Vísur eftir Glúm Gylfason um

Annálsverð tíðindi á árunum1540 til 1950

Ein eða fleiri annálsverð tíðindi hvers árs færð í rím, frá siðaskiptum þar til Ísland gekk í NATO — með heimildum, myndum og hljóðbrotum.

vísur
868
ár
412
aldir
5

Vísurnar

t.d.

18. öld · 211 vísur, í tímaröð
  1. 1701Lag: Snemma lóan litla í

    Útskipun er einkar fljót:

    utan siglt með torf og grjót
    tæpt að þjóðin tórði.
    Valdabarátta leið og ljót:
    sé Lárus með er Páll í mót
    kóngur er Friðrik fjórði.
    4 erindi til viðbótar

    Harald Gustafsson: Mellan kung och allmoge, Stockholm 1985, bls. 32; ,,Kring 1700 hotades hela det isländska samhället av ekonmisk kollaps". Um yfirstandandi hungursneyð, sjá 1700. Í þjóðernisrómantískri söguritun fyrri…

    Hlusta
    Friðrik IV.VíðidalstungaL. Gottrup og Katrín Pétursdóttir+6
  2. 1702Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Asklok fyrir himin höfðu

    höfðingjar þessa lands
    af þeim er Íslands sögu sögðu
    sæmdir heiðurskrans.
    1 erindi til viðbótar

    Axel Kristinsson, Hnignun, bls. 56: ,,Pólitískar einingar þurfa sínar goðsagnir”. Íslandssaga Jónasar Jónssonar 1916: ,,Snorri veginn fyrir að vilja vernda frelsi og sjálfstæði þjóðar sinnar". Tilvísun: Helgi…

    Hlusta
    Jónas Jónsson frá Hriflu kennslubókarhöfundurPróf. Árni Magnússon+1
  3. 1702Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Asklok fyrir himin höfðu

    höfðingjar þessa lands
    af þeim er Íslands sögu sögðu
    sæmdir heiðurskrans.
    3 erindi til viðbótar

    Jón Aðils, um aldarfarið á fyrsta fjórðungi 18. aldar. Ævisaga lm. Odds Sigurðssonar bls. 85-6: ,,...má svo að orði kveða að allt væri í uppnámi í landinu og hver höndin upp á móti annarri en slík tímabil eru einmitt…

    Hlusta
    Askinn smíðaði Ólafur Sigurjónsson, Sigga á Grund skar út
  4. 1702Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Án þess nokkur örmum lyfti

    við Árhraun Hvítá kyrr
    hún þar sínu rennsli rifti
    sem Rauðahafið fyrr.
    1 erindi til viðbótar

    Fitjaannáll: ,,...þornaði Hvítá hjá Árhrauni á Skeiðum nær í 2 daga hvað og skeði 1594.” Hestsannáll segir: ,,Hvítá tapaði renslu sinni" svo að ,,þur varð hjá Árhrauni 1702" 2. Mósebók 21-22: ,,Þá rétti Móse hönd sína…

    Hlusta
    Moses - RauðahafiðHvítá séð af Hestfjalli +1
  5. 1703

    Þórdís til Skálholts er flúin í felur

    fólkið í landinu hreppstjóri telur
    Prentsmiðju Brynjólfur biskupi selur
    úr bókunum Arnæus velur - og stelur.

    Þórdís Jónsdóttir (1704) flýr til systur sinnar, Sigríðar (d. 1730) biskupsfrúar undan eiginmanninum, jungkæra Magnúsi Sigurðssyni (1651-1707), Bræðratungu. Þær systur dætur Guðríðar Þórðardóttur (1645-1707) Jónssonar…

    Hlusta
    Prentsmiðja - Gutenberg 1447BræðratungaBækur
  6. 1704Lag: Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 868

    Magnús Skálholts- mæðir stól

    og mótmælir í ræðum
    að Arnæus og Íslandssól
    aðeins fletti skræðum.

    Fitjaannáll II, 354: ,,Á alþingi dæmdar stórar sektir á Magnús Sigurðsson í Bræðratungu (1702) fyrir óskikkanlegt hneykslunarbréf, sem hann hafði tilskrifað prófessor Árna Magnússyni”. Árni var þá staddur í Skálholti er…

    Hlusta
    Prófessor Árni MagnússonÍslandsklukkan kallar Sigríði yngri Jónsd. þessu nafniSkálhot+3
  7. 1704Lag: Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 868

    Mjög nú þótti merkilegt

    og margur þar um rengdur
    að engri á Þingi í ár var drekkt
    og enginn þjófur hengdur!

    Enginn hengdur á Þingvöllum, en skv. Hestsannál, II, bls. 555, var hengdur þjófur á Kjalarnesi og skv. Öldinni átjándu var Steinunni, konu Sæmundar Þórarinssonar, annars tveggja bænda frá Árbæ, drekkt í Kópavogslæk og…

    Hlusta
    Drekkingarhylur í Öxará, Þingvöllum+3
  8. 1705Lag: Sá frjáls við lögmál

    Páll Vídalín gerði við Sigurð sætt

    síðar þó meira vildi
    en sá sem hyggst deila við Einarsnesætt
    athuga gang sinn skyldi.

    Már Jónsson: Árni Magnússon – æfisaga: ,,Um sama leyti (1705) sömdu Páll og Sigurður Björnsson um það fyrir milligöngu Árna (Magnússonar) að Páll tæki við lögmannsembættinu en Sigurður héldi hálfum launum”. Þremur árum…

    Hlusta
    VíðidalstungaPróf. Árni MagnússonUlrik Christian Gyldenlöve, stam.+3
  9. 1706Lag: Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869

    Gríska, hebreska, útræði og

    eldur geðjast Páli
    - árar, djöflar, áratog -
    ,,Undir hamrastáli”.

    + séra Páll Björnsson í Selárdal f. 1621, var manna kunnugastur öllu því sem vísan greinir frá: fornmálafræðingur og ritaði bók á latínu um galdur, Character bestiæ - á íslensku: Kennimark kölska, útg. 1976 af Ísafold.…

    Hlusta
    Arnarfjörður, KetildalirSkútaSr. Páll Björnsson, skútusmiður Selárdal (1621-1706)
  10. 1707Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Nýtilegu' ei neinu hent

    neyðin til þess rekur
    ei var Gísla görmum brennt
    grafir kvenþjóð tekur.

    Desjamýrarannáll, V, 284: ,,Kom sú mikla plága á Ísland, sem kallast stórabóla ...Þessi sótt kom út á Eyrarbakka í fötum íslensks manns, Gísla Bjarnasonar frá Vetleifsholti. ...Tal manna er að fötin hafi verið í…

    Hlusta
    Stórabóla
  11. 1707Lag: Enginn lái öðrum frekt - Bj.Þ. 831

    Í sjötugt skipum fjórum fátt

    til fiskjar úr Bjarneyjum reru
    en fimmtíu eftir bólu brátt
    bátar ei aftur sneru.

    Lýður Björnsson: Frá samfélagsmyndun til sjálfstæðisbaráttu, bls. 127: ,,Gengu 66 skip til fiskjar úr Bjarneyjum á Breiðafirði fyrir bóluna, en aðeins 15 eftir að henni lauk". (Skv. Jarðabók Árna og Páls.).

  12. 1708Lag: J. McGranahan 1883, Sálmabók 529

    Enginn var edrú á Þingi

    Oddur og Beyer við skál
    slöguðu og hrötuðu í hringi
    og heldur var stirt um mál
    nokkuð í stúf þó að stingi
    styðja sig máttu við Pál
    þeim helvítis Húnvetningi
    gegn höfða vildu þeir mál.

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Háttvirt Alþingi Íslendinga: Jón Aðils, Saga Odds Sigurðssonar, bls. 16: ,,...þinghaldið fór að jafnaði meira og minna í handaskolum. Menn komu of seint…

    Hlusta
  13. 1708Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Fullmektugur orðinn er

    Oddur með Páli Beyer
    gerðir þeirra varla ver
    Vídalín né þegir.
    1 erindi til viðbótar

    Am. Chr. Möller fær leyfi stam. Gyldenlöve til að dveljast í Danmörk og setur stiftamtmaður Odd Sigurðsson umboðsmann sinn með konungsleyfi, en am. Möller fær fógeta, Paul Beyer, sitt umboð ,,og var þeirra uppgangur…

  14. 1709Lag: Enginn lái öðrum frekt - Bj.Þ. 831 (Augun mín)

    Á er skollið enn eitt stríð

    við erfðafjendur, Svía,
    Íslandsskip í erg og gríð
    ógnað, sökkt og flýja.

    ,,Norðurlandaófriðurinn mikli" stóð frá 1700 um yfirráð á Eystrasalti og vildu Danir endurheimta Skán. Börðust Svíar einir á móti Rússum, Pólverjum, og Prússum auk Dana og Saxa frá 1709. Svíar gáfust upp í árslok 1719…

    Hlusta
    Sænskur sigur við Narva áður en Danir blönduðust í stríðið
  15. 1709Lag: Sá frjáls við lögmál

    Veraldarhyggja og höfðingjasnið

    Hólabiskup markar
    en mölur eyðir, raki' og ryð,
    í Ritningunni snarkar.
    1 erindi til viðbótar

    Torfi K. Stefánsson Hjaltalín, Saga Biskupsstólanna, 617: ,,Biskup (frá 1697) Björn Þorleifsson, d. 1710, var höfðinglega sinnaður, hélt stórar veislur og hafði mikið sveinahald. Vísitasíuferðir Björns voru…

    Hlusta
    Hólar í Hjaltadal 1819
  16. 1709Lag: Kross á negldur meðal manna

    Dýrt varð Helgu Þórð að þekkja

    - þeirra ein og sama rekkja -
    gáðu lítt að gæta sín
    móðir varð en eigi ekkja
    ógiftri var skylt að drekkja
    en vænt að heita Vídalín.

    Íslenskar æviskrár V, 118, úrdráttur: Þórður Vídalín (Þorkelsson Arngrímssonar lærða) (~1661-1742). Rektor, læknir. Foreldrar: Síra Þorkell Arngrímsson í Görðum á Álptanesi og kona hans, Margrét Þorsteinsdóttir prests í…

    Hlusta
    Stafafell í Lóni austurDrekkingarhylur í Öxará á Þingvöllum
  17. 1710Lag: Herra Guð í himnaríki

    Holdsveiki Björn til bana dró

    biskupinn þótti ei laginn
    þá Passíusálma til prentunar bjó
    og prýða vildi braginn.

    Tilvísun í Torfa K. Stefánsson Hjaltalín: Saga Biskupsstólanna, bls. 633: Lést Hólabiskup Björn Þorleifsson (1692, 1709) er bar nafn móðurafa síns, Björns frá Saurbæ, Rs., Magnússonar prúða. Hann keypti prentsmiðjuna af…

    Hlusta
    Holdsveikur maðurHólar í HjaltadalPassíusálmar Hallgríms Péturssonar, útg. Smára Ólasonar+2
  18. 1711Lag: Blessuð sólin elskar allt

    Endar og byrjar Skúlaskeið

    Skúla ei mótbyr ægir
    Reykjavíkur varðar leið
    Völl og Akra plægir.

    * 12. desember sýslumaður, Innréttingaforstjóri og fógeti Skúli Magnússon; langafi hans í föðurætt og alnafni, Goðdalaprestur, dó daginn eftir. Íslendingabók kveður Skúla eldra hafa verið frægan ræðumann. Saga frá…

    Hlusta
    Skúli fógeti Magnússon
  19. 1712Lag: Jólasveinar 1 og 8

    ,,Til meins er öllum Oddur gerður

    óvinum jafnt vinum sín”
    ódæll var og er og verður
    yfir þingi og landi gín.
    1 erindi til viðbótar

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Í bréfi til Páls Vídalín í desember 1712 segir Jón biskup Vídalín m.a.: ,,öllum er hann (Oddur) til meins gerður, bæði vinum og óvinum”. Einnig að hann…

    Hlusta
    Ulrik Christian Gyldenlöve, stam.Jón VídalínÖxarárfoss
  20. 1712

    Til Hafnar Árni halda má

    handrita´og bókalaus
    Því kóngsins hirð vill heyra og sjá
    hvert sé allt hans maus.

    Auk stríðs Dana við Svía geisar taugaveiki í Kaupmannahöfn og fjárhagur ríkisins afleitur. Rifjast þá upp fyrir stjórnendum að í tíu ár hafi Árni Magnússon verið hátt launaður á Íslandi og finnst nóg komið og kalla hann…

  21. 1713Lag: Austankaldinn á oss blés - Stúd. 86

    Ólyginn hefur Oddi sagt

    og aftur hann fyrir danskinn lagt
    að Pál hafi lögrétta' í engri akt
    og ætli að krefjast hans ljúki makt.
    1 erindi til viðbótar

    Oddur skrifaði stam. Gyldenlöve 1712 og undirbjó náðarhöggið. Tilvitnun í J. Aðils: Oddur Sigurðsson, 70: ,,Ég (Oddur) hef nýlega komist á snoðir um að flestir af sýslumönnum og réttarins þjónum á landinu væru mjög…

    Hlusta
    Ulrik Christian Gyldenlöve, stam.+2
  22. 1713Lag: Dvel ég í Draumalandi

    Ei fannst Páli að því gaman

    að eiga að víkja úr dómi
    ,,en Oddur sló forakt að öllu saman”
    og uppkvað háum rómi:
    ,,óvirðing við yfirrétt
    eigi kunnum líða”
    ef værir ekki af æðri stétt
    ætti þig að hýða.
    1 erindi til viðbótar

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Það gekk eftir, að Oddur lét til leiðast að víkja Páli úr lögmannsembætti á alþingi 1713. Það varð eftir að Páll neitaði að víkja úr lögmannssæti í…

    Hlusta
    ÞingvellirLögberg
  23. 1713Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Odd er besótti biskupinn

    blifu ekki sáttir
    Vídalín bæði út og inn
    æddi um port og gáttir
    brennivín til frúkosts fékk
    franskt það mátti vera
    því annað hæfði ekki smekk
    æðsta landsins séra.
    2 erindi til viðbótar

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Skv. Jóni Aðils: Oddur Sigurðsson bls. 96, 103, 113. Biskup Jón Vídalín ,,visiteraði” Odd Sigurðsson að Narfeyri, áður Geirröðareyri. Tvennum sögum fer…

    Hlusta
    NarfeyriNarfeyriJón Vídalín biskup +3
  24. 1714Lag: Fljúga hvítu fiðrildin

    Svan und Látrabjarg er bar

    betra sýndist þegja um
    að bregða fyrir þótti þar
    Þormóði' í Gvendareyjum.

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Viðauki Fitjaannáls II, 390: ,,..hrakti vicelögmanninn, Odd Sigurðsson, á sínu stóra skipi, Svan, með mönnum og góssi, frá Búlandshöfða undir Látrabjarg…

    Hlusta
    LátrabjargGvendareyjar+1
  25. 1714Lag: Fljúga hvítu fiðrildin

    Berjast vetur, vor og haust

    um völdin ríkar ættir
    Oddur dæmir launalaust
    þá Lárus Gottrúp hættir.

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Viðauki Fitjaannáls II, 390: ,,16. Julii afstóð Laurits (Gottrup) lögmaður lögmannsembættisþjónustu við vicelögmanninn Odd Sigurðsson, skyldi þó behalda…

    Hlusta
    Laurits Gottrup og frú
  26. 1714Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Pétur Bjarna bein upp gróf

    að batna gæti frúnni
    en fyr'ir því hvergi höfum próf
    að honum yrði að trúnni.

    Fyrir meðmæli Magnúsar Arasonar (1728) sem staddur var í Kh. lýkur með konungsbréfi 7. júlí beinamáli Péturs Bjarnasonar í Tjaldanesi, sem 1708 gróf upp kjálka vinnukonu sinnar, sem legið hafði 7 ár í kirkjugarðinum á…

    Hlusta
    Staðarhólsdalur
  27. 1715Lag: Ef þú bíður eftir mér

    5000 króna kellingin dó

    kílóin stórt sem hundrað vó
    Hóla- með tveimur biskupum bjó
    til barneigna reyndist þó ekki nóg,

    Viðauki Fitjaannáls II, 394: ,,Þá deyðu ...hústrú Ragnheiður Jónsdóttir í Gröf á Höfðaströnd, tveggja biskupa, herra Gísla og herra Einars, ekkja; átti ekkert barn”. Mynd Ragnheiðar á 5000 kr. seðli. Hún dóttir séra…

    Hlusta
    Ragnheiður Jónsdóttir t.v.(?)Ragnheiður Jónsdóttir biskupsfrú x 2Hólar í Hjaltadal
  28. 1715Lag: Hani, krummi, hundur, svín

    Aðgát haf við unga sál

    allir skyldu muna
    Oddi þótti æ við Pál
    eftir hýðinguna.
    2 erindi til viðbótar

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Lm. Páll Vídalín, þá rektor Skálholtsskóla, hýddi hinn stórættaða Odd Sigurðsson 1695/6, sjá það ár. Faðir Odds var sonur Sigurðar eldra Oddssonar, sem…

    Hlusta
    Danskt seglskip frá um 1800
  29. 1716Lag: Jólasveinar 1 og 8

    Þrætur landa þykja banal

    þeirra meðal Odds og Páls
    enda sumir oní kanal
    en Oddur (S)sig(.) þar skar á háls.
    3 erindi til viðbótar

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Hér fer á eftir lýsing Sverris Kristjánssonar á þeim íslensku valdsmönnum sem á fyrsta þriðjungi 18. aldar fengu framkvæmdavaldið í hendur. Með…

    Hlusta
    Holmens KanalÁ sjónum allt til bagaHæstiréttur Danmerkur+1
  30. 1716Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Vogs- í ósum vissi gerst

    virðar Eirík muna
    meta kunni meri og hest
    meira en Biblíuna.
    1 erindi til viðbótar

    Þetta ár lést séra Eiríkur Magnússon í Vogsósum í Selvogi, f. um 1638, frægur ,,galdramaður" úr ÞJóðsögum Jóns Árnasonar. Óskar Halldórsson helgar honum blaðsíður 155 til 190 í Galdrasögum útg. 1971, sem hann valdi úr…

    Hlusta
    VogsósarGaldrastafur
  31. 1717Lag: Ég hef svo margan morgun vaknað (SSB 81b)

    Kaupmaður þóttist klækjum beittur:

    ,,Klaga eg bæði vil og skal
    því mér nú þykir Þórður breyttur
    og þrjótur Jón í Hítardal
    Hrappseyjar-Benna' í bann ég les
    sem brást mér líkt og Einarsnes".

    Ólafsvíkurkaupmaður kannaði hverjir hefðu keypt fisk beint af útgerð. Taldi skylt að hann væri milliliður. Gerði rekistefnu, en fjöldinn slíkur að ekki varð við ráðið, en stærstu kaupendurnir fengu að heyra það. Þeir…

    Hlusta
    ÓlafsvíkStaðarstaðurHítardalur+1
  32. 1717

    Guðríður Ormsdóttir ógift dó

    engan lét sig dára
    af jarðvist hafði hlotið nóg
    hundrað og fjögu'rra ára.
    1 erindi til viðbótar

    Íslendingabók segir Guðríði húsfreyju búandi í Eyjum í Kjós 1681. „Dó 105 ára með allri sjón og heyrn“, segir Espólín. Páll Eggert Ólason segir hana í Íslenskum æviskrám látna 1718, 104urra ára. Skv. Íslendingabók deyr…

    Hlusta
    óþekkt kona teiknuð á Patreksfirði 1772"...með allri sjón og heyrn".
  33. 1718Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Forlistið stóra þeim varð þarft

    sem þágu úr Gautaborg
    fjölgunar þótti verða vart
    og víða heyrast org.

    Viðauki Fitjaannáls II, 397: ,,...stríðsskipið hraktist upp á Þorlákshafnarvík þann 4. Novembris af skelfilegum útsynningi. Vörpuðu þeir þar strengjum og hröktust svo þar alla nóttina. Þann 5. Novembris hjuggu þeir af…

    Hlusta
    (Þorláks)Hafnarskeið og ÖlfusárósNýtt skólaskip, Gotheborg, sem Svíar hafa smíðað+3
  34. 1718Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Forlíkuðust fjendur tveir

    fýsti Odd að hrella
    áður varir annar deyr
    ekki tókst sú brella.

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Eftir aldamótin átti vlm. / lm. Páll Vídalín í framastreitu við granna sinn á Þingeyrum, lm. Lárus Gottrup, og naut fulltingis biskups Jóns, frænda…

    Hlusta
    Jón VídalínÞingeyrakirkja - AltaristaflaJón Vídalín, biskup í Skálholti+1
  35. 1718Lag: Tíu litlir negrastrákar

    Sýslumaður og soldát par

    sér neitt gáfu um andann
    en báðir urðu biskupar
    og börðust svo við Fjandann.
    2 erindi til viðbótar

    Hólabiskup, Bauka-Jón Vigfússon, var sýslumaður í Borgarfirði þar til honum var vikið 1672 vegna tóbaks(sölu)mála. Jón Vídalín var óbreyttur soldát í her Danakonungs áður en varð biskup. Predikanasafnið Jóns,…

    Hlusta
    VídalínspostillaSkh.biskup Jón VídalínJón Vídalín biskup
  36. 1719Lag: Berhöfðaður burt ég fer - Bj.Þ. 619

    Magt h'onum hafði Löve léð

    en lítið frá Oddi markvert séð
    nú virðing farin og vinir með
    hann valdlaust, stakt og skorðað peð.

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Jón Aðils: Oddur Sigurðsson, bls. 135: Fuhrmann kominn (1718) til að skakka leikinn með það umboð frá stam. Gyldenlöve, er Oddur hafði áður haft. Tóku…

    Hlusta
    Ulrik Christian Gyldenlöve Kristjánsson V.+4
  37. 1719

    Danskurinn gerir hollenskum hrekk

    á Hofsósi að þeim læðist.
    Þormóður dauður og druknaður Beck
    doktor Bjarni fæðist.

    Dönsk herskip voru oft á sveimi við Ísland þegar hlé var á bardögum við Svía. Þó ekki beinlínis til landhelgisgæslu og verndar fiskistofnum nema helst við Vestmannaeyjar þar sem kóngur rak oft sjálfur útgerð og á milli…

  38. 1720Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Í Vatnsdal áður voru þar

    á vakki milli túna
    en Bjarnastaðabeljurnar
    baula ekki núna.

    Jónas Ragnarsson, Dagar Íslands, 8. okt: ,,Skriða féll úr Vatnsdalsfjalli í Austur-Húnavatnssýslu á bæinn Bjarnastaði og í Vatnsdalsá. Sex manns fórust (auk húsdýra). Skriðan fyllti upp farveg árinnar og þar fyrir ofan…

    Hlusta
    VatnsdalurVatnsdalshólarVatnsdalur - hólar
  39. 1720Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Flestum vel til Vídalíns

    þótt væri í ræðum óður
    og nokkur þætti vinur víns
    var þó biskup góður.
    2 erindi til viðbótar

    Lést að Biskupsbrekku á Uxahryggjaleið 30. ág. Skálholtsbiskup, Jón Vídalín, f. 21. mars 1666. Út kom 1720 síðari hluti Postillu Jóns, fyrri hluti kom 1718. Hélt sína frægustu predikun í Þingvallakirkju 1718. Um…

    Hlusta
    Djöfullinn, merki Manuntd.BiskupsbrekkaJón Vídalín biskup
  40. 1720Lag: Veik er mundin opin undin - Bj.Þ. 915

    Þá stiptamtmaður fyrstur fór

    að finna landann,
    allir kenndu í einum kór
    Oddi vandann

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Stam. Gyldenlöve kom aldrei til Íslands. Eftirmaður hans, Peter Raben, komst til Hafnarfjarðar en ekki til þings vegna gigtarkasts. Erindi hans var að…

    Hlusta
    Arnarstapi, Snæfellsnesi
  41. 1721

    Héruð skaftfellsk þegnum þekku

    þyrluð mekki.
    Hjörleifs- bæði (H)höfða- og brekku
    hittum ekki.

    Lýður Björnsson, Frá samfélögum, bls. 28: Kötlugos. ,,Öskufall og jökulhlaup olli íbúum Skaftfellssýslu þungum búsifjum, og hlaupið 1721 tók af bæina Hjörleifshöfða og Höfðabrekku".…

  42. 1721Lag: Kálfar tveir í kúamynd – eða

    Þjóð að fjölgi þurfi tvo

    þykir vera sannað
    en fátæklingar skulu, sko,
    skemmta sér við annað.
    2 erindi til viðbótar

    Inga Huld Hákonardóttir, Fjarri hlýju hjónasængur, Mál og menning 1995, bls. 263–264. Og https://is.wikipedia.org/wiki/Hj%C3%B3naband: https://www.wikiwand.com/is/Hj%C3%B3naband ,,Alþingissamþykkt frá árinu 1720 kvað á…

    Hlusta
  43. 1722Lag: Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830

    Jón þótt væri ei Vídalín,

    og vart um bækur fróður
    og engum byði brennivín,
    biskup þótti góður.

    Jón (1665-1736) prófastur og fræðimaður Halldórsson í Hítardal (1569, 1664) talinn öruggur um biskupskjör ef sóst hefði eftir, en það gerði Jón á Stað í Steingrímsfirði Árnason (1665-1743) og varð röggsamur…

    Hlusta
    Stadarkirkja, SteingrimsfirdiAugust Hermann Francke (1663-1727)Brynjólfskirkja í Skálhloti
  44. 1723Lag: Veik er mundin opin undin - Bj.Þ. 915

    Höfðingjunum höndin laus,

    á höfuðbóli
    ekkert vissu í sinn haus
    á Ingjaldshóli.

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Skv. sögu Odds Sigurðssonar eftir Jón Aðils: Til þinghalds í kirkjunni á Ingjaldshóli 4.-5. nóv. mætti lm. Oddur Sigurðsson drukkinn og hleypti upp…

    Hlusta
    Ingjaldshóll á SnæfellnesiRif á SnæfellsnesiHjá Arnarstapa+3
  45. 1724Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Reykjahlíð nú hraun burt þvær

    Holmmæðgurnar bralla
    Apploníu elska þær
    ótakmarkað varla.
    Oddur Sigurðsson víst má
    sig nú illa bera
    honum víkur Fuhrmann frá
    ,,þótt fyrr hefði mátt vera".
    1 erindi til viðbótar

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Reykjahlíð undir hraun í Mývatnseldum 1724-29 er voru sprungugos á Hverfjallsskeiði og hófust með sprengigosi er myndaði Víti, en síðar rann hraun frá…

    Hlusta
    Hraun við MývatnReykjahlíð við MývatanBessastaðir 1834+3
  46. 1724Lag: Enginn þarf að óttast síður

    Sjaldan var að góðu getið

    Guðrúnar, þá Bæ fékk setið
    bændur henni færðu í fletið
    flotið, smérið, þorskinn, ketið. .
    1 erindi til viðbótar

    Lést barnlaus ekkja, Guðrún ríka (f. 1637) í Saurbæ, Rauðasandi, Eggertsdóttir ríka á Skarði, Björnssonar ríka á Bæ, Rs. Magnússonar prúða. Maður Guðrúnar, sm. Björn (1650-1679), var sonur Vísa-Gísla Magnússonar, sjá…

    Hlusta
    Brú á SiglunesáKirkjan, Saurbæ, flutt frá Reykhólum
  47. 1725Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Oddur þoldi hróp og háð

    handtekinn á Rifi
    en mamma' h'ans átti alltaf ráð
    undir hverju rifi.
    Odds ei lægði ættardramb
    eymd þótt mætti líða
    en grátt að launa Gottrúp lamb
    gæti þurft að bíða.
    1 erindi til viðbótar

    Þjóðsaga er að Oddur hafi dregið korða úr slíðrum á Rifi, en ,,útlendur herforingi” hafi slegið hann úr höndum hans. Sé svo, þá er Magnús Arason (1728) ,,einn sem til greina kemur " (J. Aðils). Um vopnaburð þeirra…

    Hlusta
    Ragnheiður Steindórsdóttir og Guðjón Davíð Karlsson í leikriti Þjóðleikhússins, ,,Loddarinn". Hér sett í gervi mdm. Sigríðar Hákonardóttur og Odds sonar hennar, Sigurðssonar, þá fv. lm.Rif á Snæfellsnesi+2
  48. 1725Lag: Dvel ég í Draumalandi

    ,,Á Þingi sofa þeir til nóns,

    þrátta og lygi sverja,
    Íslandi vinna allt til tjóns,
    okra, stela, berja.
    Ef takast ætti af að má
    Oddur rangt hvað gerði
    Ísland þyrfti fiscal fá
    með fjóra skyttuverði.”

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Jóhann Gottrup tók við lénum Odds Sigurðssonar sem am. Fuhrmann svipti hann 1721. Þeir Jóhann og Oddur vörðu síðan 12 árum í málaferli og ryskingar.…

    Hlusta
    Fiscal og 4 skyttuverðir +3
  49. 1726Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Fyrrum Oddur hátt bar haus

    herraður og lendur
    en æru- bæði og eignalaus
    uppi rúinn stendur
    virðum þótti ræðan raus
    og ráð hans eigi bæti
    að hann settist ærulaus
    upp í lögmanns sæti.

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Móðir hans var Sigríður Hákonardóttir sm. Gíslasonar lm. Hákonarsonar sm. Árnasonar sm. harðdrægs áflogamanns (1569) Gíslasonar og sú föðurætt til…

    Hlusta
    Robespierre handtekinn, höggvinn 28. 7.  1794Deilt við dómarannStaðarstaður+5
  50. 1727

    Öræfajökull alls til vís

    ösku dreifir, kviku og ís
    eldur niðri, uppi frýs
    elfur spretta þá hann gýs.

    Fyrra gosið í Öræfajökli sem sögur fara af, var 1362 og eyddi byggð í Öræfum í heilan mannsaldur og var mannskæðasta gos á Íslandi. Í gosinu 1727 fórust 3 menn. Frásögn séra Jóns Þorlákssonar (1700-1790) sem prestur var…

    Hlusta
    Hvannadalshnjúkur
  51. 1728Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Kviknaði í Kiöbenhafn

    kóf og drunur, blossar
    brunnu kirkja, bókasafn
    bílæti og krossar.

    Kaupmannahöfn brann 20. okt. að einum þriðja hluta. Rúmlega 400 bókum Árna Magnússonar var bjargað, en 12 skinnhandrit brunnu. 16 þúsund manns urðu heimilislaus. M.a. brann dómkirkjan, Vor Frue Kirke, sem byrjað var að…

    Hlusta
    Kaupmannhöfn brennur 1728Prófessor Árni MagnússonVor Frue Kirke brænder +1
  52. 1728Lag: Minna strengja hljómur hreinn - Bj.Þ. 858

    Magnús Ara á ,,fleygi"-ferð

    færra hugði að seglum
    mundi að hafa með sér sverð
    minna skeytti neglum.

    + Magnús mælingamaður Arason, fyrr herforingi og bar e.t.v. þann titil þá enn, en mælingastarf hans var á vegum stjórnarinnar. Hann sagður sjaldan skilja við sig sverðið og samkvæmt sögum voru þeir fv. lm., Oddur…

    Hlusta
    +3
  53. 1729Lag: Ó, blessuð sýn - SB 307

    Illuga galdur báru á brýn

    þótt brenni ei lengur nú
    lönguhaus mat Hjaltdalín
    á hálfa aðra kú.

    Veðurgapi: Tvítugur piltur, Illugi nefndur, sannur að sök sem metin var 1 1/2 kýrverð. Hafði strákur sett lönguhaus á prik við Ánanaust og gapti á haf út. Sýsluvöld í Vík (Reykjavík) hafði Jón Oddsson Hjaltdalín, sá…

    Hlusta
    Stakkstæði við ÁnanaustNíðstöngStígur í vestur frá Ánanaustum +2
  54. 1730Lag: Einn var að smíða ausutetur

    Þórður, er almannarómur rymur,

    renna má niður brók
    Reykjadalsprestsins leyndarlimur
    lögrétturannsókn tók.

    Vegna þess orðróms, að séra Þórður Jónsson (1698-1776) í Reykjadal hefði látið umskerast að hætti Gyðinga, skoðar fjögurra manna nefnd leyndarlim hans í lokuðu tjaldi á Þingvöllum. Einn þeirra var Jón Hjaltdalín sm.…

    Hlusta
    ÞingvellirUmskurn+1
  55. 1730Lag: Einn var að smíða ausutetur

    Klukkan Friðriki fjórða glymur

    hans foráð býsna klók.
    Uppi, að Pétri, Árni fimur
    afritar Lífsins-bók

    Létust prófessor Árni Magnússon handrita- og bókasafnari og kóngur Friðrik IV. sem fjallað er um á árinu 1702 í sambandi við nýja verðskráningu, sem varð hagstæð Íslendingum fyrir málafylgju Danans, lm. Lárusar Gottrup…

    Hlusta
    Friðrik IV.Prófessor Árni Magnússon St. Pétur með lífsins bók+2
  56. 1731Lag: Ég hef svo margan morgun vaknað

    Jón M. er millum meyja glaður

    þótt misst öll hafi völd og fé
    og um hann gengur ennþá slaður
    örkumlamaður þó að sé
    hans mjaðmir stirðar, magnlaus hné
    því megi gera' ALLT sitjande.

    Saga frá Skagfirðingum I, bls. 139, aths. 19 og 148, 8, úrdráttur: Jón Magnússon (1662-1738), sem brotið hafði af sér prestskaparréttindi með barneign á skólaárum, fékk uppreisn 1687 og varð prestur í Hjarðarholti en…

    Hlusta
  57. 1731Lag: Dvel ég í draumahöll

    Allt nú þykir ósiður

    sem áður prýddi vitra
    píetisminn plagsiður
    predikaður ytra
    lokað Kóngsins Teater
    tigna skal hið bitra
    lúskra ber á Lúsífer
    leyfist ekkert glitra.

    Annálar segja Christian VI. hylltan á óheppilegum árstíma, 12/9 - menn nýkomnir heim til sín af þingi. Athöfnin þótti snubbótt, engar veitingar á Þingvöllum. ,,Mannfjöldi sá mesti sem verið hafði á Þingvöllum í 200 ár",…

    Hlusta
    Pontoppidan höf. fermingarkvers píetistaT.v., Kgl. Leikhúsið, Kh. ~1730Lúsífer
  58. 1731

    Ymislegt fyrir sér Kolbeinn kann

    kneyfti og drjúgt af Mími
    á latínu útlagt hefur hann
    Hallgrímssálma með rími.
    2 erindi til viðbótar

    Séra Kolbeinn Þorsteinsson, lengst prestur í Miðdal f. 1731, d. 1783 af holdsveiki. Eftirffarandi bíður frekari athugunar.) Páll Eggert Ólason í Íslenskum æviskrám: ,, ...tekinn í Skálhotsskóla 1746, stúdent 1750 með…

  59. 1732Lag: Berhöfðaður burt ég fer - Bj.Þ. 619

    Jón Marteins virti ei boð né bönn

    en biskupsdóttir ung og grönn
    í Hólaskóla sök hans sönn
    sendur burt á næstu önn.

    Helga (~1705-1750), dóttir Steins Hólabiskups Jónssonar - ung ekkja eftir Jón Vídalín Pálsson, d. 1726 á Hjaltadalsheiði - varð á Hólum ólétt eftir skelminn Jón Marteinsson, sem komst í Hólaskóla haustið 1730 eftir að…

    Hlusta
  60. 1733Lag: Vatnsdælingastemma - Bj.Þ. 838

    Byr und vængi flmtan fær

    flím ei trúum sjatni:
    barn eitt undir belti tvær
    beri á Álftavatni.

    Sigþrúður, blind dóttir gáfukonunnar (Ísl. æviskrár) Kristínar Ólafsdóttur, f.~1664, d. þetta ár, og sr. Jóns á Staðastað Jónssonar, fæðir 4/2 á næsta bæ, Álftavatni, soninn Bjarna, sem skráður er sonur Jóns Gíslasonar…

    Hlusta
    Mælifell í Skagafirði um 1900Staðastaður, Snæfellsnesi+3
  61. 1733Lag: 1 lítill, tveir litlir, þrír litlir fingur

    Vel komu Oddi Sigríðarsjóðir

    syni' ei gleymir um eilífð móðir
    þótt Danir væru um fortíð hans fróðir
    fyrndar þær létu slóðir.

    + Sigríður Hákonardóttir, f. 1648, mdm. sr. Sigurðar Sigurðssonar, Oddssonar (bisk.) á Staðastað, sem á þessu sínu dánarári hafði hlotið stóra arfhluti úr dánarbúi Kristínar Guðbrandsdóttur, pr. Vatnsfirði Jónssonar…

    Hlusta
    VatnsfjörðurLeiráRauðamelur, Snæfellsnesi+2
  62. 1734Lag: Hani, krummi, hundur, svín

    Sýslumanna krenkjast kjör

    - kætist flokkur bófa -
    áður höfðu handtök snör
    og hengdu alla þjófa.

    Refsiréttur Norskulaga innleiddur á Íslandi með konunglegri tilskipun, Alþingisbók bls. 143. Norskulög lina ákvæði Jónsbókar um hengingar þjófa. Samkvæmt þeim skyldi hegna þjófum með þrælkunarvinnu og hegningarhúsvist,…

    Hlusta
    Þingvellir+3
  63. 1734Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Prestar mátu prófast slys

    pukra ei né leyna
    að ,,óumventan innvortis”
    óskuðu sér Steina.

    Séra Þorsteinn Pétursson (1710-1785) útskrifaðist þetta ár stúdent úr Skálholtsskóla ,,óumventur innvortis” eins og hann orðar það í ævisögu sinni og gagnrýnir að viðgengist. Þetta er sama árið og píetistinn Jón…

    Hlusta
    StaðarbakkakirkjaLudvig Harboe SjálandsbiskupLaugarbakki í Miðfirði
  64. 1734Lag: Dvel ég í draumahöll

    Rektor Skálholtsskóla kærir

    og skeytir ei orð- um sporið:
    ,,ölmusupiltar ei ferðafærir
    föggur geti ei borið
    hinir fleiri' og feita bita
    fá og rífra skorið
    en ná ei á sér haldið hita
    horaðir um vorið".
    1 erindi til viðbótar

    Torfi Hjaltalín Stefánsson í Sögu Biskupsstólanna, 616: ,,...í bréfi til kennslumálanefndarinnar dönsku 1734 er til lýsing eftir Jón skólameistara (Thorchilius) á ástandi skólamála í Skálholti á árunum 1729-1733. Meðal…

    Hlusta
    Fangi í borgarastríði USA 1861-1865Skólavarðan, SkálholtiSkálholtskirkja Brynjólfs ~1652+2
  65. 1734Lag: Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

    Góu- hefur þrællinn þótt

    þungur í skauti vera
    fáir gull í greip hans sótt
    grand mátt þaðan bera.

    Af fenginni reynslu af illviðrum með skiptöpum á góuþræl voru margir formenn hættir að róa á góuþræl. Tók þá þetta ár ekki betra við en svo að yfir reið Suðurlandsskjálfti, einn með þeim hörðustu. Suðurlandsskjálftinn…

    Hlusta
    Þjórsá, IngólfsfjallVillingaholt í FlóaBrúará og Vörðufell séð frá Mosfelli
  66. 1735Lag: Þrútið var loft og þungur sjór

    Siglfirðinga þjáði þröng,

    þótti sækja að
    Þorleifur Skafta í Skarði söng
    skratta niður kvað.
    3 erindi til viðbótar

    Saga frá Skagfirðingum bls, 59: ,,Um Siglufjarðarskarð var stígur einn á veginum er mönnum varð að ófarnan mikil; hafði það verið um 100 vetur að menn höfðu séð þar sýn nokkra, líka skýstrokki og hafði stundum steypst á…

    Hlusta
    StrákagöngHéðinsfjarðargöng+3
  67. 1736Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Thorkelíusar bann og boð

    Brynjólfur réð klaga
    úr því máli ofin voð
    af spratt Harboes saga. .
    4 erindi til viðbótar

    Jón Thorchilius (1697-1759) Skálholtsrektor 1728-37, var snortinn af píetismanum og hafði bannað skólapiltum að starfa fyrir veraldlega embættismenn á sumrin. Brynjólfur (1708-1771), 1734 settur aðstoðarsýslumaður í…

    Hlusta
    Ludvig HarboeSkálholt - teikningSkólavarðan, Skálholti+1
  68. 1736Lag: Dvel ég í draumahöll

    Allt nú þykir ósiður

    sem áður prýddi vitra
    píetisminn plagsiður
    predikaður ytra
    lokað Kóngsins Teater
    tigna skal hið bitra
    lúskra ber á Lúsífer
    leyfist ekkert glitra.

    Píetisminn - hreintrúarstefna - fór sigurför um evrópu. Honum fylgdi Kristján VI., kóngur 1730-46. Ekki var veitt áfengi við hyllingu hans á Þingvöllum 1731, og 1736 var bannaði allt silki - nema svart - og glitofin…

    Hlusta
    Kngl. Leikhúsið KaupmannahöfnKonunglega leikhúsið, Kh.+3
  69. 1737Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Sína skoðun láta í ljós

    lýðum eigi bönnum
    ei fékk Bjarni eintómt hrós
    af sínum samtíðarmönnum.
    2 erindi til viðbótar

    Saga frá Skagfirðingum I, bls, 64: ,,Eystra bar svo til að tvær stúlkur urðu þungaðar og kenndu Skúla báðar; vann hann eið fyrir aðra en önnur var Steinunn, dóttir Bjarnar prófasts í Görðum, Jónssonar sýslumanns…

    Hlusta
    Stóru-Akrar - gamli bærinnSkúli fógeti MagnússonÞingeyrar+2
  70. 1738Lag: Blessuð sólin elskar allt

    Við Háskólann kenna nú fleiri fög

    fílu og júru líka
    Þorsteinn vissi að velja lög
    og Valgerði Bjarna ríka.

    Þorsteinn Magnússon (1714-1785) lýkur fyrstur Íslendinga háskólaprófi í lögfræði. Skv. tilskipun 10. febrúar 1736 var stofnað til fullkomins lögfræðiprófs við Kaupmannahafnarháskóla. Settist þá þegar í lagadeildina…

    Hlusta
    KaupmannahafnarháskóliGarður, Kh. - Regensen
  71. 1739Lag: Minna strengja hljómur hreinn - Bj.Þ. 858

    Ekki fleiri fljóðum drekkt

    fangaverðir lúnir
    þetta var orðið ómögulegt
    - allir pokar búnir

    Af Vísindavefnum: ,,1739 var Guðfinna Þorláksdóttir frá Sæbóli á Ingjaldssandi í Vestur-Ísafjarðarsýslu dæmd til dauða fyrir dulsmál og finnast engin bréf um hana næstu árin, þannig að líklega var henni drekkt á…

    Hlusta
    Drekkingarhylur í Öxará, ÞingvöllumSæból á IngjaldssandiIngjaldssandur
  72. 1739Lag: Minna strengja hljómur hreinn - Bj.Þ. 858

    Frá oss er nú farinn Steinn.

    Frétt sú áfram berist
    að Finni Jóns sé fæddur sveinn
    er frægur biskup gerist.

    + Steinn Jónsson Hólabiskup, f. 1660. Steins er getið fyrir biblíuþýðingu sína, þá þriðju á íslensku, og kom út 1734. Kóngur, Friðrik 4., á að hafa óskað þess að þýðingin tæki mið af dönsku biblíunni, en Ísland var eina…

    Hlusta
    Hannes Finnsson biskupFinnur Jónsson, biskup
  73. 1740Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Nú er orðið illt að fá

    efni og þráð til sekkja
    þurr til botns hún Öxará
    engri hægt að drekkja.

    Annáll Eggerts Ólafssonar segir þurrt sumar og Öxará þorrið í viku. Það gæti hafa lengt líf einhverrar konu. Næst þegar konu var drekkt varð hún að sauma pokann utan um sig sjálf, sjá 1754.…

    Hlusta
    Drekkingarhylur í ÖxaráÖxarárfoss, Þingvöllum
  74. 1740Lag: Syngur lóa' í laufgum mó - Bj.Þ. 869

    Hollenskir - er gerði garð -

    gráum lentu í vanda
    en fjaran Skúla fengsæl varð
    er fleyin tóku að stranda.

    Tvær hollenskar duggur strönduðu í Skagafirði með skömmu millibili. Gísli Konráðsson kallar þá fyrri varningsduggu og hafi strandað i norðanveðri úti fyrir Mallandi á Skaga í júlí 1740, hin síðari á Borgarsandi 16.…

    Hlusta
    Gamli bærinn, Ökrum+2
  75. 1740Lag: Afi minn fór á honum Rauð

    Hvorugur kunni hinum neitt

    að hrósa í smáu, - stóru
    gekk þá báða yfir eitt:
    erindisleysu fóru.

    Íslands árbók VI., bls. 7: ,,Reistu utan prófastar 2, nefnilega síra Björn Magnússon ...er síðar fékk Grenjaðarstað og síra Halldór Brynjólfsson frá Staðarstað, báðir upp á sama erindi, sem var að biðja um Hólastól, en…

    Hlusta
    Hólar í HjaltadalGrenjaðarstaðurStaðarstaður á Snæfellsnesi
  76. 1740

    Er Finnur Hóla frá sér bað

    fyrir neðan hafði vað
    skynjaði að Skálholtsstað
    skyldi sitja og nytja.

    Íslenskar æviskrár Páls Eggerts Ólasonar, ll, 10, úrdráttur: Finnur Jónsson (1704-1789) fekkst ekki til að sækja um Hólabiskupsdæmi 1740 og barði við sjúkleika. Gegndi biskupsembætti í Skálholti 1743-1747 - settur…

  77. 1741Lag: Voða bágt á Vesling Rútur

    Á Hólum lítt við lærdóm setið

    leggja sig að deginum
    skólasveinar flestir fetið
    fara á menntaveginum.
    1 erindi til viðbótar

    Ludvig Harboe sendur 1741 með biskupsvald og ferðaðist um landið og kynnti sér kristnihald og kunnáttu presta til 1745. Harboe varð biskup til Niðaróss og síðar Sjálands. Ferðin var farin að undirlagi Jóns Thorchiliusar…

    Hlusta
    Ludvig Harboe biskupHólar 1819...leggja sig að deginum+3
  78. 1741Lag: Leslie Sarony - Rhymes (1932)

    Hér liggur hann Oddur í Leiru

    sem lögmaður var með meiru,
    hermi ekki par
    hvernig hann var
    að hann taki ekki´ upp á fleiru.

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. ,,Morguninn 5. ágúst 1741 fannst Oddur (Sigurðsson fv. lm.) örendur í rekkju sinni (að Leirá). Hafði hann gengið alheill til sængur um kvöldið og enginn…

    Hlusta
    LeiráJ.P.Marat- myrrtur af konu í baði 13/7 1793Sveinum Trumps 6. jan. 2021 lýst líkt og sveinum Odds
  79. 1741Lag: Þú komst í hlaðið

    Í Skálholtspiltum þá gólu garnir

    ei gat Jón Þorkelsson setið hjá
    þær álitlegustu væru varnir
    að vitja kóngs og í borðið slá.
    2 erindi til viðbótar

    Ludvig Harboe sendur 1741 með biskupsvald og ferðaðist um landið og kynnti sér kristnihald og kunnáttu presta til 1745. Harboe varð biskup til Niðaróss og síðar Sjálands. Ferðin var farin að undirlagi Jóns Thorchiliusar…

    Hlusta
    Hólar í HjaltadalLudvig Harboe, biskup
  80. 1742Lag: Dvel ég í Draumahöll

    Örlög vor jarðnesku einn hefir skapt

    enginn þau kann umflýja
    Nicolaus Magnæus má hafa haft
    ,,mala concientia”
    tóbaks- hann dósirnar tók eigi með
    tímdi ekki að láta þær grotna
    á Þingvöllum oft hefur annað eins skeð
    þá ótugtir fengu að blotna.

    Annálar V, Íslands Árbók: ,,Það skeði á alþingi um sumarið að Nicolaus Magnússon, sýslumaður í Rangárþingi, fór úr rúmi sínu eina nótt og óð yfir Öxará. Var með hönum ungur maður... sem vildi hafa gætur á hönum ...og…

    Hlusta
    NikulásargjáNikulásargjáTóbaksdósir Gullbúðin Bankastræti
  81. 1743Lag: Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869

    Hörmangarafautum fátt

    fyrir- verður gefið
    til þeirra hugsa bændur bágt
    og bjóða ekki í nefið.

    16. apríl 1742 bauð Íslenska verslunarfélagið kóngi helmingi hærra en áður í Íslandsverslunina, 16.000 rd. Félagið hafði verslað í 10 ár og var með góða reynslu og hafði komið sér vel , við landsmenn - ef ekki best -…

    Hlusta
    Nef / munntóbak
  82. 1743Lag: Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869

    Enga spýtu í má ná

    svo ekki minnkar slaður
    höll er reisir Ökrum á
    ungur sýslumaður.
    1 erindi til viðbótar

    Víðast timburskortur nema á Ströndum og Melrakkasléttu. Kaupmenn fluttu lítið timbur af því að það var rúmfrekt og sótt til Noregs, en kaupförin sigldu frá Danmörk eða Norður-Þýskalandi. Því var stundum efnt til…

    Hlusta
    AkrarSkúli Magnússon
  83. 1744Lag: Minna strengja hljómur hreinn - Bj.Þ. 858

    Harboe farinn af Hólastól

    hvar ei réði terra
    hvergi sagðist, heims um ból,
    hafa séð það verra.

    Torfi K. Stefánsson Hjaltalín í Sögu Biskupsstólanna, 620: ,,Segir Harboe að Steinn biskup hafi gert staðinn (Hóla) að umrenningabæli og sjúkrahúsi. Þá var skólinn í mestu vanhirðu. ...Hann byrjaði í nóvember og endaði…

    Hlusta
    Hólar í Hjaltadal 1819Ludvig Harboe biskup
  84. 1744

    Harboe fékk við Hjörleif rætt

    og hann var enginn kálfur
    engu við hans vit varð bætt
    og vissi það best sjálfur.
    1 erindi til viðbótar

    Jón Árnason Skálholtsbiskup lést 1743. 1744 hélt Harboe til Valþjófsstaðar í Skálholtsstifti og boðaði til sín presta. https://mats.photoshelter.com/image/I0000jY2sC1D.zfc Séra Ágúst Sigurðsson (1938-2010) ritar um komu…

  85. 1744Lag: Blessuð sólin elskar allt

    Afarmenni að burðum Björn

    á Burstafelli austur
    til aldurs komust ellefu börn
    til æviloka hraustur.

    Lést Björn Pétursson (~1661-1744) sýslumaður, Burstafelli í Hofsárdal í Vopnafirði. Íslenskar æviskrár: ,,Hann var afarmenni að burðum og hafði eftir því skaplyndi og vöxt, talinn bjargvættur sakamönnum, hérðasríkur…

    Hlusta
    Burstafell
  86. 1745Lag: Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

    Eini þjófur Árnesinga

    útlegðina velur
    en helmingur allra Húnvetninga
    hrossi' og sauðum stelur.

    Eyvindur Jónsson (1714- ~1783) strýkur til fjalla. https://is.wikipedia.org/wiki/Fjalla-Eyvindur Guðni Ágústsson, þá alþingismaður, og Pálmi Jónsson fv. ráðherra, hittust á Hveravöllum í ágúst 1998 þegar þar var…

    Hlusta
    Hver er maðurinn við hlið Guðna Ágústssonar?ÚtlaginnEyvindarkofaver+4
  87. 1746Lag: Sigga litla systir mín

    Halldór betri byrjar naut

    og bjóst til vetrardvalar
    en þola hlaut er Þóra hnaut
    það sem blauður hjalar.
    2 erindi til viðbótar

    Dóri: Halldór Brynjólfsson (1692-1752) prófastur Staðastað, komst utan ári fyrr en Ólafur Gíslason, biskupskandidat til Skálholts. Halldór vígður biskup til Hóla í Vorrar Frúar kirkju á boðunardegi Maríu, 25. mars, en…

    Hlusta
    Hólar 1819Vor Frue Kirke 1746
  88. 1746Lag: Sigga litla systir mín

    Óguðlegt má forðast fas

    - fetta sig né bretta -
    iðka skal ei óþarft mas
    ekki spyrja frétta.
    3 erindi til viðbótar

    HÚSAGATILSKIPUNIN: Píetismi, þ.e., hreintrúarstefna, var í algleymingi í valdatíð Kristjáns VI., 1731 til 1746. Skyldi þá líferni þegnanna vera flekklaust ella biði þeirra helvíti. Húsagatilskipunin, útgefin þetta ár,…

    Hlusta
    GapastokkurKristján VI.+3
  89. 1747Lag: Ó, fögur er vor fósturjörð

    Jón frá Dresa dæmdur slapp

    og dró sig norður sanda
    sem hvorki færði fé né happ
    en fógetanum vanda
    Bárðdælingar brugðu við
    brátt í einum hvelli
    runnu á lykt þá suðu svið
    saman þrír í helli.

    Ketilsstaðaannáll: ,,Fram úr Bárðardal í Þingeyjarþingi eru til fanga teknir 3 útileguþjófar í einum helli, Ívar, Jón og Árni burtstrokinn úr Snæfellssýslu fyrir sakir stórþjófnaðar. Jón var Erlendsson og var á þinginu…

    Hlusta
    Útilegumaður?Bárðardalur við GoðafossBárðardalur (Gistiheimilið Kiðagil)Myndband
  90. 1747

    Prestar mátu prófast slys

    pukra ei né leyna
    að ,,óumventan innvortis”
    óskuðu sér Steina.

    Séra Þorsteinn Pétursson (1710-1785) á Staðarbakka verður 1747 að fullu prófastur Húnvetninga, en var áður aðstoðarprófastur fyrir tilstuðlan L. Harboe. Sjá 1757 og 1736. Sama árið og Jón Thorchilius kærði skólahaldið í…

    Hlusta
    Staðarbakkakirkja
  91. 1747Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Víst í biskups virðugt starf

    viljum enga dóna
    Ólafur brást ei að þá svarf
    embættinu að þjóna
    oft í skugga annars hvarf
    og því gerum skóna
    að burðast þætti bágt með arf
    Brynjólfs, Þórðar, Jóna.

    L. Harboe réði biskupsvali beggja stóla sem lausir urðu 1742 – 3. Ekki þótti um auðugan garð að gresja meðal geistlegra utan Finns Jónssonar í Reykholti. Að hann varð ekki fyrir valinu þá, hefur verið umhugsunarefni og…

    Hlusta
    L. Harboe
  92. 1748Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Sögu skrýtna segja skal

    sú þó engin lygi:
    ultima cena í Otradal
    öll í bríaríi
    klerkur samdi kæruskjal
    á kollega sinn, Láka,
    sér vildi í Selárdal
    séra Jón Teits skáka.

    Séra Þorlákur (~1711-1773) í Selárdal, Guðmundsson, faðir Jóns þjóðskálds (1744-1819), þjónaði drukkinn við altarisgöngu í Otradal og missti prestinn eftir kæru sem barst frá séra Jóni Teitssyni prófasti, gestgjafa hans…

    Hlusta
    BíldudalurGamli kirkjugarðurinn í OtradalSelárdalskirkja+4
  93. 1749Lag: Ó, fögur er vor fósturjörð

    Í heiminn Bólstaðarhlíðar Björn

    bóndi og klerkur mætur
    átti samtals átta börn
    og allt voru það dætur
    við það urðu allvel sátt
    enda mjög að vonum
    því fleiri' h'efur presta enginn átt
    enn að tengdasonum.

    * sr. Björn Jónsson (d.1825) í Bólstaðarhlíð, Húnavatnssýslu., fyrri kona, - sem hann átti börn með - Ingibjörg d. 1816 Ólafsdóttir á Frostastöðum Jónssonar. Lofaður í Íslenskum æviskrám Páls Eggerts Ólasonar: ,,Vel…

    Hlusta
    BólstaðarhlíðFrostastaðir, Varmahlíð, Skagafirði
  94. 1749

    Á endanum tókst sig á því glöggva

    Íslands bestu sonum
    að betra væri að hengja og höggva
    heldur en drekkja konum.

    Vegna brota á Stóradómi frá 1564 um blóðskömm og dulsmál telur Einar Laxness í Íslands sögu I, bls. 102, að a.m.k. 18 konum hafi verið drekkt á Þingvöllum á tímabilinu 1618 til 1749. E.t.v. var fyrstu konu drekkt 1599 í…

  95. 1750Lag: Vorið góða, grænt og hlýtt

    Lesi fyrst og læri svo

    lýkst þá upp fyr'ir barni.
    Efst á Heklu eygjum tvo,
    Eggert þar og Bjarni.

    Kongl. rescripti um confirmationina, undirskrifað af L. Harboe í Skálholti 5. ágúst 1744, birt með Alþingisbók 1750, 509: ,,So að ungdómurinn megi uppvekjast til að vilja læra með kostgæfni að lesa á bók, þá viljum vér…

    Hlusta
    FermingHeklaAC Milan
  96. 1750Lag: Langt fyrir utan ystu skóga

    Fyllt hefur ekki fjórða tuginn

    fógeti íslenskur settur nýr
    ekkert vantar upp á duginn
    aldrei Skúli af hólmi flýr.
    1 erindi til viðbótar

    Saga frá Skagfirðingum I, 81: ,,Skúli fékk veitingarbréf frá konungi fyrir landfógetaembættinu ...og skorti vetur á fertugan. Má af því marka hve mikinn byr hann hafði, þar sem honum skyldi slíkt veitt vera mitt í því…

    Hlusta
    Skúli Magnússon fógeti
  97. 1750

    Bach í ár þótt yrði nár

    aftur lykjust hlustir, brár
    orgels enn er kóngur klár
    og keisari um aldir þrjár.

    Johann Sebastian Bach (1685-1750) https://www.youtube.com/watch?v=ZK6-x9sdEYo https://www.youtube.com/watch?v=sinmdNkTad0

  98. 1751Lag: 10 litlir negrastrákar

    Til Innréttinga aflað viðu,

    allt að Skúla ráði
    en hinum megin við hornið biðu
    harðindi og kláði.
    1 erindi til viðbótar

    Stjórn Innréttinganna kosin um þingtímann. Hlutafé 1550 rd. Stjórnin beðin um 6.000 rd. fjárveitingu, en kóngur ákvað 10.000 rd. árlega í 6 ár og sjöunda árið sömu fjárhæð, en þá kallað lán. Full starfsemi hófst að ári.…

    Hlusta
    Skúli Magnússon fógeti, forstjóri InnréttingaAðalstræti 10 - InnréttingarnarFriðrik 5. kóngur+1
  99. 1751

    Pater noster Páll ei las

    prestur utan gátta
    Högna þótti hafa fas
    hér þótt skenkti sér í glas
    hann var einn af átta.

    Sr. Páll (1719-1805) var dæmdur frá embætti 1751 fyrir að fara ekki með ,,Faðir vor” yfir víninu, en fékk Torfastaði ári síðar. Hann var einn 8 prestsvígðra sona Högna Sigurðssonar, prests á Breiðabólstað, Fljhl. og…

    Hlusta
    Prestur - óviðkomandi sr. Páli
  100. 1751Lag: Veik er mundin - Bj.Þ. 915

    Laga- varðar lítt um staf

    þann lesti fremur
    hendur dæmdu og höfuð af
    hrottum þremur.
    1 erindi til viðbótar

    Ísl. annálar VI, Djáknaannáll, bls. 79: ,,...þrír morðingjar voru eftir dómi á extra lögþingi réttaðir í Möðrufellshrauni í Eyjafirði og þeim afhöggvin önnur höndin og höfuðið. Þeir bjuggust vel til dauðans”. Lýsing á…

    Hlusta
    +1