlega komist á snoðir um að flestir af sýslumönnum og réttarins þjónum á landinu væru mjög…

    Hlusta
    Ulrik Christian Gyldenlöve, stam.+2
  22. 1713Lag: Dvel ég í Draumalandi

    Ei fannst Páli að því gaman

    að eiga að víkja úr dómi
    ,,en Oddur sló forakt að öllu saman”
    og uppkvað háum rómi:
    ,,óvirðing við yfirrétt
    eigi kunnum líða”
    ef værir ekki af æðri stétt
    ætti þig að hýða.
    1 erindi til viðbótar

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Það gekk eftir, að Oddur lét til leiðast að víkja Páli úr lögmannsembætti á alþingi 1713. Það varð eftir að Páll neitaði að víkja úr lögmannssæti í…

    Hlusta
    ÞingvellirLögberg
  23. 1713Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Odd er besótti biskupinn

    blifu ekki sáttir
    Vídalín bæði út og inn
    æddi um port og gáttir
    brennivín til frúkosts fékk
    franskt það mátti vera
    því annað hæfði ekki smekk
    æðsta landsins séra.
    2 erindi til viðbótar

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Skv. Jóni Aðils: Oddur Sigurðsson bls. 96, 103, 113. Biskup Jón Vídalín ,,visiteraði” Odd Sigurðsson að Narfeyri, áður Geirröðareyri. Tvennum sögum fer…

    Hlusta
    NarfeyriNarfeyriJón Vídalín biskup +3
  24. 1714Lag: Fljúga hvítu fiðrildin

    Svan und Látrabjarg er bar

    betra sýndist þegja um
    að bregða fyrir þótti þar
    Þormóði' í Gvendareyjum.

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Viðauki Fitjaannáls II, 390: ,,..hrakti vicelögmanninn, Odd Sigurðsson, á sínu stóra skipi, Svan, með mönnum og góssi, frá Búlandshöfða undir Látrabjarg…

    Hlusta
    LátrabjargGvendareyjar+1
  25. 1714Lag: Fljúga hvítu fiðrildin

    Berjast vetur, vor og haust

    um völdin ríkar ættir
    Oddur dæmir launalaust
    þá Lárus Gottrúp hættir.

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Viðauki Fitjaannáls II, 390: ,,16. Julii afstóð Laurits (Gottrup) lögmaður lögmannsembættisþjónustu við vicelögmanninn Odd Sigurðsson, skyldi þó behalda…

    Hlusta
    Laurits Gottrup og frú
  26. 1714Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Pétur Bjarna bein upp gróf

    að batna gæti frúnni
    en fyr'ir því hvergi höfum próf
    að honum yrði að trúnni.

    Fyrir meðmæli Magnúsar Arasonar (1728) sem staddur var í Kh. lýkur með konungsbréfi 7. júlí beinamáli Péturs Bjarnasonar í Tjaldanesi, sem 1708 gróf upp kjálka vinnukonu sinnar, sem legið hafði 7 ár í kirkjugarðinum á…

    Hlusta
    Staðarhólsdalur
  27. 1715Lag: Ef þú bíður eftir mér

    5000 króna kellingin dó

    kílóin stórt sem hundrað vó
    Hóla- með tveimur biskupum bjó
    til barneigna reyndist þó ekki nóg,

    Viðauki Fitjaannáls II, 394: ,,Þá deyðu ...hústrú Ragnheiður Jónsdóttir í Gröf á Höfðaströnd, tveggja biskupa, herra Gísla og herra Einars, ekkja; átti ekkert barn”. Mynd Ragnheiðar á 5000 kr. seðli. Hún dóttir séra…

    Hlusta
    Ragnheiður Jónsdóttir t.v.(?)Ragnheiður Jónsdóttir biskupsfrú x 2Hólar í Hjaltadal
  28. 1715Lag: Hani, krummi, hundur, svín

    Aðgát haf við unga sál

    allir skyldu muna
    Oddi þótti æ við Pál
    eftir hýðinguna.
    2 erindi til viðbótar

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Lm. Páll Vídalín, þá rektor Skálholtsskóla, hýddi hinn stórættaða Odd Sigurðsson 1695/6, sjá það ár. Faðir Odds var sonur Sigurðar eldra Oddssonar, sem…

    Hlusta
    Danskt seglskip frá um 1800
  29. 1716Lag: Jólasveinar 1 og 8

    Þrætur landa þykja banal

    þeirra meðal Odds og Páls
    enda sumir oní kanal
    en Oddur (S)sig(.) þar skar á háls.
    3 erindi til viðbótar

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Hér fer á eftir lýsing Sverris Kristjánssonar á þeim íslensku valdsmönnum sem á fyrsta þriðjungi 18. aldar fengu framkvæmdavaldið í hendur. Með…

    Hlusta
    Holmens KanalÁ sjónum allt til bagaHæstiréttur Danmerkur+1
  30. 1716Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Vogs- í ósum vissi gerst

    virðar Eirík muna
    meta kunni meri og hest
    meira en Biblíuna.
    1 erindi til viðbótar

    Þetta ár lést séra Eiríkur Magnússon í Vogsósum í Selvogi, f. um 1638, frægur ,,galdramaður" úr ÞJóðsögum Jóns Árnasonar. Óskar Halldórsson helgar honum blaðsíður 155 til 190 í Galdrasögum útg. 1971, sem hann valdi úr…

    Hlusta
    VogsósarGaldrastafur
  31. 1717Lag: Ég hef svo margan morgun vaknað (SSB 81b)

    Kaupmaður þóttist klækjum beittur:

    ,,Klaga eg bæði vil og skal
    því mér nú þykir Þórður breyttur
    og þrjótur Jón í Hítardal
    Hrappseyjar-Benna' í bann ég les
    sem brást mér líkt og Einarsnes".

    Ólafsvíkurkaupmaður kannaði hverjir hefðu keypt fisk beint af útgerð. Taldi skylt að hann væri milliliður. Gerði rekistefnu, en fjöldinn slíkur að ekki varð við ráðið, en stærstu kaupendurnir fengu að heyra það. Þeir…

    Hlusta
    ÓlafsvíkStaðarstaðurHítardalur+1
  32. 1717

    Guðríður Ormsdóttir ógift dó

    engan lét sig dára
    af jarðvist hafði hlotið nóg
    hundrað og fjögu'rra ára.
    1 erindi til viðbótar

    Íslendingabók segir Guðríði húsfreyju búandi í Eyjum í Kjós 1681. „Dó 105 ára með allri sjón og heyrn“, segir Espólín. Páll Eggert Ólason segir hana í Íslenskum æviskrám látna 1718, 104urra ára. Skv. Íslendingabók deyr…

    Hlusta
    óþekkt kona teiknuð á Patreksfirði 1772"...með allri sjón og heyrn".
  33. 1718Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Forlistið stóra þeim varð þarft

    sem þágu úr Gautaborg
    fjölgunar þótti verða vart
    og víða heyrast org.

    Viðauki Fitjaannáls II, 397: ,,...stríðsskipið hraktist upp á Þorlákshafnarvík þann 4. Novembris af skelfilegum útsynningi. Vörpuðu þeir þar strengjum og hröktust svo þar alla nóttina. Þann 5. Novembris hjuggu þeir af…

    Hlusta
    (Þorláks)Hafnarskeið og ÖlfusárósNýtt skólaskip, Gotheborg, sem Svíar hafa smíðað+3
  34. 1718Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Forlíkuðust fjendur tveir

    fýsti Odd að hrella
    áður varir annar deyr
    ekki tókst sú brella.

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Eftir aldamótin átti vlm. / lm. Páll Vídalín í framastreitu við granna sinn á Þingeyrum, lm. Lárus Gottrup, og naut fulltingis biskups Jóns, frænda…

    Hlusta
    Jón VídalínÞingeyrakirkja - AltaristaflaJón Vídalín, biskup í Skálholti+1
  35. 1718Lag: Tíu litlir negrastrákar

    Sýslumaður og soldát par

    sér neitt gáfu um andann
    en báðir urðu biskupar
    og börðust svo við Fjandann.
    2 erindi til viðbótar

    Hólabiskup, Bauka-Jón Vigfússon, var sýslumaður í Borgarfirði þar til honum var vikið 1672 vegna tóbaks(sölu)mála. Jón Vídalín var óbreyttur soldát í her Danakonungs áður en varð biskup. Predikanasafnið Jóns,…

    Hlusta
    VídalínspostillaSkh.biskup Jón VídalínJón Vídalín biskup
  36. 1719Lag: Berhöfðaður burt ég fer - Bj.Þ. 619

    Magt h'onum hafði Löve léð

    en lítið frá Oddi markvert séð
    nú virðing farin og vinir með
    hann valdlaust, stakt og skorðað peð.

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Jón Aðils: Oddur Sigurðsson, bls. 135: Fuhrmann kominn (1718) til að skakka leikinn með það umboð frá stam. Gyldenlöve, er Oddur hafði áður haft. Tóku…

    Hlusta
    Ulrik Christian Gyldenlöve Kristjánsson V.+4
  37. 1719

    Danskurinn gerir hollenskum hrekk

    á Hofsósi að þeim læðist.
    Þormóður dauður og druknaður Beck
    doktor Bjarni fæðist.

    Dönsk herskip voru oft á sveimi við Ísland þegar hlé var á bardögum við Svía. Þó ekki beinlínis til landhelgisgæslu og verndar fiskistofnum nema helst við Vestmannaeyjar þar sem kóngur rak oft sjálfur útgerð og á milli…

  38. 1720Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Í Vatnsdal áður voru þar

    á vakki milli túna
    en Bjarnastaðabeljurnar
    baula ekki núna.

    Jónas Ragnarsson, Dagar Íslands, 8. okt: ,,Skriða féll úr Vatnsdalsfjalli í Austur-Húnavatnssýslu á bæinn Bjarnastaði og í Vatnsdalsá. Sex manns fórust (auk húsdýra). Skriðan fyllti upp farveg árinnar og þar fyrir ofan…

    Hlusta
    VatnsdalurVatnsdalshólarVatnsdalur - hólar
  39. 1720Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Flestum vel til Vídalíns

    þótt væri í ræðum óður
    og nokkur þætti vinur víns
    var þó biskup góður.
    2 erindi til viðbótar

    Lést að Biskupsbrekku á Uxahryggjaleið 30. ág. Skálholtsbiskup, Jón Vídalín, f. 21. mars 1666. Út kom 1720 síðari hluti Postillu Jóns, fyrri hluti kom 1718. Hélt sína frægustu predikun í Þingvallakirkju 1718. Um…

    Hlusta
    Djöfullinn, merki Manuntd.BiskupsbrekkaJón Vídalín biskup
  40. 1720Lag: Veik er mundin opin undin - Bj.Þ. 915

    Þá stiptamtmaður fyrstur fór

    að finna landann,
    allir kenndu í einum kór
    Oddi vandann

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Stam. Gyldenlöve kom aldrei til Íslands. Eftirmaður hans, Peter Raben, komst til Hafnarfjarðar en ekki til þings vegna gigtarkasts. Erindi hans var að…

    Hlusta
    Arnarstapi, Snæfellsnesi
  41. 1721

    Héruð skaftfellsk þegnum þekku

    þyrluð mekki.
    Hjörleifs- bæði (H)höfða- og brekku
    hittum ekki.

    Lýður Björnsson, Frá samfélögum, bls. 28: Kötlugos. ,,Öskufall og jökulhlaup olli íbúum Skaftfellssýslu þungum búsifjum, og hlaupið 1721 tók af bæina Hjörleifshöfða og Höfðabrekku".…

  42. 1721Lag: Kálfar tveir í kúamynd – eða

    Þjóð að fjölgi þurfi tvo

    þykir vera sannað
    en fátæklingar skulu, sko,
    skemmta sér við annað.
    2 erindi til viðbótar

    Inga Huld Hákonardóttir, Fjarri hlýju hjónasængur, Mál og menning 1995, bls. 263–264. Og https://is.wikipedia.org/wiki/Hj%C3%B3naband: https://www.wikiwand.com/is/Hj%C3%B3naband ,,Alþingissamþykkt frá árinu 1720 kvað á…

    Hlusta
  43. 1722Lag: Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830

    Jón þótt væri ei Vídalín,

    og vart um bækur fróður
    og engum byði brennivín,
    biskup þótti góður.

    Jón (1665-1736) prófastur og fræðimaður Halldórsson í Hítardal (1569, 1664) talinn öruggur um biskupskjör ef sóst hefði eftir, en það gerði Jón á Stað í Steingrímsfirði Árnason (1665-1743) og varð röggsamur…

    Hlusta
    Stadarkirkja, SteingrimsfirdiAugust Hermann Francke (1663-1727)Brynjólfskirkja í Skálhloti
  44. 1723Lag: Veik er mundin opin undin - Bj.Þ. 915

    Höfðingjunum höndin laus,

    á höfuðbóli
    ekkert vissu í sinn haus
    á Ingjaldshóli.

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Skv. sögu Odds Sigurðssonar eftir Jón Aðils: Til þinghalds í kirkjunni á Ingjaldshóli 4.-5. nóv. mætti lm. Oddur Sigurðsson drukkinn og hleypti upp…

    Hlusta
    Ingjaldshóll á SnæfellnesiRif á SnæfellsnesiHjá Arnarstapa+3
  45. 1724Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Reykjahlíð nú hraun burt þvær

    Holmmæðgurnar bralla
    Apploníu elska þær
    ótakmarkað varla.
    Oddur Sigurðsson víst má
    sig nú illa bera
    honum víkur Fuhrmann frá
    ,,þótt fyrr hefði mátt vera".
    1 erindi til viðbótar

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Reykjahlíð undir hraun í Mývatnseldum 1724-29 er voru sprungugos á Hverfjallsskeiði og hófust með sprengigosi er myndaði Víti, en síðar rann hraun frá…

    Hlusta
    Hraun við MývatnReykjahlíð við MývatanBessastaðir 1834+3
  46. 1724Lag: Enginn þarf að óttast síður

    Sjaldan var að góðu getið

    Guðrúnar, þá Bæ fékk setið
    bændur henni færðu í fletið
    flotið, smérið, þorskinn, ketið. .
    1 erindi til viðbótar

    Lést barnlaus ekkja, Guðrún ríka (f. 1637) í Saurbæ, Rauðasandi, Eggertsdóttir ríka á Skarði, Björnssonar ríka á Bæ, Rs. Magnússonar prúða. Maður Guðrúnar, sm. Björn (1650-1679), var sonur Vísa-Gísla Magnússonar, sjá…

    Hlusta
    Brú á SiglunesáKirkjan, Saurbæ, flutt frá Reykhólum
  47. 1725Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Oddur þoldi hróp og háð

    handtekinn á Rifi
    en mamma' h'ans átti alltaf ráð
    undir hverju rifi.
    Odds ei lægði ættardramb
    eymd þótt mætti líða
    en grátt að launa Gottrúp lamb
    gæti þurft að bíða.
    1 erindi til viðbótar

    Þjóðsaga er að Oddur hafi dregið korða úr slíðrum á Rifi, en ,,útlendur herforingi” hafi slegið hann úr höndum hans. Sé svo, þá er Magnús Arason (1728) ,,einn sem til greina kemur " (J. Aðils). Um vopnaburð þeirra…

    Hlusta
    Ragnheiður Steindórsdóttir og Guðjón Davíð Karlsson í leikriti Þjóðleikhússins, ,,Loddarinn". Hér sett í gervi mdm. Sigríðar Hákonardóttur og Odds sonar hennar, Sigurðssonar, þá fv. lm.Rif á Snæfellsnesi+2
  48. 1725Lag: Dvel ég í Draumalandi

    ,,Á Þingi sofa þeir til nóns,

    þrátta og lygi sverja,
    Íslandi vinna allt til tjóns,
    okra, stela, berja.
    Ef takast ætti af að má
    Oddur rangt hvað gerði
    Ísland þyrfti fiscal fá
    með fjóra skyttuverði.”

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Jóhann Gottrup tók við lénum Odds Sigurðssonar sem am. Fuhrmann svipti hann 1721. Þeir Jóhann og Oddur vörðu síðan 12 árum í málaferli og ryskingar.…

    Hlusta
    Fiscal og 4 skyttuverðir +3
  49. 1726Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Fyrrum Oddur hátt bar haus

    herraður og lendur
    en æru- bæði og eignalaus
    uppi rúinn stendur
    virðum þótti ræðan raus
    og ráð hans eigi bæti
    að hann settist ærulaus
    upp í lögmanns sæti.

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Móðir hans var Sigríður Hákonardóttir sm. Gíslasonar lm. Hákonarsonar sm. Árnasonar sm. harðdrægs áflogamanns (1569) Gíslasonar og sú föðurætt til…

    Hlusta
    Robespierre handtekinn, höggvinn 28. 7.  1794Deilt við dómarannStaðarstaður+5
  50. 1727

    Öræfajökull alls til vís

    ösku dreifir, kviku og ís
    eldur niðri, uppi frýs
    elfur spretta þá hann gýs.

    Fyrra gosið í Öræfajökli sem sögur fara af, var 1362 og eyddi byggð í Öræfum í heilan mannsaldur og var mannskæðasta gos á Íslandi. Í gosinu 1727 fórust 3 menn. Frásögn séra Jóns Þorlákssonar (1700-1790) sem prestur var…

    Hlusta
    Hvannadalshnjúkur
  51. 1728Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Kviknaði í Kiöbenhafn

    kóf og drunur, blossar
    brunnu kirkja, bókasafn
    bílæti og krossar.

    Kaupmannahöfn brann 20. okt. að einum þriðja hluta. Rúmlega 400 bókum Árna Magnússonar var bjargað, en 12 skinnhandrit brunnu. 16 þúsund manns urðu heimilislaus. M.a. brann dómkirkjan, Vor Frue Kirke, sem byrjað var að…

    Hlusta
    Kaupmannhöfn brennur 1728Prófessor Árni MagnússonVor Frue Kirke brænder +1
  52. 1728Lag: Minna strengja hljómur hreinn - Bj.Þ. 858

    Magnús Ara á ,,fleygi"-ferð

    færra hugði að seglum
    mundi að hafa með sér sverð
    minna skeytti neglum.

    + Magnús mælingamaður Arason, fyrr herforingi og bar e.t.v. þann titil þá enn, en mælingastarf hans var á vegum stjórnarinnar. Hann sagður sjaldan skilja við sig sverðið og samkvæmt sögum voru þeir fv. lm., Oddur…

    Hlusta
    +3
  53. 1729Lag: Ó, blessuð sýn - SB 307

    Illuga galdur báru á brýn

    þótt brenni ei lengur nú
    lönguhaus mat Hjaltdalín
    á hálfa aðra kú.

    Veðurgapi: Tvítugur piltur, Illugi nefndur, sannur að sök sem metin var 1 1/2 kýrverð. Hafði strákur sett lönguhaus á prik við Ánanaust og gapti á haf út. Sýsluvöld í Vík (Reykjavík) hafði Jón Oddsson Hjaltdalín, sá…

    Hlusta
    Stakkstæði við ÁnanaustNíðstöngStígur í vestur frá Ánanaustum +2
  54. 1730Lag: Einn var að smíða ausutetur

    Þórður, er almannarómur rymur,

    renna má niður brók
    Reykjadalsprestsins leyndarlimur
    lögrétturannsókn tók.

    Vegna þess orðróms, að séra Þórður Jónsson (1698-1776) í Reykjadal hefði látið umskerast að hætti Gyðinga, skoðar fjögurra manna nefnd leyndarlim hans í lokuðu tjaldi á Þingvöllum. Einn þeirra var Jón Hjaltdalín sm.…

    Hlusta
    ÞingvellirUmskurn+1
  55. 1730Lag: Einn var að smíða ausutetur

    Klukkan Friðriki fjórða glymur

    hans foráð býsna klók.
    Uppi, að Pétri, Árni fimur
    afritar Lífsins-bók

    Létust prófessor Árni Magnússon handrita- og bókasafnari og kóngur Friðrik IV. sem fjallað er um á árinu 1702 í sambandi við nýja verðskráningu, sem varð hagstæð Íslendingum fyrir málafylgju Danans, lm. Lárusar Gottrup…

    Hlusta
    Friðrik IV.Prófessor Árni Magnússon St. Pétur með lífsins bók+2
  56. 1731Lag: Ég hef svo margan morgun vaknað

    Jón M. er millum meyja glaður

    þótt misst öll hafi völd og fé
    og um hann gengur ennþá slaður
    örkumlamaður þó að sé
    hans mjaðmir stirðar, magnlaus hné
    því megi gera' ALLT sitjande.

    Saga frá Skagfirðingum I, bls. 139, aths. 19 og 148, 8, úrdráttur: Jón Magnússon (1662-1738), sem brotið hafði af sér prestskaparréttindi með barneign á skólaárum, fékk uppreisn 1687 og varð prestur í Hjarðarholti en…

    Hlusta
  57. 1731Lag: Dvel ég í draumahöll

    Allt nú þykir ósiður

    sem áður prýddi vitra
    píetisminn plagsiður
    predikaður ytra
    lokað Kóngsins Teater
    tigna skal hið bitra
    lúskra ber á Lúsífer
    leyfist ekkert glitra.

    Annálar segja Christian VI. hylltan á óheppilegum árstíma, 12/9 - menn nýkomnir heim til sín af þingi. Athöfnin þótti snubbótt, engar veitingar á Þingvöllum. ,,Mannfjöldi sá mesti sem verið hafði á Þingvöllum í 200 ár",…

    Hlusta
    Pontoppidan höf. fermingarkvers píetistaT.v., Kgl. Leikhúsið, Kh. ~1730Lúsífer
  58. 1731

    Ymislegt fyrir sér Kolbeinn kann

    kneyfti og drjúgt af Mími
    á latínu útlagt hefur hann
    Hallgrímssálma með rími.
    2 erindi til viðbótar

    Séra Kolbeinn Þorsteinsson, lengst prestur í Miðdal f. 1731, d. 1783 af holdsveiki. Eftirffarandi bíður frekari athugunar.) Páll Eggert Ólason í Íslenskum æviskrám: ,, ...tekinn í Skálhotsskóla 1746, stúdent 1750 með…

  59. 1732Lag: Berhöfðaður burt ég fer - Bj.Þ. 619

    Jón Marteins virti ei boð né bönn

    en biskupsdóttir ung og grönn
    í Hólaskóla sök hans sönn
    sendur burt á næstu önn.

    Helga (~1705-1750), dóttir Steins Hólabiskups Jónssonar - ung ekkja eftir Jón Vídalín Pálsson, d. 1726 á Hjaltadalsheiði - varð á Hólum ólétt eftir skelminn Jón Marteinsson, sem komst í Hólaskóla haustið 1730 eftir að…

    Hlusta
  60. 1733Lag: Vatnsdælingastemma - Bj.Þ. 838

    Byr und vængi flmtan fær

    flím ei trúum sjatni:
    barn eitt undir belti tvær
    beri á Álftavatni.

    Sigþrúður, blind dóttir gáfukonunnar (Ísl. æviskrár) Kristínar Ólafsdóttur, f.~1664, d. þetta ár, og sr. Jóns á Staðastað Jónssonar, fæðir 4/2 á næsta bæ, Álftavatni, soninn Bjarna, sem skráður er sonur Jóns Gíslasonar…

    Hlusta
    Mælifell í Skagafirði um 1900Staðastaður, Snæfellsnesi+3