Vísur eftir Glúm Gylfason um

Annálsverð tíðindi á árunum1540 til 1950

Ein eða fleiri annálsverð tíðindi hvers árs færð í rím, frá siðaskiptum þar til Ísland gekk í NATO — með heimildum, myndum og hljóðbrotum.

vísur
868
ár
412
aldir
5

Vísurnar

t.d.

16. öld · 98 vísur, í tímaröð
  1. 1540Lag: Faðir vor sem á himnum ert

    Lútherskri stefnu áfram ýtt

    af ungum prestum siðbót flýtt
    úr Skálholtsfjósi telst það títt
    að testamenti nýtt er þýtt
    Ögmundi var þó um það lítt
    en Oddi þar á fingrum hlýtt.

    Sagt er að Oddur Gottskálksson hafi unnið í Skálholtsfjósi að þýðingu Nýja testamentisins til þess að Ögmundur Pálsson, síðasti kaþólski Skálholtsbiskupinn, yrði þess ekki var. Eftir Oddi er haft: „Jesús, lausnari vor,…

  2. 1541

    Næstelsta mannsins starf er stríð

    stundað af körlum ár og síð
    boða nú knektarnir landsins lýð
    að liðin sé andkristin páfans tíð.

    26 kaþólskir prestar úr Skálholtsstifti sóru á Þingvöllum eið að lútherskri kirkjuskipan Kristjáns III. að viðstöddum vopnuðum kóngsins knektum, þ.e., málaliðum. Prestar í stiftinu hafa verið á annað hundrað samtals.…

  3. 1542Lag: Bjórkjallarinn

    Með bjórglas einn við bar ég sit

    og bergi daginn langan
    nei, þetta er sko ekkert vit
    því Skálholtsprestinn skyldi taka fangan.
    Ég frétti er las, að fæddi Gunna tvö
    og frekar eitt í viðbót.
    og fyrr en varir þau eru orðin sjö
    svo ekki er hér vanþörf á siðbót.

    Fyrsti biskup í Skálholti eftir siðbót Lúthers var Gissur Einarsson (1512-1548). Hann tók biskupsvígslu af J. Bugenhagen í Vor Frue kirke í Kaupmannahöfn. En Bugenhagen var sjálfur ekki áður vígður kaþólskur prestur.…

    Johannes Bugenhagen+1Myndband
  4. 1543Lag: Sá frjáls við lögmál fæddur er

    Með orgelskrifli um Atlantshaf

    yfir Gissur strekkti
    hjá bróður í Kristi hans brúður svaf
    sem boðorð sjötta´ ei þekkti.
    1 erindi til viðbótar

    Fyrsti biskup í Skálholti eftir siðbót Lúthers var Gissur Einarsson (1512-1548). Íslenskar æviskrár I, 466: ,,Eysteinn Þórðarson kirkjuprestur í Skálholti og er orðinn það 1539. Í utanför Gissurar Einarssonar til vígslu…

    Myndband
  5. 1544

    Þjóðverjarnir þjást og gráta

    þegar Danir beita krók
    illa fengna árabáta
    Otti Stígs af þýskum tók.

    Höfuðsmaður Danakóngs, Otti Stígsson, herjar á Þjóðverja og tekur af þeim 45 báta, sem þeir hafa að líkindum náð af Englendingum, e.t.v. í Grindavík 1532. Hamborgarar höfðu að sögn ráðið lögum og lofum í Hafnarfirði á…

  6. 1545Lag: Jólasveinar einn og átta

    Jón má þakka sínum sæla

    hve sagan hirðir fátt um ljótt
    en ef að kýrnar mættu mæla
    myndi biskup varla rótt.
    2 erindi til viðbótar

    Hér er átt við Bjarnarnesreiðar Jóns biskups Arasonar og sona hans 1545 og 1547, sjá nánar þar, en meðal annarra illverka voru kýr lokaðar málþola inni í fjósi 8 dægur. Jónas Jónsson hirti lítt um að geta illverka ef…

  7. 1546Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Marteinn Lúther á banabeð

    blessuð sé hans minning
    siðaskiptin syðra skeð
    sjóli tók þar vinning
    sér dæmdi kóngur klaustrin öll
    Kristján þriðji heitir
    prófastdæmi og prestaköll
    páfi nýr sá veitir.

    Martin Luther (1493-1546) sem mótmælti árið 1517 í 95 greinum framferði páfans þá, t.d. aflátssölu. Siðbreyting hans samþykkt af prestum í Skálholtsstifti 1541, en 1551 nyrðra, sjá þar. Klaustrin tók kóngur, Christian…

  8. 1547Lag: Jólasveinar einn og átta

    Jón má þakka sínum sæla

    hve sagan greinir fátt um ljótt
    en ef að kýrnar mættu mæla
    myndi biskup varla rótt.
    2 erindi til viðbótar

    Hér er átt við Bjarnanesreiðar Jóns biskups Arasonar og sona hans 1545, en einkum þá síðari 1547. Herra Jón þóttist með ,,hinum illræmda Seyludómi" (Gbr.Js.bls.114) 21.jan.1527 hafa náð eignarhaldi á Bjarnaneseignum…

  9. 1547Lag: Blessuð sólin elskar allt

    Nær í Kaldaðarnesi kross

    niður Gissur tekur
    lítið þóknast þvílíkt oss
    þar af snart deyr sekur.
    2 erindi til viðbótar

    Gissur Skálhotsbiskup Einarsson tók niður krossinn helga í Kaldaðarnesi, sem kurlaður var í Skálholti 1560, sjá þar. Helgi mikil var á krossinum í kaþólsku og farnar til hans pílagrímsferðir á krossmessum, 3 maí og 14.…

  10. 1548

    Keisara skrifaði biskup bréf

    bað hann herskip senda
    þar Kristján þriðja kallar ref
    er kvalastað skyldi´ í enda.

    Auk páfa, sendi Jón Arason bréf til þess kaþólska  keisara, Karls 5. Í riti sínu um Jón Arason telur Páll Eggert Ólason að þar hafi Jón biskup beðið keisara um aðstoð og að innihald bréfsins hafi borist Kristjáni 3. til…

  11. 1549

    Martein fjötur færðu á

    frelsi Jón hann svipti
    vanheilagur vildi fá
    völd í Skálholtsstifti.

    Í septemberlok lét hans heilagleiki, herra biskup Jón Arason, syni sína, Ara og Björn, fara með flokk manna að nývígðum biskupi (superintendent) Skálholts, Marteini Einarssyni, við komu hans til Íslands, stöddum á…

  12. 1549Lag: Skapari stjarna, herra hreinn

    Daða í Snóksdal kænan kann

    kóngur að brúka, lútherskan,
    Jón biskup Arason svo með sann
    söng á h´ann allrahæst páfans bann.

    Guðbrandur Jónsson, Herra Jón Arason, frá bls. 219: ,,Með Daða Guðmundssyni kemur hinn eini maður í landinu sem sýnist jafnoki herra Jóns um karlmennsku og dirfsku og var það hinum lúthersku happ. ...hafði Daði í…

  13. 1550Lag: Gunnars Reynis Sveinssonar - texta hans breytt með leyfi

    Sýtti ei Ari, en sjá

    Björns frá börnum smá
    hvarflað eigi hugur getur.
    En hefðu aðrir staðið sig
    svo miklu, miklu, miklu, miklu
    betur?
    4 erindi til viðbótar

    7. nóvember hálshöggnir í Skálholti Jón Hólabiskup Arason, f. um 1484, og tveir af þremur eftirlifandi sonum hans: Björn, sem munnmæli segja að hafi kveinkað sér með orðunum: ,,Ó, börnin mín, ung og smá", og Ari, sem…

    Hlusta
    Mynd í turni Hóladómkirkju: herrra Jón ArasonMinnismerki um aftöku Jóns biskups Arasonar og Ara og Björns, sona hans í SkálholtiJón Arason var handtekinn hér í Kirkjugarðinum á Sauðafelli+1
  14. 1550Lag: Eg eri jólamaðurin - (H.J. Höjgaard)

    Kóngur páfi orðinn er

    enda prestar falir
    góðu verkin Guð ei sér
    gilda ríkisdalir.
    1 erindi til viðbótar

    Kristján III. gerist páfi ríkiskirkju í Danaveldi 1536-7. Tók sér titilinn summus episcopus (æðsti biskup) en superintendent skyldi verða titill þeirra sem áður hétu biskupar, en merking orðanna er hin sama, þ.e.,…

    Hlusta
    Kristján III. kóngur 1536-1559Júlíus III. páfi 1550-1555 og ástmögur hans, Innocenzo Del Monte, kardináli 17 ára gamall.Kerúb færir Kristjáni IV. umboð+3
  15. 1550Lag: Eg eri jólamaðurin, Hans J. Höjgaard

    Hann oss um það telur trú

    og trúir því sjálfur kannski
    að lykla himins og heljar nú
    hafi' h'ann, kóngurinn danski.

    Í miðaldakaþólsku styttu góðverk, kárínur og bænir vist í hreinsunareldinum, en ríkir fengu og stytt dvölina þar með því að gefa kirkju og fátækum og gerðu það oft rausnarlega á banasæng sem túlkun á Markús 10, 21b. Á…

  16. 1550Lag: Bjórkjallarinn. Texti Spaugstofunnar að hluta

    Með bjórglas einn við bar ég sit

    og bergi daginn langan
    nei, þetta er sko ekkert vit
    því Skálholtsprestinn skyldi taka fangan.
    Ég frétti er las, að fæddi Gunna tvö
    og frekar eitt í viðbót.
    og fyrr en varir þau eru orðin sjö
    svo ekki er hér vanþörf á siðbót.

    Fyrsti biskup í Skálholti eftir siðbót Lúthers var Gissur Einarsson (1512-1548). Íslenskar æviskrár I, 466: ,,Eysteinn Þórðarson kirkjuprestur í Skálholti og er orðinn það 1539. Í utanför Gissurar Einarssonar til vígslu…

  17. 1550Lag: Óvinnanleg borg

    Yfirlit 16. aldar A

    1 erindi til viðbótar

    Með Portúgalanum Ferdinand Magellan (1480-1521) sigldu 237 menn í mars 1519 í vestur á 5 skipum frá Sevilla og náðu þrjú skip fyrir suðurodda Ameríku til Filipseyja í mars 1521. Þar féll Magellan í bardaga, en eitt 85…

  18. 1550

    16.öld - yfirlit B framhald

    1 erindi til viðbótar

    Auk Guðrúnar Gottskálksdóttur, heitmeyjar Gissurar Einarssonar biskups, (þríburar) þá fiflaði dómkirkjupresturinn, séra Eysteinn Þórðarson, einnig móður hans, Gunnhildi Jónsdóttur, þá um sextugt, á meðan Gissur var…

  19. 1551Lag: 10 litlir negrastrákar

    Axel Juul og Otti Stígs

    til Íslands skipum stefna
    kóngsins vegna, en Kristjáns vígs
    kunna eigi hefna.
    2 erindi til viðbótar

    Við komu tveggja herskipa var réttur settur á Oddeyri 15. júní 1551 og þeir þrír Hólafeðgar dæmdir til dauða fyrir landráð, en herra Jón hafði kært Kristján III. fyrir Karli V. keisara og beðið um hernaðaraðstoð og þar…

    Hlusta
    AkureyriAkureyri 1900+3
  20. 1551Lag: 10 litlir negrastrákar

    Á því kunnu karlar lag

    kviku fé að lóga-
    14 drápu í Danska-slag
    dugðu fleira' en róa.
    1 erindi til viðbótar

    Norðlenskir útróðrarmenn drápu eftir áramótin Christian Schriver (Kristján skrifara), ungan son hans, og ~12 sveina hans á Kirkjubóli í Höfnum. Sjá 1551. Christian hafði staðið fyrir aftöku þeirra Hólafeðga í Skálholti.…

    Hlusta
    HafnirStóll frá Grund um 1550+3
  21. 1552Lag: Veik er mundin - Bj.Þ. 915

    Herraður Ólafur Hjaltason

    til Hólastaðar
    að íkon þyrmi veik er von
    en vanrækt skaðar

    Kristján III. tók enga áhættu. Hann lét fyrst vígja Gissur Einarsson biskup til Skálholts ári eftir að kirkjuskipan hans var samþykkt á alþingi 1541 og nú, 1552, kemur Ólafur Hjaltason (d. 1569) vígður til…

    Hlusta
    Ikon frá um 1500, Maria GruzhinskajaIkonIkon: heilagur Þorlákur Þórhallsson biskupMaríumynd frá Möðruvallaklaustri+3
  22. 1552

    Skal nú öllu til þess tjalda

    tjáir kóngur sig um það
    að skammlaust megi skóla halda
    á Skálholts sem og Hólastað.

    Samkvæmt konunglegri tilskipun Kristjáns þriðja 1552 skal reglulegt 6 vetra skólahald til ,,stúdentsprófs" upp tekið á biskupsstólunum og var það látið nægja til prestsembættis á Íslandi. Sjá um framhaldið við 1623.

  23. 1553Lag: Sá frjáls við lögmál

    Ormur lengi lipur sem áll

    við lögmennsku hvergi staður
    Erlendur heiti - hermir Páll -
    hryðjuverkamaður.

    ,,Vegna vanskila og fyrir ýmsar sakargiftir" (Páll E. Ól.) var vikið báðum lögmönnunum frá embættum, Ormi Sturlusyni og Erlendi Þorvarðarsyni: Ormur Sturluson (1516-1575) varð lögmaður norðan og vestan 1547. Þótt…

    Hlusta
    Friðrik II.Kristján III.Barokktrompet og horn+1
  24. 1554Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Kristján III. kóngur tók

    klaustrin í sína eigu
    valdaættin innlend, klók,
    öll þau fékk á leigu.
    1 erindi til viðbótar

    Torfi K. Stefánsson Hjaltalín: Eldur á Möðruvöllum, 51: ,,12. mars 1554 tók Danakonungur öll klaustrin... undir sig og seldi á leigu sama dag fyrir árlegt afgjald. ...Siðaskiptin gáfu klausturhöldurum tækifæri til…

    Hlusta
    Kristján III.Munkaþverá (klaustur) Minnismerki Jóns Arasonar, biskupsViðey - áður klaustur þar+3
  25. 1554

    Enn á lífi yngri-Björn

    Ólafar niðji, ríku
    æ í vörn við annan Björn
    og Ögursfrændaklíku.

    Í bréfi (kæru) sem sm. Árni Gíslason (1569/70/87) ritaði til lm. Eggerts Hannessonar 26. mars þetta ár, 1554, er getið Björns Þorleifssonar - Björnsonar ríka Þorleifssonar og Ólafar Loftsdóttur á Skarði. Vitað er að…

  26. 1555Lag: Einu sinni átti ég hest

    Latínunnar liðið skeið

    ,,lútherskir nú verið"
    Marteinn ekki boða beið
    brátt lét prenta kverið.
    1 erindi til viðbótar

    Skálholtsbiskup, Marteinn Einarsson (d. 1576) gefur út handbók með 35 sálmum, prentuð í Kaupmannahöfn. Tvö eintök eru nú til. Sálmarnir eru þýðingar sem fylgja mjög þýska textanum – enda vissara á þessum tímum.…

    Hlusta
    StaðastaðurÁlftanes á MýrumMinnismerki á Staðastað um Ara fróða Þorgilsson 1067 -1148+2
  27. 1556Lag: Ríður fríður riddarinn - Bj.Þ. 900

    Áætlun kóngsins er kemur í ljós

    kann honum Marteinn þá lítið hrós.
    Oddur, sem sagt er að flýði í fjós
    feigðin að sótti hjá Laxá í Kjós.

    Marteinn biskup Einarsson rægður við kóng og segir af sér og hverfur á ný til síns fyrra kalls, Staðastaðar á Snæfellsnesi er hann sér fram á að Stóllinn verði sviptur útvegsjörðum sínum á innnesjum Suðvestanlands.…

    Hlusta
    Kristján III.Laxá í KjósSkólavarðan Skálholti +1
  28. 1557Lag: Langt fyrir utan ystu skóga

    ,,Réttast", sagði skirjan: ,,skera

    sköpin undan drengjunum"
    sveini sýndist svo að gera
    er sveittust hjón á engjunum.
    2 erindi til viðbótar

    Hér gert ráð fyrir að þetta mál og kárína hafi tekið 3 til 4 ár. Skarðsárannáll I, 132 við árið 1553: ,,Austur á landi bjó einn maður er Bjarni hét. Hann átti nokkur piltbörn við konu sinni. Bjarni var hversdagslega…

    Hlusta
    Reynir Pétur Steinunnarson gekk hring um Ísland á 32 dögum 1985Þorsteinn Bergsson, sigurvegari í plöntufgreiningu og spurningakeppnum m.m. gekk þvert um Ísland, A/V2021 á 30 dögum+3
  29. 1558Lag: Ó, fögur er vor fósturjörð

    Með Hóli Páll fékk Helgu náð

    og hún fékk stóran maga
    en illa gáfust girndarráð
    gjarnan í þá daga.
    Söfnuðust fyrir sólu ský
    samkomulagið þyngra
    þá skotinn fast varð fljóði í
    fjörutíu árum yngra.
    1 erindi til viðbótar

    Eftir siðbreytingu reyndu ýmsir að ná aftur jörðum sem Stólarnir höfðu náð undir sig í kaþólsku og nutu stuðnings hstj. Páls Stígssonar. Þannig náði Páll Jónsson frá Svalbarði, Ef., Staðarhóli af Skálholtskirkju með…

    Hlusta
    Núverandi Staðarhólskirkja við Tjarnarlund í Saurbæ, DölumStaðarhóll. Minnismerki um Sturlu Þórðarson, Stefán frá Hvítadal og Stein Steinarr.
  30. 1558Lag: Afi minn fór á honum Rauð

    Vestmannaeyjum flýja frá

    fáir enska gráta
    tekur Kristján þriðji þá
    þeirra hús og báta.

    Gunnar Karlsson: Lífsbjörg Íslendinga, bls. 309: ,,1558 tók konungur undir sig alla útgerð í eyjunum og gerði eignir Englendinga upptækar. Þar með misstu þeir alla aðstöðu á íslensku landi og gátu ekki verslað við…

    Hlusta
    Kristján III.+1
  31. 1559Lag: Sá frjáls við lögmál

    Ástleitinn Helgi einatt var

    ábóti þó að væri
    sig eftir drósum ötull bar
    og aldrei sá úr færi.
    3 erindi til viðbótar

    + Helgi Höskuldsson. Kemur fyrst við skjöl 1519, þá orðinn ábóti Þingeyraklausturs, og allt til siðbreytingar 1551. Skarðsárannáll segir hann deyja 1561, en Hannes Þorsteinsson segir neðanmáls hans rétta dánarár e.t.v.…

    Hlusta
    Hált á svellinu+3
  32. 1560Lag: Um dauðans óvissan tíma (Allt eins og blómstrið eina)

    Biskupi bænir lesi

    búendur hér um Frón
    krossinn úr Kaldaðarnesi
    kurlaði Gísli í spón.
    ,,Hryggileg hrösun henti
    heilagan drottins þjón”
    annállinn á það benti
    að upp þá tókum prjón.

    Krossinn í Kaldaðarnesi þótti helgasti gripur landsins í kaþólsku. Gissur Einarsson tók hann niður 1547, sjá þar. Einhver kom honum á sinn stað að nýju og ekki linnti trúnni á kraftaverkamátt hans. Nú tók…

    Hlusta
    Kurl+2
  33. 1561Lag: Gegnum hættur, gegnum neyð - SB 292

    Höður blindi, heiðni í

    henti mistilteininum.
    Æðsti klerkur kristni í
    kastaði fyrsta steininum.
    1 erindi til viðbótar

    Þegar hreinsunareldsins nýtur ekki lengur við er farið að huga að veraldlegri lagasetningu fyrir siðferðisbrot. Í Kristnirétti hinim nýja, sem Staða-Árni biskup Þorláksson setti 1275 (Hólastifti 1354), var formúlan sótt…

    Hlusta
    Drekkingarhylur í Öxará á ÞingvöllumMár Jónsson: Blóðskömm á Íslandi
  34. 1561Lag: Eg eri jólamaðurin - (H.J. Höjgaard)

    Konur hafa kopp til taks

    að karl þurfi' ei fram að stíga
    því ekki standa þeir upp neitt strax
    ef þeir þurfa að míga.

    Öldin sextánda, bls. 80, greinir að Gories Peerse nokkur í Hamborg riti Íslandslýsingu sem nálgast efni vísunnar. Þar sitja karlar að drykkju án afláts, þ.e., þurfi þeir að létta á sér eru konur tilbúnar með koppinn og…

    Hlusta
    "Náttúran kallar"
  35. 1562Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Heitsamkomu halda á Grund

    að harðindunum linni
    til guðsþakka ef gefi pund
    glæðast tíðin kynni.

    Hér fara Eyfirðingar að kaþólskum sið, sbr. það fræga ár, 1262, þegar Gissur jarl stóð fyrir vatnsföstu á Ólafsmessu 29. júlí af sömu ástæðu með þeim árangri ,,að undrum sætti”, einnig Norðlendingar 1365, (gáfu eina…

    Hlusta
    EyjafjörðurGrund, Eyjafirði
  36. 1563Lag: Nú til hvíldar halla eg mér

    Norðursýslu sviptur er

    Svalberðingur prúði
    Magnús Vest- til fjarða fer
    og finnur sér þar brúði.
    1 erindi til viðbótar

    Fornbréfasafn XIV, 63. Lúther slökkti hreinsunareldinn í löndum mótmælenda. Til púðurgerðar kaupir þá kóngur brennisteinsréttindi Reykjahlíðar af bræðrunum Nikulási d. 1591 og Vigfúsi d. 1603 Þorsteinssonum…

    Hlusta
    Frá Barðaströnd, Hagavaðall, Krossholt t.v.SvalbarðseyriMagnús prúði Jónsson og Ragnheiður Eggertsdóttir+1Myndband
  37. 1563Lag: Nú til hvíldar halla eg mér

    ,,Látið hljóma lofgjörð, þér,

    það Lútherska eksamen:
    söfnuðinum syngja ber
    og svara presti: amen!”

    Höfuðsmaður lætur til sín taka. Fornbréfasafn XIV, 113: ,,Hm. Páll Stígsson færir fram á þingi skipunarbréf um það hvernig fólk eigi að haga sér við guðsþjónustugerð í kirkjunni ...skulu þá allir, utar og innar, ungir…

    Hlusta
    BessastaðirLegsteinn Páls Stígssonar í Bessastaðakirkju+1
  38. 1563

    Guðrún eldri Ögri frá

    ásamt Brjánslæk og Núpi
    Hamborg einnig hélt til á
    höfði meinum drúpi.

    Lést 1563 líklega á Saurbæ, Rauðasandi, Guðrún ,,eldri" Björnsdóttir, húsfreyja á Brjánslæk og Núpi í Dýrafirði, fædd 1489 í Ögri, dóttir sm. Björns Guðnasonar og Ragnhildar Bjarnadóttur (hákarla Bj.), en kona…

  39. 1564Lag: Tíu litlir negrastrákar

    Kónginn Ásverjaættin plokkar

    einn þá vestur brokkar
    Stóradóminn stjórnin kokkar
    í stað hans dygðu smokkar.

    Um fyrri hluta 1. vísu: sjá 1563. Stóridómur. Þann rétt sem ríkið hefur til að beita þegnana valdi fékk kóngur og dómendur hans allan við siðbreytinguna en deildi áður með kaþólsku kirkjunni. Hún hafði haft dómsvald í…

    Hlusta
    Drekkingarhylur, ÞingvöllumÞingvöllurMagnús prúði Jónsson
  40. 1564Lag: Ekki linnir umferðunum um Fljótsdalinn enn; Bj.Þ. 659

    Ofar tekur en í jarka

    Áin, kennd við Dal
    þurrum fót nú um má arka
    yfir hana er skal.

    http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3551129 : ,,Þess er getið í Íslandslýsingu Jóns Þorkelssonar, 1748, að þýzkir kaupmenn á Vopnafirði hafi gefið efni til brúar á Jökulsá. Líklegt að hafi verið nálægt miðri 16.…

    Hlusta
    Jökulsárgljúfur um 1900Brú á Jökulsá+1
  41. 1565Lag: Vorið góða, grænt og hlýtt

    Nú fær lesið nafna sinn

    á nefi glerið situr
    þá séra Pétur pistilinn
    postullega flytur.

    Gerist prestur á gamals aldri í Hjarðarholti í Dölum fv. sm. Pétur Einarsson (~1505-~1594 (?) Ísl. æviskrár), bróðir Marteins biskups, og einn helsti foringi siðbreytingarmanna á synodu lútherskra í Skálholti eftir lát…

    Hlusta
    Málverk í Nikulásarkirkju Bad Wildungen Hjarðarholtskirkja í DölumLinsur frá Gleraugna-Pétri
  42. 1565Lag: Reið ég Grána yfir ána - Bj.Þ. 892

    ,,Ólafur varð mér ekki að manni

    aldrei kom hann nærri þar."
    Um hvort væri sagt með sanni
    Sigríður ein til frásagnar.

    Biskupshjónin á Hólum, Ólafur Hjaltason (~1500-1569) og Sigríður Sigurðardóttir skildu með alþingisdómi ~1565. Hún hafði tekið fram hjá biskupi með sveini hans. https://www.youtube.com/watch?v=Bctlvz-qpKE Fitjaannáll,…

    Hlusta
  43. 1566Lag: Berhöfðaður burt ég fer - Bj.Þ. 619

    Ættin sagði öll: ,,ókei

    að ekki yrði' hún piparmey”
    en Vilborg Guðbrand vildi ei
    og valdi því að segja: ,,NEI!"

    Vilborg Gísladóttir biskups Jónssonar og k.h. Kristínar Eyjólfsdóttur mókolls Gíslasonar frá Haga á Barðaströnd segir nei í festarathöfn hennar og Skálholtsrektors, Guðbrands Þorlákssonar, síðar Hólabiskups. Hann…

    Hlusta
    rektor Guðbrandur Þorláksson / Vilborg Gísladóttir
  44. 1567Lag: Þótt ég sökkvi í saltan mar - Bj.Þ. 881

    Brennisteinsfursti og biskupsfrú

    til brúðarsængur ganga
    vonandi honum verður trú
    þótt vilji holdið manga.

    Ganga í hjónaband (~1567) Nikulás Þorsteinsson, sá sem varð umboðsmaður Munkaþverárklaustursjarða í skiptum við kóng fyrir brennisteinsréttindi Reykjahlíðar 1563, og Sigríður Sigurðardóttir, fráskilin kona Ólafs biskups…

    Hlusta
    Munkaþverá
  45. 1567Lag: Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

    Marköngladómur Magnúsar prúða

    með hverjum vildi banna
    hafsins þorskum í sig úða
    agni hásetanna.

    Marköngladómur Magnúsar prúða Jónssonar (~152(1)5?-1591) á Nauteyri, Ísafjarðardjúpi, ásamt 6 mönnum öðrum. Önglar háseta voru merktir sérstaklega. Í dómsorði sagði m.a.: ,,Húsbændur hafa léð sínum dygðugu…

    Hlusta
    Magnús prúði JónssonNauteyri er á Langadalsströnd við botn Ísafjarðardjúps
  46. 1568Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Ormi dugðu' ei frændur, fé

    frekt af Eggert mæddur
    fyrir kóngi féll á kné
    fátæklega klæddur
    fyrir löngu lúður gaf
    litlu barni' í stíu
    nú hverju þiggur aftur af
    embætti að nýju.
    1 erindi til viðbótar

    Annáll III, 46, 47: ,,Kom út Ormur Sturlason með lögmannsdæmi norðan og vestan og sigldi hann aptur, því Eggert mótstóð hann". Árbók Espólíns, framh. 4. þáttar: ,,Ormr hafdi verit quensamr mjög, og svallad med imsum…

    Hlusta
    Friðrik II.Saurbæjarkirkja Rauðasandi
  47. 1569Lag: lesið

    Ef seggur vill á sjóinn giska

    - síld og þorskur holl -
    skal þá greiða fimmtíu fiska
    Friðriki kóngi í toll.

    Ástand Íslands um 1700, bls. 370: ,,Lausamenn voru fámennur hópur óvistbundins verkafólks sem réði sig til skamms tíma hjá sveitabændum í kaupavinnu á sumrin og sjávarbændum um vertíð á veturna. Þess á milli flökkuðu…

  48. 1569Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Biskup eftir beljum gekk

    og blésu þungt af mæð
    er þau komu að Kvíabekk
    úr kílómeters hæð!

    + Ólafur Hólabiskup Hjaltason, *~1500. Eftirfarandi kann séra Ágúst Sigurðsson frá honum segja í ritinu Forn frægðarsetur, Kvíabekkur, bls. 256: ,,Ólafur biskup (Hjaltason) kemur aftur að Kvíabekk. Á hann þá raunar það…

    Hlusta
    Kvíabekkjarkirkja+3
  49. 1569Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Tjaldaði ei til einnar nætur

    ætt á Reykholtsstað
    frjósöm varð og festi rætur
    færði sögu á blað.

    Veitt Reykholt Jóni yngra Einarssyni Sigvaldasonar langalífs Gunnarssonar. Bróðir Jóns var Gissur biskup, en afkomendur: Böðvar Reykholtsprestur eftir Jón föður sinn ~1590 til dd. 1626, þá Jón sonur hans, frægur…

    Hlusta
    Reykholt, BorgarfirðiBiskup Finnur JónssonSnorralaug, Reykholti
  50. 1569Lag: Kross á negldur - SSB 114

    Árna Gísla aldrei brá

    ófeilinn og kífinn
    í meðallagi mörgum sá
    maður þótti svífinn.
    1 erindi til viðbótar

    Magnús prúði Jónsson (1564) særðist í hópátökum sinna manna við liðsmenn Árna Gíslasonar að verslun á Skutulsfjarðareyri. Var barist um áhrifasvæði. Skagfirðingurinn, Árni, kom vestur til styrktar Jóni Eiríkssyni…

    Hlusta
    Eyrarkaupstaður við Skutulsfjörð um 1907Þingheimur Ukrainu.Hlíðarendi 1897
  51. 1570Lag: Dvel ég í draumahöll

    Ódeigur tekur Árni slag

    aldrei hendur fallast
    við mammon bindur bandalag
    buddan þyngist, hallast
    mægjast við hann fáir fá
    fylgi ekki sýsla
    lævís dregur lengsta strá
    lunkinn Árni Gísla.

    Lést barnlaus Páll Vigfússon á Hlíðarenda, lm. SA 1556-1569 bróðir Önnu á Stóru-Borg. Páll var mágur Sæmundar ríka í Ási, Holtum, Eiríkssonar, bróður Jóns staðarhaldara í Vatnsfirði (1569), en kona Sæmundar Guðríður,…

    Hlusta
    Al Capone Hlíðarendi í FljótshlíðLitli maðurinn og rétturinn+2
  52. 1571Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Guðbrandi höndum taka tveim

    treysta erkiklerk
    biskupsvígður heldur heim
    að Hólum með sigurverk.
    2 erindi til viðbótar

    Guðbrandur Þorláksson (~1542-1627) Hólabiskup til dd. flutti með sér sigurverk úr vígsluferðinni, þ.e., stundaskífu með einum vísi sem sýndi stundirnar 12 eða 24. Úr verður til úr (h)ora, þ.e. stund, sem eru 24 í…

    Hlusta
    Hólar í Hjaltadal 1819Guðbrandur Þorlákssonúr (orologio) frá 16. öld
  53. 1572Lag: Reið ég Grána yfir ána

    Já frá Dóru og Jón að prenta

    jafnt upp bar á sama ár
    Guð- er brandur bókamennta
    bregður knífi og lýsir klár.

    Guðbrandur Þorláksson (~1542-1627) Hólabiskup, kaupir á Breiðabólsstað í Vesturhópi af Jóni Jónssyni, prentsmiðju þá sem faðir hans, Jón Matthíasson, sænski, d. 1567, flutti til Íslands ~1530. Um Jón yngra segir…

    Hlusta
    PrentpressaPrentstílarGuðbrandur Þorláksson Hólabiskup+1
  54. 1572

    Parísarbúar þess verða vottar

    að vandfundnir muni ergri hrottar
    meðan frú Katrín af Medici dottar
    myrtir þar unnvörpum húgenottar.

    Bartólómeusarvígin í París á aðfararnótt Bartolomeusarmessu, 24. ágúst, og haldið fram til 17. september. Allt að 10.000 húgenottar - mótmælendatrúar - drepnir að undirlagi Katrínar af Medici.…

  55. 1573Lag: Dvel ég í draumahöll

    Góu- hefur þrællinn þótt

    þungur í skauti vera
    fáir gull í greip hans sótt
    en grand mátt þaðan bera
    átján skip úr Suðursveit
    á sjóinn þingeysk reru
    árangur bar ekki leit
    enginn veit hvert sneru.

    Á Góuþræl, 9. mars, reru 19 skip Norðursýslunga, e.t.v. flestir Bárðdælir, frá Hálsahöfn í Suðursveit og fórust 18 með 53 mönnum. Þar með hættu Þingeyingar að sækja til sjóróðra suður fyrir jökla. Góuþræll hafði slíkt…

    Hlusta
    ÓsjórBárðardalur, Goðafoss+3
  56. 1573Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Vísir þóttust vita þá

    verðug ráðin brugga
    víst er ei, en vera má
    vígt hafi Hylinn Gugga

    Í Alþingisbók 1573, bls. 155, er innfært það álit 12 dómsmanna, að Guðbjörg Sveinsdóttir hafi sitt líf forbrotið. Hún hafi fallið 3svar í hórdóm og einn þeirra hafi verið systurmaður hennar. Tekið fram að tvö síðari…

  57. 1574Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Kóngur vill Alþing í Kópavog

    og kirkjutíund snara
    biskupar játa ekki og
    engu kjósa að svara
    vilja ekki tefla á tog
    tíminn vinni bara
    og Kópa- telja víst í vog
    vilji enginn fara.

    Til þess að auðvelda hirðstjórum ferðalög frá Bessastöðum lýsir kóngur vilja sínum til að flytja alþingi í Kópavog enda sé þingstaðurinn ,,ubeleylig" fyrir marga. Alþingisbók, 266. Friðrik II. óskaði þess sama 1563 enda…

    Hlusta
    Merki KópavogsMinnismerki í Kópavogi um erfðahyllinguna 1662 Kópavogur
  58. 1575Lag: Langt fyrir utan ystu skóga

    ,,Best sé hafa bændur sátta"

    biskup Hóla í kóngi rær
    uns jörðum skilar aftur átta
    og undir presta setur þær.

    Konungur, Friðrik II., skilar 8 jörðum til Hólastóls, sem Kristján III. hefur við siðaskiptin slegið eign sinni á. Gætu hafa verið í eigu klaustra áður, en verða nú prestsetursjarðir. Þetta er eitt af nokkrum dæmum um…

    Hlusta
    Guðbrandur Þorláksson HólabiskupFriðrik II, d. 1588
  59. 1576Lag: Guttavísur

    Hafið sögu heyrt þá, ljóta,

    hér um landið sem að fer?
    heldri upp til handa og fóta
    hrópa og barma sér:
    biskupinn er orðinn brjálaður
    betra þætti ef fyrir löngu væri
    sálaður
    leika þykir ei á tungum tveim
    6 línur til viðbótar

    Guðbrandur biskup sækir um verslunarleyfi og fær, þrátt fyrir öflug mótmæli íslenskrar yfirstéttar, lögréttu, sem taldi ófært að Íslendingur stæði í verslun – það hefðu útlendingar alltaf séð um. Svalberðingar, synir…

    Hlusta
    Guðbrandur Þorláksson HólabiskupBiskup má sín minna en hrókur, 3 - 5
  60. 1576

    Oddaverjar virða og dá

    Villads minni
    nú fagurt syngur fuglinn sá
    í Fljótshlíðinni.

    Wikipedia, https://www.wikiwand.com/is/Erasmus_Villadtsson: Erasmus Villadtsson (um 1520 – 1591), einnig nefndur Willardsson og Vilhjálmsson, var jóskur maður af þýskum ættum sem settist að á Íslandi, var fyrst…

    Oddi á Rangárvöllum, Sæmundur á selnum, Ásmundar Sveinssonar, í forgrunniMyndband
  61. 1577Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Vindheima-Jón ei að litlu laut

    laginn eignir renta
    Guðbrandur oddinn af oflæti braut
    er honum þótti henta:
    Út fyrir Jón þá Jóns- gaf bók
    jukust afrek mennta
    nágrenni með þeim meira jók
    meðan þeir voru að prenta.

    Vopnahlé með biskupi og lögmanni. Í undirbúningi og e.t.v. byrjað að prenta á Núpufelli lögbókina, Jónsbók, frá 1281. Prentun Jónsbókar lokið 1578. Jón lm. NV Jónsson bjó hana undir prentun með þeim breytingum sem…

    Hlusta
    JónsbókHrókur má sín mikils, meira en biskupGuðbrandur Þorláksson biskup og prentsmiðjustjóri
  62. 1578Lag: Heimsins þegar hjaðnar rós - Bj.Þ. 914

    Jafnt þó prentaði Jóns-lögbók

    jöfur Hóla
    Sigurðar- ekki soninn tók
    samt í skóla.

    Jónsbók 1. prentun á Hólum. Forlag: lm. Jón Jónsson (1536-1606), Vindheima-Jón, bjó um tíma á Vindheimum á Þelamörk í Eyjafirði. Hann var sonur lrm. Jóns Magnússonar, Svalbarði Ef. og Ragnheiðar á rauðum sokkum…

    Hlusta
    JónsbókHruni í HrunamannahreppiGuðbrandur Þorláksson Hólabiskup+3
  63. 1579Lag: 10 litlir negrastrákar

    Kóngur þarfar bjargir bringar

    betur lært og etið
    ölmusu hljóta Íslendingar
    við Universitetið.

    Saga Íslands VI, 168: ,,.. þá var fátítt að Íslendingar leituðu þangað (Kh.) til háskólanáms. Flestir höfðu sótt til Þýskalands ...en Hafnarháskóli þótti eflast við siðbreytinguna ...samt fóru fáir lengi vel þannig að…

  64. 1579Lag: Dvel ég í draumahöll

    Niðurlendingar náðu sér

    niðri á víkingonum
    brömluðu vestra og börðu hér
    og brutu á ungum konum.
    Verst fór Eggert út úr því
    allt varð líf hans brekka
    er þjakaði sorgin, þung sem blý,
    þá fór hann að drekka.

    Margs hefur verið getið til um hvaðan þeir voru sem rændu og rupluðu á Patreksfirði og 30/6 á Saurbæ á Rauðasandi er þar bjó f.v. lm., Eggert Hannesson (~1516- ~1583) sem greiða mátti lausnargjald fyrir.…

    Hlusta
    RauðisandurRauðisandurRauðisandur
  65. 1580Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Byssur fengu sýslur sex

    sendar að þær noti
    en Íslendingum í augum vex
    að eiga hleypa af skoti.

    Magnús prúði Jónsson ritaði kóngi um ránin í Saurbæ, Rs. og á Patreksfirði 1579. Sendi nú kóngur 8 spjót og 6 byssur í hverja sýslu. Þótti þá koma í ljós að Íslendingar voru orðnir óvanir vopnaburði og dæmi hver fyrir…

    Hlusta
  66. 1581Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Erfðadeilur, öfund megn

    efling standa' í vegi
    atkvæði þingið greiðir gegn
    að Guðbrandur versla megi
    öllu skiptir ekki verð
    er menn gerast kargir
    þá skipið týndist fyrstu´í ferð
    fegnir urðu margir.

    Guðbrandi Hólabiskupi Þorlákssyni (~1542-1627) veitti kóngur, Friðrik II., verslunarleyfi á Hofsósi gegn vilja lögréttu og beggja lögmanna, Jóns Jónssonar og Þórðar Guðmundssonar, sem voru vinir og þar með óvinir…

    Hlusta
    Guðbrandur Þorláksson HólabiskupBiskup 3ja peða virði; hrókur 5 peða virði+1
  67. 1582Lag: Blessuð sólin elskar allt

    Gregor úthrópar annað rím

    hið eldra úr gildi felldi
    sitt þó tekur sama stím
    sól í Danaveldi.

    Skarðsárannáll I, 169: ,,Gregorius 13. lætur úthrópa það nýja calendarium; tók nú páfatign”. Júlíus Cæsar hafði fyrirskipað eldra tímatalið, það Júlíanska, árið 46 f. Krist, og er við hann kennt. Júlíanska árið var um…

    Hlusta
    Páfi, Gregor XIII.Dagarnir 10 sem hlaupið var yfir í kaþólskum löndumJúlíus Cæsar f. ~100 f.Kr. keisari í Róm til 15. mars 44 f.Kr.+1Myndband
  68. 1583Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Á sér eigi viðreisnar von

    vínglasi' ekki loftar.
    Í Hamborg Eggert Hannesson
    hitti Bakkus oftar.
    1 erindi til viðbótar

    Deyr um 1583 úr drykkju í Hamborg fyrrum lögmaður, Eggert Hannesson, *~1517. Bjó síðast að Saurbæ á Rauðasandi. (Sjá 1579). Fluttust þá að Bæ dóttirin Ragnheiður og maður hennar, Magnús prúði Jónsson, sem dæmdi…

    Hlusta
    BakkusHamborgRauðisandur
  69. 1583Lag: Eigi stjörnum ofar - SB 367

    Þörf er það á benda:

    Er Þorbjörg, missir bungu
    ger Árna á Hlíðarenda
    að afa Gísla í Tungu.

    Þorbjörgu Vigfúsdóttur, - þ.e., þess Fúsa sem seldi hm. Páli Stígssyni (1566) f.h. kóngs, brennisteinsréttindi Reykjahlíðar 1563 fyrir það sýsluumboð, Norðursýslu, sem Magnús prúði Jónsson hafði haft - og manni hennar,…

    Hlusta
    Gísli Hákonarson (1583-1631) lm. BræðratunguBræðratunga, Biskupstungum+1
  70. 1584Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Stendur vel þess bónda bú

    - bendi´ á það og meina -
    bók sem falar fyrir kú
    og frekar þrjár en eina.

    Á árunum 1582-5 lætur Guðbrandur biskup Þorláksson (~1542-1627) Jón prentara Jónsson hins sænska prests og prentara Matthíassonar, prenta Guðbrandsbiblíu á Hólum og fær þýskan bókbindara, Jurin, til að binda og kenna…

    Hlusta
    GuðbrandsbiblíaPrentararGuðbrandur Þorláksson Hólabiskup
  71. 1585Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Við bókband jafnframt Júrín má

    Jón son Arngríms þjálfa
    í það minnsta af má slá
    áttatíu kálfa.

    Um fjölda kálfskinna í bókakápur gilda hér bragreglur. Til bókbands var fenginn erlendur maður, Jurin að nafni, sem batt inn stórt hundrað bókarinnar og kenndi Jóni nokkrum Arngrímssyni handverkið, sjá…

    Hlusta
    GuðbrandsbiblíaBuffalo Bulls - (naut - uxar)Bókbindari á 16. öld
  72. 1585Lag: Gegnum hættur, gegnum neyð - SB 292

    Höður blindi, heiðni í

    henti mistilteininum.
    Æðsti klerkur kristni í
    kastar fyrsta steininum.

    Mannsaldur kann hafa liðið þar til fyrsti dauðadómurinn féll skv. Stóradómi og þá eftir að Guðbrandur Hólabiskup hafði klagað lögmenn fyrir kóngi og fengið dóminn ítrekaðan 1585. Um þetta segir Herdís Hrönn Níelsdóttir…

    Hlusta
    Guðbrandur Þorláksson, áhugamaður um stóradómDrekkingarhylur í Öxará á ÞingvöllumLögberg (?)
  73. 1586Lag: Hættu að gráta, hringaná

    Í Vestmannaeyjum skal einn skans

    af skyndingu upp færa
    að Englendingar engan sjans
    eigi sig að hræra.

    Eiríkur af Pommern, þá kóngur Kalmarsambandsins, sló eign krúnunnar á Vestmannaeyjar 1420. Var það gert í þeirri von að Englendingar virtu þá frekar eigur og rétt Eyjamanna. 1280, þegar Vestmannaeyjar voru eign…

    Hlusta
    Skans í Vestmannaeyjum+1
  74. 1586Lag: Sá frjáls við lögmál

    Bækluðu greyi að þrifnaði þekkt

    skal þjónað og bætt í gómi
    en heilbrigðum flakkara sex aura sekt
    samkvæmt letingjadómi.

    Letingjadómur. Lýður Björnsson: Frá samfélagsmyndun til sjálfstæðisbaráttu bls. 143: ,,Fólki sem engan átti framfærsluhreppinn var heimil för um land allt. Fleiri völdu þennan kost en löggjafinn heimilaði, einkum í…

    Hlusta
    FlakkariGuðmundur Árnason (dúllari) 1833-1913Símon Björnsson, Dalaskáld
  75. 1587Lag: Dvel ég í Draumahöll

    Úlfaldanum ekki bar

    innivistin betri
    en nafnið Árna nefnt þá var
    varð nálaraugað metri.
    Engan þekkti Árni þar
    því englar, skreyttir fiðri
    tjáðu að fjármagns forkólfar
    flestir gistu niðri.

    (Matteusarguðspjall 19, 24: Úlfaldi og nálaraugað). Lést Árni sm. Hlíðarenda Gíslason, f. 1520. ...,,áður en giftist átti Árni tvær dætur með Helgu Tómasdóttur ábóta að Munkaþverá". (Ísenskar æviskrár, PEÓ). Af…

    Hlusta
    Hlíðarendi FljótshlíðAl Capone +5
  76. 1588Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Kóngurinn af drykkju dó

    dóm hans Guð þó mildar
    því turni Hóla taldi úr skóg
    tíu stoðir gildar.
    Kjörinn biskup Oddur er
    Einarsson frá Nesi
    um það vitni Brahe ber:
    að byr úr stjörnum lesi.

    Lést Friðrik II. ,,Drakk sig í hel”, sagði prestur í útfararræðunni. https://www.youtube.com/watch?v=83GoI4px01s Fyrir andlátið gaf kóngur Hólakirkju m.a. 10 stoðir, 9m langar og allt að 5 álna gildar í nýjan turn fyrir…

    Hlusta
    Friðrik II.Tycho Brahe+3
  77. 1588

    Englendinga erkifjandi

    uppgefinn og lotinn
    ekki reyndist ósigrandi
    espanjólski flotinn.

    Spánska Flotans ósigrandi skal hér getið af því að bent hefur verið á að frá 1412 höfðu breskir sjómenn stundað fiskveiðar á Íslandsmiðum á tvímöstruðum skipum, þ.e., áður en Kolumbus fann Ameríku. Í ólgusjó við…

  78. 1589Lag: Faðir á himna hæð

    Í orðsins listum erum klók

    engum að baki stöndum
    nótnasetjum Sálmabók
    sem öðrum löndum.
    1 erindi til viðbótar

    Guðbrandur Þorláksson Hólabiskup lætur prenta sálmabók, ,,Hólabókina”, með nótum. Skv. ævisögu Sæmundar Sæmundssonar, Virkum dögum I, bls. 53 voru ,,gömlu lögin”, þau sem skráð eru í Sálmabókinni 1589 og Grallaranum…

    Hlusta
    Guðbrandur Þorláksson útgefandi og prentarar hansÚr Hólabókinni 1589Sálmabókin 1589 - Hólabókin
  79. 1589

    Odds eru, biskups, ær og kýr

    sem áfram knýr með hraði
    að ættin hljóti, 1, 2, 3,
    alla dýra staði.

    Vígður biskup til Skálholts Oddur Einarsson (d. 1630). Um hann segir Jón Aðils m.a. í bók sinni um Odd Sigurðsson lögmann, bls. 4: ,,...hann otaði ótilhlýðilega fram ættmönnum sínum þótt þeir jafn vel væru lítt færir…

    Hlusta
    Biskupsvígsla(H)eydalir+2
  80. 1590Lag: Við stallinn Kristí

    Veiting sú var ágæt, Ein-

    ar þá Heydal fékk sem bein
    Oddur lagði ekki stein
    ættar sinnar í götu
    er rektorarnir raða sér á jötu.

    Ekki var Oddur fyrr kominn til landsins vígður Skálholtsbiskup en hann veitti föður sínum, Einari Sigurðssyni, Heydali eystra um haust, en hafði þó fengið honum Hvamm í Norðurárdal um vorið sama árið og skipað hann…

    Hlusta
    Hvammskirkja í NorðurárdalEydalirLitli maðurinn og rétturinn+3
  81. 1591Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Drepsótt geisar dýrum hjá

    daprast þó ei mennskum
    hingað komin hún mun frá
    hundi nokkrum, enskum.

    Saga Íslands VI, bls. 125: ,,Frá því segir, að árið 1591 hafi orðið dauði nauta, hunda og refa vegna sóttar sem barst með enskum hundi". https://www.youtube.com/watch?v=Fkv0-FAVf08…

    Hlusta
  82. 1591Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Að Oddi gengnum víl og voma

    þótt verði bættur skaðinn
    en seint eða aldrei aftur koma
    önnur eins frú á Staðinn.

    Brúðkaupsveisla á Holtastöðum í Langadal. Þar búa hjónin Guðrún Árnadóttir sm. Gíslasonar síðast á Hlíðarenda (1572, 1587) og sm. Jón Björnsson Jónssonar biskups Arasonar og eiga 7 dætur sem allar giftust nema ein…

    Hlusta
    Holtastaðakirkja í LangadalMaria Antonietta 1775
  83. 1592Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Fjögur hundruð fram um ár

    fátæklingar tyftir
    þeir sem á hreppinn fara, fjár-
    forræðinu sviptir.

    Lýður Björnsson, Frá samfélögum, 143: ,,Hreppsómagar voru sviptir fjárforræði með lögréttusamþykkt 1592". Frá 1929 héldu sveitarstyrksþegar kosningarétti ef þeir höfðu haft hann áður. Um afskipti hreppsnefnda af…

    Hlusta
    BetlariÞingvellir
  84. 1593Lag: Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

    Stjórninni þótti landinn latur

    og lítið vanda dóma
    Íslandsklukka og fiskur flatur
    fremji landsins sóma.

    Kristján IV. enn ómyndugur, fæddur 1577. Ríkisráð stjórnar og gerist athafnasamt í málum Íslands með því að stofna Yfirdóm, ákveða skjaldarmerki, senda alþingi klukku og láta gera húskofa yfir lögréttu að ári. Áður…

    Hlusta
    Skjaldarmerki Íslands 1593 - 1903Klukka á rambaldi
  85. 1594Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Að Árhrauni bæði og Brúnastöðum

    barna gæta ei þarf
    á botni Hvítár víst ei vöðum
    vatnið sporlaust hvarf.
    1 erindi til viðbótar

    Skarðsárannáll I, 177: ,,Þann 19. Novembris þverraði Hvítá í tveim stöðum, hjá Árhrauni á Skeiðum og í Flóa austan til í landinu hjá Brúnastöðum, nær þvert yfir um. Þar var gengið þurrum fótum í einn hólma sem áður var…

    Hlusta
    Hvítá nærri BrúnastöðumÍ forgr: Hestfjall, Árkvörn neðst t.h. við ánaHvítá sunnan Hestfjalls, Ingólfsfjall gægist fram í hægra horni uppi+2
  86. 1594Lag: Blessuð sólin elskar allt

    Enn er Guðbrands aðferð klók

    allan tók af vafa:
    ,,Almennelega messubók”
    mega prestar hafa.

    Ein Almenneleg Messubók, Grallarinn 1. útgáfa. Sú síðasta, 19. útgáfa, kom 1779. Eftir það kom Magnús Stephensen í veg fyrir að Grallarinn yrði prentaður oftar, en gaf út sálmabók 1801. 5 árum eftir að Sálmabókin,…

    Hlusta
    Guðbrandur Þorláksson útgefandi og prentararGrallarinn, Ein almenneleg messusöngsbók
  87. 1594Lag: Sólskríkjan mín situr þarna á sama steini

    Að Guðbrandur mátti elta Ara

    yður miðlum
    því Stína krafðist sjálf að svara
    sínum biðlum.
    1 erindi til viðbótar

    Guðbrandur biskup Þorláksson á Hólum tók ekki líklega kvonbænum Ara í Ögri, Magnússonar prúða Jónssonar frá Svalbarði. Mátti þó senda eftirreiðarmenn allt til Héraðsvatna og snúa flokk hans við eftir að Kristín, dóttir…

    Hlusta
    NámaskarðAri Magnússon og Kristín GuðbrandsdóttirGuðbrandur Þorláksson, Hólabiskup+1
  88. 1595Lag: Draumur hjarðsveinsins

    Þá rektor á Brúarárbakkanum svaf

    og beið eftir ferjunni lúinn
    valt út í af þreytu og þrúgum á kaf
    og þar með var ævi hans búin.

    Sauðlauksdalsannáll VI, 385: ,,Drukknaði Sigurður Stefánsson skólameistari frá Skálholti með því móti hann svaf á bakkanum hjá Brúará og valt sofandi í ána". Öldin 16. segir Sigurð á heimleið úr veislu á Mosfelli hafa…

    Hlusta
    Brúará á milli Mosfells og Skálholts
  89. 1595Lag: Vatnsdælingastemma - Bj.Þ. 838

    Móðurafi Magnúsar er

    maður Helgu Ara
    hennar afa herrum vér
    höggstokk mátti á fara.
    1 erindi til viðbótar

    Svör við gátum: F. 1595 lm. Magnús Björnsson og Elínar Pálsdóttur - Staðarhóls. – MB og Brynjólfur biskup Sveinsson því systrasynir, en móðir þeirra systra - Ragnheiðar og Elínar - kona Páls á Staðarhóli, var Helga…

    Hlusta
    Júlíus III. páfi 1550 til 1555 (sjá 1550)Marteinn Lúther siðbótarfrömuður frá ~1521Mynd frá Munkaþverárklaustri af Jóni Arasyni
  90. 1596

    Margir fundu engin orð

    öðrum lá við klígju
    þá Axlar-Björn níu meðgekk morð
    en minnti að þau væru tíu.

    Raðmorðinginn Axlar-Björn tekinn af lífi, Axlar-Björn, raðmorðingj frá Öxl í Breiðuvík á Snæfellsnesi, dæmdur til að hálshöggvast. Samtímaheimildin Skarðsárannáll telur fórnarlömb Björs níu, en í þjóðsögum eru þau orðin…

  91. 1596Lag: Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869

    Fær ei biskup öxlum yppt

    þá orða heyrist gjálfur:
    séra Jón sig Gunnu gift
    og gert það hafi sjálfur.

    Séra Jón Loftsson í Vatnsfirði giftir sig sjálfur 1593, sviptur embætti 1595, afhenti Vatnsfjörð 12. júlí 1596, sjá enn fremur 1636. Árb. Espólíns: ,,Þá var Jón prestur Loptsson í Vatnsfirði tekinn að ringlast svo mjög,…

    Hlusta
    Vatnsfjarðarkirkja
  92. 1597Lag: Fór ég loks að finna kóng - Bj.Þ. 836

    Guðbrandur biskup tók sér tak

    og tímann náði fanga
    er Arngríms lærða almanak
    út á þrykk lét ganga.

    Prentað á Hólum Calendarium Arngríms lærða Jónssonar sem er fyrsta tímatalsbók hér á landi. (1606). Heimild: Þorgerður Sigurgeirsdóttir í Almanaki Þjóðvinafélagsins 1969: ,,Elsta íslenska almanakið sem vitað er um með…

    Hlusta
    Arngrímur Jónsson lærði Vídalín
  93. 1598Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Hjuggu bolnum höfuð frá

    Hóladraugnum Loka
    aftur gat ei gengið þá
    gröf í mátti hoka.
    1 erindi til viðbótar

    Skv. Skarðsárannál I, 182 fékk Sigríður dóttir Þorkels Gamlasonar, Hólaráðsmanns og hreppstjóra, ,,aðsókn og hörmulega ónáðan”. Urðu menn þá hvorki í vafa um hvað ylli né hversu meðhöndla skyldi sjúkdóminn: ,,Uppgrafinn…

    Hlusta
    Dante: La divina Comedia, InfernoGoðdalakirkja, Skagafirði
  94. 1599Lag: Enginn lái öðrum frekt – Bj.Þ. 831

    Þá kom loksins að því að

    einhver fengi í hyljum bað
    þess finna í dómnum Stóra- stað
    að stórsyndugum ber það.
    1 erindi til viðbótar

    Konu drekkt í Bakkárholtsá í Ölfusi. Hafði fallið með tveimur bræðrum. Þetta gæti verið fyrsta aftaka fyrir blóðskömm skv. Stóradómi 1564, sem vitað er um með vissu, sjá þó 1573. Heimild: Fitjaannáll, bls. 90. Tilvísun:…

    Hlusta
    Bakkárholt í ÖlfusiBakkárholtsá, ÖlfusiBlóðskömm á Íslandi eftir Má Jónsson
  95. 1600Lag: Óvinnanleg borg

    16. öld - yfirlit A

    1 erindi til viðbótar

    Með Portúgalanum Ferdinand Magellan (1480-1521) sigldu 237 menn í mars 1519 í vestur á 5 skipum frá Sevilla og náðu þrjú skip fyrir suðurodda Ameríku til Filipseyja í mars 1521. Þar féll Magellan í bardaga, en eitt 85…

    Hlusta
    Skip MagellansFerdinand Magellan lauk hring um jörðina  1521Marteinn Lúther (1483-1546)+4
  96. 1600Lag: Fór ég loks að finna kóng - Bj.Þ. 836

    Skriða á heiði Rafns er rann

    varð Ragnheiður Pálsdóttir ekkja
    en Sveinn í Holti við það vann
    að varð ei köld hans rekkja

    Gengu í hjónaband Ragnheiður Pálsdóttir og séra Sveinn Símonarson, Holti, Önundarfirði. Séra Sveinn hafði misst fyrri konu sína, Þórunni Björnsdóttur 1595 eða fyrr, sbr. Gils Guðmundsson, sem ritar um Svein í ,,Frá…

    Hlusta
    Holt í ÖnundarfirðiHorft í norður á (H)rafnseyrarheiði í átt til Dýrafjarðar+1Myndband
  97. 1600Lag: Á kaupmanninn, rétt við búðarborðið

    Í Hvítá hjá Skálholti skrímsli sást

    skjótast á yfirborðið.
    Vill Lagarfljótsormur í slagtog slást?
    Sleip gætu saman orðið.

    Annálsbrot Skálholtsbiskups, Gísla Oddssonar, V, bls. 493: ,,Í sama mánuði (des.) sást hinn geysistóri ormur í Lagarfljóti og stóðu þrjár kryppur hans upp úr vatninu. Einnig líkt skrímsli á ferjustaðnum yfir Hvítá hjá…

    Hlusta
    Skrímsli(?)Skrímsli(?)Jakaburður í Hvítá við Iðu. Skálholt fjær.+3
  98. 1600Lag: Bjórkjallarinn. - Yfirlit 16. aldar (1553)

    Með bjórglas einn við bar ég sit

    og bergi daginn langan
    nei, þetta er sko ekkert vit
    því Skálholtsprestinn skyldi taka fangan.
    Ég frétti er las, að fæddi Gunna tvö
    og frekar eitt í viðbót.
    og fyrr en varir þau eru orðin sjö
    svo ekki er hér vanþörf á siðbót.

    Fyrsti biskup í Skálholti eftir siðbót Lúthers var Gissur Einarsson (1512-1548). Íslenskar æviskrár I, 466: ,,Eysteinn Þórðarson kirkjuprestur í Skálholti og er orðinn það 1539. Í utanför Gissurar Einarssonar til vígslu…