Vísur eftir Glúm Gylfason um

Annálsverð tíðindi á árunum1540 til 1950

Ein eða fleiri annálsverð tíðindi hvers árs færð í rím, frá siðaskiptum þar til Ísland gekk í NATO — með heimildum, myndum og hljóðbrotum.

vísur
868
ár
412
aldir
5

Vísurnar

t.d.

17. öld · 169 vísur, í tímaröð
  1. 1601

    ,,Formyrkvan sólar á Magnúsarmessu /

    mestallan daginn stóð"
    svo óáran verður nú upp frá þessu
    iðrist ei gjörvöll þjóð.

    Fitjaannáll II, 91: ,,Skeði hræðileg formyrkvan á sólunni á Magnúsarmessu fyrir jól (13. desember), stóð yfir lengi dags eður mestallan daginn, svo sólin varð öll svört, sem boðaði eptirkomandi óáran (einokunarverslun /…

  2. 1601Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Þótti verst við Blefkens bók

    að blóð- ei sýndi þorsta
    samt öllum framar Ormur tók
    um ofbeldi og rosta.
    Er Krákur mátti um krákustíg
    komast leiðar sinnar
    Ormur hótar: ,,á þig míg,
    slæ augu út á kinnar”.

    Ýmsir græddu á að rita ferðabækur um Ísland þótt aldrei hefðu þangað komið. Þar voru Íslendingar sagðir ,,deilugjarnir, illviljaðir, hefnigjarnir, fláráðir, þrællyndir, óhófsamir, lostafullir, saurlífir, svikulir og…

    Hlusta
    Simeone og CR7 leika eftir séra OrmiSkansinn nýi á Heimaey+3
  3. 1602Lag: Dvel ég í draumahöll

    Kristjáni hinum fjórða falt

    flest er orðið núna
    kóngur lítur á Ísland allt
    sem aðalmjólkurkúna
    er nú boðin upp og seld
    útpæld kaupslagsmöndlun
    betur þoldum ís og eld
    en einokunarhöndlun.
    1 erindi til viðbótar

    Missa nú ríkir spón úr aski sínum - sjá 1604, Líftaug landsins bls. 214. Skotinn Adam Smith (1723-1790) ritaði ,,Auðlegð þjóðanna", útg. 1776 og boðaði frjálsa verslun. Áratug síðar var verslun Íslands gefin frjáls…

    Hlusta
    Kristján IV.Hamborg 1811Kort: Kaupmannahöfn á 17. öld+1Myndband
  4. 1602Lag: Augun mín og augun þín

    Snauðir máttu snúa frá

    er snapa vildu í kviðinn
    því boginn hrundi af Brúará:
    Er brytinn þar við riðinn?

    Úr Biskupasögum Jóns prófasts Halldórssonar (1665–1736) í Hítardal: ,,...1602, var af fátæku umferðar og uppflosnuðu fólki úr öllum áttum mikil aðsókn að Skálholtsstað. En bryti staðarins meinti henni mundi réna, ef sú…

    Hlusta
    Brúarfoss
  5. 1602Lag: Veröld fláa

    Höggva þennan Barna-Björn

    böðull illa í standi:
    fjórar konur, fjögur börn
    fjarri hjónabandi.
    1 erindi til viðbótar

    E.t.v. fyrst höggvinn karl skv. Stóradómi: SkarðsárannálI l, 187: ,,Tekinn af á alþingi Björn Þorleifsson fyrir kvennamál og annað svall, fékk góða iðran. Biskupinn, herra Oddur, áminnti hann sjálfur. Hann kvaddi menn…

    Hlusta
    Mastro Titta,  böðull Vaticansins frá 1796 í 68 ár
  6. 1603Lag: Það liggur svo makalaust ljómandi á mér - Stúd. 43

    ,,Hann Fúsi sem kallar sig lögmann” lést

    en langt er nú síðan að það hafði gerst
    sem Magnúsi þótti á þeim tíma verst
    og þess vegna vestur á firðina sest.
    Hæ, dúllía, dúllía .......
    1 erindi til viðbótar

    1603 deyr sm. Vigfús Þorsteinsson, Skútustöðum og Ási í Kelduhverfi, sonur Þorsteins í Reykjahlíð, Finnbogasonar Maríulausa Jónssonar Maríuskálds Pálssonar, d.~1470. Seinni kona Jóns Maríusskálds Pálssonar og langamma…

    Hlusta
    Námaskarð+3
  7. 1603Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Fátæklingur margur mát

    þá mændi út á fjörð
    því enginn fékk að eiga bát
    ef ekki fylgdi jörð.

    Þess skammt að bíða, sjá 1604, að lm. Þórður kvarti við kóng undan einokunarversluninni, en hefur ekki áhyggjur (sbr. vísuna) af eftirfarandi: Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, bls. 19: ,,Það sjónarmið, að…

    Hlusta
    Bátur í Skáleyjum
  8. 1604Lag: Hani, krummi / Austankaldinn

    Á Eyrum berja bændur á

    búðarlokuþjóni
    að svoddan Þórður sveigir skrá
    Svalbarðs- meður Jóni. .
    1 erindi til viðbótar

    Þórður lm. SA Guðmundsson (~1524-1608) 80 ára, mótmælir skriflega nýjum verslunarháttum Kristjáns IV., þ.e., einokunarversluninni frá 1602, og hefur sem oftar samráð við lm. NV, Jón Svalberðing Jónsson, sbr. 1606 og…

    Hlusta
    Kristján IV.Friðrik II.+1
  9. 1604Lag: Hani, krummi / Austankaldinn

    Mættur er Brokeyjarjarlinn, Jón,

    jeg trúi ensku tali
    fái hann komið á fálka sjón
    fær honum breytt í dali.
    1 erindi til viðbótar

    Ísl. æviskrár: ,,Jón Pétursson (~1584-1667 eða 1672) fór til Englands 1591 með enskum skipherra, vini föður síns, Péturs Péturssonar í Arnarfirði, og vandist sjóferðum og kaupskap. Kom aftur til landsins í…

    Hlusta
    RíkisdalirFálkiBrokey+1
  10. 1605Lag: Sá frjáls við lögmál

    Ofan á hönd Jóns hellan féll

    og hún varð ekki fögur
    en þrátt vér megum þessum skell
    þakka Biskupasögur.

    Séra Jón Egilsson (1548 - ~1636), Hrepphólum, hættir prestskap eftir þetta vegna slyss, er steinn sem hann ætlaði til bæjarhellu féll í far sitt aftur og urðu fingur vinstri handar prests á milli og liðu tvö dægur áður…

    Hlusta
    SkrifariJárnkallHrepphólakirkja
  11. 1606Lag: Eg eri Jólamaðurin - H.J. Höjgaard

    Núna getur Gutti rótt

    Guðs sig falið valdi
    því lögmanns Jóns var sálin sótt
    sofnaði burt í tjaldi.
    1 erindi til viðbótar

    Jón lm. NV Jónsson, f. 1536, vaknaði ekki aftur í tjaldi sínu á Bessastöðum morguninn eftir veislu hjá nýjum hm., Herluf Daa. Vel átti að hafa farið á með þeim og taldi Jón sig hafa í H. Daa fengið góðan liðsmann gegn…

    Hlusta
    Bessastaðir 1834Guðbrandur Þorláksson HólabiskupBiskup og riddari takast á
  12. 1607Lag: Eg eri Jólamaðurin - H.J. Höjgaard

    Að Orminum skyldi enginn dást

    - ógurlegri en hugðum -
    um Löginn svamla lengi sást
    liðast með þremur bugðum.

    Fitjaannáll II, 94: ,,Sást ormurinn í Lagarfljóti austur með þremur bugtum. Sagt er að þar séu einninn tvær aðrar ókindur, selur og skata". J. Espólín: ,,...orminn sáu svo gjörla í þrem bugtum að maður hefði mátt ganga…

    Hlusta
    Veggskreyting utan við FSU, SelfossiLögurinn
  13. 1607Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Endilangur laminn féll

    landsins stærsti skógur
    olli þessu' á svipstund svell
    og svæsinn bylur nógur
    ekki skorti eldivið
    - upp gekk rúm í hjöllum -
    brandar gætu bæst í lið
    báls á Möðruvöllum.

    Alþm. Einar Arnórsson birti eftirfarandi í blaðinu Suðurland 4. apríl 1914 og heimild hans eru jarðabókarhöfundarnir, Árni og Páll: ,,Veturinn 1607 féll stærsti skógur Íslands, Möðruvallaskógur, á einum degi. Bolirnir…

    Hlusta
    Nonnalundur á  Möðruvöllum +3
  14. 1608

    Á tvöföldu gengi talsvert græddist

    tekjur drýgðust ,,sýsla”
    Hákon dó en Fúsi fæddist
    föður sínum Gísla.

    Lögrétta ákveður e-k tvöfalda gengisskráningu landaura. Þ.e., gjöld til konungs, sem sýslumenn tóku við í ríkisdölum voru á fjórðungs hærra gengi en ef greitt var í fríðu og liðu sýslumenn því launverslun við erlendar…

    Hlusta
    Gísli Hákonarson, lm. BræðratunguBræðratunga
  15. 1608Lag: Sá frjáls við lögmál

    Eingetinn sonur í Sæmundarhlíð

    seint gekk við Þórdísi' að spjalla
    lítið samvinnu- þótti þýð
    þekkt hefði enga kalla.

    Þórdís Halldórsdóttir, til heimilis á Sólheimum í Sæmundarhlíð hjá systur sinni og mági, Tómasi Böðvarssyni, bændum þar, vissi engan föður að barni sínu, sem fæddist 1608. Sjá nánar 1612 og 1618. Tilvísanir og…

    Hlusta
    Sólheimar í Sæmundarhlíð, Skagafirði
  16. 1609Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Kóngur bannar að krenkja lík

    kveikja í þeim og brenna
    en drauga ásókn engu glík
    ergir leita kvenna.

    Kristján IV. sendir tilskipun sem bannar Íslendingum að grafa upp lík og brenna, ganga milli bols og höfuðs og færa til þjós, sem tíðkað var þegar sá látni hafði haft í heitingum að ganga aftur. Dæmi þess er fjallað um…

    Hlusta
    Úr Inferno, Divina Comedia eftir DanteKristján IV.+3
  17. 1610Lag: Á kaupmanninn, rétt við búðarborðið

    Austfirðingar ýmist geldir

    eða skortir kikkið
    þeim eru strákar að sunnan seldir
    á 60 álnir stykkið.

    Fitjaannáll II, 96: ,,Var margur drengur og stelpa á þessu ári, og nokkur fyrirfarandi sumur, flutt sunnan að og í Austfirði, af sýslumanni þar, vegna manndauða og fólksfækkunar. Drengirnir voru seldir fyrir 60 eður 80…

    Hlusta
    Austfirðir
  18. 1610Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Hægri skyldi af höndin fim

    með hinni Oddur snæði
    halda mætti leyndarlim
    ef léti eyru bæði.

    Eftir að Fitjaannáll II greinir á bls. 96 frá barnasölunni til Austfjarða 1610 kemur í beinu framhaldi eftirfarandi saga af séra Oddi Þorsteinssyni sem gerist um 1554, en dóminn kvað upp lm. Oddur Gottskálksson. Þar…

    Hlusta
    Óspakseyri 1987
  19. 1611Lag: Við stallinn Kristí

    Þess nú gerist brautin bein

    biskups- er telst af ættar grein
    en það er nú hinna þrautarmein
    að þekkja hann ei sem bæri
    ;.; ei ókeypis neinn Oddur tók í læri ;.;

    Einar Laxness, Íslands saga II, 124: ,,Á biskupsárum Odds Einarssonar í Skálholti, 1589-1630, skipaði hann helst í embætti menn sér náskylda eða tengda, án mikils lærdóms; nutu þá ýmsir ættingjar hans forgangs til náms…

    Hlusta
    Búnaðarbankinn
  20. 1611Lag: Augun mín og augun þín

    Vestan úr Gandvík verður sagt

    á vofum glöggt menn þreifi
    með höldum þar í hæstri akt
    haldinn Galdra-Leifi.

    Skarðsárannáll I, 199: ,,Apturganga þreifanleg á Vestfjörðum." Neðanmáls þar: ,,Það hefur verið hinn nafnkunni Snæfjalladraugur er Jón lærði og Galdra-Leifi fengust við". Sjá 1612. Ballarárannáll III, 191: ,,Gekk…

    Hlusta
    GaldrakarlDrangajökull+3
  21. 1612Lag: Í friði látinn hvíli hér - SB 275

    Þórdís að Vallalaugu ló

    af landi burtu Tómas fló.
    Kvæði Jóns lærða til dauða dró
    draug sem á Snæfjallaströndu bjó.

    Seyluþing að Vallalaugu í Skagafirði; Þórdís Halldórsdóttir, Sólheimum í Sæmundarhlíð, vissi engan föður að barni sínu, er fæddist 1608. Henni drekkt 1618. Tómas Böðvarsson b. Sólh., mágur Þórdísar og ætlaður faðir,…

    Hlusta
    DrangajökullSeyluhreppur - (Skagafjarðarveitur)
  22. 1613Lag: Nú er Gunna á nýju skónum

    Kóngurinn í snúning snar

    snjall í pólitík
    þegar eyri ekkjunnar
    ásælist í Vík.
    1 erindi til viðbótar

    Fyrir 60 hundraða jörðina Vík (Reykjavík) fékk Guðrún Magnúsdóttir f. 1540, ekkja sm. Narfa Ormssonar (~1540, d. eftir 1607, en fyrir 1613) af kóngi: Kiðafell í Kjós, Bakka á Kjalarnesi og Laugarvatn. Afsal útgefið…

    Hlusta
    Kristján IV.LaugarvatnReykjavík
  23. 1614Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Eftir honum margur man

    maðurinn í Eyjum
    gentel þótti ei Gentelman
    þá gekk í skrokk á peyjum.

    Enskur sjóræningi, John Gentelman og skipshöfn hans, hélt Heimaey í gíslingu 14 daga. Fitjaannáll II, 98: ,,Rán og skemmdir peninga í Vestmannaeyjum og svo víða kringum Ísland, af útlenskum reyfurum. Sá hét Jón…

    Hlusta
    HeimaeyFornleifaskráning fyrir VestmannaeyjarVestmannaeyjar
  24. 1615Lag: Dvel ég í draumalandi

    Hróður Íslands lægst þá laut

    lægra Hrunsins ránum
    þegar blessað barnið skaut
    Baskana á hnjánum.
    Annan höfðu syðra sið
    segir þulur fróði
    skipbrotsmanna lúið lið
    lögðu í sæng hjá fljóði.

    Ari Magnússon (1571-1652) sm. í Ögri fær Magnúsi, f. 1599, syni sínum byssu og lætur hann skjóta vopnlausa skipbrotsmenn frá Baskalandi. Samtals 31 drepinn með framhlaðningi. Unglingar alltaf fljótari að tileinka sér…

    Hlusta
    Ari Magnússon, Kristín Guðbrandsdóttir
  25. 1615Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Íslendingur upp í sig

    allra fyrstur tekur
    niður vör og nef í svig
    nikótínið lekur

    Lýður Björnsson, Frá samfélögum, 208: ,,Jón Ólafsson Indíafari sá tóbak fyrst notað á ensku skipi 1615 og lærði þá notkun þess". Jón gekk í danska sjóherinn, var fallbyssuskytta þar og komst með Dönum bæði til Indlands…

    Hlusta
    Enskt herskip
  26. 1616Lag: Sigga litla, systir mín

    Kolbeinsey bræðrum reyndist rík

    rita, tyrðill, súla.
    Að kóngur í fyrra keypti Vík
    kemur sér vel fyrir Skúla.

    Það tók - fyrst ríkisráðið og síðan Kristján IV. eftir að hann tók við völdum 1596 - 25 ár, 1590 til 1615, að tryggja sér eignarhald á 60 hundraða jörðinni Reykjavík (Vík). Um það er nánar fjallað hér við 1613. Þrír…

    Hlusta
    KolbeinseyHaftyrðillRita+9
  27. 1616Lag: Fljúga hvítu fiðrildin

    Þar af verður Þórunn rík

    þegar gengur bóla
    og enn skal sitja brúðarbrík
    því brátt mun haninn góla.

    Þórunn ríka Jónsdóttir varð einkaerfingi systra sinna tveggja sem dóu í bólunni 1616, en höfðu áður erft föður þeirra, sm. Jón á Galtalæk, Vigfússon, brennisteinsgreifa Þorsteinssonar í Ási Finnbogasonar lm. Maríulausa,…

    Hlusta
    BólusóttRíkidæmiHólmfríður Sigurðardóttir (og Þórunnar)+1
  28. 1616Lag: Dvel ég í draumahöll

    Jörð um sig og sólu snýst

    sagði Koperníkus
    ei þó talið alveg víst
    því engum pólitíkus
    á þá kennning ennþá líst
    og ekki heldur páfa
    því hnetti vorum hæfi síst
    um himingeiminn snáfa.

    Árið 1616, þegar til stóð að endurútgefa rit Kopernikusar frá 1543 um gang himintunglanna, ,,De revolutionibus", setti Kaþólska kirkjan það á bannlista þar til á yrðu gerðar ýmsar breytingar, m.a. þær, að jörðin væri…

    Hlusta
    Nicolaus Kopernikus (1473-1543)Kopernikus, minnismerki í Varsjá, höfundur Bertel ThorvaldsenSólkerfi jarðarbúa
  29. 1617Lag: Sigga litla, systir mín

    Hestfjall besti berjamór

    byrðar má þar taka
    er Þórunn ríka þaðan fór
    þá ei fann sinn maka.
    2 erindi til viðbótar

    Fitjaannáll II, 100: ,,Drukknun Sigurðar yngra Oddssonar biskups Einarssonar, í Hvítá hjá Oddgeirshólum, og hans manns, sem Bergur hét. Sigurður fannst með því móti, að á skipi var eptir leitað og hani með hafður.…

    Hlusta
    KrækiberjalyngHvítá séð frá Hestfjalli, Vörðufell í baksýn+3
  30. 1617Lag: Sigga litla, systir mín

    ,,Enginn skyldi signa sig”

    sagði Kristján fjórði
    fólkið við það fór á svig
    flest á meðan tórði.

    Kóngur sendir forordningu sem þó verður ekki lesin upp á þingi og fjallar um bann við hvítagaldri, þ.m.t. signingar – eftir hverri Jón lærði Guðmundsson engu að síður var dæmdur 1631, en hún mun hafa verið lesin á…

    Hlusta
    Kristján IV.Róða
  31. 1618Lag: Ætti eg hörpu

    Lögmaður Halldór, höldur mætur,

    herrum gifti sínar dætur
    Oddur slapp við allar bætur
    því Árni reið um daga' og nætur.
    2 erindi til viðbótar

    Umboðsdómurunum, J. Vind og Fr. Friis var falið dómsvald á Alþingi þetta sumar. (Þjóð)sagan segir að Oddur biskup Einarsson hafi beðið komu sonar síns, Árna, til þings, að hann bjargaði sér úr klóm ofsóknara sins,…

    Hlusta
    VopnafjörðurÖxarárfoss á Þingvöllum+3
  32. 1619Lag: Þrútið var loft og þungur sjór

    Í Brekkukoti baslaðist

    Björn á sömu ferð
    þar mammon aldrei æxlaðist
    alltaf sama verð.

    Í Íslandslýsingunni Qualiscunque descriptio Islandiae frá síðari hluta 16. aldar (sjá 1595) segir að e-k verðstöðvun hafi ríkt um aldir á Íslandi. Skipt á einum hlut fyrir annan án tillits til árferðis, uppskeru eða…

    Hlusta
    Svalbarðsætt Þorsteinn Ö. Stephensen í hlutverki Björns í Brekkukoti í sjónvarpsþáttum  1972.Ridddari
  33. 1619Lag: Ætti eg hörpu

    Fjáðir tíund frá sér vísa

    fátækum sinna beri þvísa.
    Kaupmenn etja kóng og fýsa
    að kynni á Íslandi nýja prísa.
    1 erindi til viðbótar

    Hér á og við meginmálið sem fylgir hinni vísunni 1619. Ekki sinnti lögrétta þá því boði konungs að jarðeigendur, en ekki leiguliðar, skyldu greiða jarðatíund. ,,Ástand Íslands um 1700", bls. 344:,,Árið 1619 kom út…

    Hlusta
    Magnus prúði, Ragnheiður Eggertsd. & börnAskur
  34. 1620Lag: Enginn þarf að óttast síður

    Skulu sýslumenn sverja eiða

    sínum kóngi trúnað greiða
    Guðbrands þóttu málin meiða
    má af hendi fúlgu reiða.

    Skv. Alþingisbók 1620, bls. 50 er með nýjum hirðstjóra, H. Rosenkrantz, gerð þriðja tilraun til að fá sýslumenn til að sverja kóngi hollustueið: ,,höfðu valdsmenn mælt því á móti" áður. En nú ,,söru velflestir…

    Hlusta
    Sver sýslumaður eið?Guðbrandur Þorláksson biskup
  35. 1621Lag: Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869

    Á Héraði austur um hjarn og snæ

    hópur bjarna gengur
    en öðrum vestra, Birni í Bæ
    borinn frækinn drengur. .
    1 erindi til viðbótar

    Annálar segja frá því að hvítabirnir gengju á land eystra og hópur þeirra á hjarni allt upp á Hérað áður en unnið varð á þeim. Hér þarf að skruna örlítið niður: https://feber.se/video/hund-som-leker-med-isbjorn/191818/…

    Hlusta
    Hlíðarendi um 1900Séra Páll Björnsson, SelárdalByggakur+3
  36. 1622Lag: Berhöfðaður burt ég fer - Bj.Þ. 619

    Á áramótum áður ról

    - einatt voru á reiki -
    nú átta dögum eftir jól
    að eigi framar skeiki.

    Kristján IV. kemur reglu á áramót á Íslandi. Þau voru áður á reiki. Gunnar Karlsson, Inngangur að miðöldum, 302: ,,Um ársupphaf var lengi mikill ruglingur í Evrópu á miðöldum. Sumir létu árið byrja 1. janúar, aðrir 1.…

    Hlusta
  37. 1622Lag: Eins í vöku og eins í blund - Bj.Þ. 829

    Magnús eftir Unu hljóp

    item niður slengdi
    hennar leyndarlim með sóp
    lengi nakinn flengdi.

    Alþingisbók 1622, bls. 80: ,,Dómur um mál Magnúsar Erlingssonar (hvern Una Þorkelsdóttir kærði). 1. Að Magnús hafi hlaupið eptir sér og hafi sér náð og niður slengt. ...Item að hann hafi tekið í sitt pils og stigið á…

    Hlusta
    Þrælahald í BNA 1845
  38. 1623Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Sigling utan fengu frítt

    og fjögur ár á Garði
    öl og brenni að yrði hlýtt
    - enginn sér þar barði -
    einn í sæng var enn eitt nýtt
    í undrun landinn starði
    ef bóka- gerðist brautin grýtt
    Bakkus fáa sparði.

    Kaupmannahafnarháskóli fékk Klaustur Heilags Anda tekið undir heimavist stúdenta, Regens, sem Íslendingar nefndu Garð. Sívaliturninn kom þó ekki fyrr en 1642/3 Í einokunarrétti kaupmanna fólst sú kvöð, að flyttu…

    Hlusta
    Garður+1
  39. 1624Lag: Eins í vöku og eins í blund - Bj.Þ. 829

    Hólakirkja frá oss fauk,

    flogin upp til skýja
    Halldóra staðinn hélt og lauk
    helgidóminum nýja.

    Hólakirkja hin forna fauk, byggð 1395, eftir að kirkjan frá um 1300 hafði fokið árið áður. Sú sem fauk 1624 var rúmir 700 fermetrar og kennd við Pétur Nikulásson, danskan Hólabiskup. Herra Guðbrandur biskup, f. 1541,…

    Hlusta
    Ari Magnússon, Kristín GuðbrandsdóttirHjaltadalurKlæðnaður heldrikonu á 17. öld
  40. 1625Lag: Eins í vöku og eins í blund - Bj.Þ. 829

    Tískunni fylgist Magnús með

    meinar því um að kenna
    að sál í eigi´h'inn vondi veð
    svo verði lifandi brenna.

    Fyrsta galdrabrenna, og var á Melaeyrum í Svarfaðardal. Sm. Magnús Björnsson (1621) dæmdi þá Jón Rögnvaldsson, f. ~1600, á bálið fyrir að vekja upp draug sem átti að hafa gert óskunda á Urðum þar í Svarfaðardal. (E.…

    Hlusta
    GaldrabrennaSvarfaðardalurAllgäu í Þýskalandi - nornalegt?+3
  41. 1626Lag: Hjá stallinum Kristí

    Nótt hans komin ágæt, Ein-

    ars í Heydal - ljósið skein -
    ugglaus gerist brautin bein
    og breið í himnaríki.
    Hans vísnasöng
    þeim vængjuðu trúi' að líki.

    + Einar skáld Sigurðsson (1538-1626), pr. Heydölum, sem orti Kvæði af stallinum Kristí: ,,Nóttin var sú ágæt ein, í allri veröld ljósið skein ..." Einar dó sama ár og Péturskirkjan í Vatikaninu er vígð. Hafði hún verið…

    Hlusta
    Kerúbar, málv. eftir Rafalel í VatikaninuHeydalakirkja og minnismerki um séra Einar Sigurðsson skáld Stallurinn Kristí
  42. 1627Lag: Enginn lái öðrum frekt - Bj.Þ. 831

    Guðbrandur sig burtu bjó

    biskup aldurhniginn
    með ,,Tyrkjum” aðrir sigldu sjó
    suðu'r í barbaríin.
    1 erindi til viðbótar

    + Guðbrandur Þorláksson f. ~1541, Hólabiskup frá 1571 til dd. Arngrímur lærði Jónsson (1568-1648) hafði frá 1596 verið konungsskipaður aðstoðarmaður Guðbrands í biskupsstörfum og síðustu ár hans officialis og gegnt þeim…

    Hlusta
    Barbanera - sjóræningiVestmannaeyjarGuðbrandur Þorláksson Hólabiskup+6
  43. 1628Lag: Á kaupmanninn, rétt við búðarborðið

    Dætur Gísla í Tungu tvær

    teljum kosti besta
    af Eggert misjafnt þágan þvær
    en Þorlákur á með presta.

    Kristín (1610-1694) og Valgerður, d. 1702, dætur lm. Gísla Hákonarsonar (1583-1631) í Bræðratungu, lofaðar samdægurs, 31/7. Kristín: Þorláki Skúlasyni (1597-1656) Hólabiskupi 1628 til dd. en Valgerður: sm. Eggert ríka…

    Hlusta
    Þorlákur Skúlason Hólabiskup - hugmynd.BræðratungaSkarðsstöð+1
  44. 1629Lag: Dvel ég í draumahöll

    Oftar hafði Engilbert

    orðið sög að hvetja
    breddu sinnar bitið skerpt
    og blóðrás mátt við etja
    af bræðrum fjóra fætur skar
    að fjöri mættu halda
    fylgdu og með fingur þar
    frostsins hlutu gjalda.

    Fitjaannáll II, 12: ,,Kól hendur og fætur Gísla og Markúsar Bjarnasona svo af þeim voru sagaðir fæturnir á Þingvöllum og voru þar lengi í græðslu. Þeir riðu um veturinn frá Fitjum í Skorradal austur yfir fjall. Slíkt…

    Hlusta
    Aflimun -  WikipediaStokkseyri
  45. 1630Lag: Þótt ég sökkvi í saltan mar - Bj.Þ. 881

    Ávaxta pund sitt Oddur kann

    ekki deyr hann snauður.
    Suðurlandsskjálfti og Skálholt brann
    skapstór biskup dauður.

    Skálhot brann 24/2 nema kirkjan; Þar brunnu skjöl, bækur og fornrit sem Oddur biskup hafði safnað. Gísli ,,sterki” Oddsson varð Skálholtsbiskup eftir föður sinn. Heimild m.a. Fitjaannáll II, frá bls. 113:…

    Hlusta
    Tycho BraheBiskup fjarlægður af skákborðinu+1
  46. 1631Lag: Ef að mér til ununar - Bj.Þ. 828

    Við biskupsgröf tók Gísli sótt

    gigt ei réð hann beygja
    mæða þung og mein hve fljótt
    þeir margir frændur deyja.

    Lm. Gísli Hákonarson í Bræðratungu (1583 – 10. febrúar 1631) tók banasótt við útför Odds. (Sjá 1630). Þeir nágrannar og forystumenn, annar leikra, hinn lærðra. Hafði það sín áhrif á samkomulagið ,,og erfðist óvildin…

    Hlusta
    Lm. Gísli Hákonarson, BræðratunguBræðratungaRiddari fjarlægður af skákborðinu
  47. 1631Lag: Ef að mér til ununar - Bj.Þ. 828

    Æðri stéttar illur þjón

    út af landi rækur
    þótti Ara í Ögri Jón
    ekki á vetur tækur.

    Með Fjandafælu 1611: (Jesú dreyra dauða og pín / sem dragi oss æ frá grandi / set eg á milli mín og þín / myrkra sterkur andi....) og Snjáfjallavísum 1612: (...ramma, skammar, rómgrimm / rjúki, strjúki, svo fjúki / í…

    Hlusta
    BelsebúlFáni Baska og merki Atletic Bilbao
  48. 1632Lag: Dvel ég í draumahöll

    Vel notar Gísli vígsluferð

    víkst ei frá né rennur
    semur enn um sama verð
    sýnir vit og tennur.
    Að látnir verði lausir senn
    - þótt lífið sjálft sé veðið -
    herteknum senda múgamenn
    minna en um var beðið.
    1 erindi til viðbótar

    Hstj. Holger Rosenkrantz vildi/þorði ekki að fara fram á að hætt yrði við að láta erlendar verðhækkanir hafa áhrif á kaupsetningu hér svo sem kaupmenn kröfðust, en það gerði Gísli sterki Oddsson við kóng í…

    Hlusta
    Barbanera 3Alsír
  49. 1633Lag: Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

    Ekki mátti minna nægja

    - meðaumkunar kenni -
    Hund-Tyrkjanum þurfti þægja
    þúsund dölum, Benni.

    Á ,,hallærisárinu mikla" (Saga Íslands VII, 121) er Benedikt klh. Möðruvöllum Ef., Pálsson sm. Þingeyrum, Guðbrandssonar biskups, - leystur út frá Alsírskum sjóræningjum með 1.000 rd. þ.e., ~250 kýrverð (sjá 1704).…

    Hlusta
    Sigríður stórráða  Norn - WikizionarioFáni Alsír+4
  50. 1633

    Trútt skulu gilda nú þau norm

    ný er setti Óli Worm
    er Heimskringlu Snorra færði í form
    frægastan síðan bókaorm.

    Gils Guðmundsson: Faðir norrænnar fornfræði, Gestur 5, bls. 186, endursagður úrdráttur: Fyrir og eftir aldamótin 1600 hófst fornmenntastefna á Norðurlöndum. Fræðimenn tóku að gefa gaum norrænum fornritum og fornsögu…

  51. 1634Lag: Þrútið var loft og þungur sjór

    Hollendingar fiskinn fá

    fegnir taka í mót
    er danskir sigla Fróni frá
    farmur snidda og grjót.

    Sökum harðæris er veturinn 1633 til 1634, nefndur Hvítivetur í annálum, sem segja frá, að bæði fyrir ,,hallærisárið mikla", 1633, sjá þar, og 1632 og allt til 1638, sjá þar, höfðu menn ekki margt handa kaupmönnum sem…

    Hlusta
    Stungin snidda, en hana tóku Danir í kjölfestu auk grjótsHollenskt skip frá 1628Í á Eyrarsundi Svíþjóðarmegin
  52. 1634Lag: Ástarfaðir, himinhæða

    Bræðratungu skrugga skemmdi

    skaða stórum olli og sorg
    Vesturjótland vatnsflóð hremmdi
    verst var það í Lukkuborg.

    Fitjaannáll II, 127: ,,Þann 13. Januarii laust reiðarslag eður skrugga í bæjardyrnar í Bræðratungu inn um portið, braut það til skemmda mjög ...og gerði þar mikinn skaða ...sumir sögðu til 50 hundr. Þar hrukku upp…

    Hlusta
    SkruggaBræðratunga
  53. 1635Lag: Sólskríkjan mín situr þarna á sama steini

    Úrslit mála ei skal tryggja

    illur fengur
    embættismenn ei mega þiggja
    mútur lengur.

    Spilling: Kóngur reynir að hindra mútur og bannar hirðstjórum og fógetum þeirra að eiga jarðir á Íslandi – þessu hefur ekki verið fylgt eftir af síðari kóngum, a.m.k. mútaði Guðmundur ríki Þorleifsson am. Fuhrmann um…

    Hlusta
    Juventus dæmt niður í B deild italskrar knattspyrnu vegna spillingar. Enn 2023 frá Evrópukeppnum.L. Moggi ds. Juventus talar við dómara+6Myndband
  54. 1635Lag: Á kaupmanninn, rétt við búðarborðið

    Jafna ætlar illa að ganga

    æ á konur höllum
    aðeins leyfðum einni að hanga
    en ótal mörgum köllum.

    Einsdæmi: Kona hengd í gálga á Snæfellsnesi fyrir stuld. Heimild: Inga Huld Hákonardóttir: ,,Fjarri hlýju hjóna-sængur”, bls. 9.

    Hlusta
    Málverk, kona í snöru
  55. 1636Lag: Komdu og skoðaðu í kistuna mína

    Prestur hlaut spyrja sig sjálfan og svara

    sagðist þá vilja h'ana Guðrúnu, já!
    Brotlegur hlaut svo úr brauðinu fara
    og biskupsins frændi hlaut Vatnsfjörðinn þá.
    Sá, Gísli, er svo hrumur og gugginn að sjá
    að gæti við unað ef Stað mætti ná
    í Vatnsfjörðinn sjálfsagður, erfingi Ara
    í Ögri og síst munu kílóin fá.

    Séra Jón Loftsson (~ 1539 - ~1606) í Vatnsfirði gifti sig sjálfur Guðrúnu Sigmundsdóttur um 1593, þess vegna settur frá embætti 1595 og afhenti staðinn 1596, sjá þar. Annáll segir sr. Jón Loftsson þá ringlaðan orðinn.…

    Hlusta
    mdm. Hólmfríður SigurðardóttirStaður á Reykjanesi vestraRagnheiður yngri Jónsdóttir Arasonar og Hólmfríðar Sigd.
  56. 1637Lag: 10 litlir negrastrákar

    Gudda kona ekki ein

    er hún gekk á land
    heppin víst að vera sein.
    Vissi að beisla gand?
    2 erindi til viðbótar

    Alsíringar rændu um 300 Íslendingum árið 1627. 37 þeirra voru keyptir út og komust til Kaupmannahafnar. Þetta ár komu 27 til Íslands aftur. Þeirra á meðal Guðríður Símonardóttir (1598-1682), vanfær af völdum Hallgríms…

    Hlusta
    NornSteinunn Jóhannesdóttir ritaði Reisubók Guðríðar
  57. 1638Lag: Ætti eg hörpu

    Brugðið er til betri áttar

    bænheyrsla sú æðri máttar
    hlaða fyllt milli gafls og gáttar
    og gæftir þykja meiri háttar.

    Deyja um þingtímann: Halldór lm. NV Ólafsson (1618, 1753) og Gísli, f. 1593, Skálholtsbiskup frá 1632 Oddsson, biskups. Auk Tyrkjaráns, Skálholtsbruna, eldingar í Bræðratungu, Heklugoss (1636) og draugagangs víða, þá…

    Hlusta
    HeyGæftir
  58. 1639Lag: (Ég hef svo margan morgun vaknað) SSB 81

    Hið háa alþing út gaf lista

    sem almenningi hefur birst:
    ,,Afgreiða kaupmenn eiga fyrsta:
    alþingis-, lögréttu'- og sýslumenn,
    - bændurnir geta beðið yst -
    en biskup og hirðstjóra allra fyrst”.

    Lögrétta ályktar um í hvaða röð kaupmenn skuli afgreiða viðskiptavini og gerir fyllri samþykkt sína frá fyrra ári. Alþingisbók 1639, bls. 597, nr. XXVIII: ,,...eptir þeim dómi sem í fyrra gekk um varningskaup, að…

    Hlusta
    BiðröðBrynjólfur Sveinsson - hugmynd
  59. 1640Lag: Ætti eg hörpu

    Tveggja ára Guð er gjafi

    góðrar sprettu, fiska í hafi
    og enginn þykir vera vafi
    að veðrið af herra Brynjólfi stafi.

    Góðæri hefur nú ríkt í tvö ár - byrjaði eftir kosningu Brynjólfs til biskups 1638 - og til lands stendur það til 1674, þegar Brynjólfur sagði af sér biskupsdómi, en dó 1675. ,,Fiskbresturinn mikli” varð frá 1686 til…

    Hlusta
    Brynjólfur Sveinsson, biskup Skh. - hugmynd
  60. 1640Lag: Langt fyrir utan ystu skóga

    Foroðning kóngs að ekki hækki

    eignamennirnir leigurnar.
    Hugsar víst að hungruðum fækki.
    En hvað verður þá um eigurnar?

    Skarðsárannáll I, 263 getur um enn eitt bréf kóngs til höfuðsmanns og alþingis - nú samið og sent að beiðni Guðmundar Hákonarsonar, klausturhaldara á Þingeyrum - um að leigur skuli ekki hækka. Guðrún Ása Grímsdóttir,…

    Hlusta
  61. 1641Lag: Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

    Hvítra- nýr er hvala vandi

    í Hvalfirði til að mynda
    þá má sjá frá þurru landi
    í þaranum éta og synda.

    Skarðsárannáll I, 262: ,,...undarlegir og sérlegir hvalfiskar í Borgarfirði og Hvalfirði, alhvítir á lit sem stór útselur að vexti; sá í Hvalfirði sást var þar frá krossmessu um vorið og fram á jólaföstu, það menn…

    Hlusta
  62. 1641Lag: Fyrr var oftr í Koti kátt

    Kætast Skál- og Kols- nú holt

    konur urðu léttar
    foreldranna stórt er stolt
    stúlkur fæddust nettar.
    Seinna´um aðra stendur styr
    staðföst tók til varna
    og báðar urðu frægar fyr'ir
    fæðing sinna barna.

    Bornar í heim: Ragnheiður Brynjólfsdóttir í Skálholti 8. september og Hólmfríður Hannesdóttir í Kolsholti 30. nóvember. Þeirra getið hér m.a. 1664 og 1661. Um Ragnheiði vísast til 1661, 1666 og 1667 á þessari vefsíðu.…

  63. 1642Lag: Þótt ég sökkvi í saltan mar - Bj.Þ. 881

    Oddur samdi sálma og lög

    sat á Reynivöllum
    öðrum kunni fleiri fög
    en flóðið olli spjöllum.

    Þrjár skriður féllu á Reynivelli í Kjós á 17. öld: 1642, drápust 13 naut, 1671, 1699, dóu 7 menn. Skarðsárannáll I, 267: ,,Þann 20. Februarii (1642) hljóp snjóflóð á Reynivelli í Kjós sem burttók hey mestöll úr garðinum…

    Hlusta
    Reynivallakirkja í KjósMyndband
  64. 1642Lag: Þótt ég sökkvi í saltan mar - Bj.Þ. 881

    Fjölmenna til messu má

    mátið stöndumst ekki
    í Víkurkirkju kátt er fá
    konur átta bekki.
    1 erindi til viðbótar

    Í Víkurkirkju (Reykjavík, þar sem nú er stytta Skúla fógeta) koma 8 bekkir kvennamegin og 1 karlamegin. Kirkjur voru án bekkja áður fyrr.…

    Hlusta
    Kápa bókarinnar: Magnús Jónsson, prúðiKirkjubekkurMagnús prúði Jónsson & Ragnheiður Eggertsdóttir & börn+4
  65. 1643Lag: 1 lítill, 2 litlir, 3 litlir fingur

    Fúsi Gísla ætt nam auka

    afkomandinn hátt mun brauka
    klókur ætíð kann að þrauka
    kenndur var og er við bauka.

    * Jón, síðar Hólabiskup, sonur Vigfúsar sm. Stórólfshvoli, Gíslasonar lm. Bræðratungu, Hákonarsonar sm. Klofa o.v., Árnasonar sm. Hlíðarenda, sem fæddist á Hafgrímsstöðum í Lýtingsstaðahreppi. Afkomendur Jóns yngra…

    Hlusta
    Hólar í Hjaltadal 1819Stórólfshvolskirkja 1900Nei! Enski biskupinn Henry Blois er ekki með rjólbita í v.h.+3
  66. 1643Lag: Ég má bera hallan haus - Bj.Þ. 847

    Alltaf vill hann upp á dekk

    í atgangi og hríðum,
    Kristján fjórði trekk í trekk,
    tapar sínum stríðum.

    Sænski herinn, er barðist í 30 ára stríðinu á þýskri grund á móti keisaranum þar, sneri 12. des. 1643 norður til Holstein og Jótlands undir forystu L. Torstenson. Þar með byrjar ,,Torstensonstríðið" sem lauk með tapi…

    Hlusta
    Kong Christian stod ved höjen mast- eineygður
  67. 1644Lag: Það á að strýkja strákaling - Bj.Þ. 902

    Til þess sig knúinn Torfi fann

    að tjá sig um prestinn, nágrannann:
    ,,Nú vígja þeir allan andskotann
    fari' einhver til Helvítis, þá er það hann".

    Brynjólfur biskup vígir Hallgrím Pétursson, þá bónda að Bolafæti, til prests að Hvalsnesi, en þar, að Stafnesi, ræður ríkjum fulltrúi fógeta, Torfi Erlendsson, og er enginn ættleri hvað skapsmuni snertir - 4. maður frá…

    Hlusta
    Séra Hallgrímur PéturssonHvalsneskirkjaReisubók Guðríðar reit Sigrún Jóhannesdóttir
  68. 1645Lag: Kross á negldur - SSB 114

    Prestinn Hvamms í fjöru flæddi

    fannst það á er víman mæddi
    ölsins höfgi á er sveif
    Guðs og þótti mesta mildi
    moldin þá við andann skildi
    jarðnesk eftir lægi leif.

    Óttar Guðmundsson: Tíminn & tárið, bls. 77: ,,Í Kjósarannál 1645 er frá því skýrt að þeir séra Þorsteinn Tyrfingsson frá Hvammi í Norðurárdal og Benedikt Björnsson í Bólstaðarhlíð hafi sótt veislukost í brúðkaup…

    Hlusta
    Hvammskirkja í Norðurárdal
  69. 1645Lag: Ætti eg hörpu

    Prestar andans sveifla sverði

    þess sverja eið í Vælugerði
    enginn hár þeim á höfði skerði
    sinn hæstiréttur sjálfir verði.

    Biskup skipaði í fyrri sið dóm, 6 eða 12 presta, sem fjallaði um brotlega presta og dómsmál sem prestur átti aðild að, og það gerðist í tilvikum eftir 1551, segir Björn K. Þórólfsson í Nordælu, bls. 40. Reglan var eftir…

    Hlusta
    Vælugerði, nú Þingdalur, í Flóa. Búrfell fjærst t.v.
  70. 1645Lag: Senn er komið sólarlag - Bj.Þ. 865

    Enginn skyldi annan slá

    ódáð með því fremur
    15 ára af má sjá
    eyra og fingrum þremur

    Fitjaannáll I, 149: ,,10. Junii var saklaus maður á Vaðnesi í Grímsnesi, Jón Hálfdanarson, skemmdur af 15 vetra gömlum strák, Símoni Brandssyni. Símon kom heim til bæjarins að nóttu og barði að dyrum. Jón kom út…

    Hlusta
  71. 1645

    Af oss Danir reyndu raupa

    ramman bjuggu grikk
    en enginn vildi okkur kaupa
    aðeins fyrir slikk.

    Kristján IV (1645): Í valdatíð hans var Hansakaupmönnum boðið að kaupa eða taka Ísland á leigu, en þeir höfðu ekki áhuga. [1] Síðari hugmyndir (1864): Eftir ósigur Dana gegn Prússum í stríðinu 1864, kom upp sú hugmynd…

  72. 1646Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Dæmdu Skotta húðlát hæst

    hvergi móti von
    eikinni féll eplið næst:
    - Axlar-Bjarnar son.

    Sveinn skotti handtekinn - margfaldur þjófur og nauðgari með meiru - sonur Axlar-Bjarnar, raðmorðingja frá Öxl í Breiðuvík á Snæfellsnesi, sem höggvinn var í parta og síðast af höfuðið 1596. Þórdís kona Bjarnar var í…

    Hlusta
    Gapastokkur og húðstrýkingReiðskörð við Rauðsdal á Barðaströnd þar sem Sveinn Skotti var hengdur 1648Öxl, Snæfellsnesi+2Myndband
  73. 1646Lag: Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830

    Afturgöngur enn eitt skarð

    eftir skilja hölum
    ein að bana bónda varð
    í Breiðafjarðardölum.

    Setbergsannáll IV: ,,Um haustið drap afturgöngudraugur í Breiðafjarðardölum þar einn mann. Hét maðurinn Jón Pétursson". Fitjaannáll getur þessa líka á bls. 152 í 2. bindi annála. (1800)…

    Hlusta
  74. 1647Lag: Dvel ég í Draumahöll

    Ekkjan Katrín á nú bágt

    en aldrei sagt að voli
    hafði einn í fertugt fátt
    Fúsi á Stórólfshvoli.
    Vigfús var haldinn með hyggnustu mönnum /
    höfðingi og tvívegis sigldur
    rektor og fróður í fræðum sönnum
    fjáður en aumum mildur.

    Lést í apríl 39 ára Vigfús Gíslason, sm. Stórólfshvoli, áður rektor Hólaskóla um tvö ár og því næst önnur tvö ár í Skálholti, en 1632 fékk hann Árnessýslu og Vestmannaeyjar að sýslu, sjá 1611. Vigfús þótti djarfur er…

    Hlusta
    Stórólfshvolskirkja um 1900Málverk sem tákni ekkju 1819
  75. 1647Lag: Biskups hef ég beðið með raun - Bj.Þ. 904

    Selárdalsskúta fór á flot

    og fyllti seglin byr
    eftirleikur enginn - slot -
    um aldir stóðum kyrr.

    Einar Bogason í Frá ystu nesjum V, bls. 146: ,,Í Prestaævum yfir Selárdalspresta segir Sighvatur Grímsson, sagnfræðingur, að séra Páll Björnsson hafi fengið sér haffæra skútu þegar hann var nýkominn að Selárdal og var…

    Hlusta
    Séra Páll Björnsson í Selárdal
  76. 1648Lag: Langt fyrir utan ystu skóga

    Innan stokks varð allt að koli

    útveggirnir brunnið skar
    er stóðu í björtu báli að Hvoli
    bæjarhúsin Katrínar.

    Seiluannáll I, 290: ,,Um haustið í Octobri (20.) brann Stórólfshvoll allur gersamlega með ...herlegum bókum er átt hafði Vigfús Gíslason (1608-1647) ...með öllu sem fémætt var til kaldra kola; furðanlegur skaði. Var það…

    Hlusta
    Stórólfshvoll, Rang.Stórólfshvoll
  77. 1648Lag: Ærnar mínar lágu í laut - Bj.Þ. 883

    Arngríms Kristján fjórði fékk

    fylgd í annað setur
    er Skotti í þeirra skotti hékk
    skrekktist sankti Pétur.

    Hengdur í Reiðskörðum við Rauðsdal á Barðaströnd Sveinn Skotti, sonur Axlar-Bjarnar (sjá 1596, 1646 ); https://afangar.com/afbrotasaga/raudsdalsskord-rauduskord/ +Arngrímur lærði Jónsson. (1597). + Christian IV. Hægra…

    Hlusta
    Kristján IV. Arngrímur Jónsson, lærðiReiðskörð við Rauðsdal á Barðaströnd
  78. 1649Lag: Ef að mér til ununar - Bj.Þ. 828

    Oddur samdi sálma og lög

    sat á Reynivöllum
    öðrum kunni fleiri fög
    en flóðin ollu spjöllum.

    + Sr. Oddur (*~1565) Oddsson á Reynivöllum ,,talaði mörg tungumál" segir Fitjaannáll, lærði læknislist af erlendum manni í Skálholtsskóla - enskum, segir Jón Þ. Þór, bls. 115 í Sögu Grindavíkur I - og samdi…

    Hlusta
    Reynivallakirkja
  79. 1650Lag: Veröld fláa sýnir sig - Bj.Þ. 874

    Aldrei getum fundið frið

    fyrir kóngsins gjörðum
    16% viljum við
    vexti fá af jörðum.
    1 erindi til viðbótar

    Kristján IV. reyndi að hemja spillingu. Bannaði að múta dönskum embættismönnum á Íslandi 1635 og landeigendur skyldu (1619) gjalda tíund af jörðum en ekki leiguliðar, en lögrétta neitaði tvívegis – þar sátu…

    Hlusta
    Friðrik III.+1
  80. 1650Lag: Gnauðar mér um grátna kinn - Bj.Þ. 838

    Ekkjur presta eitt ár fá

    ábúð þeirra garða
    áður búi brugðu þá
    búið var að jarða.

    Alþingisbók, bls. 261: Kóngsbréf um náðarár prestsekkna 3. maí 1650. Lovsamling for Island I, bls. 234-235. Þess skal gætt, að í kaþólsku, þ.e., fyrir 1541 (1551) voru - tæknilegta séð - engar prestekkjur til og ekki…

    Hlusta
    Helen Mirren leikur ekkjuHöggmynd Ragnhildar Stefánsdóttur táknar Guðríði Símonardóttur